Morgunblaðið - 14.08.1992, Qupperneq 40
MORGVNBLADJD, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1855 / AKVREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FOSTUDAGUR 14. AGUST 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
B).
fi;
II
-v LETTÖL
\\--------( /
Sér fyrir endann á umfangsmiklum framkvæmdum á Laugardalsvelli
Hlaupa-
brautin
ígagnið
Umfangsmiklum framkvæmdum
á aðalleikvangi Laugardalsvallar
miðar vel og hér loka tveir þýzkir
starfsmenn, þeir Thomas og Stef-
an, einum hringnum á nýju
hlaupabrautinni. Jón Magnússon
vallarstarfsmaður segir að áætlað
sé að framkvæmdum við aðra
þætti en flóðlýsingu verði lokið í
næstu viku. Þegar framkvæmdum
við völlinn lýkur verða á honum
8 hlaupabrautir, tvöföld atrennu-
braut fyrir lang- og þrístökk,
kasthringir hvoru megin vallar
auk aðstöðu fyrir aðrar ftjáls-
íþróttir. Stefnt er að því að upp-
setningu fljóðljósa verði lokið fyr-
ir 1. október. Flóðlýsingin verður
í fjórum 42 m háum möstrum og
verða 38 ljóskastarar í hveijum
þeirra, eða 152 talsins. Áætlað
er að framkvæmdirnar kosti sam-
tals 150 milljónir króna.
Morgunblaðið/Júlíus
Breskt ráðgjafarfyrirtæki leitar til byggingaverktaka hér á landi
íslendingar geri tilboð í
byggingn á Gaza-svæðinu
Yerkefnið er talið kosta um einn
milljarð króna og taka tvö ár
VERKTAKASAMBANDI Is-
lands hefur borist erindi frá
breska ráðgjafarfyrirtækinu
Architects Co-Partnership þar
sem óskað er eftir þátttöku ís-
lenskra byggingarverktaka í
Eldavél dýr-
asta raftæki
heimilisins
Rafmagnsnotkun meðalfjöl-
skyldu kostar 34.055 krónur á
ári eða um 93,30 kr. á dag.
Raffangaprófun rafmagnseft-
irlits ríkisins hefur einnig
reiknað út fyrir Morgunblaðið
hvað kostar að nota ýmis raf-
magnstæki sem fólk notar dag
hvern. Þar kemur fram að það
kostar 2,60 kr. að hella upp á
kaffi þrisvar til fimm sinnum
á dag eða um þúsund krónur
yfir árið. Sé sjónvarpið í gangi
5 klst. á dag kostar það 3,20
eða 1.168 kr. á ári.
Langsamlega dýrast og orku-
frekast raftækja er eldavél, en
kostnaður er 11,50 kr. á dag,
eða um 4.197,50 kr. á ári. Þurrk-
ari í þvottavél er helmingi dýr-
ari í notkun á dag en vélin sjálf
og vatnsrúmshitari kostar 8 kr.
á dag.
Sjá bls. 4-5 í B-blaði.
forvali vegna byggingar sjúkra-
húss á Gaza-svæðinu, hernumdu
svæði ísraelsmanna. Að sögn
Pálma Kristinssonar, fram-
kvæmdastjóra Verktakasam-
bandsins, stendur nú yfir vinna
við útvegun forvalsgagna fyrir
íslensk verktakafyrirtæki en til-
boðsfrestur rennur út 7. septem-
ber. Pálmi telur líklegt að tvö
eða þijú íslensk verktakafyrir-
tæki muni sýna þessu áhuga og
að möguleikar þeirra til að fá
verkið séu síst Iakari en ann-
Sjúkrahúsið verður byggt að til-
stuðlan Palestínuflóttamannaað-
stoðar Sameinuðu þjóðanna
(UNRWA). Um er að ræða 230
rúma sjúkrahús og er gert ráð fyr-
ir að verkið muni kosta um einn
milljarð króna og að verktíminn
verði tvö ár. Evrópubandalagið fjár-
magnar byggingu sjúkrahússins að
mestu leyti og var útboðið upphaf-
lega takmarkað við fyrirtæki innan
landa EB og við verktakafýrirtæki
sem starfa á hernumdu svæðunum
á Vesturbakkanum og Gaza-svæð-
inu, en síðar var ákveðið að leita
einnig til verktaka í fleiri löndum
sem eru aðilar að Evrópska efna-
hagssvæðinu. Pálmi sagði það vera
álitamál hvort möguleikar íslenskra
fyrirtækja til að fá verkið væru
bundnir því að EES-samningurinn
öðlaðist gildi um næstu áramót.
Frestur til að skila inn gögnum
vegna forvalsins rennur út 7. sept-
ember og í október verður ákveðið
hvaða fyrirtæki verða fyrir valinu.
Stefnt er að því að gengið verði frá
verksamningum fyrir 1. janúar
1993.
„Við höfum þegar óskað eftir
forvalsgögnum fyrir þau aðildarfyr-
irtæki okkar sem kynnu að hafa
áhuga á að taka þátt í þessu út-
boði. Ég hef trú á því að jafnvel
tvö eða þtjú íslensk verktakafyrir-
tæki muni sýna þessu áhuga og ég
tel að möguleikar þeirra til að fá
verkið séu síst lakari en annarra,"
sagði Pálmi. Hann benti einnig á
að ístak hf. og danska fyrirtækið
E. Phil & Son A/S hefðu unnið að
byggingu_ tveggja hafnarmann-
virkja í ísrael um nokkurra ára
skeið með góðum árangri, undir
stjórn íslenskra verkfræðinga.
„í Ijósi þess mikla samdráttar
sem nú blasir við í verktakaiðnaðin-
um hér á landi er verkefni eins og
þetta meira en kærkomið fyrir ís-
lensk verktakafyrirtæki og starfs-
menn þeirra. Ég tel eðlilegt og
nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld
aðstoði íslensk fyrirtæki við öflun
verkefna eins og þessa á sama hátt
og gert er í nágrannalöndunum,"
sagði Pálmi.
Eldsvoði í
íbúðarhúsi
Hellu.
ELDUR kom upp í gömlu báru-
járnsklæddu timburhúsi að
Haga í Holtahreppi um kl. 17 i
gær, en húsið var mannlaust.
Litlu mátti muna að húsið
brynni til kaldra kola, en það
skemmdist mjög mikið.
Slökkviliðin á Hellu og Hvols-
velli réðu niðurlögum eldsins á um
tveimur klukkutímum. Að sögn
slökkviliðsstjórans á Hellu, Gunn-
ars Siguijónssonar, var slökkvi-
starf erfitt vegna gífurlegs hita
og reyks. Eldurinn virtist hafa
kraumað í húsinu lengi, en eigand-
inn, sem býr þar ekki að stað-
aldri, dvaldi þar síðast á sunnu-
dag. Rjúfa þurfti gat á þak húss-
ins, en Gunnar sagði mestan eld
hafa verið í stigagangi við kjallara
hússins. Miklar skemmdir af völd-
um reyks og hita eru þó um allt
hús. AH
Vildi bjarga
deiginu en
ók aftan á
ÞRIGGJA bíla árekstur varð á
syðri vegarhelmingi Miklubraut-
ar við Kringluna um kl. 16.20 í
gær. Þrennt var flutt á slysadeild
en meiðsl reyndust ekki alvarleg.
Slysið má rekja til þess að um
leið og ökumaður öftustu bifreiðar-
innar skipti yfir á hægri akrein af
þeirri vinstri valt stór hrærivélar-
skál með pönnukökudeigi, sem var
fyrir framan farþegasætið, á hlið-
ina. Ökumaðurinn ætlaði að rétta
skálina við og bjarga deiginu en
missti sjónar á brautinni framundan
með þeim afleiðingum að bifreiðin
lenti á næsta bíl, sem kastaðist á
þriðja bílinn.
Ökumaður miðbílsins og 5 ára
farþegi í aftursæti voru fluttir. á
slysadeild. Reyndist ökmaðurinn
hafa meiðst á hálsi og enni en far-
þeginn ungi hafði sloppið ómeiddur.
Einnig var farið með ökumann öft-
ustu bifreiðarinnar, eiganda deigs-
ins, á slysadeild en hann reyndist
ómeiddur.
Tvo aftari bílana varð að draga
burt með kranabíl en fremsti bíllinn
skemmdist minna.
Myndaðí
frjálsu falli
BIRGIR Sigurjónsson fallhlífastökkvari býr sig
hér undir stökk og ætlar sér greinilega að ná
atburðinum á filmu, því hann hefur fest mynd-
bandstökuvél kyrfilega ofan á hjálminn. Fyrir
hægra auganu hefur hann mið, svo hann átti
sig betur á hvert myndavélin beinist. Myndin
er tekin á Helluflugvelli og í baksýn sést hin
litskrúðuga flugvél Fallhlífaklúbbs Reykjavík-
ur.
Morgunblaðið/PPJ
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
sjóváQ|mmennar