Morgunblaðið - 26.09.1992, Side 23

Morgunblaðið - 26.09.1992, Side 23
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Myntbandalag í óvissu Svo virðist sem franska og þýska seðlabankanum hafi í bili tekist að bjarga franska frankanum frá falli í kjölfar þeirrar atlögu sem gerð var að honum á gjaldeyrismörkuðum nú í vikunni. Seðlabönkum Bret- lands, Spánar og Ítalíu tókst hins vegar ekki, nokkrum dög- um áður, að tryggja gengisfestu og tóku ríkisstjórnir Bretlands og Italíu ákvörðun um að pund- ið og líran yrðu tímabundið tek- in út úr Gengissamstarfi Evr- ópu, ERM, og látin fljóta í stað- inn. Finnar gáfu einnig gengi marksins frjálst, sem í raun er ekkert annað en gengisfelling, en Svíum tókst að veija krónuna með því að hækka millibanka- vexti í 500% í nokkra daga. Þó tiltölulega rólegt hafi verið á gjaldeyrismörkuðum síðustu tvo daga er ekki enn útséð um að þeirri orrustu, sem þar hefur verið háð á undanförnum vikum, sé lokið. Hún snýst heldur ekki einungis um hver eigi að vera gengisskráning einstakra gjald- miðla heldur er í raun tekist á um framtíð Evrópska myntsam- starfsins, EMS. Þetta kerfi, sem sett var á laggirnar til að tryggja stöðugleika gjaldmiðla Evrópu- bandalagsríkjanna, riðar til falls. Frá stríðslokum fram til upp- hafs áttunda áratugarins var akkeri gengismála í heiminum gullbinding dollars innan hins sk. Bretton Woods-fastgengis- kerfis. Það kerfi þoldi hins vegar ekki aukna verðbólgu og olíu- kreppu og árið 1973 tók við tímabil fljótandi gengis helstu gjaldmiðla heimsins. Hugmyndin að EMS var sett fram árið 1978 af þeim Helmut Schmidt, kanslara Þýskalands, og Valéry Giscard d’Estaing Frakklandsforseta í því skyni að treysta þann grundvöll sem viðskipti ríkjanna byggðust á með því að draga úr gengis- sveiflum. EMS fór fremur brösulega af stað og á fyrstu árunum þurfti margsinnis að endurmeta inn- byrðis gengisskráningu þeirra gjaldmiðla sem aðild áttu að samstarfínu. A síðari hluta níunda áratugarins komst hins vegar á stöðugleiki innan kerfis- ins, ekki síst vegna hinnar ströngu peningastefnu sem fylgt var af þýska Bundesbankanum. Þar til í síðustu viku hafði ekki þurft að breyta hlutföllum gjaldmiðlanna innan ERM frá því árið 1987. Var sá árangur á sviði gengismála helsta rök- semd þeirra sem töldu EB vera reiðubúið fyrir þann efnahags- lega og peningalega samruna sem lagður hafði verið til í Del- ors-áætluninni 1989 og var loks samþykktur með Maastricht- sáttmálanum í desember í fyrra. Fyrir árið 1999 átti Mynt- bandalag Evrópu, EMU, að vera orðið að veruleika og EB-ríkin búin að stofna sameiginlega seðlabanka og taka upp einn sameiginlegan gjaldmiðil. Nú virðist hins vegar flest benda til að þarna hafi menn færst fullmikið í fang. Reynsla síðustu vikna sýnir að hagkerfi EMS-ríkjanna ellefu (eins og þau voru þar til Bretar og ítalir hættu þátttöku — Grikkir hafa aldrei verið aðilar) voru enn of ólík til að gengi gjaldmiðla þeirra gæti haldist innan hins þrönga 2,25% fráviksramma ERM-kerfisins. Gengi gjaldmið- ils ræðst ekki af pólitískri ósk- hyggju heldur efnahagslegum staðreyndum. Ef gengi er haldið of háu af pólitískum ástæðum mun það óhjákvæmilega valda þrýstingi á þann gjaldmiðil á mörkuðum. Stöðugleiki í evr- ópskum gengismálum næst aft- ur á móti ekki með því að út- húða spákaupmönnum eða tak- marka viðskipti með gjaldeyri heldur með sveigjanlegri geng- issamvinnu. Þó að tímaáætlunin varðandi EMU virðist nú vera í molum er ekki þar með sagt að mark- miðið um samræmda peninga- stefnu EB-ríkjanna sé úr sög- unni. Það var ekki síst ótti mark- aðanna, í kjölfar dönsku þjóðar- atkvæðagreiðslunnar, um að peningalegi samruninn væri í hættu sem olli þeim miklu látum sem verið hafa á gjaldeyris- mörkuðunum. Það sem einna helst hefur líka orðið til að þrýsta á gengi veik- ari gjaldmiðla innan EB er hinn gífurlegi kostnaður vegna sam- einingar Þýskalands. Þýskir stjórnmálamenn hafa verið gagnrýndir harðlega af evrópsk- um starfsbræðrum sínum fyrir að þráast við að hækka skatta til að standa straum af þeim kostnaði. í staðinn hefur Bund- esbankinn hækkað vexti og þar með knúið önnur Evrópuríki til að gera slíkt hið sama. Vaxta- stig í Evrópu og gengismál hafa því ráðist af hagsmunum eins hagkerfis en ekki allra þeirra sem aðild eiga að samstarfinu. Það má því telja líklegt að leið- togar annarra ríkja muni krefj- ast þess að ekki einungis pen- ingamál ríkjanna verði sam- ræmd, ef halda eigi áfram mynt- samstarfi, heldur einnig efna- hagsstefnan. Starfsmenn álversins í hart við stjórnendur Ganga ekkí að skilyrðum um verktaka og vaktastjórnun VERKALÝÐSFÉLÖG starfsmanna álversins í Straumsvík hafa að sögn Gylfa Ingvarssonar aðaltrúnaðarmanns fullt samstarf um að stefna að stöðvun vinnu við útflutning á áli og yfirvinnubanni. Tillögur um þetta hafa verið samþykktar af tveimur félögum og fundir boðaðir í öðrum. Gylfi segir starfsmenn ekki geta gengið að skilyrðum ISAL varðandi stjórn vakta og verktakavinnu en stjórnendur fyrirtækisins segja þær ófrávíkjanlegar og eðlilegar. Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins segir það rangt mat starfsmanna að VSÍ hafi ekkert umboð til að semja, en vitaskuld takmarkist það af vilja við- komandi fyrirtækis. Sigurður Briem starfsmannastjóri ISAL segist ekki geta útilokað aðgerðar svipaðar þeim sem gripið hefur verið til í Járn- blendiverksmiðjunni, uppsagnir og launalækkahir, en auðvitað vonist hann til að málin leysist á annan hátt. Álversfólk í Verslunarmannafélagi Hafnarfjarðar samþykkti á fimmtu- dag tillögur um yfirvinnubann og lýsti stuðningi við samþykktir starfsmanna ÍSAL í verkamannafélaginu Hlíf. Hlíf hafði áður beint þvi til trúnaðarmann- aráðs að samþykkja útflutnings- og yfírvinnubann. Fundur hefur verið boðaður í trún- aðarmannaráði Álversins á mánudag. Þetta er gert til að ýta á gerð nýrra kjarasamninga eftir miðlunartillögu ríkissáttasemjara frá því í maí, ári eftir að samningar urðu lausir. Rafiðn- aðarsambandsmenn sem vinna í Ál- verinu samþykktu ályktun í fyrra- kvöld sem lögð verður fyrir trúnaðar- ráðsfundinn eftir helgi. Þar er þess krafist að Vinnuveitendasambandið ræði við starfsmenn ÍSAL á sömu nótum og aðra launþega og samið verði á grunni miðlunartillögunnar. Aðilum ber saman um að tvö atriði læsi stöðunni. Þau felast í svokölluð- um stjómunarrétti ÍSAL á vaktafyrir- komulagi og verktakavinnu. Þórarinn V. Þórarinsson segir að vandi álrekstr- ar og tap fyrirtækisins valdi því að stjórnendur þess verði að finna leiðir til að hagræða í rekstrinum og halda samkeppnisstöðu sinni á þröngum markaði. Rýmri reglur um stjómunar- rétt séu að hluta til sömu ákvæði og ýmis stéttarfélaga starfsfólks álvers- ins hafi samið um við Atlantal. Hann segir þær á engan hátt frábragðnar því sem tíðkist og menn verði að horf- ast í augu við hvað gera þarf til að halda þessum rekstri gangandi. Gylfl Ingvarsson segir að starfs- menn hafi gengið að þremur skilyrð- um af fímm sem ÍSAL setti upp en stjómendur fyrirtækisins hafi fellt miðlunartillögu sáttasemjara í vor. Hann segir að VSÍ hafí ekki umboð ÍSAL til að semja og geti aðeins sett þeim ósveigjanleg skilyrði. Þess vegna hafí hann sagt ríkissáttasemjara í fyrradag að engin ástæða væri til að halda samningafund fyrr en ljóst væri að þetta hefði breyst. Gylfí segir ómögulegt að ganga að skilyrðum um einhliða ákvörðun stjómenda á vaktafyrirkomulagi og um ráðningar verktaka í mötuneyti, ræstingu, byggingardeild og hafnar- svæði. Hann telur augljóst að það þýði að 60-70 starfsmenn þoli kjara- skerðingu eða missi vinnuna. „Sam- starf tíu verkalýðsfélaga starfsmanna álversins hefur gefið það af sér að kvennastörf meðal annars era betur borguð hér en inni í bæ en nú sér forstjórinn þá leið til að bjarga fyrir- tækinu að lækka laun þeirra sem era í lægstu flokkunum," segir Gylfí. Sigurður Briem starfsmannastjóri álversins segir að hvað verktakaþátt- inn varði sé aðeins um ræstingar og byggingardeild að ræða á næsta samningstímabili, ekki mötuneyti. Verktakar yrðu ekki ráðnir nema að undangenginni athugun sem leiddi í ljós að það borgaði sig og ljóst að fastráðnu starfsfólki yrði ekki sagt upp. Ef til kæmi myndi það flytjast til í starfí eða fá biðlaun. Hann segir að stjómendur fyrirtæk- isins vilji geta ákveðið hvernig unnið sé á vöktum. Oft kalli aðstæður á breytt fyrirkomulag og yfirleitt vilji nóg af fólki sveigja vinnutímann að þeim. Óeðlilegt sé að starfmenn sem ekki myndu taka þátt í nýju vinnufyr- irkomulagi geti girt fyrir að hinir sem það gera breyti eitthvað til. Lyfjum stol- ið af skurð- stofum BROTIST var inn í geymslur á skurðdeild á fjórðu hæð Landakotspítala í fyrrakvöld eða fyrrinótt og lyfjum stolið úr lyfjaskápum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var morfín meðal þess sem stolið var. Tilkynnt var um atburðinn um klukkan hálfátta í gærmorgun en ekki er að fullu ljóst hvenær þjófnaðurinn var framinn. RLR vinnur að rannsókn máls- Lækkun vaxta á skammtímabréfum Aukið framboð peninga og trú á lágri verðbólgu - segir Pétur Kristinsson í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa AUKIÐ framboð á peningum til skammtímaávöxtunar og traust fjár- festa á að lágt verðbólgustig sé orðið viðvarandi er ástæða þess að nafn- vextir á óverðtryggðum skammtimabréfum hafa farið lækkandi undan- farna mánuði, að sögn Péturs Kristinssonar, framkvæmdastjóra Þjónustu- stofnunar rikisverðbréfa. Vakið hefur athygli að á sama tíma og vextir á ríkisvíxlum og öðram skammtímabréfum ríkissjóðs hafa far- ið lækkandi hækka vextir spariskír- teina og fleiri bréfa á Verðbréfaþingi íslands. Pétur Kristinsson segir að ekkert samhengi sé þarna á milli. Annars vegar sé um að ræða óverð- tryggða pappíra til stutts tíma og hins vegar verðtryggt spamaðarform til langs tíma. Varðandi spariskírteinin á Verð- bréfaþinginu segir Pétur að Seðla- bankinn sem viðskiptavaki þeirra hafí orðið að kaupa töluvert af spariskír- teinum þar sem framboð hafi verið umfram eftirspurn. Bankinn hafí því hækkað vexti bréfanna með því að hækka kauptilboð sitt til þess að hamla á móti því að hann þurfi að kaupa spariskírteinin. Pétur segir að til skamms tíma hafí vextir á óverðtryggðum skamm- tímapappíram verið allt of háir. Þegar verðbólgan lækkaði hafi menn ekki haft trú á að það væri viðvarandi ástand og tekið ákveðna verðbólguá- hættu inn í dæmið. Þetta hugarfar hafi verið að breytast, trú á áfram- haldandi lága verðbólgu hafi aukist og það komið fram í lækkandi vöxtum á þessum lánum. Aukið framboð á peningum til skammtímaávöxtunar er hin ástæða lækandi vaxta á ríkisvíxlum og ríkis- bréfum. Segir Pétur að þar séu einkum á ferðinni innlánsstofnanir sem verið hafí stórir kaupendur ríkisvíxla. Á meðfylgjandi súluriti sést að frá því að ríkissjóður hóf útboð á sex mánaða ríkisbréfum hefur meðal- Umræða um þjóðaratkvæða- greiðslu á misskilnirigi byggð eftir Sólveigu Pétursdóttur Allnokkur umræða hefur átt sér stað um þörf á þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi í tengslum við EES-samn- inginn. Sú umræða virðist aðallega sprottin af tvennu: í fyrsta lagi vegna úrslita þjóðaratkvæðagreiðslu í Frakklandi um Maastricht-samning- inn og í öðru lagi vegna atkvæða- greiðslu er fram fór á Alþingi þ. 18. sept. sl. um þingsályktunartillögu stjórnarandstöðu v. þjóðaratkvæða- greiðslu hér á landi. Þjóðaratkvæðagreiðsla um ólíka samninga í Frakklandi vora menn að greiða atkvæði um samning sem er gerólíkur samningnum um Evrópska efnahags- svæðið (EES), sem er fyrst og fremst viðskiptasamningur eins og utanríkis- ráðherra og fleiri hafa ítrekað bent á. í Maastricht-samningnum er um að ræða ákveðið framsal á fullveldi sem kallar m.a. á stjómarskrárbreyt- ingar í viðkomandi ríkjum og þar sem ætlunin er að móta sameiginlega póli- tíska stefnu í fjölmörgum málaflokk- um. Það er að sjálfsögðu afar stórt mál og svo virðist sem þróun þess hafi gengið fullhratt fyrir sig. Þessu virðast forystumenn Evrópubanda- lagsríkjanna vera að átta sig á og munu væntanlega breyta samkvæmt því og gæta þess að viðkomandi ríki og þjóðkjömir fulltrúar þeirra fái áhrifavald sitt betur tryggt, m.a. í stofnunum Evrópubandalagsins. Úrslit þessarar þjóðaratkvæða- greiðslu og þróun Evrópumálanna almennt rennir enn frekari stoðum undir yfírlýsingar forsætisráðherra þess efnis að aðild að Evrópubanda- laginu sé alls ekki á dagskrá þessarar ríkisstjórnar. Auðvitað vitum við það ekki í dag hvort mál muni þróast þannig í framtíðinni að slíkur samn- ingur muni þjóna hagsmunum okkar fslendinga. Slík ákvörðun yrði hins- vegar að sæta allt öðrum leikreglum heldur en EES-samningurinn, m.a. yrði væntanlega að huga að breyting- um á stjómarskrá. Furðulegur málflutningur sfj órnarandstöðunnar Ýmsir fulltrúar stjórnarandstöð- unnar vilja hinsvegar túlka þessi úr- slit í Frakklandi á þann hátt að það ýti undir kröfuna um þjóðaratkvæði hér á landi um EES-samninginn. Þetta er auðvitað furðulegur málatil- búnaður, t.d. þegar litið er til þeirrar staðrejmdar að Alþýðubandalagið hefur þegar lýst því yfír að það muni greiða atkvæði gegn EES-samningn- um á Alþingi. Eru menn hér að leita eftir málefnalegri afstöðu fólks eða eingöngu pólitískum línum? Því hefur einmitt stundum verið haldið fram að þjóðaratkvæðagreiðsla snúist oft um allt annað en málefnið sjálft. Ætli málflutningur stjómarandstöð- unnar mótist ekki fremur af því að hún á í innbyrðis erfiðleikum um af- stöðuna til þessa mikilvæga samn- ings, svo að ekki sé minnst á það kærkomna tækifæri að þyrla upp pólitísku moldviðri í kringum ríkis- stjórnina og reyna að gera hana tor- tryggilega í augum almennings? Ætli það sé hugsjónaeldur sem býr að baki kröfu stjómarandstöðuflokk- anna um stjómarskrárbreytingu, þar sem rjúfa þarf þing og efna til kosn- inga? Tillaga hennar um þjóðarat- kvæðagreiðslu kemur einmitt inn í það mál, þar sem bent er á að sam- hliða almennum kosningum í landinu gæti slík þjóðaratkvæðagreiðsla farið fram. Engin hefð er fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu í íslenskri sljórnskipun ísland er frábrugðið ýmsum lönd- um hvað það snertir að engin hefð er fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum í okkar stjórnskipun. Við kjósum full- trúa sem fara með lýðræðislegt vald og bera pólitíska ábyrgð á ákvörðun- um sínum sem kjósendur síðan byggja mat sitt á í kosningum. Fulltrúar þeirra flokka sem ganga á skjön við meirihluta kjósenda verða að taka þeirra dómi. Næstu kosningar gætu þannig hæglega snúist um EES-samninginn á þann hátt að þeir stjómarandstöðuflokkar sem hafa lýst sig andvíga samningnum gætu lýst því yfír að þeir muni segja honum upp fái þeir til þess traust kjósenda. Einhverjum finnst e.t.v. að hér sé um fullmikla einföldun á þessu máli að ræða en þessi staðreynd blasir ein- faldlega við. Hér á landi eru myndaðar meiri- hlutastjórnir en ekki minnihluta eins og oft gerist á hinum Norðurlöndun- um. Þessi meirihluti verður að hafa þingræðislegan styrk til þess að taka ákvarðanir. Ef við ætlum að fara að MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992 23 Morgunblaðið/Alfons Klifrað í turninum Leiktækin á lóð grunnskólans í Ólafsvík eru vinsæl vora að leika sér í tumingum og virtust una sér vel hjá yngri nemendum skólans. Þessir þrír guttar þegar ljósmyndarinn átti leið hjá á dögunum. Skoðanakönnun Meirihluti með veiði- leyfagjaldi MEIRIHLUTI svarenda, eða 53,8%, í skoðanakönnun sem ÍM Gallup gerði fyrir Fiskifréttir, sagðist fylgjandi því að útgerðarmönnum yrði gert að greiða fyrir þann kvóta sem þeir fá úthlutað. Andvígir veiðileyfagjaldi sögðust 40,7% en 5,5% lýstu sig hlutlausa. í nýjasta tölublaði Fiskifrétta kem- ur fram að stuðningur við veiðileyfa- gjald er meiri á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni. Á höfuðborgar- svæðinu segjast 58% fylgjandi veiði- leyfagjaldi en 36,1% andvígt. Úti á landi era hlutföllin hins vegar jöfn; 47,8% segjast fylgjandi gjaldinu, en 47,4% á móti þvL Karlar reyndust hlynntari innheimtu veiðileyfagjalds en konur; 59,5% karla sögðust henni hlynntir og 36,9% andvígir, en 46,2% kvenna vora fylgjandi gjaldinu og 45,9% á móti. Stuðningur við veiðileyfagjald er mestur meðal fólks á aldrinum 45 til 54 ára, eða 63,1%. Yngsti aldurshóp- urinn er hins vegar í minnstum mæli fylgjandi því, aðeins 33,8% svarenda á aldrinum 15 til 24 ára vildu taka upp veiðileyfagjald. Utanríkisráðherra í ræðu við upphaf allsherjarþings SÞ Áratugur fatlaðra náði ekki tilætluðmn árangri í ÁRLEGRI ræðu íslands sem Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra hélt í gær við upphaf allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York lýsti hann vonbrigðum yfir að áratugur fatlaðra hefði ekki náð tilætluðum árangri. Hann sagði að ríkisstjórnir heims yrðu að virða skuldbindingar sínar gagnvart hálfum milljarði fatlaðra um allan heim og gefa þeim sömu tækifæri og öðrum. Auk þess að fjalla um málefni fatlaðra vék utanríkisráðherra í ræðunni meðal annars að Uruguay-við- ræðum GATT, ástandinu í Júgóslavíu og Sómalíu, erlendu herliði í Eystrasaltsríkjunum, umhverfismálum og fíkniefnavandamálinu. Ávöxtun ríkisbréfa * íjúní til ágúst 1992 * 6 mánaða bréf Lægsta t0,5——b—-------- 10/06 29/06 29/07 26/08 ávöxtun þeirra lækkað úr 11,49% í 11,08%. Hæstu tilboð hafa lækkað úr 12% í 11,15% en lægstu tilboð hafa aftur á móti hækkað úr 10,86 í 10,94%. Pétur segir að vísbendingar séu um að vextirnir lækki enn frekar við næsta útboð sem verður næsta þriðjudag því vextir þessarra bréfa hafí lækkað á eftirmarkaði frá því síðasta útboð fór fram. Utanríkisráðherra nefndi að eftir lok kalda stríðsins hefðu opnast nýjar leiðir til samvinnu á sviði efnahags- og félagsmála og tilgreindi þá mót- sögn hve erfiðlega Uruguay-viðræð- urnar hefðu gengið. Hann sagði að ekki mætti gefast upp enda myndi það stefna hagvexti í iðnþróuðu ríkj- unum og aðgangi þróunarríkja og ríkja Austur-Evrópu að alþjóðavið- skiptum í hættu, og Evrópubandalag- ið og Bandaríkin yrðu að axla ábyrgð gagnvart öðrum jarðarbúum. Utanríkisráðherra lagði áherslu á mikilvægi þess að bundinn yrði endi á ófremdarástandið í ríkjunum sem áður mynduðu Júgóslavíu og hvatti í því sambandi til þess að fylgt sé fyrir- mælum öryggisráðsins. Þá vék hann að hörmungarástandinu í Sómalíu þar sem talið er að fjórðungur allra bama hafi dáið úr næringárskorti og sjúk- dómum. Lagði hann áherslu á nauð- syn samhæfingar allra hjálparstofn- ana Sameinuðu þjóðanna við að mæta slíkum vanda. I ræðunni sagði utanríkisráðherra umhverfisráðstefnuna í Ríó vera tímamót og árangur hennar skapa góðan grandvöll fyrir framtíðarstörf á sviði umhverfísmála. Nefndi hann mikilvægi þess að koma í veg fyrir mengun hafsins og þess að auðlindir hafsins verði nýttar, enda teldi hann hafíð ómissandi fæðulind fyrir mann- kynið. Sólveig Pétursdóttir „ísland er frábrugðið ýmsum löndum hvað það snertir að engin hefð er fyrir þjóðarat- kvæðagreiðslum í okk- ar stjórnskipun. Við kjósum fulltrúa sem fara með lýðræðislegt vald og bera pólitíska ábyrgð á ákvörðunum sínum sem kjósendur síðan byggja mat sitt á í kosningum.“ taka upp þjóðaratkvæðagreiðslur al- mennt í ýmsum málum, þá værum við jafnframt að breyta okkar stjóm- skipun og stjórnarfari. Það er stór ákvörðun og verður að mínu mati að taka þar tillit til margra annarra þátta en EES-samningsins. Slíkt mál þyrfti rækilega skoðun m.a. með tilliti til stjórnarskrárbreytinga og slíkan vett- vang má m.a. finna í þeirri stjórnlaga- nefnd sem starfandi er. Atkvæðagreiðsla á Alþingi um að vísa máli til nefndar Nokkur misskilningur virðist hafa komið upp í tengslum við þessa at- kvæðagreiðslu á þinginu um þings- ályktunartillögu um þjóðaratkvæða- greiðslu og því þykir rétt að taka það fram að hér var einungis um að ræða hefðbundna þinglega meðferð á máli en ekki efnislega afstöðu. Þingmálum er ávallt vísað til nefnda að lokinni l. umræðu eftir efni þeirra og er höfð hliðsjón af skiptingu málefna í Stjórnarráðinu. Þingmenn voru því ekki að láta í ljós afstöðu sína, hvorki til þjóðaratkvæðagreiðslu né heldur EES-samningsins. Þingsályktunartillaga en ekki lagafrumvarp Hér er um að ræða þingsályktun- artillögu en ekki lagaframvarp og er að sjálfsögðu mikill munur þar á, m. a. hlýtur hið fyrrnefnda ekki jafn vandaða þinglega meðferð. Slík álykt- un felur það einungis í sér að Alþingi lýsir yfir vilja sínum um að ákveðnir hlutir séu framkvæmdir. Það eru eng- in lög sem mönnum er skylt að fara eftir hér og nú, enda þótt slíkar álykt- anir beri að sjálfsögðu að virða. Það sést ekki af þessari tillögu hvort þjóð- aratkvæðagreiðslan eigi að vera bind- andi eða bara ráðgefandi fyrir alþing- ismenn. Ef henni er ætlað að vera bindandi brýtur hún þá ekki gegn stjórnarskránni þar sem löggjafar- valdið er framselt til þjóðarinnar? Á þá ekki heldur að virða þá reglu stjómarskrárinnar um að þingmenn séu eingöngu bundnir af sannfæringu sinni? Slíkum spurningum hlýtur að vera óhjákvæmilegt að velta fyrir sér. Hvora nefndina átti að velja? í þessari þingsályktunartillögu er gert ráð fyrir kosningum og slíkum málum er almennt vísað til allsherj- amefndar. Þegar fram kom tillaga um það að vísa tillögunni heldur til utanríkismálanefndar þurftu þing- menn að gera það upp við sig hvort væri eðlilegra með tilliti til þing- skapa. í báðum þingnefndum eiga sæti 9 fulltrúar, 5 stjómarliðar og 4 stjórnarandstæðingar. Niðurstaðan varð sú að vísa málinu til allsheijarnefndar þó að sterk rök væru fyrir því að utanríkismálanefnd yrði fyrir valinu. Undirrituð, sem er formaður allsherjamefndar, taldi því ekki rétt að taka afstöðu til þessa tæknilega atriðis og sat hjá við at- kvæðagreiðsluna. Á að breyta íslenskrí stjórnskipun? Þessi þingsályktunartillaga verður að sjálfsögðu rædd í allsherjarnefnd og þar hlýtur málsmeðferðin fyrst og fremst að beinast að stjómskipuleg- um þætti þessa máls. Ástæðan er sú að með tilliti til verkaskiptingar milli þingnefnda þá hefur tillagan á vissan hátt verið tekin úr sambandi við af- stöðu manna til EES-framvarpsins, sem er til meðferðar í utanríkismála- nefnd. Það er svo að sjálfsögðu stór- pólitísk ákvörðun hvort breyta skuli íslenskri stjómskipun í þá veru að þingmálum skuli vísað til þjóðarat- kvæðagreiðslu. Hver og einn þingmaður verður að gera upp sinn hug Málið verður síðan væntanlega tek- ið til seinni umræðu í þinginu og þá fyrst munu þingmenn allir taka af- stöðu til afgreiðslu þess, alveg eins og er með öll önnur þingmál. Þetta eru staðreyndir málsins og hvernig svo sem nefndaráliti eða nefndarálit- um um tillöguna verður háttað þá verður það ekki notað sem nein tyll- iástæða, hver og einn þingmaður verður að gera upp sinn hug, enda til þess kjörinn. Að öllu þessu athuguðu þykir mér að sú umræða að undanförnu um þörf á þjóðaratkvæðagreiðslu í tengsl- um við EES-samninginn — og eins og hún hefur verið sett fram m.a. af hálfu stjórnarandstöðuflokkanna — vera á misskilningi byggð. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykja vík urkjördæmi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.