Morgunblaðið - 07.07.1992, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992 -- 31
Yinsælasti heims-
meistarinn látinn
___________Skák______________
Margeir Pétursson
MIKHAIL Tal, heimsmeistari
í skák frá 1960-61, lést 55 ára
að aldri hinn 28. júní sl. eftir
Iangvarandi heilsubrest. Tal var
einn frægasti og vinsælasti skák-
meistari þessarar aldar, hvass
og djarfur stíll hans markaði
tímamót í sögu skáklistarinnar.
Fyrir hann fékk hann snemma
viðurnefnið „töframaðurinn frá
Riga“. Hann tefldi alla tíð mikið,
meðal annars fimm sinnum á
íslandi og á hér marga aðdáend-
ur. Tal vegnaði ávallt vel hér á
landi, tapaði hér t.d. aðeins einni
kappskák. Hann sigraði á fyrsta
Reykjavíkurskákmótinu árið
1964 með yfirburðum, vann tólf
skákir og gerði aðeins eitt jafn-
tefli. Hann var ávallt afar vin-
samlegur í garð íslenskra skák-
manna.
Skjótur frami
Tal fæddist í Riga í Lettlandi
9. nóvember 1936. Hann fór að
tefla um 10 ára aldur og 16 ára
varð hann skákmeistari Lettlands.
Frami hans varð síðan afar hraður.
Árið 1955 sigraði hann í
undanrásariðli sovéska
meistaramótsins og í frumraun
sinni í úrslitum þess árið eftir náði
hann 5-7. sæti. Árið 1957 varð
hann síðan skákmeistari Sovétríkj-
anna í fyrsta skipti. Sama ár kom
hann fyrst hingað til Reykjavíkur
á heimsmeistaramót stúdenta og
náði langbestum árangri á fyrsta
borði, 8V2 v. af 10 mögulegum.
Ævintýralegar sögur ganga af Tal
á þvi móti. Meðan á skákum stóð
tefldi hann hraðskákir í hliðarher-
bergi og vann samt nærri því alla.
Sigurganga Tals hélt áfram.
1958 sigraði hann aftur á sovéska
meistaramótinu og hóf síðan feril
sinn í heimsmeistarakeppninni með
yfirburðasigri á millisvæðamótinu
í Portoroz. Árið eftir sigraði hann
á áskorendamótinu, sem einnig var
háð í Júgóslavíu og vann þar með
áskorunarréttinn á Botvinnik
heimsmeistara. Hann náði snemma
forystunni í einvíginu og Botvinnik
tókst aldrei að jafna. Lokatölurnar
urðu 12'/2—8V2.
Veikindi segja til sín
Botvinnik hafði komið ár sinni
svo vel fyrir borð hjá FIDE að
hann hafði tryggt sér rétt á nýju
einvígi ef hann tapaði og árið 1961
var Tal ekki nægilega vel á verði.
Öllum á óvart náði Botvinnik að
endurheimta titilinn frá sér 25
árum yngri manni. Um þetta leyti
veiktist Tal af nýrnasjúkdómi og
heilsuleysi fylgdi honum allar götur
eftir það.
Tal varð að hætta keppni á
áskorendamótinu í Curacao 1962.
Hann náði síðan oft frábærum ár-
angri á mótum, en tókst ekki að
tefla af fullum styrkleika í einvígj-
um. 1964 sigraði hann ásamt Lars-
en, Smyslov og Spassky á milli-
svæðamótinu í Amsterdam. Þá var
byrjað að heyja áskorendakeppnina
með einvígjum og hann byrjaði á
að slá þá Portisch og Larsen út,
en tapaði í úrslitum fyrir Spassky.
í næstu keppni árið 1968 sló hann
fyrst Gligoric út en tapaði síðan
naumlega fyrir Kortsnoj, sem hon-
um gekk ávallt illa gegn.
Eftir þetta fóru í hönd fremur
mögur ár hjá Tal. Árið 1973 vann
hann glæsta sigra á öflugum mgt-
um, en á millisvæðamótinu í Len-
ingrad var hann ekki svipur hjá
sjón. Það var síðan ekki fyrr en
1979, þá 44 ára að hann blómstr-
aði aftur sem skákmaður. Þá sigr-
aði hann fyrst á stórmótinu í Mont-
real ásamt Karpov og síðan með
miklum yfirburðum á millisvæða-
mótinu í Riga. Hann varð þá þriðji
skákmaðurinn í sögunni til að rjúfa
2.700 skákstigamúrinn, á eftir
þeim Fischer og Karpov, og var
næststigahæsti skákmaður heims.
Vonbrigði aðdáenda hans urðu
mikil er hann tapaði illa fyrir hinum
þaulreynda einvígismanni Lev Pol-
ugajevskí í fyrstu umferð ágkor-
endakeppninnar 1980. Tal hrapaði
síðan niður aftur í stigum, en náði
sér þó fljótlega á strik aftur.
Hann hélt sér í hópi fremstu
skákmanna heims á níunda ára-
tugnum og árangur hans var jafn-
ari og betri en árin þar á undan.
Taflmennskan var heldur ekki eins
glæfraleg og áður. Hann gætti sín
nú yfirleitt á því að hafa jafntefli
í hendi sér, en ef andstæðingurinn
hélt ekki vöku sinni dundu á honum
snilldarlegar atlögur.
Hann varð þriðji á millisvæða-
mótinu í Taxco 1985 og komst á
áskorendamótið í Montpellier sama
ár og varð þar í fjórða sæti ásamt
Timman. Þeir tefldu einvígi sem
lauk með jafntefli en Hollendingur-
inn komst áfram vegna hagstæðari
stiga.
I heimsbikarkeppninni 1988-
1989 varð Tal 13. sæti af 25 kepp-
endum og munaði mestu um góðan
árangur hans hér í Reykjavík, er
hann varð í þriðja sæti á eftir
Kasparov og Beljavskí. Þrátt fyrir
slæma heilsu tók hann þátt í mörg-
um mótum síðustu tvö árin, skák-
listin var hans líf og yndi.
Löng afrekaskrá
Tal varð sex sinnum skákmeist-
ari Sovétríkjanna, síðast 1978.
Hann hlaut átta sinnum gull á
Ólympíumóti í liði Sovétríkjanna á
árunum 1958-1982. Auk þeirra
afreka sem þegar hafa verið talin
sigraði Tal á eftirtöldum alþjóða-
mótum: Ziirich 1959, Bled 1961,
Miskolc 1963, Hastings, Reykjavík
og Kislovodsk 1964, Palma de
Mallorca og Sarajevo 1966, Gori
1968, Tbilisi 1969, Tallinn 1971,
Sukhumi 1972, Wijk aan Zee,
Tallinn, Dubna og Sochi 1973,
Hastings 1974, Leningrad 1977,
Montreal og Malaga 1979, Lvov
1981, Moskvu, Köln—Porz, Erevan
og Sochi 1982, Tallinn 1983,
Albena 1984, Jurmala 1985, Berlín
1986, Jurmala 1987, hann sigraði
Timman í einvígi í Hilversum 1988,
3‘/2-2‘/2.
Heimsmeistari í hraðskák
Tal var stórkostlegur hraðskák-
maður, fæstir andstæðinga hans
réðu við allar þær gildrur og vanda-
mál sem hann náði að leggja fyrir
þá á aðeins fimm mínútum. Hann
var fyrsti og reyndar eini opinberi
heimsmeistari FIDE í hraðskák, en
þann titil vann hann í Kanada
1988. Á meðal keppenda voru
bæði Kasparov og Karpov. Hér á
íslandi vann hann glæsilegan sigur
á eftirminnilegu hraðskákmóti í
Búnaðarbankanum 1986 þar sem
tefldu allir bestu skákmenn
landsins og nokkrir erlendir. Aðeins
mánuði fyrir andlát sitt tók Tal
þátt í geysisterku hraðskákmóti í
Moskvu og varð þar í þriðja sæti
á eftir þeim Kasparov og Bareev,
en á undan Dolmatov og
Vyzmanavin, sem báðir voru í
Ólympíuliði Rússa í Manila.
Tal var skráður til leiks í Iið
Lettlands á ólympíumótinu en veik-
indin hömluðu för hans. Síðustu
árin dvaldi hann langdvölum í ísra-
el og tefldi á mótum þar, en hann
var gyðingur. Hann var frægur
fyrir stálminni sitt og gat jafnvel
rifjað upp margra ára gamlar
óskráðar hraðskákir.
Tal var bókmenntafræðingur að
mennt og ritaði mikið um skák.
Frægasta bók hans, um heims-
meistaraeinvígið við Botvinnik
1960, hefur komið út á íslensku í
þýðingu Braga Halldórssonar.
Tal var vinsæll á meðal keppi-
nauta sinna, enda hreykti hann sér
ekki hátt á kostnað þeirra. Sem
dæmi má nefna að eftir að Friðrik
Ólafsson vann hann glæsilega í
aðeins 25 leikjum á móti í Las
Palmas 1975 var það Tal sem hélt
skákinni manna mest á lofti og
hrósaði Friðrik fyrir taflmennsk-
una. Hann gerði sér líka far um
að halda sér utan við deitur og
flokkadrætti.
Því miður gætti Tal lítt að heilsu
sinni fyrr en í óefni var komið.
Hann var stórreykingamaður alla
ævi og með reglusamara líferni
hefði snilld hans vafalaust notið sín
ennþá betur.
Eina snaggaralegustu fórnar-
skák sína tefldi Tal á millisvæða-
mótinu í Amsterdam 1964 við búl-
garskan stórmeistara:
Hvítt: Mikhail Tal
Svart: Georgi Tringov
Tískuvöm
1. e4 - g6 2. d4 - Bg7 3. Rc3
- d6 4. Rf3 - c6 5. Bg5 - Db6
6. Dd2 - Dxb2 7. Hbl - Da3
8. Bc4 - Da5 9. 0-0 - e6 10.
Hfel - a6 11. Bf4 - e5 12. dxe5
— dxe5
13. Dd6!! - Dxc3 14. Hedl -
Rd7 15. Bxf7+ - Kxf7 16. Rg5+
— Ke8 17. De6+ og svartur gafst
upp, því hann er mát eftir 17. —
Kd8 18. Rf7+ - Kc7 19. Dd6.
Fyrir sigur sinn á Jóhanni Hjart-
arsyni á IBM-skákmótinu í Reykja-
vík fékk Tal verðlaun hins virta
skákrits Informators fyrir best
tefldu skákina á fyrri helmingi árs-
ins 1987. Ekki í eina skiptið sem
hann hlaut þau! Þessa skák vinnur
hann glæsilega, án þess að and-
stæðingnum verði án nein sláandi
mistök:
Hvítt: Mikhail Tal
Svart: Jóhann Hjartarson
Spánski leikurinn
4. e4 — e5 2. Rf3 — Rc6 3. Bb5
- a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Be7
6. Hel - b5 7. Bb3 - 0-0 8. c3
- d6 9. h3 - Ra5 10. Bc2 - c5
11. d4 - Dc7 12. Rbd2 - Bd7
13. Rfl — cxd4 14. cxd4 — Hac8
15. Re3 - Rc6 16. d5 - Rb4 17.
Bbl - a5 18. a3 - Ra6 19. b4 -
g6 20. Bd2 — axb4 21. axb4 —
Db7 22. Bd3!
Endurbót Tals á fyrri tafl-
mennsku í stöðunni. Áður var leik-
ið 22. Rh2.
22. - Rc7 23. Rc2! - Rh5 24.
Be3 - Ha8 25. Dd2 - Hxal 26.
Rxal! - f5 27. Bh6 - Rg7 28.
Rb3 - f4 29. Ra5 - Db6 30. Hcl
- Ha8 31. Dc2 - Rce8 32. Db3
- Bf6 33. Rc6 - Rh5 34. Db2 -
Bg7 35. Bxg7 - Kxg7?!
Eftir á að hyggja var 35. —
Rhxg7 betra, en það var erfitt að
sjá fyrir svar Tals:
36.Hc5!! - Da6 37. Hxb5 - Rc7
38. Hb8! - Dxd3 39. Rcxe5! -
Ddl+ 40. Kh2 - Hal 41. Rg4+!
- Kf7 42. Rh6+ - Ke7 43. Rg8+
og svartur gafst upp.
Kjörvari og Þekjukjörvari
— kjörin viðarvöm utanhúss
Þurfir þú að mála við utanhúss, hvort sem um er að ræða sumarhús, glugga eða
grindverk, þarftu fyrst að ákveða hvers konar áfcrð þú óskar eftir. Sé ætlunin að halda
viðaráferðinni skalt þú nota Kjörvara sem er gegnsæ viðarvörn og til í mismunandi
litum. Ein til þrjár umferðir nægja, allt eftir ástandi viðar.
Kjósir þú aftur á móti hálfhyljandi áferð, sem gefur viðnum lit án þess að viðarmynstrið
glatist, mælum við með Þekjukjör-
vara sem einnig fæst í mörgum litum.
Tvær umferðir eru í flestum tilvikum
nóg. Sé viðurinn rnjög gljúpur skal
grunna hann fyrst með þynntum glær-
um Kjörvara og mála síðan yfir með
Þekjukjörvara.
Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er
ímálninglt
- það segir sig sjálft -