Morgunblaðið - 26.09.1992, Page 13

Morgunblaðið - 26.09.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1.992 13 Lj óðatónleikar Dúfa S. Einarsdóttir og Guðbjörg Sigurjónsdóttir. _________Tónlist____________ Jón Ásgeirsson Dúfa S. Einarsdóttir og Guð- björg Siguijónsdóttir, ásamt Lo- vísu Fjeldsted, héldu ljóðatónleika í Norræna húsinu sl. miðvikudag. Á efnisskránni voru lög eftir Pa- isiello, Gluck, Durante, Brahms, Sibelíus, Jón Þórarinsson og frum- flutt þijú lög eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Dúfa hefur oft komið fram á tónleikum en þetta munu vera í raun fyrstu sjálfstæðu tónleikar hennar. Hún hefur fallega rödd, sem hún beitir af smekkvísi og hefur tamið sér góðan framburð en er svolítið hamin í túlkun, svo að söngur hennar og framsetning var varfærnislegur og það sem oft er sagt um flytjendur, of með- vitaður, svo sem heyra mátti sér- staklega í „antikaríunum" eftir Paisiello,-Gluck og Durante. I Zwei Gesáange eftir Brams, en þar bættist í hópinn Lovísa Fjeldsted á selló, var söngur Dúfu fallegur, einkum í því seinna, Geistliches Wigenlied, og sömu- leiðis sellóleikur Lovísu. Fjögur lög eftir Jón Þórarinsson voru nokkuð varfærnislega sungin, sér- staklega það sérkennilega fallega lag, Það vex eitt blóm fyrir vest- an. Fámm lög eftir Sibelíus voru best fluttu erlendu söngverkin, t.d. Den första kyssen og Sáf, sáf, susa. Frumflutt voru þijú lög eftir Gunnar Reyni Sveinsson, við kvæði eftir Hrafn Andrés Harðar- son, prentuð eru í bókinni Tón- myndaljóð, sem þeir, ásamt mynd- listarmanninum Grími Marinó Steindórssyni, gáfu út fyrir skemmstu. Lögin eru nokkuð sér- kennileg og koma oft fyrir snögg umskipti, sem m.a. tengist því að slegið er'saman tveimur ljóðum, eins t.d. í fyrsta laginu Bláfjöll - Óþello og Flug-Sólskríkja-Flug. Síðasta lagið, Enn á ný, er heil- steypt og ekta Gunnar Reynir og kæmi ekki á óvart að það yrði vinsælt hjá söngvurum. Þetta voru vel framfærðir tón- leikar og sérlega vel undirbúnir, svo að hvergi bar skuggann á, nema að flutningur verkanna var helst til of varfærnislegur. Undir- leikur Guðbjargar var ágætur, sérstaklega í lögum Sibelíusar, sem notar píanóið oft á mjög áhrifamikinn máta. Ólöf Sigurðardóttir * Gallerí Umbra Síðasta sýn- ingarhelgi Ólafar Sig- urðardóttur ÞESSA helgi er síðasta sýning- arhelgi Ólafar Sigurðardóttur í Gallerí Úmbru, á Torfunni, Amtniannsstíg 1. A sýningunni eru verk unnin mgð olíu á tré og striga og eru verkin öll unn- in á þessu ári. Ólöf er fædd í Reykjavík 1961. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóia íslands og útskrif- aðist frá málaradeild vorið 1989. Þetta er fyrsta einkasýning Ólafar en hún hefur áður tekið þátt í sam- sýningum. Sýningin er opin þriðjudaga til laugardaga kl. 12-18 og sunnudag kl. 14-18. Lokað er á mánudag. Sýningunni, sem er sölusýning- unni, lýkur miðvikudaginn 30 september. (Fréttatilkynning) V^terkurog kJ hagkvæmur augjýsingamiðill! ...að sjálfsögðu kostar ekkert inn á sýninguna okkar sem hófst kl. 10 í morgun og verður opið til kl 16. í dag og á moigun sunnudag opnum við kl.13 og lokum kl 17. k sýningunni gefst ykkur kostur á að kynnast þvi nýjasta í hljómtækjum, vídeótækjum, bíltækjum, ryksugum, örbylgjuofnum og videótökuvélum en þar ris hæst ný vél frá Panasonic með gleiðlinsu, einnig sýnum við nýja kynslóð sterio-sjónvarpa og magnaia sem breyta stohmni í Itónlistarpeilpin | KYNNIR OC. BYÐUR IA TILBODSVERDI | KLASSI l<

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.