Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992 íslenskt lögreglulið hjá New Scotland Yard Sagt frá heimsókn rannsóknarlögreglumanna á sögufrægar lögregluslóðir í London Þriðja grein Gestgjafarnir á föstudagskvöldinu, frú Hervör Jónasdóttir og Helgi Ágústsson sendiherra. Þarna má sjá, talið frá vinstri, dr. Gísla Guðjónsson sálfræðing, Bjarn- þór Aðalsteinsson formann FÍR og Guðmund Guðjónsson yfirlög- regluþjón í Reykjavík. eftir Gunnlaug Snævarr og Sigurgeir Sigmundsson Á sumardaginn fyrst sl. lagði hópur íslenskra rannsóknarlög- reglumanna upp í ferð til London. Ætlunin var að heimsækja Scot- land Yard og sjá þá frægu stofnun og nema af meisturunum. Hópur- inn kom á hótel sitt, Clifton Ford, sem mörgum íslendingum er kunn- ugt, að kvöldi þessa dags sem vek- ur ætíð vonir um betri tíð með blóm í haga og sæta langa sumar- daga eins og afmælisbarn ársins orðaði það. Snemma að morgni föstudags- ins var hópurinn saman kominn fyrir utan höfuðstöðvar Scotland Yard. Eins og sönnum rannsóknar- lögreglumönnum sæmir voru allir mættir löngu fyrir umtalaðan tíma. Stjákluðu menn fyrir utan þessa miklu byggingu og reyndu að sýn- ast gáfulegir á svip. Sást þar marg- ur Sherlock Holmes svipurinn því margir byijuðu á því að telja hæð- ir hússins. Var mér ekki grunlaust um að sumir teldu öruggara að sannreyna að allar hæðirnar væru á sínum stað, að engri hefði verið stolið um nóttina. Byggingin New Scotland Yard Undir traustri forustu formanns Félags íslenskra rannsóknarlög- reglumanna (FÍR), Bjarnþórs Að- alsteinssonar, var ráðist til inn- göngu í þetta fræga hús. Strax í anddyri urðu menn varir við nokkra öryggisgæslu, ekki síðri en á aðallögreglustöðinni við Hverfis- götu í Reykjavík. Fékk enginn að hreyfa sig fyrr en hann hafði skil- að af sér myndavélum og fengið gestapassa. Því er það svo að enga myndir af innviðum stofnunarinanr fylgja þessari grein. Allt var þetta gert af hinni mestu kurteisi og ljúf- mennsku eins og einkennir enska, og vonandi íslenska, lögregluþjóna. Hópnum var strax skipt og fór minn hópur í fingrafaradeild stofn- unarinnar og fengum við sögulegt yfirlit yfir starfsemi hennar og lit- um augum ýmislegt fróðlegt. (Var ekki laust við að sumir drægju ýsur þegar á leið enda getur sagn- fræði verið erfið í of stórum skömmtum.) Fengu menn þó nokkrar upplýsingar um hvernig þekktir glæpamenn höfðu reynt að villa um fyrir fingrafarasér- fræðingum með ýmsum kiækja- brögðum sem eðlilega verða ekki skýrð á þessum vettvangi. Höfðu sérfræðingamir safnað saman alls kyns myndum af afbrigðilegum mannshöndum og vakti það safn nokkra athygli viðstaddra. Tölvutækni við fingrafaragreiningu Þegar leið á morguninn fengum við að kynna okkur ýmiss konar tækni til fingarfaragreininga, ekki hvað síst tölvutækni. Þrátt fyrir að okkur þætti nokkuð um var fræðari okkar ekki ánægður með kerfið og sagði okkur að í undir- búningi væri að kaupa nýtt og fullkomnara kerfi. Hann benti á að tölvan væri ekki nákvæm og gæfi alltaf nokkuð marga mögu- leika, eða allt að 15 þó venjulega væri rétti aðilinn á meðal þeirra 5 fyrstu er tölvan gæfi upp. Þótt tölvutæknin gerði greinilega sitt gagn var ljóst að handavinnan var gífurlega mikil. Fingrafaradeildin náði yfir þijár hæðir í þessu húsi og hvarvetna mátti sjá fólk vinna að flokkunum og leitun að hinni einu réttu lausn. Athygli vakti það að þama voru lögreglumenn í minnihluta, það þykir of dýr lausn að hafa menntaða lögreglumenn í slíkri leit. Hins vegar var það lög- reglumaður, með fingrafarafræði sem sérgrein, sem endanlega gaf álit sitt á vinnu greiningarmann- anna og sendi greininguna til réttra aðila. Gífurlegt magn af fin- grafaraspjöldum hefur hlaðist upp hjá deildinni enda geta komið allt að 2.500 för inn á einum degi til flokkunar. Fannst manni ömggast að hnerra ekki mjög hastarlega því þá kynni aldagamalt ryk að fara á stjá. Þama mátti sjá rekka eftir rekka fulla af spjöldum með þessum alþekktu svörtum klessum sem, þrátt fyrir sakleysislegt yfir- bragð, hafa leyst hinar furðuleg- ustu gátur og leitt harðsvíruðustu glæpamenn inn fyrir rimlana eða frelsað þá frá innilokun og dómum. Upphaf fingrafararannsóknar í Bretlandi Þó hugmundin um fingraför, sem kennitákn, sé ævagömul var það ekki fyrr en á 17. öld að Bret- ar fóru að veita þeim athygli sem hugsanlegu hjálpargagni. Margs konar mistök ollu því að vart er hægt að tala um fingratöku, sem risið getur undir nafni, fyrr en undir síðustu aldamót. Þessi deild sem við höfðum verið að kynna okkur heitir National Identification Bureau. Hún skiptist í tvennt, þ.e. fingrafaradeild og gagnadeild, The National Fingerprints Office og The National Criminal Records Office. í þeirri síðarnefndu eru geymdar um fimm milljónir skráa á míkrófilmum. Hádegisverður lyá breskum Þá var komið að langþráðri stund, sjálfum hádegismatnum. Hans höfðu menn beðið lengi með óþreyju. Var okkur vísað inn í „Peelers restaurant“, sem var mun vistlegri en salur fyrir hina „óbreyttu". Sátu menn þar dijúgan tíma við snæðing hinna aðskiljan- legustu rétta. Verður það að segj- ast eins og er að ekki hækkaði ensk matargerðalist í áliti undirrlt- aðs. Á tímabili leit þetta heldur skelfilega út er menn uppgötvuðu að þeir ættu, samkvæmt dagskrá, að sitja að þessum snæðingi í nær þijá klukkutíma. Að sjálfsögðu var því bjargað við og við fengum meira að heyra og sjá. Þess má geta að í „Peelers restaurant“ voru nokkrir glerskáp- ar með alls kyns munum sem hafa borist New Scotland Yard frá lög- reglumönnum- og embættum í ýmsum löndum. Þar tóku árvökulir menn eftir íslenskri lögreglu- stjömu, en það sem vakti meiri athygli var bók eftir Þórð Kárason, fyrrverandi lögregiumann, sem þar var á góðum stað. Á forsíðu bókar- innar getur að líta Þórð í einkennis- búningi sínum, en heiti bókarinnar er Hjarðarfellsætt. Þórður er eins og margir vita margfróður um ættir Snæfellinga, en vafalaust telja flestir þeir sem þarna hafa borið bókina augum, að um sé að ræða einhvers konar fagbók lög- reglumanna, enda forsíðumyndin þess eðlis og tungumálið framandi. Stærsta stjórnstöð lögreglu í heiminum skoðuð Var nú farið með allan hópinn til að sýna okkur hvemig brugðist væri við þegar hringt er í neyð í númerið 999. Höfðu þeir komið sér upp nokkurs konar sýningarher- bergi og virtist Ijóst að þetta væri ekki fyrst heimsóknin sem þeir fengu. Það verður að segjast að þrátt fyrir alla þessa stærð og umfang löggæslunnar þá „fúnker- ar“ hún. (Leiðsögumaður okkar var ungur yfirmaður sem talaði afskaplega vonda ensku fyrir ís- lendinga og fór margt af því sem hann sagði fyrir ofan og neðan garð hjá undirrituðum.) Hann leiddi okkur um ganga og sýndi okkur tölvuherbergi og hjarta lög- reglunnar. Heyrðist manni að vandamálin væru svipuð og á ís- landi og höfðu ýmsir á orði að hitt og þetta væri um betra heima. Hvort það var bara stolt íslend- ingsins eða ekki er alveg víst að húsnæði er víðast betra hér heima og örugglega alls staðar betra loft. Fannst undirrituðum alveg ótrú- lega vont loft á þessum fræga stað enda góðu vanur úr Svarfaðardal og af Seltjarnarnesi. Var nú langt liðið á dag og tóku menn nú að tygja sig heim á hótel með alls kyns upplýsingar eftir fróðlega heimsókn. Enn sannaðist það fyrr undirrituðum að heima er best. Að kvöldi þessa heimsóknardags var félgasmönnum sýndur heiður af íslensku sendiherrahjónunum í London, Helga Ágústssyni og frú Hervöru Jónasdóttur, er þau buðu til móttöku í sendiráðinu. Þar mættu einnig þeir makar félags- manna sem brugðu sér með þessa ferð. Ferðalok FÍR bauð til kvöldverðar í veit- inga- og skemmtistaðnum Talk of London á sunnudagskvöldi, síðasta heimsóknardeginum. Þar var á boðstólum kvöldverður (sem var mun kræsilegri en hádegisverður- inn hjá New Scotland Yard) ásamt kabarettsýningu og söng sem féll í góðan jarðveg. Heiðursgestur FÍR þetta kvöld var sálfræðingurinn dr. Gísli Guð- jónsson, en hann hefur getið sér gott orð í Bretlandi og víðar fyrir störf sín á sviði réttarsálfræði. Störf Gísla við mál sem kennd eru við fjórmenningana frá Guildford og sexmenninganá frá Birming- ham hafa komið af stað miklum umræðum um breskt réttarfar og þarlend stjórnvöld vinna nú að endurskoðun á því. Þessir tíu menn voru dæmdir í lífstíðarfangelsi árið 1975, fyrir hryðjuverk, en hefur nú verið sleppt fijálsum eftir rétt- arhöld, þar sem rannsóknir Gísla vógu nógu þungt. Um þetta hefur verið fjallað í Morgunblaðinu, m.a. í viðtali við Gísla. Tvíburabróðir Gísla er Guð- mundur Guðjónsson yfirlögreglu- þjónn í Reykjavík, og að sjálfsögðu var hann með í þessari ferð. Gísli færði Félagi íslenskra rannsóknar- lögreglumanna að gjöf bók eftir sig, sem var þá nýútkomin. Bókin heitir á frummálinu „The psycho- logy of interrogations, confessions and testimony“, sem mætti kalla á íslensku „sálfræðileg einkenni yfirheyrslna, játninga og fram- burðar". FÍR hefur mikinn áhuga á að fá Gísla til íslands til að fræða íslenska rannsóknarlögreglumenn um viðfangsefni sín og rannsóknir. Gísli sýndi þeirri málaleitan mikinn áhuga og það er því mjög líklegt að næsta námsstefna snúist að mestu leyti um þetta efni. Það yrði þó ekki í fyrsta skipti sem hann fræddi íslenska rannsóknar- lögreglumenn því hann flutti erindi hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir nokkrum árum. Félag íslenskra rannsóknarlög- reglumanna vill þakka þeim aðilum sem veittu styrk til þessarar náms- og kynnisferðar. Það var ljúft að finna þann velvilja og skilning sem rannsóknarlögreglan á íslandi nýt- ur. Höfundar eru Gunnlaugur Snævarr og Sigurgeir Sigmundsson, fclagnr í FIR■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.