Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992 3 Lítil húsbréfakaup síðustu vikur: Lífeyrissj óðirnir eru markaðurinn - segir forstjóri Landsbréfa SKIPTAR skoðanir hafa verið milli lífeyrissjóðanna og forstöðu- manna verðbréfafyrirtækja á orsökum þess að ávöxtunarkrafa Húsbréfa hefur stigið úr 7,3% upp í 7,8% á aðeins þremur vikum. Verðbréfafyrirtækin vilja meina að hluti af skýringunni á að eftir- spurn sé í lágmarki sé sumarleyfi í lífeyrissjóðunum, en forstöðu- menn sjóðanna hafna þeirri skýringu. Gunnar Helgi Hálfdánarson forstjóri Landsbréfa segir að þróunin hafi verið sú að lífeyrissjóð- irnir eru markaðurinn fyrir húsbréf og það hafi reynst erfitt að ná sambandi við forstöðumenn sjóðanna, eða fá fram ákvarðanir um kaup á Húsbréfum yfir hásumarleyfatímann, sem að vísu er nú að Ijúka. Til að mynda urðu eignir lífeyrirs- sjóðanna á þessu ári meiri en heild- areignir innlánsstofnanna til sam- ans í landinu og eiga eftir að verða mun stærri en innlánsstofnanir á næstu árum. Þess vegna er spurn- ing hvort ekki sé komin tími til að sumir lífeyrirsjóðir taki til end- urskoðunar fyrirkomulag um töku sumarleyfa og kaup verðbréfa." Haldið upp á afmælið Morgunblaðið/KGA Kringlan heldur upp á fimm ára afmæli sitt þessa dagana og er gestum í verzlanamiðstöðinni því gert ýmislegt til skemmtunar. í gær voru meðal annars haldnir rokktónleikar á Kringlutorginu og flykktist fjöldi manns að til að hlusta. „Ég fer ekki af þeirri skoðun minni að sumarleyfi hafa spilað inn í dræma eftirspurn eftir húsbréf- um,“ segir Gúnnar Helgi. „En vissulega kann hluti af skýringunni að vera sá að sökum hins erfiða efnahagsástands og sumarleyfa almennt sé fjárstreymi mun hæg- ara nú í þjóðfélaginu, fyrirtæki skili iðgjöldum seinna til sjóðanna en áður og aðrar greiðslur berist seinna og fjárstreymið hjá sjóðun- um þv> af sama skapi minna stað- Samskip off J. Lauritzen ffera samstarfssamniner um Grænlandsflutninera hefur reynst að ná sambandi við marga forstöðumenn sjóðanna sökum sumarleyfa. Undantekning- ar eru síðan sjóðir eins og Lífeyris- sjóður verslunarmanna sem fylli- lega hefur haldið sínum dampi í kaupum á bréfunum.“ Sigurður B. Stefánsson fram- kvæmdastjóri Verðbréfamarkaðar íslandsbanka segir að skýring á dræmum húsbréfakaupum sé að hluta hægara fjárstreymi í þjóðfé- laginu yfir sumartímann sem valdi minni eftirsspurn eftir bréfunum. VIB er ekki stór viðskiptaaðili með 'húsbréf en Sigurður segir að eftir að ávöxtunarkrafan fór í 7,8% hafi dæmið snúist við hjá þeim og nú sé eftirspurnin eftir húsbréfum meiri en framboðið. Gunnar Helgi Hálfdánarson seg- ir einnig að eftirspum hafi glæðst aðeins í kjölfar þess að ávöxtunar- krafan fór í 7,8%. „Hvað sumar- leyfin varðar er það í sjálfu sér ekkert nýtt að kaup sumra lífeyris- sjóða minnka á þeim tíma,“ segir Gunnar Helgi. „Hinsvegar er það nýtt í stöðunni að hlutverk lífeyris- sjóðanna hefur aldrei verið meira á fjármagnsmarkaðinum en nú. Eykur tekjur Samskípa um 100-200 milljónir á ári SAMSKIP hf og danska skipafélagið J. Lauritzen, sem grænlenska landstjórnin hefur ákveðið að semja við um sjóflutninga til Græn- lands, hafa gert með sér rammasamning um samvinnu í Grænlandssigl- ingum, þar sem skip félagsins munu hafa reglubundna viðkomu í Reykjavík. Ómar Hl. Jóhannsson forstjóri Samskipa segir að miðað við forsendur samstarfssainningsins, um að heildarflutningar Samskipa fyrir Grænlendinga geti numið 2-4.000 gámaeiningum þegar gámavæð- ingu í Grænlandsflutningum hefur verið komið á innan tveggja ára, séu tekjur Samskipa af samstarfinu áætlaðar 100-200 milljónir króna á ári. Það séu svipaðar tekjur og af þeim flutningum fyrir Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli, sem félagið samdi nýlega um. Eins og fram kom í Morgunblaðinu afgreiðsluþjónustu hins danska í gær hefur grænlenska landstjórnin ákveðið að ganga tii samninga við J. Lauritzen um framtíðaruppbygg- ingu og rekstur sjóflutninga við Grænland. Samningur Samskipa og J. Lauritzen kveður, að því er fram kemur í frétt frá Samskipum, meðal annars á um að Samskip sjái um skipafélags á íslandi en í áformuðu siglingakerfi er reiknað með reglu- bundinni viðkomu skipa þess í Reykjavík á leið milli Grænlands og Danmerkur. Samskip munu taka að sér flutninga á ýmsum inn- og út- flutningsvörum Grænlendinga, með- al annars til og frá Ameríku, Eng- landi og meginlandi Evrópu og verð- ur umskipað í Reykjavík. Ómar Hl. Jóhannsson segir að fé- lagið vænti þess að ná fram aukinni hagkvæmni bæði hvað varðar aukna flutningatíðni í Grænlandssiglingum, og bætta nýtingn á skipum og flutn- ingamiðstöð félagsins við Holta- bakka. Ómar sagðist þó ekki að svo stöddu telja að samningurinn ætti að leiða til þess að félagið þyrfti að ráðast í fjárfestingar á sjó eða landi eða breyta áformum um endurnýjun skipastóls síns. Þessi samningur, samningar um Varnarliðsflutninga svo og 6% aukning flutninga félags- ins á fyrri hluta ársins, breytti því ekki að hann byggist við að reikning- ar félagsins fyrir fyrri hluta ársins yrðu gerðir upp með nokkru tapi. Borgin semur við fóstur og leikskólarýmum fjölgar um 150: Tvö þúsund böm verða á biðlista um mánaðamót Reykjavíkurborg hefur samið við fóstrur sem starfa á leikskólum borgarinnar um að taka upp ábataskiptakerfi, sem hefur í för með sér að leikskólarýmum fjölgar um 150 á leikskólum borgarinnar. Um er að ræða vistun á heilsdagsleikskólum og sagði Markús Örn Antonsson borgarstjóri, að fjölgunin næmi rúmlega einum skóla en nýrri leikskólar rúma um 109 börn. Fjölgun- inni hefur þegar verið deilt niður á leikskól- ana og innritun er hafin, en henni á að ljúka fyrir l. september. Gert er ráð fyrir að rúmlega 2.000 börn verði á. biðlista eftir leikskóla hjá Dagvist barna eftir 1. septem- ber, þar af eru rúmlega 1.150 2ja ára og eldri, sem bíða eftir hálfsdagsvist og um 850 börn einstæðra foreldrar og náms- manna bíða eftir heilsdagsvistun. Garðar Jóhannsson, skrifstofustjóri Dagvist- ar barna, sagði að samkomulag um ábata- skiptakerfí fæli í sér að leikskólarýmum verði fjölgað um 150 í fyrsta áfanga miðað við 1. janúar síðastliðinn og að þeim áfanga verði náð í september. í þau rými verða vistuð börn í heilsdagsvistun eða vistun i fjórar til sex klukkustundir, samkvæmt náhari útfærslu. Jafnframt er gert ráð fyrir, að starfsmönnum verði ekki fjölgað þannig að fóstrum verður veitt umbun fyrir að fjölga börnum. „Kerfið er ekki tilbúið en fóstrur munu fá launaupp- bót,“ sagði hann. Þá er gert ráð fyrir að öðrum áfanga fjölgunar verði náð fyrir lok samnings- tímans. „Ég tel þetta samkomulag mjög mikilsvert og ánægjulegt að það skuli hafa náðst,“ sagði Markús. „Það boðar betri nýtingu á húsrými sem þegar er fyrir hendi og dregur að sama skapi úr fjárfestingum hjá borginni." Á leikskól- um borgarinnar verða vistuð 3.176 börn í hálfs- dagsvist og um 1.366 í vistun allan daginn eftir 1. september næstkomandi. Á skóladag- heimilum verða 332 börn. Borgarstjóri sagði að allt benti til þess að ekki kæmi til erfiðleika vegna ráðninga starfs- fólks á leikskólanna að þessu sinni. „Um stöð- una almennt, þá var nýr leikskóli tekinn í notk- un í Húsahverfi í vor fyrir 109 börn,“ sagði Markús. „Verið er að ljúka framkvæmdum við Foldakot en það er skóladagheimili í Grafar- vogi. Þar verða 80 hálfsdagsrými en þar sem útlit er fyrir að börn á grunnskólaaldri í hverf- inu séu færri er verið að kanna hvort ekki megi nýta skóladagheimili sem leikskóla að hluta fyrir 42 börn.“ Þá hefur verið reist við- bygging fyrir 30 börn við Ægisborg við Ægis- íðu og kemur sú stækkun að hluta til í stað leikskólans í Valhöll, sem lagður hefur verið niður en í byggingu er nýr leikskóli Félagsstofn- unar stúdenta, þar sem gert er ráð fyrir 60 börnum. I Rimahverfi er leikskóli í byggingu, sem rúmar 109 börn og verður hann afhentur í desember. Við Starhaga er verið að hefja fram- kvæmdir við leikskóla sem rúmar 109 börn. „Þegar þessum byggingum verður öllum lokið þá verða 3.394 hálfsdagsrými á leikskólum borgarinnar og 1.426 heilsdagsrými," sagði Markús. Samkvæmt innritunarreglum Dagvistar barna eru heilsdagsrými nær eingöngu ætluð einstæðum foreldrum en hálfsdagsrými börnum giftra foreldra eða foreldra í sambúð. Aðspurð- ur um hvað liði greiðslum til foreldra sem kjósa að dvelja heima með börnum sínum, sagði borg- arstjóri að unnið væri að mótun reglna um með hvaða hætti yrði að því staðið, en að fyr- ir Iok kjörtímabilisins yrði greiðslunum komið á. í frétt frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins í Kaup- mannahöfn, kemur fram að nýtt hlutafélag verði stofnað um Græn- landsflutningana og verði hlutafé þess 120 milljónir danskra króna, eða um 1.150 milljónir íslenskra króna. J. Lauritzen leggur fram tvo þriðju hluta þess í reiðufé en framlag græn- lensku landsstjórnarinnar verður í formi þeirra fimm skipa sem nú halda uppi siglingum milli Grænlands og Danmerkur. Þess sé vænst að með átaki í gámavæðingu flutninganna muni samningurinn við J. Lauritzen spara 150-200 milljónir danskra króna, eða jafnvirði um 1.400-1.900 milljóna íslenskra króna sem jafn- gildir 30-40% lækkun á farmgjöldum og þar með verulegri lækkun vöru- verðs á Grænlandi. ----»--»-♦-- 138 millj.tap á gjaldþroti einstaklings SKIPTUM er lokið í þrotabúi Þor- leifs Björnssonar, sem rak nokkra veitingastaði í Reykjavík, en var tek- inn til gjaldþrotaskipta í nóvember 1990. Ekkert greiddist upp í kröfur sem samtals námu um 138,5 milljón- um króna. Auk 256.000 kr. for- gangskrafna, sem ekkert greiddist upp f, var lýst 135,1 milljóna króna almennum kröfum í íslenskum krón- um og að auki jafnvirði 2,5 milljóna króna í ítölskum lírum og i 600 þús- und króna í belgískum frönkum. ---------» ♦ ♦-- Húsvísk matvæli: Kröfur 51 milljón um- fram eignir SKIPTUM er lokið í þrotabúi Húsví- skra matvæla hf. sem tekin voru til gjaldþrotaskipta í september á síð- asta ári. Ógreiddar kröfur nema rúm- lega 51 milljón króna. Alls var lýst kröfum að upphæð 54,1 milljón í þrotabúið en eignir þess reyndust 3 milljóna króna virði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.