Morgunblaðið - 19.07.1992, Qupperneq 36
Hraðari póstsendingor
milli landshluta
KJÖRBÓK
Landsbanki
íslands
i Banki allra landsmanna
MORGUNBLAÐID, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI85
SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Þyrla sótti
slasaðan
ökumann
—Landhelgisgæslunni barst
beiðni um aðstoð frá Hólmavík á
laugardagsmorgun og var þyrla
LHG send norður til að ná í slasað-
an ökumann. Fór þyrlan í loftið
rétt eftir klukkan 10 og kom með
manninn á Borgarspítalann.
Maðurinn lenti í umferðarslysi
skammt norðan við Hólmavík og
hlaut alvarlega höfuðáverka svo
gripið var til þess ráðs að fá þyrluna
til að flytja hann suður.
íbíó 1991
ALLS fóru 1.337.158 manns í bíó
á síðasta ári samkvæmt tölum frá
Hagstofu íslands og er það mesta
„aðsókn í 6 ár eða frá 1985 þegar
1.418.158 sóttu kvikmyndahúsin.
Aðsókn fór minnkandi á árunum
1986 til 1988 en árið eftir kom kipp-
ur í hana og hefur aðsóknin farið
vaxandi síðan. Aukning milli áranna
1990 og 1991 er rúm átta prósent.
Sjá nánar bls. 10C
Metaðsóku
I SMABA TAHOFNINNI
Morgunblaoio/Arni bæberg
Þjóðhagsstofnun metur þjóðhagsleg áhrif mismunandi þorskafla:
Tillögur Hafrannsóknar fela
í sér 2,9% hagvöxt frá 1996
Meðalhagvöxtur 0,9% árin 1993-1999 standi þorskstofninn í stað
Sophia fékk
ekki að hitta
dætur sínar
SOPHIA Hansen fékk ekki að
hitta dætur sínar tvær í Istanbul
í Tyrklandi í gær þrátt fyrir úr-
skurð dómstóls um að hún ætti
að fá að hitta þær annan hvern
laugardag.
Mál Sophiu Hansen verður tekið
til dómsmeðferðar í Istanbul í haust.
Fyrr í sumar úrskurðaði dómstóll í
borginni að fram til þess tíma ætti
hún að fá að hitta dætur sínar 1. og
^3. laugardag hvers mánaðar. Faðir
telpnanna hefur hins vegar aldrei
komið með þær til fundar við Sophiu
og er talið að hann hafi dvalist með
þær í heimabyggð sinni í Kúrdistan.
Nefndin gerir tillögur um að tekj-
ur til að mæta kostnaði við yfirtöku
þessara málaflokka verði fengnar
með því að hækka útsvar úr 7,05%
■’-^ í 16,57% sem samsvarar 21,5 millj-
örðum króna í auknar tekjur auk
samsvarandi lækkunar tekna ríkis-
ins. Auk þessarar tilfærslu úr fjár-
lögum er gert ráð fyrir að þar sem
um gerð þjóðvega í þéttbýli sé að
ræða falli tiltekinn hlutur af bens-
ínsgjaldi sveitarfélögunum í skaut.
Tillögurnar verða kynntar sveit-
""Tarstjómarmönnum og öðrum
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN hefur, að
beiðni sjávarútvegsráðherra,
reiknað út þjóðhagsleg áhrif mis-
munandi þorskafla á næstu
stjórnvöldum á næstunni.
Sveinn Andri segir að tillögumar
gangi efnislega út á það að verk-
efni sem kalla megi svæðisbundin
verði færð til svæðisbundins stjórn-
sýslustigs, þ.e. sveitarfélaganna.
„Það er mat nefndarinnar að al-
mannafé sé betur varið í höndum
þeirra aðila sem séu í nálægð við
fólkið sem notfæri sér þjónustuna.
Auk þess sem nálægð þeirra aðila
sem taka ákvarðanir um fjárveit-
ingar og verkefni sé líklegri til að
leiða til skynsamlegri niðurstaðna
árum. Sett eru upp þijú dæmi:
Að farið sé í fyrsta lagi að tillög-
um Alþjóðahafrannsóknaráðsins,
í öðru lagi að tillögum Hafrann-
í þessum málum,“ segir hann.
í stefnuskrá ríkisstjómarinnar er
gert ráð fyrir tilflutningi verkefna
frá ríki til sveitarfélaga og er nú
starfandi nefnd á vegum beggja
aðila til að endurskoða verkaskipta-
lögin. Sveinn Andri segir að tillögur
starfshópSins gangi nokkuð lengra
en gert sé ráð fyrir í stefnuskrá
ríkisstjórnarinnar. „Því er ekki að
leyna að meðal sveitarstjómar-
manna hefur verið uppi skoðana-
munur um það í hve miklu magni
ætti að færa verkefni til sveitarfé-
laganna. Stærri sveitarfélögin vilja
aukin verkefni en þau minni síður.
Náist ekki samstaða meðal þeirra
um að sækjast eftir verkefnum er
hins vegar Ijóst að stærri sveitarfé-
lögin, eins og á höfuðborgarsvæð-
inu, hljóta að óska eftir því að þeim
verði veitt ákveðin sérstaða varð-
andi verkefni," segir Sveinn Andri.
Sjá frétt á bls. 19 C
sóknastofnunar og í þriðja lagi
að þorskstofninn standi í stað.
Kemst Þjóðhagsstofnun að þeirri
niðurstöðu, að sé farið eftir
tveimur fyrst nefndu dæmunum
verði hagvöxtur að meðaltali
1,5% árin 1993-1999 og 2,9% að
meðaltali 1996-1999. í þriðja
dæminu yrði meðalhagvöxtur
0,9% á þessu tímabili. Árið 1999
yrði landsframleiðslan 4% minni
ef þorskstofninn stendur í stað
en ef þorskaflinn er skertur á 1
næsta ári.
1 útreikningum sínum gerir Þjóð-
hagsstofnun ráð fyrir að öðrum
afla en þorski sé haldið föstum frá
1993, að öðrum stærðum, svo sem
verði á erlendum mörkuðum, hag-
vexti og vöxtum erlendis sé einnig
haldið föstum og að gengi og laun
séu óbreytt milli dæma.
Hvað þróun viðskiptajafnaðar
varðar kemur fram að viðskipta-
halli er mestur í upphafi í fyrstu
tveimur dæmunum en breytist síðan
ár frá ári til batnaðar og er horfinn
í lok tímabilsins. Standi þorskstofn-
inn hinsvegar í stað verður nokkuð
stöðugur 2-2,5% viðskiptahalli mið-
að við landsframleiðslu.
Erlendar skuldir eru framreikn-
aðar beint út frá viðskiptahallanum.
í fyrstu tveimur dæmunum fer
skuldahlutfallið hæst í um 58% af
landsframleiðslu árin 1995-96 en
lækkar síðan niður í 53% í lokin. í
þriðja dæminu vex skuldahlutfallið
hinsvegar smám saman og er kom-
ið í 57% í lokin.
Dæmi 1 og 2 byggja á því að
þorskafli verði takmarkaður til að
styrkja_ hrygningar- og veiðistofn-
inn. í framhaldi telur Haf-
rannsóknastofnun unnt að auka
veiðarnar smám saman í 345 þús-
und tonn á ári. í dæmi 3 er hinsveg-
ar reiknað með að þorskafli verði
takmarkaður við jafnstöðuafla mið-
að við núverandi hrygningar- og
veiðistofn. í þessu felst að aflinn
verði um 220 þúsund tonn á ári og
kyrrstaða ríki í stofninum.
Sjá nánar á bls. 22
Laxá í Aðaldal:
Straumand-
arungií
magaurriða
Straumandarungi fannst í
maga 5 punda urriða, sem
veiddist á urriðasvæðinu í
Laxá í Aðaldal í gær. Urrið-
inn hafði gleypt ungann í
heilu lagi og var hann búinn
að melta hann að hluta til.
Eingöngu er heimilt að veiða
á flugu á þessu svæði og hafði
veiðimaðurinn rétt kastað út
flugunni á veiðistað sem heitir
Sogið þegar síli beit á. Þegar
reynt var að hrista sílið af kom
í ljós að urriðinn hafði gleypt
sílið og fluguna. Flugan hét
Slátrarinn og var númer 10.
Tillögur Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu:
Verkefni upp á 21,5 milljarð
flutt frá ríki til sveitarfélaga
Hlutur ótsvars hækki en tekjuskattur lækki
1TILLÖGUM nefndar á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga er gert
ráð fyrír að sveitarfélögin taki yfir málefni grunnskóla, framhalds-
skóla, sjúkrahúsa annarra en ríkisspitala, heilsugæslustöðva, málefni
aldraðra og fatlaðra svo og hafnamál, kostnað við almenna lög-
gæslu og þjóðvegi í þéttbýli. Að sögn Sveins Andra Sveinssonar,
formanns SSH, er markmiðið með tillögunum að auka vægi og sjálf-
stæði sveitarfélaga og skilja betur að, en gert sé I dag, verkefni
ríkis og sveitarfélaga.