Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992 19 Nýjar upplýsingar um stofnanda Sovétríkjanna: Lenín var geðveikur síðasta árið og bana- meinið var sárasótt Missti öll tengsl við umheiminn og Stalín lét einangra hann á sveitasetri STOFNANDI Sovétríkjanna, Vladímír Ílítsj Úljanov, öðru nafni Lenín, var geðveikur og í engu sambandi við umheiminn síð- asta æviár sitt og hann lést ekki af ofþreytu vegna starfa sinna í þágu öreigabyltingarinnar. Banameinið var sárasótt, sýfilis. Var frá þessu skýrt í franska tímaritinu Figaro nú nýlega og af Lenín, sem ekki hafa áður birti það einnig tvær myndir komið fyrir almenningssjónir. Mesta goðið í hinum guðlausu Sovétríkjum var Lenín, léiðtogi hinnar „sigursælu októberbylt- ingar öreiganna", en frá því hann lést árið 1924 hefur smurð- ur líkami hans hvílt í grafhýsi á Rauða torginu í Moskvu. Þangað hafa komið milljónir manna frá öllum heimshornum til að líta föður sósíalismans augum og efla með sér byltingareldmóðinn. Nú þegar sovéska heimsveldið er hrunið og skjalasöfnin hafa opnast í hálfa gátt blasir hins vegar við dálítið önnur mynd. Með greininni í Figaro og mynd- unum, sem fylgdu, virðist sem helgisögnin um Lenín, hinn vinn- usama og sigursæla leiðtoga, sem hélt um stjórnvölinn allt til síðustu stundar, sé endanlega dauð. Myndirnar, sem voru ríkis- leyndarmál í Sovétríkjunum, voru teknar á sveitasetri Leníns í Gorkí árið 1923 og sýna geð- veikan mann, sem misst^ hefur öll tengsl við umheiminn. í skjöl- unum kemur fram, að Stalín lét einangra Lenín á sveitasetrinu og þegar hann hafði fengið heilablóðfall í mars 1923 var öllu lokið fyrir honum. Hingað til hefur opinbera skýringin á dauða Leníns verið sú, að hann hafi látist af æða- kölkun og ofþreytu. Nú kemur í ljós, að banameinið var sára- sótt en Stalín lét umsvifalaust drepa lækninn, sem kvað upp úrskurðinn. Að því búnu settist hann við að semja helgisögnina Lenín ásamt systur sinni, Maríu Úljanovu, og þýska taugalæknin- um Ochs. Myndin er tekin 1923. Firringin leynir sér ekki í ásjónu hans. um leiðtogann mikla, sem síðan hefur verið til sýnis í grafhýsinu á Rauða torginu. Myndirnar í Figaro svipta hulunni af enn einni goðsögn kommúnismans og vafalaust eiga margar athyglisverðar upp- lýsingar um menn og atburði í Sovétríkjunum eftir að koma fram á næstu árum. Sagnfræð- ingarnir munu ekki komast hjá því að umskrifa sögubækurnar. Bandaríkin: 70 herstöðvar lagðar niður Washington. Reuter. BANDARÍKJAMENN hyggjast leggja niður nærri 70 herstöðv- ar í Evrópu, fléstar í Þýska- landi. Þetta er áttunda hrina í lokunum bandarískra her- stöðva á tveimur árum og hefur áhrif á atvinnu um 7.700 manns. Vamarmálaráðuneytið í Wash- ington tilkynnti um lokanimar í gær. Bob Hall, talsmaður banda- ríska varnarmálaráðuneytisins, sagði að með þessum breytingum hefði umfang starfsemi í herstöðv- um utan Bandaríkjanna minnkað um næstum fjóra tíundu frá 1990. Ráðgert er að loka 28 stöðvum í Þýskalandi og skila þarlendum stjórnvöldum aðstöðunni. í Bret- landi verður níu stöðvum lokað, sex á Ítalíu, þremur í Tyrklandi og einni í Belgíu og Hollandi. Við stöðvarnar unnu 5.000 bandarísk- ir hermenn og 450 embættismenn auk 2.300 heimamanna. GOLFDUKARGOLFDUKARGOLFDUKARGOLFDUKARGOLFDUKAR Gólf búnaður I SfeUMÚlA U • SÍMl (91) 813022 GÓLFDÚKARGÓUFDÚKARGÓLFDÚKARGÓLFDÚKARGÓLFDÚKAR ekki þegar það var gert við mig og mér líkar það ekki þegar það er gert við hann,“ sagði Clinton. Þing- menn úr röðum demókrata létu hins vegar tvö dagblöð vita. Sabato segir að fjölmiðlar hafi brunnið í skinninu af löngun til að fjalla um þetta mál, meðal annars til að bæta upp fyrir árásimar á hendur Clinton. Dan Quayle vara- forseti gekk einu skrefi lengra á miðvikudag þegar hann sagði að fjölmiðlar, sem vildu eyðileggja fyr- ir Bush og hjálpa Clinton, stæðu að baki: „Sumir ykkar fjölmiðla- manna ættu að líta í spegil.“ Quayle sagði að góðu blaðamenn- irnir hefðu látið slæmu blaðamenn- ina hafa betur. Varaforsetinn var ekki jafn hörundsár þegar Clinton átti undir högg að sækja í vetur. Hann var spurður í janúar hver mörk sanngirninnar væru. „Þegar þú býður þig fram til forseta er ekkert heilagt,“ svaraði Quayle. „Kjósendur geta áttað sig sjálfir.“ Repúblikanar kveðast dyggðum prýddir málsvarar fjölskyldunnar. Bæði Bush og Quayle hamra á gildi fjölskyldunnar í kosningabaráttunni og fjölskyldan á eftir að verða eitt meginþema flokksþings repúblik- ana í næstu viku. Undir niðri er verið að ýja að því að andstæðingur Bush sé aftarlega á merinni hvað fjölskylduna varði. Clinton hafi ver- ið vændur um framhjáhald og nú saka repúblikanar Hillary, konu hans, um að líta á húsmóðurina sem þræl. Ásakanirnar á hendur Bush, hversu haldlitlar sem þær kunna að vera, setja hann á sama bás og Clinton. Bush og Quayle hafa reynt að gera sér mat úr einkalífi Clint- ons. Nú hefur Bush komist að því að fortíð hans er ekki heilög heldur. MALNING HF. KYNNIR INNIMALNINGU. 15% AFSLATTUR AF ALLRIMÁLNINGU AFSLATTUR GÓLFTEPPI15 - 35% AFSLÁTTUR GÓLFDÚKUR 15 - 40% AFSLÁTTUR CERAMICFLÍSAR 15 - 50% AFSLÁTTUR STÖK TEPPI 20% AFSLÁTTUR DÆMI: MONACO 160X230 KR. 7.880,- SHARA 160 X 230 KR. 4.632,- DREGLAR - MOTTUR - LÍM - SPARSL 0PIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10.00-13.00 VISA - EURO - SAMKORT RAÐVISA TIL 18 MÁNAÐA GRENSÁSVEG 18 • SÍMI 812444 jííttcc í JLibw&i fwí /úúL ttefan átuMt fayiyxtL éty, GÓLFDÚKARGÓLFDÚKARGÓLFDUKAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.