Morgunblaðið - 14.08.1992, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992
Minning:
Björg Jónsdóttir
ljósmóðir íHaga
Fædd 21. desember 1900
Dáin 6. ágúst 1992
Björg fæddist að Neðri-Rauðs-
dal, dóttir Kristínar Magnúsdóttur
og Jóns Þorgrímssonar, sem lengst
bjuggu á Arnórsstöðum. Þar ólst
hún upp ásamt bróður sínum, lista-
manninum Þorgrími Jónssyni.
Björg Jónsdóttir var ljósmóðir
Barðastrandarhrepps og húsfreyja
í Haga svo áratugum skipti. Bæði
þau störf förnuðust henni svo vel
að meðal annars og þess vegna
mátti kalla hana hamingjusama
manneskju.
Þegar Björg Jónsdóttir settist í
húsfreyjusætið í Haga, sem seinni
kona Hákonar Kristóferssonar fv.
alþingismanns Barðastrandar-
sýslu, þá var það við sérstakar og
erfiðar aðstæður. Heimilið búið að
vera til fyrirmyndar í búskapartíð
Hákonar með fyrri konunni.
Það er ekki ósennilegt að sum-
um sveitungum hafi fundist, sem
brygði til beggja vona um áfram-
haldandi reisn kirkjustaðarins.
Sjálfsagt hefur Björg gert sér
grein fyrir að slíkt var ekki að
ósynju.
Hún var ekki kornung reynslu-
laus stúlka, heldur komin um þrít-
ugt, lærð og starfandi ljósmóðir
og hafði búið í Reykjavík á meðan
hún var í námi. Þá var Björg upp-
alin í næsta nágrenni við prests-
setrið Bijánslæk, sem búið var að
vera mennta- og menningarheimili
um langa hríð. Þar sótti hún í að
vera strax sem unglingur.
Þegar hún tók við ljósmóður-
starfinu fluttist hún að Bijánslæk
og sinnti starfinu þaðan. Jafn-
framt var hún önnur hönd prests-
frúarinnar sem var orðin mjög
fullorðin kona. Svo miklar mætur
hafði Björg á prestshjónunum að
hún lét son sinn heita eftir Bjama
Símonarsyni. Fyrir utan dálæti
Bjargar á séra Bjarna var hann
svo virtur af öllum sínum sóknar-
börnum að fá dæmi munu vera til
um slíkt.
Það má segja að uppruni Bjarg-
ar, sem gaf henni sterka mann-
gerð, hafi haft áhrif til þess að
hún laðaðist að Bijánslækjarheim-
ilinu, enda hefur það verið hennar
skóli til að takast á við hið mikla
starf sem beið hennar að Bijáns-
lækjardvöl lokinni.
Þegar að Haga kom reyndist
ótti fólksins um ónógt atgerfi
Bjargar ástæðulaus. Það liðu ekki
ár, ekki mánuðir þangað til hún
var virt húsmóðir í Haga af sveit-
ungum öllum.
I Haga var margt vinnuhjúa.
Þar færðist reynslan frá manni til
manns, þaðan giftist fólk og
byggði upp sitt framtíðarheimili.
Þá kom sér vel að hafa að vega-
nesti þann lærdóm sem Björg
Jónsdóttir hafði vitandi sem óaf-
vitandi miðlað fólkinu sínu.
Það var almæli um Barðaströnd
og víðar að Björg Jónsdóttir væri
skapstór kona, og víst var hún
það, þó má ætla að hún hafi borið
þess merki meira utan á sér fyrir
glæsta framgöngu.
Björg gekk ekki til daglegra
starfa með vinnufólki á nefndum
stórbýlum. Hún kunni þó til allra
verka og lét vel að kenna ungum
stúlkum fyrstu handtökin.
Björg Jónsdóttir var mikil
smekkmanneskja. Henni var ekki
nóg að ganga vel til að fara sjálfri
heldur varð allt heimilisfólkið að
gera það líka, og gerði hún sitt
til að svo mætti vera.
Á sunnudögum var farið í betri
föt, og fólk prúðbúið á messudög-
um. Sjálf klæddist Björg alltaf
upphlut við slík tækifæri.
Björg var organisti í kirkjunni,
orgelið átti hún sjálf og það var
ekki þægileg vinna að bera orgelið
niður í kirkju við hveija athöfn sem
þar fór fram, síðan heim í stáss-
stofu að athöfn lokinni.
Þó Björgu Jónsdóttur þætti
mikið til Bijánslækjar koma, þá
var Hagi og Hagaheimilið aldrei í
skugga fyrir þær sakir. Þarf ekki
að efa að hún hafi tekið undir hina
alkunnu vísu Hákonar:
í lautum þegar lifna blóm
um Ijósa júnídaga.
Fuglar syngja fögrum róm
fallegt er í Haga.
Fólk sem heimsótti Haga í
fyrrasumar og talaði við Björgu
þar sem hún sat fyrir enda stóra
borðstofuborðsins sá og fann að
hún var þá sama heimilisprýðin
þó eðlilega sópaði ekki af henni
sem fyrrum.
í Haga vildi Björg eyða ævi-
kvöldinu. Þá ósk sína fékk hún
uppfyllta í skjóli einkasonar og
tengdadóttur.
Júlíus Þórðarson.
_____________Brids_________________
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Reykjavíkur
Aðalfundur félagsins verður hald-
inn miðvikudaginn 19. ágúst kl. 20.00
í Sigtúni 9. Á dagskrá fundarins verð-
ur m.a.: Ný stjórn kosin. Fulltrúar
félagsins á ársþing BSÍ kosnir. Greitt
verður atkvæði um að hefja spila-
mennsku kl. 19.00 á nk. spilaári.
Veitt verða verðlaun fyrir allar
keppnir vetrarins. Eftirtaldir verð-
launahafar eru beðnir um að mæta
og taka við verðlaunum:
Verðlaunahafar á mótum BR
1991-1992
Barómon tvímenningur.
1. Guðm. Eiríksson - Björgvin Þorsteinsson
2. Páll Valdimarsson - Ragnar Magnússon
3. Svavar Bjömsson - Sveinn Rúnar Eiríksson
Board-a-Match sveitakeppni
1. Sveit Sævars Þorbjömssonar (Sævar Þorbjöms-
_________________________________________29
son, Karl Sigurhjartarson, Sverrir Ármannsson,
Matthías Þorvaldsson.)
2. Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar (Gísli Ólafsson
NPC, Sigtryggur Sigurðsson, Bragi Hauksson,
Hrólfur Hjaltason, Sigurður Vilhjálmsson).
Aðalsveitakeppni
1. Sveit L.A. Café (Valur Sigurðsson, Jónas P.
Erlingsson, Rúnar Magnússon, Guðmundur Sveins-
son, Júlíus Siguijónsson).
2. Sveit Landsbréfa (Aðalsteinn Jörgensen, Jón
Baldursson, Bjöm Eysteinsson, Magnús Ólafsson,
Matthías Þorvaldsson, Sverrir Ármannsson)1
Aðaltvímenningur
1. Sigtryggur Sigurðsson - Bragi Hauksson
2. Sævar Þorbjömsson - Karl Sigurhjartarson
3. Bjöm Eysteinsson - Magnús Ölafsson
Butler-tvímenningur
1. Bjöm Eysteinsson - Magnús Ólafsson
2. Símon Símonarson - Sverrir Kristinsson
3. Gunnlaugur Kristjánss. - Hróðmar Sigurbjömss.
Bronsstigameistari
Magnús Ölafsson.
Einnig verður boðið upp á léttar
veitingar. Félagar fjölmennið. <-
Stjórnin. .
t
Eiginmaður minn og faðir,
FRIÐRIK GUÐNI ÞÓRLEIFSSON,
Káratanga,
Vestur-Eyjafjöllum,
verður jarðsunginn laugardaginn 15. ágúst kl. 11.00 f.h. frá Stóra-
dalskirkju.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hans, er bent á Blindrafélagið.
Sigríður Sigurðardóttir,
Hjálmfríður Þöll Friðriksdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
VILHELMÍNA H. VILHJÁLMSDÓTTIR,
Lönguhlfð 3,
Reykjavfk,
lést 5. ágúst. Útförin hefur farið fram f kyrrþey.
María Sigurðardóttir, EddaVreed,
Margrét Sigurðardóttir, Hermann Sigurðsson,
Hulda Sigurðardóttir, Guðríður Wilson,
Elfsabet Ferguson,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
*
Oskar Karlsson
Fæddur 9. febrúar 1943
Dáinn 7. ágúst 1992
Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér.
Vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki, þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgn'mur Pétursson)
Hann vinur okkar Óskar Karls-
son er dáinn. Hann lést á heimili
sínu 7. ágúst sl. eftir stutta en erf-
iða baráttu við íllvígan sjúkdóm.
Það er ávallt sárt að sjá eftir sínum
bestu vinum og skilur eftir tóm sem
erfitt er að yfirstíga.
Fyrir hartnær fimmtán árum
hófst vinátta okkar Bryndísar og
Óla við Evu og Óskar og leiddi sú
vinátta til að fyrir fimm árum
ákváðum við að stofna matarklúbb
ásamt öðru vinafólki okkar, Sig-
rúnu og Björgvini. Klúbburinn
starfaði óslitið frá stofnun og var
margt brallað. Þó eru það einkum
ferðirnar sem farnar voru í sumar-
bústað Sigrúnar og Björgvins á
hausti hveiju sem eru einna minnis-
stæðastar. Þar ríkti ávallt gleði og
kátína. Og má til sanns vegar færa
að þar var Óskar hrókur alls fagn-
aðar. Það voru góðar stundir sem
við áttum með fjölskyldunni í Hafn-
arfirði. Alltaf jafninnilegar móttök-
ur og hlýtt viðmót. Okkur er efst
í huga þakklæti fyrir að hafa átt
samleið með Óskari. Minningin um
góðan vin er dýrmæt.
Elsku Eva, Kristján og Markús.
Við vitum að missir ykkar er mik-
ill, megi minningin um ástkæran
eiginmann og föður gefa ykkur
styrk í þessari miklu sorg. Við vott-
um einnig aldraðri móður og öðrum
ástvinum Óskars einlæga samúð.
Bryndís, Óli,
Sigrún, Björgvin.
Fyrir rúmum sextán árum, á tví-
tugsafmæli systur minnar, heyrði
ég hans fyrst getið og nokkru síðar
var hann kynntur fyrir fjölskyld-
unni. Það var með nokkurri vark-
árni, sem ég tók þessum tilvonandi
mági mínum, sem var þrettán árum
eldri en systir mín, með þrjú hjóna-
bönd að baki og fjögur börn. En
Óskar sló öll vopn úr hendi manns.
Með hveiju árinu sem leið kom
betur í ljós hvern mann hann hafði
að geyma. Fordómalausan atorku-
mann, sem aldrei sló af. Góðan fjöl-
skylduföður og hjálpfúsan og
traustan vin.
Það var því mikið reiðarslag,
þegar upp kom fyrir hálfu öðru
ári, að Óskar gekk með ólæknandi
krabbamein. Ekki var auðvelt að
beygja sig fyrir slíkum örlögum.
Óskar vildi ekki gefast upp og hann
gafst aldrei upp, þótt sjúkdómurinn
legði hann að lokum. Enginn fær
skilið, hvar hann fékk kraft til að
vera þátttakandi til síðasta dags.
Ármann Óskar Karlsson, eins og
hann hét fullu nafni, var fæddur
9. febrúar 1943. Sonur hjónanna
Ólafar Markúsdóttur og Karls Þor-
steinssonar bakara. Eiginkona hans
er Guðbjörg Eva Kristjánsdóttir,
þroskaþjálfi og þeirra synir eru
Kristján Hans, fæddur 1980 og
Markús Már: fæddur 1985.
Fyrir átti Óskar bömin Egil Ibsen
(f. 1966), Karl Steinar (f. 1967),
Díönu Ósk (f. 1970) og Kristjönu
(f. 1973). Hann var mikill vinur
barnanna sinna og studdi vel við
bakið á þeim. Barnabörnin eru orð-
in þijú.
Síðustu fjórtán árin var Óskar
verkstjóri í Sjólastöðinni í Hafnar-
firði og var vinnudagurinn oft lang-
ur og erfiður. Þar ávann hann sér
traust vinnuveitenda og samstarfs-
manna, sem glöggt kom fram í
veikindum hans.
Eg kveð Óskar með virðingu.
Erfitt er að sætta sig við, að hann
fái ekki að lifa lengur, nú þegar
tími var kominn til að draga úr
vinnu og njóta ávaxtanna. En minn-
ingarnar draga úr sársauka og lær-
dómsríkt var að sjá æðruleysi hans
í veikindunum.
Með ómetanlegri hjálp heima-
hlynningar Krabbameinsfélagsins,
gat Óskar verið með fjölskyldunni
á heimilinu, þar til hann lést 7.
ágúst.
Við tengdafólkið þökkum honum
samfylgdina.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og hlýhug við andlát og
útför vinkonu okkar og systur,
GUÐRÚNAR M. TEITSDÓTTUR
frá Bergsstöðum,
Vatnsnesi.
Elín Þ. Björnsdóttir,
Sigurbjörn Björnsson,
Sigurður Björnsson,
Gróa Björnsdóttir,
Karl Teitsson,
Jóhann Heiðar Jóhannsson,
Svava Björnsdóttir,
Ásdis Magnúsdóttir,
Sólveig Sigurbjörnsdóttir,
Haraldur Teitsson.
t
Hjartans þakkir til allra, er auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
BERGÞÓRU SKARPHÉÐINSDÓTTUR
Hrafnistu,
áður Hátúni 10A.
Pálína Kjartansdóttir, Haraldur Hermannsson,
Edda Kjartansdóttir, Jónas Hólmsteinsson,
Sjöfn Kjartansdóttir, Guðmundur J. Óskarsson,
Hrönn Kjartansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför systur
okkar,
INGIBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR
Ijósmyndara,
Austurbrún4.
Ingveldur Sigurðardóttir,
Bryndís Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðsson,
Elísabet Sigurðardóttir, Haraldur Örn Sigurðsson,
Árni Sigurðsson, Valur Sigurðsson,
Þuriður Sigurðardóttir, María Sigurðardóttir,
Erlendur Sigurðsson, Bergljót Sigurðardóttir.
Dísanna.