Morgunblaðið - 26.09.1992, Síða 20

Morgunblaðið - 26.09.1992, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992 Hætta Rússar við kafbáta- sölu? HÁTTSETTUR rússneskur embættismaður sagði í gær að ekkert yrði úr sölu á þrem rúss- neskum dísilkafbátum ti írans vegna deilna um greiðslur. Bandaríkjamenn hafa gagnrýnt söluna mjög og sagt að bátam- ir gætu ógnað hernaðaijafn- vægi og olíuflutningum á Persaflóa. Yfirmaður Írans- deildar rússneska utanríkis- ráðuneytisins sagði í viðtali við TASS-fréttastofuna að mót- mælin stöfuðu af viðskipta- hagsmunum. Bandaríkjamenn vildu komast aftur inn á vopna- markaðinn í íran þar sem þeir voru nær einráðir í tíð keisarans er var hrakinn frá völdum 1979. Franskir sós- íalistar von- g-óðir BÚIST er við því að stjómar- flokkur franskra sósíalista vinni nokkur sæti í kosningum til öld- ungadeildarinnar á morgun. Skoðanakannanir hafa sýnt mikið fylgistap hjá flokknum síðsutu mánuði en ástæðan fyr- ir von flokksmanna er kosn- ingafyrirkomulagið. Þjóðþingið (neðri deildin) þar sem sósíalist- ar hafa þriðjung atkvæða, kýs hluta af öldungadeildinni og kemur minnkandi stuðningur kjósenda núna því ekki að fullu fram í úrslitunum. Mátti ekki lifa í synd PRENTSMIÐJU í eigu ka- þólsku kirkjunnar í Lúxemborg hefur verið gert skylt að greiða konu nokkurri skaðabætur sem nema rúmlega hálfri annarri milljón ÍSK. Ástæðan var sú að konan bjó með manni sem einnig vann hjá fyrirtækinu en þau vom ekki gift og var hún rekin fyrir vikið. Maðurinn hélt starfi sínu. Yfirmenn prent- smiðjunnar segja að tekið hafí verið skýrt fram í ráðningar- samningi konunnar að henni væri bannað lifa í óvígðri sam- búð. Dómstóllinn taldi brott- reksturinn óréttlátan. Herforingjar herða tökin í Burma STJÓRN herforingjanna í Burma, sem þeir nefna reyndar Myanmar, hefur skipað fleiri liðsforingja í ábyrgðarstöður hjá ríkisvaldinu þrátt fyrir lof- orð um að horfíð verði til borg- aralegra stjórnarhátta. Erlend- ur stjórnarerindreki sagði þess- ar ráðstafanir benda til þess að einræðistjómin hygðist herða enn tökin. Ferðahömlum aflétt RÚSSAR og Bandaríkjamenn bmtu niður einn af síðustu þrö- skuldum kalda stríðsins í gær er þeir afléttu gagnkvæmum hömlum á ferðir viðskiptaerin- dreka og fréttamanna. Samn- ingar þessa efnis voru gerðir er Borís Jeltsín Rússlandsfor- seti sótti George Bush Banda- ríkjaforseta heim í júní sl. Bandaríkjamenn geta nú ferð- ast hvar sem er í Rússlandi nema um þau svæði sem yfír- völd varnarmála banna jafnvel rússneskum almenningi. að skoða. Suður-Afríka Satnkomu- lag næst um friðar- viðræður Jóhannesarborg. Reuter. F.W. de Klerk, forseti Suður-Afr- íku, og Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins (ANC), hafa náð samkomulagi um fund til að freista þess að binda enda á drápin í byggðum blökkumanna í landinu. Fundur þeirra verður í Jóhannesarborg í dag. De Klerk bauð Mandela til fund- arins eftir að ANC hafði hætt við- ræðum við stjórnina um framtíð landsins í kjölfar fjöldamorða í blökkumannahverfinu Boipotang í júlí. ANC féllst á fundinn en setti það skilyrði að stjórnin gengi að kröfum hreyfingarinnar um að póli- tískum föngum yrði sleppt, hættuleg vopn yrðu bönnuð á almannafæri og að gistihúsum fyrir farandverka- menn yrði lokað. Heimildarmenn sögðu að erfiðast hefði verið að leysa fangamálið og ANC hefði lagt áherslu á að þremur blökkumönnum, sem afplána lífstíðardóm fyrir morð á sex hvítum borgurum, yrði sleppt. Stjómin varð að lokum við kröfunni á fimmtudagskvöld. ♦ ♦ » ■ PARÍS - STJÓRNSKIPUÐ nefnd varaði við því í skýrslu fyrir þremur árum, að hætta væri á skyndilegum flóðum við bæinn Vai- son-la-Romaine, á svæðinu þar sem óttast er að 75 manns hafi farist af völdum gífurlegs úrfellis fyrr í þessari viku, að því er dagblaðið Liberation sagði í gær. Vitneskjan um skýrsluna hefur kynt undir ágreiningnum um, hver beri ábyrgð- ina á dauða þeirra, sem létu lífið í flóðurium í Suðaustur-Frakklandi á þriðjudaginn. Að minnsta kosti 35 manns fórust, þar af 21 í bænum Vaison-la-Romaine. Um 40 er sakn- að og óttast, að þeir séu látnir. Kaldur vetur í nánd Þúsundir íbúa Sarajevo, höfuðborgar Bosníu-Herzegovínu, eru án rafmagns og geta ekki notað eldavélar sínar. Þeir eru nú byijaðir að búa sig undir kaldan vetur eins og þessi maður sem safnar hér eldiviði. Loftflutningar á matvælum til borgarinnar hafa legið niðri frá 3. september vegna árása Serba á borgina og mikil óvissa er um framhald þeirra. Cyrus Vance og Owen lávarður, samningamenn Sameinuðu þjóðanna og Evrópubandalagsins, fóru í gær til bæjarins Banja Luka í norðurhluta Bosníu. Aðspurðir sögðust þeir meðal ann- ars vilja kanna meint dráp á 200 múslimum í bænum Travnik, um 140 km sunnan við Barija Luka. Fregnir herma að serbneskir lögreglu- menn hafí skotið múslimana 21. ágúst eftir að þeim hafí verið sleppt úr fangabúðum. Fórnarlömbin voru karlmenn, sumir á táningsáldri. Bandaríkin Ekkert lát á efnahag’s- kreppunni Florída. Frá Atla Steinarssyni, fréttarit- ara Morgunblaðsins. ENN er ekkert lát á þeirri kreppu sem einkennt hefur efnahagslíf Bandaríkjanna frá því á árinu 1990. í vikunni sem lauk 5. september voru 400 þús- und nýjar umsóknir um atvinnu- leysisbætur afgreiddar en vik- una þar á undan voru þær 394.000. Ástæða aukningarinnar er rakin til uppsagna í verksmiðjum Gener- al Motors í Ohio og Michigan og einnig misstu um 2500 manns at- vinnu sína í Florída vegna afleið- inga fellibylsins Andrésar. Haft er eftir færustu sérfræðingum að engar batahorfur séu í augsýn á vinnumörkuðunum. 3,2 milljónir Bandaríkjamanna voru á atvinnuleysisbótum í byijun mánaðarins. í júlí varð viðskipta- jöfnuðurinn óhagstæður um 7,8 milljarða dollara að sögn viðskipta- ráðuneytisins. Er það 1,1 milljarði dala meiri viðskiptahalli en varð í júní. Mismunur á milli inn- og út- flutnings hefur ekki verið jafn mikill og nú síðan í nóvember 1990 er hann nam 9,5 milljörðum doll- ara; Útflutningur í júlí dróst saman um 2,4% frá mettölunum í júní er útflutningurinn nam aðeins 38,2 milljörðum dollara. Innflutningur jókst hins vegar um 0,7% og nam 45,2 milljörðum dollara og er það nýtt met. Þó aukinn innflutningur geti boðað gleðifréttir, ef hann byggist á aukinni vöruþörf, segja sérfræðingar að svo sé ekki í þessu tilviki og samdrátturinn í útflutn- ingi skyggi á allar batavonir. Haft er eftir einum sérfræðinganna , að það sé sama hvernig litið sé á málin; það séu engar batahorfur í efnahagsmálunum. Stjórnarandstæðingar í Rússlandi sækja að Jeltsín Vilja að ríkið gegni stærra lilutverki í markaðsvæðingu Moskvu. Reuter. BORGARABANDALAGIÐ, samtök sljórnarandstæðinga í Rúss- landi, lögðu í gær fram nokkurs konar stefnuskrá sína. Þar er þrýst á Borís Jeltsín forseta landsins að breyta efnahagsumbóta- stefnu sinni. Kjarninn í stefnu bandalagsins er að ríkið þurfi að gegna stærra hlutverki í markaðsvæðingu efnahagslífsins. Að Borgarabandalaginu standa áhrifamenn í atvinnulífínu, fjöl- margir stjórnmálaflokkar og kunnir stjórnmálamenn eins og Alexander Rútskoj varaforseti. I grein í dagblaðinu Nezeavisimaja Gazeta sem birtist í gær sagði Alexander Vladislavlev, einn frammámanna bandalagsins, að einungis hugsjónin um Stórrúss- Iand megnaði að sameina fátæka íbúa Rússlands. Ennfremur varaði hann við því að hinar harkalegu efnahagsaðgerðir ríkisstjómarinn- ar gerðu það að verkum að fólk óttaðist fijálst markaðshagkerfi. Hann lagði til að gerðar yrðu breytingar á ríkisstjórninni í sam- ræmi við þá stefnu sem yrði fyrir valipu, a.m.k. þyrfti fagmaður að vera við stjórnvölinn. Er litið á þau orð sem fyrstu áskorun Borgara- bandalagsins til Jeltsíns um að Jegor Gajdar forsætisráðherra verði að víkja. Stefna Borgarabandalagsins birtist ennfremur í gær í saman- tekt ræðu Arkadíjs Volskíjs, leið- toga þess, sem Reuters-fréttastof- unni var afhent. Þar segir Volskíj að markaðshagkerfí sé ekki mark- Vill skilja við foreldra sína Þessi 12 ára drengur hefur vakið mikla athygli í Banda- ríkjunum fyrir að hafa sótt um „skilnað" frá foreldrum sínum. Foreldrarnir skildu þegar hann var ungur og síð- an hefur hann dvalið í ýmsum uppeldisstofnunum. Undan- farin misseri hefur hann búið hjá fósturforeldrum og sótti um skilnað frá foreldrum sín- um eftir að móðir hans sótt- ist eftir því að fá hann aftur. Hann neitar því algjörlega og segir hana hafa vanrækt sig vegna áfengissýki. mið í sjálfu sér heldur leið til að tryggja velferð manna. Hann seg- ir að ríkið eigi að hafa ríkt eftirlit með umbyltingunni frá miðstýr- ingu til markaðsbúskapar. í því sambandi nefnir hann að í Þýska- landi og Japan hafí hið opinbera strangt eftirlit með atvinnulífinu. Núverandi stefna rússnesku stjórnarinnar muni breyta Rúss- landi í bananalýðveldi án eigin hátækni. Leggur hann til að flest rússnesk fyrirtæki fái þriggja ára aðlögunartima áður en þeim verði gert að spjara sig óstudd í frjálsri samkeppni. Reuter

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.