Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 11
Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. Kopavogi, sími 671800 OPIÐ SUNNUDAGA KL. 2-6 Vantar á skrá og á staðinn árg. ’90-'92 MMC Station turbo '86, hvítur, 5 g., ek. 88 þ. (40 þ. á vél), álfelgur, rafm. í öllu o.fl. Toppeintak. V. 950 þús. stgr., ýmis sk. mögul. Nissan 200 SX turbo interc. '89, rauður, sjálfsk., rafm. í öllu, geislaspilari o.fl. V. 1490 þús. stgr., sk. á ós. Daihatsu Feroza DX 4 x 4 ’89, blár/grár, 5 g., ek. 70 þ., sóllúga o.fl. V. 930 þús., sk. á fólksbíl mögul. MMC Lancer.GLX ’89, rafm. í rúðum o.fi., rauður, 5 g., ek. 63 þ. V. 690 þús. stgr. MMC Colt GLX '87, 5 g., aflstýri, ek. aðeins 39 þ., óvenju gott eintak. V. 480 þús. stgr. Toyota Corolla DX '88, 3ja dyra, 5 g., ek. 49 þ. V. 550 þús. stgr. Cherokee Laredo 4.0I '87, 5 g., ek. 44 þ. Toppeintak. V. 1530 þús. stgr. Mazda B-2600 EX Cap 4x4 ’88, m/húsi, fallegur Pick up. V. 1180 þús. stgr. Toyota Touring GLi 4x4 '92, 5 g., ek. 10 þ. Sem nýr. V. 1400 þús. stgr., sk. á ód. Mazda 323 Fastb. '91, 5 dyra, 5 g., ek. 21 þ. V. 950 þús. stgr. Citroen AX 10 RE '87, 3ja dyra, ek. 41 þ. V. 270 þús. stgr. Renault 10 GTS ’90, 5 dyra, 5 g., ek. 17 þ. V. 830 þús. stgr. Toyota Corolla XL '91, 3ja dyra, 5 g., ek. 23 þ. V. 830 þús. stgr. Lada Sport '87, 5 g., ek. 82 þ., léttistýri. V. 260 þús. stgr. Toyota Corolla 1600 Liftback '88, 5 dyra, 5 g., ek. 54 þ. V. 680 þús. stgr., sk. á ód. Minning•- arsýning um Ragnar Kjartans- son mynd- höggvara MINNINGARSÝNING um Ragnar Kjartansson myndhöggvara verð- ur opnuð í Nýlistasafninu á morg- un, laugardaginn 15. ágúst kl. 16.00. Sýningin er haldin í tilefni 20 ára afmælis Myndhöggvarafé- lagsins í Reykjavík. A sýningunni er lögð áhersla á þau myndefni sem listamanninum voru hugstæð og hjartfólgin. Þá er á sýningunni úrval mynda sem vinir og félagar Ragnars drógu upp af honum við ýmis tækifæri, alls um 40 verk unnin með margvíslegri tækni. Sýningunni fylgir sýningarskrá með ritgerð eftir Eirík Þorláksson og ljósmyndum eftir Önnu Fjólu Gísladóttur. Minningarsýningin um Ragnar Kjartansson myndhöggvara stendur yfir daglegag frá kl. 14 til 18 og henni lýkur sunnudaginn 30. ágúst. Eitt verka Ragnars Kjartansson- ar. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992 ------------------I---------------|—j--- Sumartónleikar í Skálholtskirkju: Síðasta tónleikahelgi sumarsins TÓNLEIKAR verða haldnir í Skálholtskirkju laugardaginn 15. og sunnudaginn 16. ágúst, sem er jafnframt síðasta tónleikahelgi sum- arsins. Flutt verða verk eftir J.S. Bach og fer allur tónlistarflutning- ur Bach-sveitarinnar fram á upprunaleg hljóðfæri. í fréttatilkynningu frá Sumartón- leikum í Skálholtskirkju segir: „Sum- artónleikar hafa ætíð lagt ríka áherslu á flutning barokktónlistar og var Bach-sveitin í Skálholti stofn- uð 1986. Allur flutningur sveitarinn- ar fer fram á upprunaleg hljóðfæri og hefur Þjóðhátíðarsjóður og nokk- ur fyrirtæki stutt sveitina til kaupa á fimm hljóðfærum. Bach-sveitinni hefur borist liðsauki úrvals barokk- hljóðfæraleikara frá Englandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum og verður Eva Maria Röll, fiðluleikari frá Þýskalandi, konsertmeistari sveitarinnar að þessu sinni. Sérstak- ur gestur Bach-sveitarinnar í sumar er bandaríski selló- og sömbuleikar- inn, Laurence Dreyfus, sem leikur með og stjórnar sveitinni og verður þar að auki með einleikstónleika. Þetta er í annað sinn sem Dreyfus kemur til íslands til að leika á Sumar- tónleikum í Skálholtskirkju og gleyma menn seint tónleikum hans þar árið 1985. Dreyfus er sérfræð- ingur í barokktónlist og er eftirsóttur um allan heim sem einleikari, leið- beinandi og fyrirlesari. Dreyfus hefur kennt tónlistarfræði við Yale-háskól- ann í Bandaríkjunum. Hann hefur hlotið íjölda viðurkenninga og verð- launa, skrifað bækur um tónlistarleg málefni og leikið inn á hljómplötur. Kl. 13 á laugardaginn flytur Laur- ence Dreyfus fyrirlestur í Skálholts- skóla sem hann nefnir „Bach as Critic of Enlightment" (Bach sem gagnrýnandi upplýsingastefnunnar". I erindi sínu mun hann sérstaklega §alla um kantötu BWV 198 eftir J.S. Bach. Fyrri tónleikar laugardagsins í Skálholtskirkju verða kl. 15. Þá leik- ur Dreyfus tvær svítur fyrir selló eftir J.S. Bach, svítu nr. 1 í G-dúr, BWV 1007 og svítu nr. 2 í d-moll, BWV 1008. Kl. 17 flytur Bach-sveit- in í Skálholti ásamt einsöngvurum og kór tvær kantötur eftir J. S. Bach, „Schlage doch gewúnschte Stunde“, BWV 53 og „Lass, Fúrstin, lass noch einen Strahl", BWV 198. Einsöngv- arar eru Margrét Bóasdóttir sópran, Sverrir Guðjónsson alt, Knut Schoch tenór og Michael J. Clarke bassi. Kórstjóri er Hilmar Örn Agnarsson, organisti í Skálholtskirkju. Á sunnu- daginn kl. 15 verða síðari tónleikar laugardagsins endurteknir og messa verður kl. 17. í messunni verður flutt kantatan „'Schlage doch gewúnschte Stunde" og Laurence Dreyfus flytur einleiksverk. Haldið verður námskeið í barokkhnéfiðluleik 12.—13. ágúst undir handleiðslu Dreyfus. Boðið verður upp á barnapössun meðan á tónleikunum stendur og verður veit- ingasalan í Skálholtsskóla opin. Að- gangur er ókeypis. Ford Bronco II XL ’90, steingrár, 5 g., ek. 32 þ. Fallegur jeppi. V. 1950 þús. stgr., sk. á ód. Ford Sierra 1800 CL Sedan '88, brún- sans, 5 g., ek. 53 þ. Fallegur bíll. V. 590 þús. stgr. MMC Lancer GLX Hlaðbakur ’91, brún- sans, sjálfsk., m/overdr., ek. 25 þ., hiti í rafm. í öllu. V. 930 þús. stgr. OKEYPIS skemmtun í sveitinni Kynntu þér ágústtilboð Ferðaþjónustu bænda Allar upplýsingar gefur skrifstofa Ferðaþjónustu bænda, Bændahöllinni v/Hagatorg, s. 623640/623643, fax 623644. V * TEPPI FLÍSAR BÚTAR DÚKAR K0RKUR PARKETT M0TTUR 0G FL. OG FL. GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950 TEPPABÚÐIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.