Morgunblaðið - 26.09.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992
25
Þessi mynd er frá Göngudegi Ferðafélagsins í Heiðmörk fyrir
tveimur árum.
Ferðafélag- íslands
Geng'ið um stíga í Heið-
mörk á fjölskyldudegi
FERÐAFÉLAG íslands efnir á morgun, sunnudaginn 27. septem-
ber, til fjölskyldudags í Heiðmörk. Tilgangur hans er að kynna
almenningi skemmtilegt útivistarsvæði og hvetja unga sem aldna
til hollrar útiveru og gönguferða. Heiðmörkin skartar einmitt
sínum fegurstu haustlitum um þessar mundir sem enginn ætti
að missa af.
lagsreitnum með pylsugrilli (þátt-
takendur hafi með sér pylsur),
söng við harmonikkuundirleik og
leiki.
Á sunnudaginn kl. 8 efnir
Ferðafélagið einnig til eins dags
ferðar þar sem Þórsmörk verður
skoðuð í haustlitum og kl. 10.30
er gengin þjóðleiðin Heiðarvegur-
Ólafsskarðsvegur með viðkomu á
Geitafelli.
(Fréttatílkynning)
Brottför er kl. 13 frá Umferð-
armiðstöðinni, austan megin, og
húsi Ferðafélagsins, Mörkinni 6.
Þátttakendur geta einnig mætt á
eigin bílum í Heiðmerkurreit
Ferðafélagsins í Skógarhlíðar-
krika efst í Heiðmörk (ekið svo-
nefnda Hraunslóð frá Silungapolli
eða hjá Rauðhólum og farinn
Heiðarvegur á enda). Boðið verður
upp á léttar gönguferðir um góða
skógarstíga og endað í Ferðafé-
Opið hús haldið hjá
Kvennadeild R-RKÍ
KVENNADEILD Reykjavíkurdeildar Rauða kross Islands hefur opið
hús I Fákafeni 11 í dag, laugardag, 26. september frá kl. 14 til 18.
Þar verður starf Kvennadeildarinnar kynnt og veitingar boðnar.
í fréttatilkynningu frá Kvenna-
deildinni segir: „Kvennadeildin er
ein öflugasta deild Rauða kross
hreyfíngarinnar hérlendis en rúmur
aldarfjórðungur er liðinn síðan
reykvískar konur tóku höndum
saman í nafni Rauða krossins og
stofnuðu sérstaka deild til að sinna
sjúkum og öldruðum.
Í dag rekur Kvennadeildin sölu-
búðir á fjórum sjúkrastofnunum í
Reykjavík. Þar afgreiða sjálfboða-
liðar og vegna þess endurgjalds-
lausa vinnuframlags er nokkur
hagnaður af sölubúðunum. Þeim
hagnaði ver Kvennadeildin til kaupa
á lækninga- og rannsóknatækjum
fyrir sjúkrahúsin. Undanfarin ár
hefur Kvennadeildin gefíð tæki fyr-
ir um fímm milljónir króna árlega.
Sjálfboðaliðar Kvennadeildarinn-
ar sjá einnig um sjúklingabókasöfn
sjúkrahúsanna, fara vikulega á
deildir þeirra og lána sjúklingum
bækur. Þá er starfrækt á vegum
deildarinnar heimsóknarþjónusta en
hún hefur það að markmiði að ijúfa
einangrun sjúkra og aldraðra í
heimahúsum. Um 20 manns fá
vikulega heimsóknir sjálfboðaliða,
sem lesa, sitja og spjalla eða fara
í gönguferðir með þeim sem þeir
heimsækja.
Rauða kross konur hittast einnig
vikulega og föndra saman ýmsa
muni sem seldir eru á basar deildar-
innar sem haldinn er í nóvember
Samstarfshópur um málefni
daufblindra heldur málþing
MÁLÞING um málefni dauf-
blindra verður haldið í Blindrafé-
laginu, Ilamrahlið 17, dagana 28.
september til 2. október nk. Að
inálþinginu stendur samstarfs-
hópur um málefni daufblindra á
Islandi.
Nýlega var stofnaður hér á landi
samstarfshópur um málefni dauf-
blindra á íslandi. í honum eiga
m.a. sæti fulltrúar Blindrafélagsins,
Félags heyrnarlausra, Sambýlisins
Stigahlíð 71, Samskiptamiðstöðvar
heyrnarlausra og heymarskertra,
Sjónstöðvar íslands og Trygginga-
stofnunar ríkisins. Markmið með
starfínu er að gera athugun á mál-
efnum daufblindra hér á landi og
leita leiða til úrbóta. Fyrsta skrefíð
er kynning á daufblindu sem fötlun,
könnun á fjölda daufblindra og að-
stæðum þeirra.
Vetrarstarf Áskirkju
VETRARSTARFIÐ í Áskirkju hefst sunnudaginn 27. september.
Verður barnaguðsþjópusta kl. 11 og síðan á sama tíma hvern sunnu-
dag í vetur. Þar eru börnunum kenndar bænir og vers, sagðar sög-
ur og afhentar Biblíumyndir og afmælisbörn fá litla gjöf. Barnasálm-
ar og hreyfisöngvar eru sungnir. Barnastarfið annast Guðrún M.
Birnir ásamt sóknarpresti.
Eins og aðra sunnudaga_ vetrar-
ins verður guðsþjónusta í Áskirkju
kl. 14. Þar mun Ingibjörg Marteins-
dóttir syngja einsöng og kirkjukór
Áskirkju syngur. Organisti er Krist-
ján Sigtryggsson.
Á sunnudaginn mun Safnaðarfé-
lag Ásprestakalls láta bifreið aka
að dvalarheimilum og fjölmennustu
byggingum sóknarinnar og gefa
íbúum þeirra kost á flutningi til
kirkju og heim aftur síðar um dag-
inn. Mun félagið bjóða þessa þjón-
ustu tvisvar í mánuði í vetur líkt
og undanfarin ár og verða ferðirnar
auglýstar nánar hveiju sinni.
Eftir messu á sunnudaginn selur
safnaðarfélagið kaffi í safnaðar-
heimili Áskirkju. Rennur ágóði af
i.affisölunni til kirkjubyggingarinn-
ar og til stuðnings starfi félagsins
í þágu eldri og yngri sóknarbarna
kirkjunnar.
Eins og í fyrra verður jafnan
boðið upp á kaffí eftir messu en
þær samverustundir að spjalli liafa
stuðlað að auknum kynnum.
Félagsfundir safnaðarfélagsins
verða mánaðarlega í vetur og dag-
skrá fjölbreytt. Fyrsti fundurinn
verður þriðjudaginn 13. október kl.
20.30. M.a. verða sýndar myndir
frá ferð félagsins á Snæfellsnes í
sumar.
Á miðvikudögum kl. 17 verður
starf með tíu til tólf ára bömum í
Safnaðarheimili Áskirkju. Þeim
samverustundum stjóma guðfræði-
nemamir Bryndís M. Elídóttir og
Hildur M. Einarsdóttir. Ennfremur
verða fundir í Æskulýðsfélagi Ás-
kirkju á sunnudagskvöldum kl. 20.
Með vetrarkomu er í ráði að hafa
Opið hús í Safnaðarheimili Áskirkju
alla þriðjudaga og fímmtudaga kl.
10-12 og 13-16. Þangað eru allir
velkomnir, yngrí og eldri, heitt verð-
ur á könnunni og starfsmaður kirkj-
unnar til viðtals og aðstoðar. Feðra-
og mæðramorgnar verða miðviku-
daga kl. 10-12. Umsjón með því
starfí annast Guðrún M. Birnir.
Biblíulestrar og fræðsla verða í
Safnaðarheimili Askirkju á fímmtu-
dagskvöldum kl. 20.30 í vetur, í
fyrsta sinn 15. október. Þar verður
íjallað um Opinbemnarbókina og
lýkur þeim samverustundum með
kvöldbænum í kirkjunni.
Aðrir þættir safnaðarstarfs vetr-
arins, svo sem fræðslukvöld, verða
nánar auglýstir síðar.
(Fréttatilkynning)
Fötlun daufblindra er mjög mis-
munandi mikil og má skipta þeim
í tvo hópa: í fyrsta lagi: Þeir sem
fæddir em með alvarlega sjón- og
heyrnarskerðingu svo og þeir sem
hlotið hafa slíka fötlun áður en
þeir lærðu að tala. í öðm lagi: Þeir
sem hljóta alvarlega sjón- og heym-
arskerðingu seinna á ævinni: a)
heymarlausir eða mikið heyrnar-
skertir sem fá alvarlega sjónskerð-
ingu, b) blindir eða sjónskertir sem
fá alvarlega heyrnarskerðingu, c)
þeir sem sjá og heyra eðlilega en
af einhveijum ástæðum fá bæði
alvarlega sjón- og heymarskerð-
ingu.
Hér á landi em tæplega 30 ein-
staklingar sem geta talist dauf-
blindir. Grunur leikur á að þessi
hópur sé töluvert stærri og mikil-
vægt er að fínna alla þá einstakl-
inga sem eru mikið sjón- og heym-
arskertir svo hægt sé að veita þeim
alla þá aðstoð sem völ er á. Mjög
mikilvægt er að greina þessa ein-
staklinga snemma og einnig þá sem
em í áhættuhópi vegna hratt versn-
andi sjónar eða heymar.
Daufblindir eru mjög alvarlega
fatlaðir einstaklingar og í sumum
tilvikum algerlega einangraðir frá
umhverfínu. Þessa einangrun er
hægt að ijúfa með markvissum
aðgerðum. Þar er íslenska táknmál-
ið mikilvægasti hlekkurinn.
Daufblindir geta lært táknmál
og síðar notað túlka, sérstaklega
þeir sem flokkast í seinni flokkinn
hér að ofan. Það er því fyrsta verk-
efni okkar að gefa öllu daufblindu
fólki tækifæri til þess að tengjast
umheiminum í gegnum táknmálið.
Hingað til lands koma fyrirlesar-
ar frá Bandaríkjunum og Dan-
mörku og munu þeir fjalla um eðli
daufblindu, starf með daufblindum
og möguleika daufblindra til þess
að öðlast lífsfyllingu.
Sétt hefur verið upp dagskrá
fyrir málþingið og er það einkum
ætlað daufblindu fólki, starfsfólki
sem vinnur með daufblindum, þeim
er íjalla um málefni daufblindra og
öðru áhugafólki um þessi mál.
ár hvert. Félagsstarf Kvennadeild-
arinnar er einnig blómlegt því
haldnir eru fræðslufundir, hádegis-
verðarfundir og farnar styttri
skemmtiferðir. Nú starfa um 300
sjálfboðaliðar innan Kvennadeildar-
innar en þó vantar fleiri til starfa.
Í dag, laugardaginn 26. septem-
ber, verður opið hús í húsakynnum
Reykjavíkurdeildar Rauða kross ís-
lands í Fákafeni 11, milli kl. 14 og
18. Allir, jafnt karlar sem konur,
eru velkomnir þangað til að kynna
sér nánar starfsemi Kvennadeildar-
innar.“
Hörður Torfa
■ HÖRÐUR Torfa heldur tón-
leika í Leikhúsi Vestmannaeyja
annað kvöld, sunnudagskvöldið 27.
september, kl. 21. Þar næsta sunnu-
dag, 4. október, verður Hörður á
Akureyri og heldur tónleika á.
skemmtistaðnum 1929 og hefjast
þeir kl. 21.00. Sunnudagskvöldið
11. október verður Hörður Torfa á
Selfossi.
Sérstakur bamadagur
haldinn í Kolaportinu
KOLAPORTIÐ efnir til sérstaks
barnadags á morgun, sunnudag,
og mun markaðstorgið snúast
þann dag um ýmislegt sem börn-
um viðkemur. Félagasamtök
munu kynna starfsemi sína sem
viðkemur uppeldi, heilbrigði og
þroska barna, en fyrirtæki með
hvers konar barnavörur munu
einnig kynna starfsemi sína á
sölubásum.
í frétt frá Kolaportinu segir:
„Ýmsar sérstakar uppákomur verða
þennan dag börnum til skemmtun-
ar, trúðar, andlitsmálning, danssýn-
ingar og fleira, en ætlunin er að
þetta verði fyrst og fremst áhuga-
verður vettvangur fyrir foreldra til
að kynna sér ýmis mál sem eru
bömum þeirra til góða.
Mikil vinna hefur þegar verið
lögð í undirbúning bamadagsins og
fjölmargir aðilar lagt þar hönd á
plóginn. Gott samstarf hefur tekist
með fjölmörgum félagasamtökum
sem munu taka virkan þátt í bama-
deginum með ýmsum hætti og má
þar t.d. nefna Barnaheill, Neyt-
endasamtökin, Uppeldi, slysadeild
Borgarspítalans, heilbrigðisráðu-
neytið, Foreldrasamtökin, Slysa-
varnafélagið, lögregluna, Umferð-
arráð, Dagvistun bama, Félag for-
eldra misþroska bama og svo má
lengi telja."
♦ ♦ ♦
Vetrarstarf
í Arbæjar-
kirkju
VETRARSTARF Árbæjarkirkju
hefst formlega næstkomandi
sunnudag, 27. september, með
barna- og fjölskylduguðsþjón-
ustu kl. 11.
Skólakór Árbæjarskóla syngur
undir stjóm Áslaugar Bergsteins-
dóttur. Dagskrá bamastarfs vetrar-
ins verður kynnt, en það verður á
þremur stöðum, í Árbæjarkirkju,
Ártúnsskóla og Selásskóla kl. 11 á
sunnudögum. Boðið verður upp á
kaffisopa og ávaxtasafa eftir guðs-
þjónustuna.
Suðurgata
Síðasta helgin í Árbæj-
arsafni á þessu sumri
HELGIN framundan er síðasta helgin sem Árbæjarsafn verður opið
á þessu sumri. Það eru því síðustu forvöð að sjá sumarsýningamar
„Það var svo geggjað", um hinn litskrúðuga tíma í kringum 1970,
og sýninguna „Skólahald um aldamótin“.
Sunnudaginn 20. september var saga hússins í máli og myndum,
húsið, sem áður stóð við Suðurgötu
7, opnað eftir miklar endurbætur.
I vesturenda hússins er sýning á
heimili efnameira fólks frá síðustu
aldamótum. í hinum endanum, þ.e.
þeim eystri, er á annarri hæð rakin
en á jarðhæð er gullsmíðaverk-
stæði. Á sunnudag milli kl. 13 og
17 verður Paul Oddgeirsson gull-
smiður að störfum á verkstæðinu.
(Fréttatilkynning)
Ólympíufarar í Krmglunni
ÓLYMPÍUFARARNIR, sem tóku hitta í Kringlunni flest keppnisfólk-
þátt í Ólympíuleikum fatlaðra í ið og hylla það. Jafnframt munu
Barcelona og þroskaheftra í þau taka við framlögum í fjársöfnun
Madrid, verða í Kringlunni kl. sem nú er hafín til þess að standa
13 í dag, laugardag. straum af kostnaði við þátttöku í
Almenningi gefst þá kostur á að mótunum.