Morgunblaðið - 14.08.1992, Síða 1
64 SIÐUR B/C/D
182. tbl. 80. árg. FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
• •
Oryggisráð SÞ heimilar
hernaðaríhlutun í Bosníu
Mannfall
í miðri
Kabúl
Sarajevo, Genf, Sameinuðu þjóðunum, Ró
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gærkvöldi að
heimila hernaðaríhlutun í Bosn-
íu-Herzegovínu ef nauðsyn
krefði til að tryggja að hægt
yrði að koma hjálpargögnum til
nauðstaddra íbúa landsins. Al-
þjóðaráð Rauða krossins í Genf
sagði í gær að múslimar, Króatar
og Serbar hefðu allir gerst sekir
um „skipuleg grimmdarverk“ á
saklausum borgurum og brotið
Genfar-sáttmálann.
Tólf af ríkjunum fimmtán, sem
eiga sseti í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna, greiddu atkvæði með
ályktun sem heimilar hernaðarí-
hlutun í Bosníu. Þtjú ríki, Kína,
Indland og Zimbabwe, sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna. Hins vegar var
samþykkt samhljóða ályktun þar
sem þess er krafist að Rauði kross-
inn fái aðgang að fangabúðum í
öllum fyrrverandi lýðveldum Júgó-
slavíu.
Embættismenn Alþjóðaráðs
Rauða krossins sögðu í gær að þeir
hefðu fengið loforð um að hafa eft-
irlit með öllum fangabúðum í Bosn-
íu. Tuttugu manna sveit á vegum
hjálparstofnunarinnar hefði þegar
vitjað 6.000 fanga sem eru í haldi
í þremur illræmdum búðum Serba.
Sveitin hefði séð dæmi þess að lið-
lega níræðu fólki væri haldið í búð-
unum.
Níu aðildarríki Vestur-Evrópu-
sambandsins höfnuðu í gær hug-
myndinni um viðamikla hernaðarí-
hlutun í Bosníu en voru hins vegar
hlynnt takmörkuðum hernaðarað-
gerðum til að tryggja að hægt yrði
að koma hjálpargögnum ti! nauð-
staddra.
Fram til þessa hafa Serbar eink-
um verið sakaðir um voðaverkin en
serbneskir leiðtogar hafa sagt að
þúsundir Serba hafi sætt illri með-
ferð múslima og Króata.
í skýrslu Alþjóðaráðs Rauða
krossins segir að múslimar, Króatar
og Serbar séu allir sekir um „þjóð-
ernishreinsanir", þ.e. að hafa flæmt
fólk af öðrum þjóðernum frá heim-
kynnum sínum til að skapa „þjóð-
ernislega hrein svæði“. „Alþjóðaráð
Rauða krossins hefur aflað sér upp-
lýsinga um að saklausir borgarar
hafi verið handteknir og sætt
ómannúðlegri meðferð,“ segir í
skýrslunni. „Barsmíðar, morð,
eignaupptökur og gíslatökur eru
aðeins lítill hluti af þeim aðferðum
sem beitt hefur verið og bijóta í
bága við alþjóðleg mannúðarlög."
Leyniskyttur skutu í gær á bíla-
lest Milans Panics, forsætisráðherra
Júgóslavíu, er hann var á leiðinni
frá flugvellinum í Sarajevo til höf-
uðstöðva friðargæsluliða Samein-
uðu þjóðanna í bosnísku höfuðborg-
inni. Bandaríkjamaður, starfsmað-
ur bandaríska sjónvarpsins ABC,
særðist í árásinni og lést síðar í
höfuðstöðvunum. Panic var á leið
til viðræðna við stjórnmálaleiðtoga
til að afla sér upplýsinga fyrir frið-
arráðstefnu á vegum Evrópubanda-
lagsins sem hefst í Brussel í dag.
t. Reuter.
Kabúl, Islamabad. Reuter.
BURHANUDDIN Rabbani, for-
seti Afganistans, sagði að hundr-
uð afganskra borgara hefðu beð-
ið bana í gær er skæruliðar
Gulbuddins Hekmatyars skutu
flugskeytum á miðborg Kabúl,
höfuðborg Afganistans, i einni
mannskæðustu árás á borgina
frá því harðir bardagar blossuðu
þar upp fyrir fimm dögum. Rúm-
lega 150 manns særðust í árás-
inni.
-f-% 0 x j i • * i * >c Keuter
Bratt lausir ur buðunum
Króatískir stríðsfangar fá hér að þvo fötin sín í fangabúðum í Bosníu. Þeim verður sleppt í dag í skiptum fyr-
ir serbneska fanga í mestu fangaskiptum Króata og Serba til þessa.
Mesta manntjónið varð vegna
klasaflugskeytis, en slík vopn valda
öflugri sprengingu en hefðbundin
flugskeyti. Sundurtætt lík og blóð-
pollar voru á víð og dreif á gang-
stéttum.
Gulbuddin Hekmatyar er heittrú-
aður leiðtogi skæruliðahreyfingar
sem nefnist Hezb-i-Islami. Hann
hefur neitað að binda enda á árás-
irnar á afgönsku höfuðborgina fyrr
en stjórn íslamskra skæruliðahreyf-
inga, sem tók við völdunum fyrir
þremur mánuðum, gangi að kröfum
hans um kosningar og brottvísun
hreyfingar Úzbeka, sem stuðlaði
að falli kommúnistastjórnarinnar.
Talsmaður Hezb-i-Islami sagði í
gær að hreyfingin myndi hætta
árásum á Kabúl í sólarhring til að
gefa útlendingum færi á að fara
þaðan ef stjórnin féllist á vopnahlé.
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti gerði í gær James Baker utan-
ríkisráðherra að skrifstofustjóra í Hvíta húsinu en þaðan á hann
að stjórna baráttu forsetans fyrir endurkjöri í forsetakosningun-
í nóvember næstkomandi.
Skipan Bakers er óvenjuleg sakir
þess að sjaldgæft er að menn í
æðstu stöðum taki við starfi sem
þeir hafa áður gegnt en hann var
fyrsti skrifstofustjóri Hvíta hússins
í forsetatíð Ronalds Reagans.
Sjá „Orðrómur um framhjá-
hald Bush...“ á bls. 18.
um
Ákvörðun Bush staðfestir þrálát-
an orðróm sem verið héfur á kreiki.
undanfarnar vikur. Baker tekur við
kosningastjórninni 23. ágúst og
Lawrence Eagleburger gegnir á
meðan embætti utanríkisráðherra
en hann hefur verið aðstoðarmaður
Bakers. Baker á þó áfram að stjórna
tilraunum Bandaríkjamanna til að
koma friðarsamningum í Miðaust-
urlöndum í höfn.
Bakers bíður erfitt hlutskipti því
samkvæmt skoðanakönnunum nýt-
ur Bill Clinton, frambjóðandi Demó-
krataflokksins, 26% meira fylgis en
forsetinn.
Bush hefur áður leitað til Bakers
þegar hann hefur átt á pólitískan
bratta að sækja og hefur utanríkis-
ráðherranum fráfarandi jafnan tek-
ist að bjarga málum.
Bush sagðist myndu leggja til
að fráfarandi skrifstofustjóri,
Samuel Skinner, taki við for-
mennsku í Repúblikanaflokknum,
sérstöku trúnaðarstarfi sem óskip-
að er í.
Reuter
Ber er hver
að baki...
James Baker tekur nú
við stjórn baráttu
Bush Bandaríkjafor-
seta fyrir endurkjöri.
Lawrence Eaglebur-
ger aðstoðarmaður
Bakers sest í stól ut-
anríkisráðherra fram
að kosningum.
Fyrrum málgagn kommúnista í krumlur auðvaldsins
Grikki kaupir Prövdu
Mnckvu ILiili; Tnlmn-unli
Moskvu. Daily Telegraph.
GRÍSKUR auðkýfingur hefur fest kaup á Prövdu,
dagbiaðinu sem Lenín stofnsetti og fyrrum mál-
gagni sovéska kommúnistaflokkins. Smán blaðsins
þykir alger, það hefur stært sig af að hvika ekki
frá upprunalegri stefnu sinni sem felst meðal
annars í að eignir ættjarðarinnar megi ekki lenda
í liöndum gráðugra auðvaldssinna.
Óvíst er hvort þessar björgunaraðgerðir á elleftu
stundu megna að koma í veg fyrir gjaldþrot Prövdu.
Af fjárskorti er blaðið aðeins gefið út þrisvar í viku
í minna en milljón eintökum, tíu sinnum smærra upp-
lagi en þegar hinn opinberi sannleikur var sá eini rétti.
Pravda hefur aldrei þótt trúverðug og mælirinn
fylltist í fyrra þegar blaðið studdi valdaránstilraun
harðlínumanna. I refsiskyni var útgáfa þess bönnuð
um tíma eftir að tilraunin fór út um þúfur og hinn
voldugi bakhjarl, kommúnistaflokkurinn, leystur upp.
Síðan hefur Pravda átt erfitt uppdráttar.
Baker kvaddnr til bjargar
Bush í kosningabaráttumii