Morgunblaðið - 07.07.1992, Side 19
og Guðrúnar Sigurðardóttur. Hann
bjó mestan hluta ævi sinnar í Ás-
garði í Reykjavík og starfaði sem
leigubílstjóri í hartnær hálfa öld.
Heimili ömmu og afa í Ásgarðin-
um hefur alltaf skipað sérstakan
sess í huga mínum, þar bjó ég í
nokkra vetur, þar leið mér vel,
lærði margt og nýt góðs af. Þar
hef ég alltaf notið mikillar hlýju
og það var gott að leita til afa,
hann hellti upp á kaffí af sinni
nákvæmni, við fengum okkur bolla
og mikinn mola og röbbuðum sam-
an, já, þetta voru góðar stundir.
Myndin af afa, þar sem hann situr
hugsi í stólnum sínum með bók eða
blað í hönd og kveikir af og til í
pípunni sinni er skýr í huga mín-
um, mynd sem yljar, mynd sem
gott er að eiga.
Afí valdi ekki þá leið að ganga
langan menntaveg, hins vegar las
hann urmul bóka og úr þeim drakk
hann í sig mikinn fróðleik og marg-
víslegan, það var oft á tíðum ótrú-
legt hvaða hluti hann gat frætt
mann um.
Það er undarlegt hvað lítill at-
burður getur orðið að ljúfri minn-
ingu, en ávallt mun ég minnast
þess er ég sat m'eð afa á veröndini
á bústaðnum þeirra, Hraunprýði,
á 75. afmælisdegi hans. Það var
einstaklega fallegt veður og Þing-
vellir skörtuðu sínu fegursta. Afí
fræddi mig um fjöllin í hinum stór-
kostlega fjallahring Þingvalla og
rifjaði upp gamla tíma.
Þessi litla stund sem við áttum
þarna saman á veröndinni er mér
ákaflega kær. Þama leið afa vel,
hann ljómaði og þannig vii ég
muna hann.
Þar sem ég hef ekki tækifæri
til að fylgja afa síðasta spölinn
kveð ég hann með þessum fátæk-
legu orðum með þakklæti í huga
fyrir allt sem hann gerði fyrir mig
og allt sem hann var mér, minning-
in um mætan mann lifír.
Megi góðir andar styrkja ömmu
og aðra aðstandendur.
Guð blessi afa Sigurð.
Steinþór Kári.
Síðasta tækifærið í sumar!
lambakjöt á funheilu grilltilbodi • lambakjöt á funheitu grilltilboöi • lambakjöt á funheitu grilltilbobi • la mbakjöt á funheitu grilltilbodi
MEÐ MINNST 15% AFSLÆTTI
Kryddlegnar fram-
hryggjarsneiðar, rauð-
vínslegið lambalæri,
kryddlegnar grillsneið-
ar. Notíð tækifærið, ger-
ið kjarakaup
og setjið
lambakjöt á
funheitu
grilltilboði
— beint á
grillið.
lambakjöt á funheitu grilltilboði • lambahjöt á funheitu grilltilboði • lambakjöl á funheitu grilltilbodi • lambakjöt á funheitu grilltilboöi