Morgunblaðið - 26.09.1992, Page 29

Morgunblaðið - 26.09.1992, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992 29 Samið við undirverk- taka við Lindargötu eftir Olaf Jónsson Hinn 15. maí síðastliðinn birtist tilkynning frá Borgarráði, að sam- ið hafi verið við undirverktaka vegna sa'ndspörtlunar og málunar innanhúss við Lindargötu 57-61 og 64—66. Hér var um svokallað lokað út- boð að ræða og áttu tilboð að inni- halda vinnu og efni ásamt virðis- aukaskatti. Sjö tilboð bárust frá fímm aðilum, þar af tvö frávikstil- boð. Lægsta tilboð var upp á 23,7 milljónir en næstu fjögur voru á bilinu 25,6-27,9 milljónir. Tvö til- boð voru á 30,2 og 31,8 milljónir. Kostnaðaráætlun hönnuða var 48,2 milljónir. Tilboðin sem bárust voru því á bilinu 49-66% af kostn- aðaráætlun. Er ég las þessa frétt brá mér í brún. Hvernig getur svona lagað átt sér stað? Er verið að gera grín að verðskrá málara, eða hvernig liggur í þessu? Þar sem undirritaður hefur starfað við verðskrá málara allt frá árinu 1954 og nær óslitið fram á þennan dag, fannst mér ástæða til að leita skýringa á því auðsjáan- lega misræmi sem birtist í fyrr- nefndum tölum. Töluverður munur getur verið á tilboðum sem innihalda efni og vinnu. Með lipurð getur verktakinn samið við efnissala um efnisþátt verksins, en í vinnuliðnum sem gefur verktakanum tæplega 12% álag ofan á sveinalaun er ekki um mikið svigrúm að ræða í tilboðs- gerð. Fyrir hönd málarafélaganna fór ég á fund yfirmanns byggingar- deildar borgarverkfræðings og bað um að fá afhent útboðsgögn vegna Lindargötu. Fyrst fékk ég þau svör að okkur kæmi þetta ekki við. En þegar ég skýrði okkar sjón- armið voru mér send útboðsgögn; sem ég reiknaði út persónulega. I Um orð og efndir Athugasemd vegna misvísandi auglýsingar listamanna eftirHarald Johannessen Fyrr í mánuðinum var til umræðu í ríkisstjórninni að fækka undan- þágum frá virðisaukaskatti en lækka skattinn þess í stað og taka auk þess upp annað og lægra skatt- þrep, sem legðist á útgáfu- og menningarstarfsemi, en slík starf- semi hefur hingað til notið þeirra forréttinda, að þurfa ekki að greiða virðisaukaskatt. Yfir tuttugu sam- tök og félög þeirra, sem starfa að útgáfu- og menningarmálum með ýmsum hætti, birtu hér í Morgun- blaðinu þann 12. þ.m. auglýsingu til að leggja áherslu á kröfur sínar um að” fá að njóta áfram þessara forréttinda. í fyrirsögn er vitnað í menningarmálaályktun landsfund- ar Sjálfstæðisflokksins frá 1989 og skrifað: „Öll útgáfu- og menningar- starfsemi verði undanþegin virðis- aukaskatti." Undir stendur stórum stöfum: „Við viljum trúa á orð- heldni og stefnufestu íslenskra stjórnmálamanna." Með þessu er augljóslega verið að halda því fram, að stefna Sjálfstæðisflokksins sé að undanskilja útgáfu- og menning- arstarfsemi virðisaukaskatti og ef undanþágum sé fækkað, með þvi að láta þessa starfsemi greiða virð- isaukaskatt, séu forystumenn Sjálf- stæðisflokksins að ganga á bak orða sinna. Nú vill svo til, eins og þeir sem þarna auglýstu hljóta að vita, að Sjálfstæðisflokkurinn heldur lands- fund á tveggja ára fresti og lagar þá til stefnu sína. Það er vitaskuld nauðsyn lifandi flokki að endur- skoða stefnu sína regluíega, því þótt meginstefna flokksins um lýð- ræði og einstaklingsfrelsi sé með þeim hætti, að hún standist tímans tönn og henni þurfí ekki að breyta, þá þarfnast smærri mál og ýmis dægurmál stöðugrar endurskoðun- ar við. Einstakir þættir skattkerfís- ins eru einmitt dæmi um það sem endurskoðað var á landsfundum. Þetta ætti að vera augljóst, og eins það, að vilji menn sjá hver stefna flokksins er í einstökum málum í dag, er rétt að skoða ályktun flokks- ins frá síðasta landsfundi. Stað- reyndin er bara sú, að síðasti lands- fundur Sjálfstæðisflokksins var alls ekki haldinn árið 1989 eins og menn sem lésa umrædda auglýs- ingu gætu talið. Hann var haldinn í fyrra og kom þar skýrt fram sá vilji fundarmanna, að fækka undan- þágum frá virðisaukaskatti í þeim tilgangi aðallega að lækka skatt- hlutfallið. Ástæða þess að vitnað var í gamla landsfundarályktun er aug- ljóslega sú, að það hentaði hags- munum auglýsenda. Ef vitnað hefði verið í ályktun síðasta landsfundar hefði orðið að birta setningar á borð við þessar: „Markvisst ber að undirbúa umtalsverða lækkun skatthlutfallsins" og „Þessu markmiði þarf að ná með breikkun skattstofnsins (afnámi undan- þága) ..(Úr landsfundarálykt- unum Sjálfstæðisflokksins 1991.) En umfram allt, þá hefði ekki verið hægt að dylgja um að sjálfstæðis- menn héldu ekki orð sín í þessu máli. Það er þekkt vandamál bæði hér á landi og annars staðar, að þrýsti- og sérhagsmunahópar láta hátt þegar til stendur að skerða sérrétt- indi þeirra og beita þeir ýmsum ráðum til að halda í þessi sérrétt- indi. Farið er í kröfugöngur og setu- verkföll, safnað undirskriftum, skrifað í blöð, haldnir útifundir og svo framvegis. Æði oft heyrast vafasamar röksemdir til stuðnings sérréttindum, en sem betur fer er fátítt að beinlínis, og að því er virð- ist vísvitandi, sé farið með rangt Haraldur Johannessen „Það er þekkt vanda- mál bæði hér á landi og annars staðar, að þrýsti- og sérhags- munahópar láta hátt þegar til stendur að skerða sérréttindi þeirra.“ mál. Vonandi sjá menn og skilja, að málflutningur af þessu tagi er ekki eðlilegur, og mjög til þess fall- inn að spilla fyrir heilbrigðri um- ræðu. Þeir sem hafa sérstakan áhuga á að menn eigi þess kost að koma hugsunum sínum á framfæri með sem ódýrustum hætti, ættu öðrum fremur að gæta þess að það sem frá þeim fer sé sannleikanum samkvæmt. Höfundur er við nám í Þýskalandi. kjölfarið lét ég Mælingastofu mál- ara gögnin í hendur til útreikn- ings. Niðurstöður okkar voru næstum samhljóða, eða 28,2 millj- ónir +/- 0,1 milljón. Þrátt fyrir að nokkur munur sé á milli tilboðanna sem bárust í verkið og niðurstöðu Mælinga- stofu málara má útskýra það, en hinn mikli munur á kostnaðaráætl- un verkfræði- og hönnunarstofu og tilboða verður vart úrskýrður með eðlilegum hætti. Mér er spum, hvernig reikna þessir aðilar áætlanir sínar út? Svo er því haldið fram í fjölmiðlum hvað hægt sé að ná miklum sparn- aði með útboðum og hægt sé að þrýsta á verktaka til að gefa lág tilboð, jafnvel svo lág, að engan veginn er hægt að standa undir þeim. En skoðum nú vinnubrögð hönnuða og verkfræðinga. Hver er tilgangur kostnaðaráætlana- gerðar þeirra? Kostnaðaráætlun er ætlað að sýna fram á raunverð og gera verkkaupanum grein fyrir líklegum kostnaði vegna fram- kvæmda. Verkfræðingnum og hönnuðinum er síðan greidd þókn- un í samræmi við gjaldskrá, sem eðlilegt er. En hver yfírfer þeirra gjörðir? Á almenningur að trúa að þeir séu óskeikulir og stimpla svo verk- taka og iðnaðarmenn sem algjöra okrara, sem einungis verða píndir niður í verði fyrir tilstilli snilldar verkfræðinganna? Með tilvísan til kostnaðará- ætlunar hönnuða og verkfræðinga vegna umrædds verks, tilboðanna sem bárust í verkið og útreikninga Mælingastofu málara er æskilegt að hönnuðir geti sýnt fram á hvernig standi á því að útreikning- ar þeirra séu í slíku hrópandi mis- ræmi við raunveruleikann. Er skýringuna að fínna í því að þókn- un til þeirra sé í samræmi við kostnaðaráætlun þeirra sjálfra, en Ólafur Jónsson „Er verið að gera grín að verðskrá málara, eða hvernig liggur í þessu?“ ekki raunverulegan kostnað? Það er rétt að geta þess að verð- skrá málara hefur verið til viðmið- unar við útreikning „vísitöluhúss- ins“ um tugi ára og reynst þannig ákveðinn mælikvarði á vinnu mál- ara. Ég vil fara fram á að meira aðhald verði haft með vinnubrögð- um verkfræðinga og hönnuða og þeir beðnir um skýringar þegar svona mikill munur verður á milli kostnaðaráætlana þeirra og niður- stöðu útboða. Að minnsta kosti hefur byggingardeild borgarverk- fræðings nægan mannafla til þess að gera þessar athuganir. Eg vona að þessi ábending mín veki menn til umhugsunar. Höfundur er málnramciskiri. Kynningardagar dans- skólanna um allt land DANSSKÓLAR innan Dansráðs íslands fyrirhuga kynningar á dansi um allt land á komandi vetri. Dansráð íslands er samein- ingarfélag tveggja fagfélaga, Danskennarasambands íslands (DSÍ) og Félags íslenskra dans- kennara (FÍD). Dansskólar innan ráðsins ætla að gangast fyrir kynningardögum, þar sem kenndir verða hinir almennu dansar í tvær klukkustundir með tilsögn faglærðra danskennara. Með þessum kynningum vilja danskennarar leitast við að kynna dansinn þeim sem alltaf hefur lang- að til að læra að dansa en ekki lagt af stað. Dansskólar sem taka þátt í þessari kynningu eru Dansskóli Auðar Haralds, Dagný Björk dans- kennari, Dansskóli Heiðars Ást- valdssonar, Dansskóli Hermanns Ragnars, Dansskóli Jóns Péturs og Köru, Dansskóli Sigurðar Hákonar- sonar, Nýi dansskólinn, Hafnar- fírði, Danslína Huldu og Loga, Dansskóli Önnu Berglindar, Þor- lákshöfn, Dansskóli Jóhönnu Áma- dóttur og Dansskóli Sibbu, Akur- eyri. Þeir sem áhuga hafa geta skráð sig á kynningamámskeiðin og kynnst því sem dansskólarnir hafa upp á að bjóða án skuldbind- inga í langan tíma. Hver og einn getur kynnst því hvað það er auð- velt og skemmtilegt að dansa. (Úr fréttatilkynningu) ; : VEGURINN v Kristið samféiag Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Samkoma kl. 21.00 fyrir ungt fólk á öllum aldri. Mikill söngur, gleöi og prédikun orösins. Prédikari verður Benedikt Jó- hannsson. Allir velkomnir. „Öll veröldin fagni fyrlr Drottnil...komiö fyrir auglit hans með fagnaðarsöngl" Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Dagskró vikunnar framundan: Sunnudagur: Almenn samkoma k|. 16.30. Ræöumaður Hafliöi Kristinsson. Miðvikudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Föstudagur: Unglingasamkoma kl. 20.30. Laugardagur: Bænasamkoma kl. 20.30. FERÐAFELAG ® ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533 Sunnudagsferðir 27. september 1. Kl. 08.00 Þórsmörk í haustlitum, einsdagsferð Stansað 3-4 klst. í Mörkinni. Missið ekki af haustlitunum í Þórsmörkinni. 2. Kl. 10.30 Þjóðleið 8: Heiðarvegur - Ólaf sskarðsvegur - Geitafell (509 m.y.s.) Gengið frá Bláfjöllum um gamlar þjóöleiðir I Ölfusi. Verð 1.100 kr. 3. Kl. 13.00 Fjölskyldudagur í Heiðmörk - Gengið um skógarstiga Nú er tilvalið fyrir alla fjölskyld- una að koma út að ganga. Heið- mörkin skartarfegurstu haustlit- um núna. Brottför í feröirnar frá Umferðarmiðstöðinni, austan- megin (og Mörkinni 6). Verð aðeins 500,- kr., frítt fyrir börn 15 ára og yngri. Einnig er hægt að mæta á eigin bíl i Heiðmerk- urreit Ferðafélagsins efst í Heið- mörkinni. (Ekin er Hraunslóð frá Silungapolli eöa farið hjá Rauð- hólum og Heiðarvegur ekinn á enda). I boði verða léttar göngur (1 -2 klst.) og endað í Feröafélags- reitnum með söng við harmóniku- undirleik. Pylsugrill (hafið pylsur með). Heimkoma um kl. 16. Brottför frá BSÍ, austanmegin (og Mörkinni 6). Við minnum á Þórsmörk, haustlitir (uppskeru- hátíð og grillveisla) 2.-4. okt. Takmarkað pláss. Pantið tfmanlega. Ferðafélag Islands. ÍKFUK^ KFUM KFUM/KFUK, SÍKog KSH “Biðjum Herra uppskerunnar“ Almenn samkoma í Kristniboös- salnum, Háaleitisbraut 58-60 kl. 20.30 í kvöld. Ræðumaöur: Sr. Berisha Hunde, forseti SV-deildar, Mekane Yesus-kirkjunnar í Eþíópíu. Upphafsorð og bæn: Halldór Elías Guðmundsson. Sönghópur úr KSS syngur og hljómsveitin “Góðu fréttirnar" leikur. Alllr eru velkomnir á samkomuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.