Morgunblaðið - 14.08.1992, Síða 9

Morgunblaðið - 14.08.1992, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992 9 Öllum þeim fjölmörgu, er á margvislegan hátt glöddu mig og heiðruðu á 80 ára afmœli mínu 5. ágúst sl., sendi ég mínar innilegustuþakkir. Guð blessi ykkur öll. ArnórA. Guðlaugsson. V, Lokadagar útsölunnar Við fognum góðri sumarnýtingu með einstöku síðsumartilboði fyrir gesti af landsbyggðinni. Tvær gistinætur á verði einnar. Eins manns herbergi: 2.950,- á nóttu. 2ja manna herbergi: 1.875,- á mann á nóttu. Morgunverður innifalinn. Þú bókar með 4 daga fyrirvara - lágmark 2 nætur. Frítt í Laugardalslaugina. LÚXUSLÍF Á LÁGU VERÐI! FLUGLEIÐIR ■ÍTGL BSJA SUÐURLANDSBRAUT 2 K SÍMI 91-812200, FAX 91- 812130 íV GRÆNT NÚMER 996220 ■ 4 Menningarsjóður lagður niður sem út- gáfufyrirtæki Alþýðublaðið segir í forystugrein að hallarbyltingin í Menntamála- ráði hafi verið kveðin niður: „Ný stjórn hefur þegar látið kné fylgja kviði og samþykkt að stöðva alla útgáfustarfsemi Menningarsjóðs og bjóða út lager fyrirtækisins og útgáfuverk ..." Staksteinar staldra við þetta mál sem og fortíðarvanda Alþýðubandalagsins. „Afleitur rekstur bóka- útgáfu“ Alþýðublaðið segir í leiðara sl. miðvikudag: „í hinni hörðu baráttu stjómarmanna Menning- arsjóðs um völdin og has- arkenndar fréttir Qöl- miðla af þeirri glímu, hefur kjami málsins oft gleymst Dæminu hefur oft verið stillt upp þannig af fulltrúum stjómarand- stöðunnar í Menningar- sjóði og öðmm talsmönn- um um verndun Menn- ingarsjóðs, að verði sjóð- urinn lagður niður, hætti ríkið að styrkja útgáfu góðra bóka á íslandi. Þetta er alraagt. Með þvi að leggja niður Menning- arsjóð er ríkið að gera það eitt að hætta útgáfu bóka sem er allt annað en að styrkja útgáfu bóka. Ríkið er í dag ekki til þess fallið að gefa út bækur. Rekstur Menn- ingarsjóðs er glöggt dæmi um afieitan rekst- ur bókaútgáfu. Pólitískt skipað ráð er ekki bezta útgáfuráðið sem kostur er á.“ Sjálfsagt mál aðstyrkja menningar- og vísindaverk Síðan segir Alþýðu- blaðið: „Útgáfufélag sem er í höndum ríkisins og póli- tískra varðhunda flokka- kerfisins er ekki beinlínis til þess fallið að gefa út veglegar bækur. Ríkið styrkir bókaútgáfu vem- lega í dag, bæði í gegnum sjóði til rithöfunda svo og styður ríkið náms- gagnaútgáfu og veitir styrki eða kaupir bækur sem útgáfufyrirtæki í eigu einkaaðUa gefa út og nýtast t.a.m. í skólum og stofnunum ríkisins. Það er sjálfsagt mál og nauðsynlegt að ríkið styrki sérstaklega útgáfu fræði- og visindabóka, svo og menningarverk ýmiss konar sem hafa bæði fræðilegt, vísinda- legt, menningarlegt og sögulegt gildi en em ekki til þess líkleg að hljóta mikla og skjóta sölu á almennum bókamarkaði. Ef íslendingar eiga að telja sig menningarþjóð, bókaþjóð, verður hið op- inbera að styrkja slíka útgáfu; slíkur styrkur er hluti af menningarhefð okkar og siðmenningu. Menningarsjóður hefur síður en svo staðið undir þvi nafni.“ „Meginhluti útgáfuimar orkaði tvímæl- is“ Niðurstaða forystu- greinar Alþýðublaðsins er þessi: „Þessi bókaútgáfa rík- isins hefur verið háð duttlungum einstakra stjórnarmanna og for- ráðamanna þess. Nokkr- ar merkar bækur hafa vissulega séð dagsins Ijós eins og íslenzka orðabók- in og Islenzkir sjávar- hættir og nokkur önnur verk, en meginhluti út- gáfunnar hlýtur að orka tvímælis sem ríkisútgefin menningar- og fræði- verk. A sama tima hafa önn- ur bókaútgáfufyrirtæki í landinu gefið út mun veglegri og merkilegri verk; alfræðiorðabækur, vísindarit, menningar- söguleg verk, orðabækur og þar fram eftir götun- um. Stjóm Menningarsjóðs hefur nú lagt drög að því að leggja niður sjóðinn sem útgáfufyrirtæki. Það er vel. Nú þarf hins veg- ar að leggja drög að nýj- um Menningarsjóði, sem er úthlutunarsjóður rík- isins til útgáfufyrirtækja i landinu sem hyggjast ráðast í dýrar og vandað- ar útgáfur á vísinda- og menningarverkum. Út- hlutanir úr sjóðnum geta bæði verið í formi beinna styrkja og lána. Þá myndi ríkið rsekja hlutverk sitt af alvöm við menningar- lega bókaútgáfu í Iand- inu.“ Hugtakið sós- íalismi megin- mál hjá Al- þýðubanda- laginu Sósíalistar hér á landi liafa í sjö áratugi barist hatrammri baráttu bæði gegn borgarlegri hug- myndíifneði og lýð- ræðisjafnaðarmönnum. Þrisvar tókst islenzkum marxistum að kljúfa Al- þýðuflokkinn: 1930, 1938 og 1956. Það hefur verið þemað i þessari baráttu íslenzkra sósialista að lýðræðisjafnaðarmenn væm svikarar við hug- sjónir „vísindalegs sósial- isma og marxisma". Alþýðubandalagið varð til sem kosninga- bandalag árið 1956 og sem formlegur stjóm- málaflokkur (arftaki Sós- ialistaflokksins) 1968. Löngu síðar, eða árið 1981, stendur enn í stefnuskrá þess, að flokk- urinn „hfjóti einkum að herjast fyrir umbótum, sem skapað geti forsend- ur fyrir breytingu þjóð- félagsins í sósíalíska átt“. Glöggt var það enn hvað þeir vildu. Það segir sina sögu um samtímann að barátta Birtingar fyrir þvi að „hugtakið sósialismi" félli út úr stefnuskrá Al- þýðubandalagsins var barin niður. Það mátti alls ekki ske. Hugtakið sem Sovétríkin vom byggð á og sem felur í sér opinbera forsjár- hyggju, miðstýringu og ríkisrekstur, varð áfram að vera mergurinn máls- ins í stefnuskrá Alþýðu- bandalagsins, til að þókn- ast gamla flokkskjarnan- um, sem neitar að gera upp við eigin pólitiska fortíð, þrátt fyrir „faU hugmyndafræðinnar inn gjörvaUa heimsbyggð- ina“. SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI * I I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.