Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 37
37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992
VELVAKANDI
EKKIKLAR
Svanborg Þórmundsdóttir:
EG ER þeirrar skoðunar að í
útgáfunni á ljóðum Jónasar Hall-
grímssonar þar sem orðinu
„fáki“ hefur verið breytt í „klári"
í ljóðinu um Arnarvatnshæðimar
sé rangt að farið. Orðið fákur
táknar bara hest en ekki hest
þaninn á skeið eins og segir í
bréfi Haraldar Blöndal í Morgun-
blaðinu 24. júlí. Það er því engin
ástæða til að breyta þessu. Að
mínu viti var orðið klár aldrei
notað um hesta.
BINDISNÆLA
BINDISNÆLA úr gulli tapaðist
laugardagskvöldið 8. ágúst, lík-
lega á Hótel Borg. Finnandi vin-
samlegast hafi samband í síma
28563.
HÁLSKEÐJA
ÞRÍLIT hálskeðja úr hvítagulli,
rauðagulli og gulli tapaðist
sennilega á leiðinni frá Hlemmi
að Njálsgötu mánudaginn 10.
ágúst. Keðjan er um 40 cm á
lengd og er finnandi beðinn um
að hringja í síma 79836.
GÓÐ ÞJÓNUSTA
Sigríður Guðmundsdóttir:
ÉG OG fjölskylda mín fórum í
sundlaug á Þórshöfn og viljum
þakka sundlaugarverðinum, sem
er kona, fyrir kaffið góða sem
hún færði okkur í heita pottinn
sem var mjög notalegt. Ættu
fleiri á landsbyggðinni að taka
hana sér til fyrirmyndar.
ÞAKKLÆTI
Jóna Björk Jónsdóttir:
ÉG VIL koma á framfæri þakk-
læti til fólksins sem fann tveggja
ára dóttur mína sl. þriðjudag á
Umferðarmiðstöðinni eftir að
hún hafði orðið viðskila við móð-
ur sína og kom henni fyrir á
Laufásborg og tilkynnti svo lög-
reglu.
DÚKKA
DÚKKAN Dúlla er týnd. Hún
tapaðist 25. júlí á leiðinni. frá
versluninni 17 á Laugaveginum
niður á Skólavörðustíg. Hún er
hárlaus og lítil í hvítum galla
með bleikum og bláum doppum.
Eigandi hennar saknar hennar
sáran og er finnandi beðinn um
að hringja í síma 44604 eða
75097.
DÚKKUVTÐ-
GERÐIR
Svanur Sigurgíslason:
HVER tekur að sér að laga gaml-
ar dúkkur? Það er ekki fyrir
hvern sem er að gera slíkt. Út-
limimir eru tengdir saman með
teygjum sem sameinast í búkn-
um. Búkurinn er síðan heill og
lokaður þannig að það er torvelt
að komast að festingunum. Mér
skilst að það séu jafnvel til sér-
stök verkfæri til slíkra viðgerða.
TÝNDUR
KÖTTUR
LÆÐAN Emma hvarf um versl-
unarmannahelgina frá Freyju-
götu 40. Hún er angórublönduð
og svört að lit en kastaníubrún
í mikilli birtu. Emma, sem er 7
ára, var ekki með ól þegar hún
hvarf. Ibúar í nágrenninu em
beðnir um að athuga í bílskúrum
sínum og geymslum. Vinsamleg-
ast hafið samband í síma 622555
ef eitthvað hefur sést til ferða
kattarins.
HÚFA
LEÐURHÚFA með merki
Chicago Bulls tapaðist föstudag-
inn 7. ágúst. Éigandi hennar
telur sig hafa týnt henni í nánd
við Laugarásbíó eða gleymt
henni í Garðabæjarstrætisvagni.
Finnandi er beðinn um að hringja
f síma 656244.
GÖNGUSKÓR
BRÚNIR Kastinger gönguskór
voru teknir í misgripum í Kerl-
ingafjöllum um versiunarmanna-
helgina. Sá sem tók skóna er
vinsamlegast beðinn um að hafa
samband í síma 671657.
MINNISBÓK
LÍTIL ljósblá minnisbók með
bleikum kili fannst við biðskýli
í Árbæ. Minnisbókin inniheldur
heimilisföng frá öllum heims-
hornum. Upplýsingar fást hjá
ínu í síma 677121.
Tjörnin
eyðilögð
Frá Sigvrlaugu Tryggvadóttur:
FÁRÁNLEG mistök hafa átt sér
stað þegar silungur var settur í litlu
fallegu tjömina í Seijahverfinu.
Gróðurinn í kringum hana verður
troðinn niður og eyðilagður. Svo
miklu var búið að kosta til við að
gera umhverfið fagurt. Börnin
vaða, hjóla og jafnvel skríða um
tjörnina þar sem hún er grynnst.
Veiðihugurinn yfirteku skynsemina
sem vonlegt er. Þarna var friðland.
Nú er þar örtröð sem skapar eyði-
leggingu. Hvað svo um mæðumar
sem fá börnin sín rennvot heim ef
til vill oftar en einu sinni á dag?
SIGURLAUG TRYGGVADÓTTIR,
Hjallaseli 55, Reykjavík
LEIÐRÉTTING
Föðurnafn mis-
ritaðist
I kveðjuorðum um Unni Maríu
Ríkarðsdóttur, frá Hjálparsveit
skáta á Akureyri, misritaðist föður-
nafn hennar í fyrirsögn. Beðist er
afsökunar á mistökununm.
Myndabrengl
I Morgunblaðinu í gær, miðviku-
daginn 12. ágúst, áttu sér stað þau
mistök að á miðopnu, bls. 25, þar
sem koma átti mynd af dr. Guðjóni
Elvari Theodórssyni, birtist mynd
af dr. Jóni Jóhannesi Jónssyni. Beð-
ist er velvirðingar á þessum mistök-
um.
Dr. Guðjón Elvar Theodórsson
Guerlain
IARIS
Kynnum nýju haustlitina
frá Guerlain
íClöru, Kringlunni, ídag,
fóstudaginn 14. ágúst,
frákl. 13.00-19.00.
S
ICELANDIC MODELS sýna glæsilegan haust-
fatnað kl. 15 og 17 frá tískuverslunum Kringlunnar.
A Eituiig verður kynning á því nýjasta .
™ í snyrtingu og hárgreiðslu. ® \\
Breskir fjöllistamenn - hstsýning 5 ára bama
- tónlist - leiktæld og margt fleira
o tfl skemmtunar.
Ffi oHi. ðgásl
ICFlliiSlMf
^ tpiii 611 Mb 1é á i@ÓBg(á][i^lpHn
v KRINGWN
Hard Rock Café er opið alla daga til kl. 23:30.
0
Bladid sem þú vaknar vió!