Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Atvinnuleysið
og Evrópska
efnahagssvæðið
REYKJAVIKURHOFN 75 ARA
Áherslan er lögð á
þjónusta við sjávar-
útveg og ferðamenn
- segir Hannes Valdimarsson hafnarsljóri
REYKJAVÍKURHÖFN verður 75 ára þann 16. nóvember næst-
komandi, en þann dag afhentu danskir verktakar bæjaryfirvöld-
um höfnina. A þeim tíma sem liðinn er hefur hlutverk hafnarinn-
ar tekið miklum breytingum og er nú svo komið að allir vöru-
flutningar fara um Sundahöfn. „í framtíðinni munum við leggja
áherslu á þjónustu við sjávarútveginn hér í Gömlu höfninni og
fyrirtæki tengdum honum auk þjónustu við ferðamenn,“ sagði
Hannes Valdimarsson hafnarstjóri.
Atvinnuleysisdagar voru
skráðir hér á landi í júlímán-
uði síðastliðnum áttatíu og eitt
þúsund. Það er 44.000 dögum
meira en á sama tíma í fyrra.
Þetta svarar til þess að 3.700
manns á vinnualdri hafi verið án
starfa á þessum hábjargræðis-
tíma. Þetta er meira atvinnuleysi
en hér hefur áður skráðst á þess-
um árstíma. A fyrstu sjö mánuð-
um ársins voru skráðir 550 þús-
und atvinnuleysisdagar á landinu
öllu sem er 257.000 dögum meira
en á sama tíma í fyrra. Og það
blæs ekki byrlega fyrir atvinnulíf-
ið þegar horft er til framtíðar og
þegar ákveðins samdráttar á
þorskkvóta. Ásmundur Stefáns-
son, forseti ASÍ, segir í viðtali
við Morgunblaðið í gær að þessar
atvinnuleysistölur sýni að þjóðin
standi nú í fyrsta skipti í langan
tíma frammi fyrir almennu at-
vinnuleysi, sem hvorki sé stað-
bundið né bundið við ákveðnar
atvinnugreinar.
Mun fleiri konur en karlar voru
skráðar atvinnulausar hér á landi
í júlímánuði. Atvinnuleysi kvenna
mældist 3,6% en karla 2%. Verst
var ástandið á Suðurnesjum en
þar voru rúmlega 400 konur á
vinnualdri án atvinnu, eða tæp-
lega níu af hveijum hundrað.
Flestir voru skráðir atvinnulausir
í Reykjavík, eða rúmlega 1.400.
í júlímánuði fjölgaði atvinnuleys-
isdögum á höfuðborgarsvæðinu
um sex þúsund en fækkaði um
tæpt eitt þúsund á landsbyggð-
inni. Þetta er óvenjuleg þróun þar
eð atvinnuleysi hefur að jafnaði
mælst hálfu minna á höfuðborg-
arsvæðinu en á landsbyggðinni á
þessum tíma árs. Núna er hlut-
fall atvinnulausra nánast það
sama á Faxaflóasvæðinu og í
stijálbýlinu.
Þjóðhagsstofnun spáði því í
aprílmánuði síðastliðnum, áður en
aflasamdráttur á þorski var
ákveðinn, að atvinnuleysi yrði
2,6% að meðaltali á árinu 1992.
Það samsvarar því að rúmlega
3.000 manns á vinnualdri verði
án atvinnu að meðaltali á árinu.
Því miður horfir nú verr um fram-
vinduna en á vordögum. Staðan
er vægt orðað bágborin. I fyrsta
lagi er menntun, þekking og
starfshæfni einstaklinganna,
bæði til hugar og handar, dýr-
mætasta auðlind hverrar þjóðar.
Fámennið gerir og hvern einstakl-
ing verðmætari að þessu leyti.
Það er efnahagslegt áfall fyrir
þjóðarbúskapinn þegar meir en
3.000 vinnufærir einstaklingar
ganga atvinnulausir að meðatali
allt árið. I annan stað heyrir rétt-
urinn til atvinnu, rétturinn til að
sjá sér og sínum farborða, nánast
til mannréttinda í hugum nútíma
fólks. Ekkert brýtur heibrigðan
og vinnufúsan einstakling fyrr og
rækilegar niður en atvinnuleysið.
Stórfellt atvinnuleysi er þjóðarböl.
Fátt bendir til umtalsverðrar
atvinnuaukningar næstu mánuði
eða misseri, nema ef áform um
byggingu álverksmiðju á Keilis-
nesi fá byr í segl með tilheyrandi
vítamíngjöf fyrir orkubúskapinn
í landinu. Því miður réð pólitísk
þröngsýni og þvergirðingsháttur
því að við nýttum okkur ekki þau
tækifæri til að styrkja atvinnu-
stigið og verðmætasköpunina í
landinu, sem gáfust fyrr á tíð
meðan ytri aðstæður á heims-
markaði voru áliðnaði hagstæðari
en nú er. Suðumesjamenn horfa
og til hugsanlegs fríiðnaðarsvæð-
is við flugstöð Leifs Eiríkssonar,
sem bandarísk framleiðslufyrir-
tæki hafa sýnt áhuga á, m.a. með
Evrópumarkað í huga. Líkur á
fríiðnaðarsvæði aukast ef aðild
íslands að Evrópska efnahags-
svæðinu verður að veruleika. Að-
ildin opnar og íslenzkri fram-
leiðslu, það er unnum sjávaraf-
urðum, tollfijálsa leið á hagstæð-
asta markað heims, Evrópumark-
aðinn, sem nú tekur við langleið-
ina í 70% af útflutningi okkar.
Aðildin styrkir því stöðu físk-
vinnslunnar í landinu meira en
flest annað og þar með atvinnu-
stigið í landinu.
Það horfír því miður ekki
björgulega í fleiri atvinnugreinum
en sjávarútvegi, enda skarast
hagsmunir atvinnuveganna mjög.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, segir í viðtali við Morgun-
blaðið að hætta sé á stórfelldu
atvinnuleysi í vetur, einkum í
byggingariðnaði og þjónustu-
greinum. Samdráttur í landbún-
aði og sjávarútvegi veldur sam-
drætti í iðnaðar- og úrvinnslu-
þjónustu þessara greina. Fólk og
fyrirtæki halda og að sér höndum
á samdráttartímum sem bitnar
bæði á framkvæmdum og verzl-
un. Minni umsvif og minni atvinna
veikja síðan skatttekjumöguleika
ríkis og sveitarfélaga. En við er-
um, þrátt fyrir allt, betur undir
það búin en nokkru sinni fyrr,
að vinna okkur út úr tímabundn-
um erfíðleikum. Það tekst með
samstilltu átaki á nokkrum árum
ef við búum atvinnuvegunum
hliðstætt starfsumhverfi og at-
vinnulífið býr við í helztu sam-
keppnis- og viðskiptaríkjum okk-
ar. Ef stjórnvöld leggja sig fram
um áð efla alla hvata framtaks,
frumkvæðis og sjálfsbjargarvið-
leitni með þjóðinni með framsýnni
löggjöf og fijálsræði í atvinnulíf-
inu. Og síðast en ekki sízt, ef við
náum þeirri viðskiptastöðu út á
við sem felst í aðild að Evrópska
efnahagssvæðinu.
Hannes sagði, að síðastliðin 25
ár hafi verkefni hafnarinnar flest
verið í Sundahöfn og nú þegar
starfsemi Ríkisskipa hefur verið
lögð niður, fara almennir vöruflutn-
ingar eingöngu um Sundahöfn og
Holtabakka. „Með því hefur skap-
ast aukið rými fyrir sjávarútveg
og þjónustu í Gömlu höfninni,"
sagði hann.
Skútusiglingar vinsælar
Við Ingólfsgarð hafa Landhelg-
isgæslan og Hafrannsóknarstofnun
haft sína aðstöðu og innst í Aust-
urbugt er aðstaða fyrir um 30 skút-
ur við flotbryggju siglingarklúbbs-
ins Brokeyjar. Skútusiglingar njóta
vaxandi vinsælda, sem meðal ann-
ars má rekja til æskulýðsstarfsins
í Nauthólsvík, þar sem boðið hefur
verið upp á kennslu í siglingum á
sumrin. „Siglingamenn hafa hug á
stærra svæði í höfninni,“ sagði
Hannes. „Þeim fínnst mjög þægi-
legt að vera þarna inna við Ingólfs-
garð og geta brugðið sér út fyrir
hafnarmynnið og siglt inn á Rauð-
arárvík. Ef svo fer að skútusvæðið
verður stækkað þá eru uppi hug-
myndir um að Hafrannsóknarstofn-
un flytji yfír á Faxagarð."
í Austurbugt við Faxagarð hefur
Akraborgin fengið nýja og bætta
aðstöðu og við Faxagarð og Aust-
urbakka fer fram löndun fískiskipa
á Faxamarkað. Nokkuð hefur dreg-
ið úr umsvifum markaðarins miðað
við fyrstu árin þegar aðeins var
um tvo markaði að ræða en nú
hafa önnur byggðarlög komið upp
sínum eigin mörkuðum. „Nú reyna
menn að ná markaðsverði í heima-
byggð og heimamenn vilja halda í
sína báta,“ sagði Hannes.
Skemmtiferðaskip við
Miðbakka
Við Austurbakka og Miðbakka
standa yfír framkvæmdir vegna
Geirsgötu sem lögð verður við Mið-
bakkann og er verið að reka niður
stálþil framan við Faxamarkaðinn.
Sagði Hannes að með uppfylling-
unni framan við Miðbakka batnaði
mjög aðstaða bæði fyrir sjávarút-
veginn og fyrir skemmtiferðaskip
á sumrin. Er þá miðað við skip sem
eru innan við 160 metrar að lengd,
en stærri skipum verður áfram vís-
að í Sundahöfn. „Við erum að von-
ast til að með bættri aðstöðu og
dýpkun hafnarinnar muni
skemmtiferðaskip leggja hingað
leið sína í auknum mæli,“ sagði
Hannes. „Reykjavíkurhöfn er aðili
að alþjóðlegum samtökum um að
laða skemmtiferðaskip að Norður-
Atlantshafi. Við eigum þann draum
að geta tekið meirihluta skemmti-
ferðaskipa sem hingað koma að
Miðbakkanum eftir breytinguna.
Okkur fínnst betur boðið þegar
skipin geta lagt að í Gömlu höfn-
inni en ekki í flutningahöfnina.
Farþegar geta þá gengið beint frá
borði og um miðbæinn. Það er mjög
mikilvægt fyrir Reykjavík að fá
ferðamennina í land til að skoða
sig um en nú fara ekki allir farþeg-
ar í land.“
Hvað verður við Grófarbakka
ræðst af hvemig skemmu Ríkis-
skipa, sem þar stendur, verður ráð-
stafað, en vonir standa til að hún
verði nýtt undir þjónustu við físki-
skip og aðra starfsemi á Miðbakka.
í Suðurbugt eru flotbryggjur og
þar er aðstaða fyrir trillur og fiski-
báta í tengslum við verbúðirnar
sem þar eru. Þær bryggjur hafa
nýst á sumrin fyrir stærri skútur,
sem hingað koma til landsins.
Við Ægisgarð fara aðallega
fram viðgerðir á skipum og þjón-
usta á vegum Stálsmiðjunar við
þau, enda er slippurinn skammt
undan og smiðjur og verkstæði
Stálsmiðjunnar eru við Mýrargötu.
„Við tökum reyndar enn nokkur
skemmtiferða- og viðhafnarskip
þar upp að,“ sagði Hannes. „Þar
lá drottnigarskipið þegar Elísabet
Englandsdrottning kom í heimsókn
og þar lá skip Gorbatsjov við festar
þegar leiðtogarnir komu til fundar
í Höfða. Við erum að vona að nýi
Miðbakkinn verði viðhafnarbakki
framtíðarinnar."
Olían afgreidd frá Eyjargarði
Aðstaða smábátanna við
Grandagarð verður óbreytt. Við
Grandabakka er löndunar- og þjón-
ustuaðstaða togaranna frá Granda
og í Bakkaskemmu og Granda-
skemmu fer fram netagerð, neta-
Hafnarda
4
REYKJAVÍKURHÖFN er 75 ára
meðal annars minnst með Hafna
hafnarinnar er kynnt. Um næstu
höfninni með fjölbreyttri dagskrá
Hafnardagurinn hefst kl. 9:30
að morgni með skráningu í dorg-
keppni 8 til 12 ára barna við flot-
bryggjur í Suðurbugt. Keppninni
lýkur kl. 15, og þá munu veiðimenn
ganga með afla sinn í fylgd Lúðra-
sveitar verkalýðsins frá Suðurbugt
að Faxamarkaði, þar sem aflinn
verður boðinn upp. Það verður út-
nefndur aflakóngur og afladrottn-
ing og þeim veitt verðlaun. í Faxa-
skála verður Rannsóknarstofa físk-
iðnaðarins með sýningu á furðufisk-
um.
Frá kl. 10 til kl. 17, verður opið
fisksölutorg á Miðbakka, þar sem
30 aðilar bjóða söl og allar tegund-
ir af físki, ferskum, steiktum og
hráum fiski, harðfíski, fiskibollum
og fiskisúpum. Þar munu og út-
flutningsfyrirtæki í sjávarútvegi
kynna starfsemi sína. Þá verður
opin veitingabúð á hafnarbakkan-
um, þar sem veitingahúsin Jónatan
Livingston Mávur, Gullni haninn,
Hótel Holt og Við Tjörnina, bjóða
sameiginlega upp á úrval sérrétta
úr sjávarfangi. Sjávardýr úr höfn-
inni verða sýnd í ketjum á hafnar-
bakkanum og harmónikkuleikarar
leika sjómannalög.
Á Austurbakka verður sjávarút-
• r*
•Vt*
Oliuhöfn
/7
- Grandi,
löndun
áunar-
Fiskimjör,
útskipun
Löndurí\£/
ogþjónusta togara
VESTURHÖFN
ibátar Viðgerðl
Þjónusta
Landhelgis-
'fí»o/ Af7AUSTVRHÖFN 9æslan'
■ /ýy/ /Jrillur, <y&Hafrannsókn\\%.
/ / fkkibátarog Faxa-/%. Brokey,\\M
.. v\v, /erl. skutur markaður,% skútr-^
..''AOg*/- löndun
/ ' 7/ T / ^m/ikraborg
..
eykjavíkui
Skipuiag Gömlu hafnarinnar í framtíðinni.