Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992 Pablo Escobar ákærð- ur í Bandaríkjunum EITURLYFJASMYGLARINN Pablo Escobar hefur verið ákærður í Bandaríkjunum fyrir að sprengja í loft upp kólumbíska farþegavél árið 1989 og drepa þannig alla sem um borð voru. Escobar og samsær- ismaður hans, Munos Mosquera, gætu hlotið dauðadóm ef máiið verð- ur rekið áfram fyrir bandarískum dómstólum. Ekkert hefur spurst til Escobars síðan hann slapp úr Envigada-fang- elsinu í Kólumbíu fyrir þrem vikum. Stjórnvöld þar hafa heitið sem nem- ur 84 milljónum ÍSK fyrir Escobar. Hinn 26 ára gamli leigumorðingi Mosquera situr hins vegar bak við lás og slá í alræmdu fangelsi í Illino- is. Hann var handtekinn í New York síðasta haust fyrir að villa á sér heimildir og dæmdur til sex ára fangavistar. Bandaríkin hafa lögsögu í máli kólumbísku farþegaþotunnar þar sem tveir Bandaríkjamenn voru um borð. Saksóknari í Brooklyn segir sprengjuna hafa verið ætlaða far- þega sem hugðist vitna gegn Esco- bar. Eldfjall á Venus Könnunarfarið Magellan sendi frá sér þessa litmynd af nafnlausu eldfjalli á óreglulegu sprungusvæði á Phoebe-svæðinu á Venus. Eldvirkni er mest á rauðu svæðunum en minni á þeim bláu. Tindurinn (blár) er í um 2ja kílómetra hæð. Svæðið á myndinni er um 587 kílómetrar á hvern kant. Asíuríki tortryggin í garð nýs fríverslimarbandalags Hong Kong, Brussel, Genf. Reuter. TORTRYGGNI gætti í viðbrögðum Asíuþjóða við samkomulagi stjórn- valda í Bandaríkjunum, Kanada og Mexikó um að rífa niður tolla- múra milli landanna og koma á einum markaði 350 milljóna manna. Viðbrögð embættismanna Evrópubandalagsins voru varfærnisleg, en þeir sögðu að slík fríverslunarbandalög væru af hinu góða svo fremi sem reglur Hins almenna samkomulags um tolla og viðskipti (GATT) væru virtar. Japanir óttast einkum að stofnun Fríverslunarbandalags Norður- Ameríku (NAFTA) verði til þess að reglum um tolla á bílainnflutning innan ríkjanna þriggja verði breytt. Samkvæmt núgildandi reglum í Bandaríkjunum og Kanada fá bíla- innflytjendur ekki tollaafslátt nema 50% framleiðslunnar fari fram inn- anlands. Japanskir bílaframleiðend- ur sögðust óttast að þetta hlutfall yrði hækkað. Embættismenn í Tókýó sögðu að stofnun NAFTA gæti orðið til þess að draga úr fjárfestingum Japana í Norður-Ameríku, einkum í Mexikó. Stjórnvöld í Mexikó hafa vonast eft- ir auknum fjárfestingum Japana í landinu vegna lágs launakostnaðar. Embættismenn í fátækari ríkjum Austur-Asíu sögðust hins vegar hafa áhyggjur af því að NAFTA leiddi til þess að bandarísk fyrirtæki kysu að fjárfesta í Mexikó frekar en í Asíu. Þetta gæti leitt til minnkandi hag- vaxtar í löndum eins og Singapore, Malasíu og Tælandi. Þá óttast stjórnvöld í Tælandi að Mexikómenn he§i framleiðslu á varningi sem Tælendingar flytja út til Bandaríkj- anna og Kanada. Tælenskur vefnað- ar- og fataiðnaður kunni því að standa frammi fyrir vaxandi sam- keppni frá Mexikó. „Evrópubandalagið fagnar ætíð stofnun fríverslunarbandalaga, svo fremi sem reglur GATT eru virtar,“ sagði embættismaður framkvæmda- stjórnar EB í Brussel. Arthur Dunkel, framkvæmda- stjóri GATT, sagði að grein 24 í GATT-samningnum heimilaði stofn- un fríverslunarbandalaga eins og NAFTA. „Samkvæmt kenningunum skapa slík bandalög nægilega mik- inn hagvöxt heima fyrir til að þau geti aukið innflutning frá öðrum ríkj- um,“ sagði annar embættismaður GATT, sem bætti við að þetta væri einmitt reynslan af Evrópubandalag- inu. Þjóðþing Bandaríkjanna, Kanada og Mexikó verða að staðfesta samn- inginn um fríverslunarbandalagið. Stefnt er að því að gera ríkin þijú að einum markaði í áföngum á 15 árum. Qrðrómur um framhjáhald Bush hleypir af stað fjölmiðlafári Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgnnblaðsins. ÓSTAÐFESTUR orðrómur, sem fréttamenn helstu fjölmiðla Banda- ríkjanna hafa árangurslaust leitað heimilda fyrir, er nú orðinn að fyrsta máli á dagskrá í sjónvarpsfréttum og forsíðumál í dagblöð- um þótt hann sé aðeins studdur orðum fyrrverandi sendiherra, sem nú er látinn. George Bush og kona hans, Barbara. Næsti forseti Bandaríkjanna verður maður, sem sakaður hefur verið um að hafa verið ótrúr í hjóna- bandi. Bandaríkjaforsetar hafa margir verið grunaðir um framhjá- hald. Frægast er sennilega dæmið um John F. Kennedy. Hins vegar var þegjandi samkomulag um að starfsskyldur fréttamanna næðu ekki til þess, sem gerðist í rúminu. Nú er öldin önnur. Draumur Garys Harts um Hvíta húsið varð að engu þegar blaðamenn gómuðu hann í næturheimsókn hjá Donnu nokkurri Rice á meðan eiginkonan svaf heima. Fjölmiðlar láta margir sem það sé þeim ekki að skapi að flytja fréttir af ástamálum frambjóðenda og stjórnmálamanna. En fáir skor- ast undan þegar á hólminn er kom- ið. Og sú var raunin þegar spjótin beindust loks opinberlega að George Bush, núverandi Banda- ríkjaforseta. Bush leyndi ekki hneykslan sinni þegar fréttakona frá sjónvarpsstöðinni CNN spurði á blaðamannafundi á þriðjudag hvort eitthvað væri hæft í forsíðufrétt dagblaðsins The New York Post þá um morguninn, að hann hefði í embætti varaforseta undir stjórn Reagans átt ástarfund með Jennifer Fitzgerald, starfsmanni hans um langt skeið, í Genf. Bush neitaði að svara, þar sem hann stóð við hlið forsætisráðherra ísraels, utan hvað orðrómurinn væri lygi. Bar- bara Bush, kona forsetans, sagði daginn eftir að spurningin væri fyr- irlitleg. En Bush var ekki sloppinn. Síðar sama dag var hann spurður í við- tali í skrifstofu sinni í Hvíta húsinu hvort hann hefði nokkru sinni hald- ið framhjá. Bush neitaði að svara og hneykslaðist á því að blaðamað- urinn skyldi gerast svo frakkur að spyija svona í helgustu véum for- setaembættisins. Bush slóst þar í hóp með Bill Clinton ríkisstjóra Arkansas, for- setafrarnbjóðanda demókrata. Clinton þurfti í forkosningum demó- krata að veijast ásökunum um framhjáhald sem næstum riðu framboði hans að fullu þegar kona að nafni Gennifer Flowers kom fram á sjónarsviðið og sagðist hafa verið í ástarsambandi með fram- bjóðandanum. Fylginautur Bush í fimmtán ár Orðrómur um Bush og Fitzgerald hefur verið á kreiki um nokkurt skeið og hvað sem hæft er í honum hefur hún fylgt fast á hæla honum hvert á land sem er. Hún starfaði í bandaríska sendiráðinu í Kína þegar Bush var sendiherra þar, var gerð að aðstoðarmanni í bandarísku leyniþjónustunni CIA þegar hann var yfirmaður hennar og varð að- stoðarmaður hans í embætti vara- forseta. Hún ferðaðist mikið með Bush seinna kjörtímabilið sem hann var varaforseti og þá á umræddur atburður að hafa átt sér stað. Hún var gerð að aðstoðarsiðameistara í utanríkisráðuneytinu þegar Bush varð forseti. Larry Sabato, prófessor í stjóm- málafræði þegar Bush varð forseti, hefur skrifað bók um það æði, sem virðist grípa fjölmiðla þegar vafa- samar sögur komast á kreik. Sab- ato segir að allt frá árinu 1981 hafi heyrst kvittir um Bush og Fitz- gerald og einnig aðrar konur. Merg- urinn málsins hjá Sabato er sá að fjöldi fréttamanna hafi reynt að fylgja þessum sögusögnum eftir, en aldrei haft erindi sem erfiði. Heimildirnar fyrir þessari frétt eru veikari en venja er þegar mál af þessu tagi komast í hámæli. Ein- hver sagði að munurinn á repúblik- önum og demókrötum væri ekki sá að hinir fyrrnefndu væru siðavand- ari en hinir síðarnefndu. Viðhöld lauslátra demókrata væru einfald- lega lausmálli en viðhöld lauslátra repúblikana. Gennifer Flowers rauk í blöðin og seldi sögu sína. Jennifer Fitzgerald er sögð erlendis og er ekki til viðtals. Það sem kom fjaðrafokinu af stað var neðanmálsgrein í nýútkominni bók eftir Susan B. Trenton, sem nefnist The Power House og fjallar um þrýstihópa í Washington. Þar er haft eftir Louis Fields, fyrrum sendiherra Bandaríkjanna á af- vopnunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Genf að hann hafi kom- ið því þannig fyrir að Fitzgerald og Bush hefðu samliggjandi svefn- herbegi í afviknum kofa þegar vara- fosetinn sótti ráðstefnuna árið 1984. Fitzgerald sá þá um að raða niður fundum Bush. „Mér varð ljóst að varaforsetinn(og aðstoðarmaður hans) áttu í ástarsambandi og að þessi heimsókn var ekki í viðskipta- erindum," er haft eftir Fields, sem lést árið 1988 og getur því ekki staðfest að rétt sé eftir sér haft. Repúblikanar voru ekki lengi að skella skuldinni á demókrata. „Þetta er lágkúra," sagði Torie Clarke, aðstoðarfjölmiðlafulltrúi í kosningaherbúðum Bush. „Menn Clintons hafa verið að breiða þetta út. Það er enginn vafí á því hvaðan þetta er komið.“ Aðstoðarmenn Clintons neita al- farið að hafa komið nálægt því að breiða þetta út. „Mér líkaði þetta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.