Morgunblaðið - 07.07.1992, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992
21
Ákvörðun heildarafla:
Eðlilegt að bera ákvörðun
undir sjávarútvegsnefnd
- segir formaður nefndarinnar
MATTHÍAS Bjarnason, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, segir
að það sé sjálfsagt mál að sjávarútvegsráðherra beri ákvörðun sína
um heildarfiskafla á næsta ári undir nefndina. Kristinn Pétursson,
fyrrverandi þingmaður, sagði í Morgunblaðinu á laugardag að það
stangaðist líklega á við stjórnskipun iýðveldisins að Alþingi framseldi
sjávarútvegsráðherra vald til að ákveða heildarafla. Bæri ráðherra því
að vísa þeirri ákvörðun til sjávarútvegsnefndar þingsins, sem myndi
leggja tillögur sínar fyrir Alþingi.
Þorvarð-
*
urArna-
son látinn
ÞORVARÐUR Árnason, fyrrum
forstjóri, lést á Landspítalanum
1. júlí, 71 árs að aldri. Útför
hans verður gerð frá Kópavogs-
kirkju á morgun, miðvikudaginn
8. júlí.
Þorvarður fæddist á Hánefsstöð-
um við Seyðisfjörð 17. nóvember
1920. Hann stundaði nám í Eiða-
skóla, íþróttaskóla Jóns Þorsteins-
sonar og lauk prófi frá Samvinnu-
skólanum vorið 1943. Ennfremur
stundaði hann framhaldsnám í
verslunargreinum í Svíþjóð veturinn
1945-1946.
Að námi loknu starfaði Þorvarður
hjá Sambandi íslenskra samvinnu-
félaga en hóf síðar sjálfstæðan at-
vinnurekstur. Hann hafði um tíma
umboð fyrir alþjóðafyrirtækið Dairy
Queen og stofnaði fataverksmiðj-
una Sportver ásamt systur sinni,
Margréti. Síðar varð fyrirtækið
herrafataverksmiðjan Sportver og
Herrahúsið í Reykjavík.
Guðjón Kristbergsson, fram-
kvæmdastjóri, vildi ekki gefa upp
erindi fyrirtækisins við fólkið. Að-
spurður sagði hann að fyrirtækið
hefði ekki áður reynt að komast í
samband við fólk með þessum hætti
Þorvarður Árnason
Þorvarður keppti í íþróttum á
yngri árum og tók þátt í félagslífi
tengdu því. Hann sat í safnaðar-
nefnd Kópavogs og í sveitarstjórn
bæjarins eitt kjörtímabil. Þá var
hann einn af stofnendum Rótarý-
klúbbs Kópavogs og forseti klúbbs-
ins 1965-1966.
Eftirlifandi kona Þorvarðar er
Gyða Karlsdóttir. Þau hjónin eign-
uðust 5 börn.
en menn væru ánægðir með þau
viðbrögð sem auglýsingin hefði
fengið.
Aðspurður um miðilinn sem val-
inn hefði verið sagði Guðjón að
Morgunblaðið væri víðlesið blað.
„Ég skal ekki fullyrða um hvort
þetta stenzt stjórnskipunarlög eða
ekki. Það er ég ekki fær um að segja
til um,“ sagði Matthías Bjamason
er hann var inntur álits á ummælum
Læknar á Landspítalanum telja
að með uppsögnum sérfræðinganna
Ingólfs Sveinssonar og Matthíasar
Kjeld sé brotin 32. grein laga um
heilbrigðisþjónustu, en þar segir
meðal annars: „Læknaráð skal vera
stjórnendum til ráðuneytis um öll
læknisfræðileg atriði í rekstri sjúkra-
hússins og ber stjómendum að leita
álits læknaráðs um allt sem varðar
Kristins. „En mér finnst sjálfsagður
hlutur að í jafnveigamikilli ákvörðun
og sjávarútvegsráðherra verður að
taka, og sérstaklega vegna þeirrar
umfjöllunar og rökstuddu gagnrýni
læknisþjónustu sjúkrahússins.11
Læknar túlka þetta ákvæði svo
að skipan starfsliðs á sjúkrahúsinu
teljist varða læknisþjónustu þess.
„Þegar sagt er upp tveimur sérfræð-
ingum, sem gegna lykilstörfum við
spítalann, er það mál sem varðar
læknisþjónustu spítalans," sagði Ás-
mundur Brekkan í samtali við Morg-
unblaðið.
sem tillögur Hafrannsóknastofnunar
hafa fengið, beri ráðherrann þessar
tillögur undir sjávarútvegsnefnd Al-
þingis. Þar tek ég undir orð Kristins"
Matthías sagði að yrði haldinn
þingflokksfundur sjálfstæðismanna í
næstu viku myndi hann láta það
koma fram við Þorstein Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra að þetta væri hans
skoðun.
-----♦ ♦ ♦-----
Lúðrasveit
Reykjavíkur
sjötíu ára í dag
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur er 70
ára í dag, 7. júll. Sveitin var stofn-
uð sumarið 1992 og varð þessi
elsta starfandi lúðrasveit landsins
til við samruna tveggja lúðra-
sveita, sem störfuðu í Reykjavík
fram að þeim tíma, lúðrasveitirn-
ar Harpa og Gígja.
Strax við stofnun Lúðrasveitar
Reykjavíkur var hafist handa við að
reisa Hljómskálann og veturinn eftir
var leikið í skálanum í fyrsta sinn.
Síðan hefur Hljómskálinn verið að-
setur sveitarinnar.
Fyrsti stjómandi Lúðrasveitarinn-
ar var Otto Bötcher, en þremur ámm
síðar tók Páll ísólfsson við og stjórn-
aði sveitinni um áratug. Margir hafa
verið við stjórnvölinn síðan, en lengst
allra Páll P. Pálsson, 1949-1975.
Núverandi stjórnandi er Eiríkur
Stephensen, en formaður er Jón
Kristinn Snorrason.
Einstaklingar beðnir að
hafa samband við Lögþing
LÖGÞING hf., lögfræði- og innheimtuþjónusta, óskaði eftir því við
20 nafngreinda einstaklinga að þeir hefðu samband við fyrirtækið
í auglýsingu í Morgunblaðinu siðastliðinn sunnudag.
Landspítali:
Uppsögn læknanna
brýtur heilbrigðislög
- segir formaður læknaráðs
ÁSMUNDUR Brekkan, formaður læknaráðs Landspítalans, segir að
það brjóti í bága við ákvæði heilbrigðislaga að segja upp tveimur sér-
fræðingum spítalans, en það var gert á þriðjudag í seinustu viku.
Ósvikinn amerískur bílí
ÖRUGGUR
& AFLMIKILL
í Chevrolet Corsico LT fer
saman styrkur, öryggi og
hagstœtt verö.
Þessi rúmgóöi fjögurra
dyra lúxusvagn sameinar
kosti fjölskyldubíls og
sportbíls.
Hann er aflmikill, innrétting
vönduð og farþegarýmið
er sérstaklega styrkt.
Chevrolet Corsica LT er með öryggispúða í
stýrinu, sem blœs út við högg og veitir
bílstjóranum vernd.
Hann er með
diskabremsum með
ABS lœsivörn, sem
stóreykur öryggi,
einkum ef hemla
þarf ó hóium vegi.
Chevrolet Corsica er með hvarfakút, sem
er sjólfsagður mengunarvarnarbúnaður á
öllum nútímabílum.
Hann er sjálfskiptur, framhjóladrifinn og
hljóðlátur.
Verðið er ótrúlega hagstœtt fyrir alvöru
amerískan fólksbíl.
kr. 1.580.000 staðgr.*
* Skráning og ryðvörn eru innifalin í verði.
7% l$s 0(2'fq
HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK, SÍMI 634000 / 634050.