Morgunblaðið - 02.10.1992, Page 12

Morgunblaðið - 02.10.1992, Page 12
12j________________MOKGGNBiLAPia FÖSfUDAGUR'a. idMfðBKR1 „Vom heim þvær þú p hreinan af skuggnm“ Merki Ibby-ráðstefnunnar í Berlín 1992. Bókmenntir Jenna Jensdóttir „Veröld barna í barnabókum — barnabækur í veröld barna“ var yfirskrift 23. alþjóðlegu ráð- stefnu IBBY, sem fór fram 7.-12. september sl. í glæstum húsa- kynnum í Austur-Berlín. Yfir 500 manns frá fimmtíu þjóðlönd- um sóttu ráðstefnuna, m.a. á fímmta tug blaða- og fjölmiðla- fólks. Ráðstefnustjóri var Renete Raecke bókmenntafræðingur, Berlín. En forseti Alþjóða-Ibby- samtakanna er Dr. Ronald Jobe kennari við British Columbia háskólann í Vancouver. Hann var endurkosinn forseti til næstu tveggja ára. Allt skipulag ráðstefnunnar var með glöðu yfirbragði og miklum myndarskap sem mótað- ist af nokkurri festu og virtist því fara hið besta fram. En hvað er Ibby? Ibby er al- þjóðlegur félagsskapur: Inter- national Board on Books for Yong People. Samtökin stofnaði Jella Lepan í Ziirich í Sviss 1953 og eru höfuðstöðvarnar enn þar. Jella Lepman var þýskættuð, mikil hugsjónakona. Hún átti heima í Englandi fram yfir seinni heimsstyijöld. Þegar hún kom til Þýskalands eftir stríðið og sá allt menningarlíf í rúst, var henni Dr. Ronald Jobe forseti alþjóða- samtaka Ibby. sárast um bömin. Hún trúði framar öðru á orðið — bókmennt- irnar. Að góðar bókmenntir gætu leitt saman þjóðir heims í skiln- ingi og þroska. En til þess þyrfti að vekja hjá bömum áhuga á góðum bókum og kenna þeim að njóta þeirra. Jella Lepman setti á stofn bókasafn fyri börn í Munchen 1948, Internationales Jugend Bibliothek, þar sem starfsemin fer enn fram í hennar anda. Hugmynd hennar um al- þjóðasamtök Ibby varð að vem- leika. í dag em Ibby-deildir í 52 löndum, m.a. á öllum Norður- löndum nema Færeyjum og Grænlandi. Samtökin gerðu fæðingardag (2. apríl) skáldsins H.C. Anders- ens að alþjóðlegum barnabóka- degi. Alþjóðleg ráðstefna Ibby er annað hvert ár. Eru þá veitt verðlaun: H.C. Andersen-verð- launin til rithöfunda og mynd- skreytingafólks bamabóka. Það em æðstu verðlaun barnabóka og myndlistar í heimi og er Mar- grét Danadrottning verndari þeirra. Einnig er á þessum ráðstefn- um gerður heiðurslisti, Hans Christan Andersen Honorslist eftir tilnefningu einstakra deilda yfir úrval barnabóka umliðinna ára. Á ráðstefnunni í Berlín nú var bók Iðunnar Steinsdóttur, Gegnum þyrnigerðið á heiðurs- lista sem er einnig gerður yfir úrval myndskreytinga og þýð- inga. Ibby eru ópólitísk samtök. Og umræður innan samtakanna skulu hafnar yfir alla pólitík. Þær eiga að stuðla að skilningi, vin- semd og virðingu meðal alira þjóða. Ibby er í tengslum við Unesco og fleiri samtök sem hafa mannréttindi í yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna að leiðar- ljósi. Það hefur færst í aukana að Austurlönd hafa leitað inn í Ibby og með því reynt að greiða götu góðra barnabóka heimsins. I Berlín voru m.a. fulltrúar frá Jórdaníu, íran, ísrael, Líbanon og Albaníu. Á íslandi var Ibby-deild stofn- uð árið 1985 í júní. Fyrsti for- maður hennar var dr. Sigrún Klara Hannesdóttir dósent við Háskóla íslands. Mikil og víðtæk þekking hennar á barnabóka- söfnum í Bandaríkjunum og víða um heim — einnig í þriðja heim- inum renndi strax styrkum stoð- um undir starfsemina hér. Sig- rún Klara hefur setið í fasta- nefnd IFLA (Alþjóðlegu bóka- safnssamtökunum) frá 1973. Formaður IFLA-samstarfshóps um menntun skólasafnsvarða og notkun skólasafna var hún 1982- 1986. Núverandi formaður er Jónína Friðfinnsdóttir, BA í bókasafnsfræðum og kennari. Deildin nefnist Barnabókaráðið — íslandsdeild Ibby. Strax fyrsta árið gaf deildin út tímarit er heitir Börn og bækur. Er það í anda alþjóðatímarits Ibby, Book- bird þótt örsmátt sé í saman- burði. Börn og bamabókmenntir hafa leitt margt ágætt fólk í Ibby-samtökunum hér, en aðild geta allir átt sem áhuga hafa og trúa á að góðar barnabækur geti aukið og fært skilning á grundvallarhugsjón um frið og þekkingu milli þjóða. Og gera því veg góðra barnabóka sem mestan bæði hvað snertir bók- menntaleg gæði, myndskreyt- ingar og þýðingar. Almúgafólk og embættismenn Hugvekja í skáld- söguformi Bókmenntir Skafti Þ. Halldórsson Stefán Júlíusson: Ástir og örfok. Skáldsaga. Bókaútgáfan Björk. 1992. Samneyti íslendinga við land sitt hefur löngum verið náið þótt eitthvað sé nú að losna um tengsl- in í þéttbýlinu. ísland er harðbýlt Iand og náttúra þess viðkvæm. Því miður hefur okkur lengi vel famast fremur illa í samvistum okkar við fóstuijörðina. Gróður- hulan hefur stöðugt orðið fátæk- legri og fiskimiðin rýrari. Þetta vita menn nú orðið. Samt eyðast lönd og mið enn. Vitaskuld hafa menn risið upp til vamar en ávallt er erfitt um vik þegar hernaðurinn gegn náttúrunni stjómast af hags- munum og fordómum. Stefán Júlíusson hefur sent frá sér hugvekju í skáldsöguformi um þetti efni sem hann nefnir Ástir og örfok. Þetta er söguleg skáld- saga sem gerist á tímum krepp- unnar miklu í afskekktri byggð á Suðurlandi. Uppblásturinn er að eyða byggðinni og árekstrar verða á milli girðingaglaðra land- verndarmanna og þröngsýnna bænda. Inn í þennan söguheim blandast ástarsaga sögumanns sem er landvemdarmaður og dótt- ur bónda þess sem á í hvað mest- um deilum við landverndarmenn. Skáldsagan gerist á tvenns kon- ar tímasviði, annars vegar á sólar- hring þar sem sögumaður gerir upp við sig ást sína á bóndadóttur og hins vegar á þriggja mánaða tímabili. fyrir.þann. tíma og skipt- Stefán Júlíusson ast á kaflar úr hvom sviði. Per- sónusafn sögunnar er fjölbreytt. Þar em ráðherrar og vinnumenn, ástmeyjar og verkamenn, bændur og menntamenn. Sagan er einföld og dálítið for- múlukennd þótt það sé ekki til lýta og markast væntanlega af hinni ríku söguhneigð enda hug- vekjan um umhverfismálin í fyrir- rúmi. Bókin telst því ekki til bók- menntalegra stórvirkja. Margt hefur hún þó sér til gíldis. Sumar persónur em eftirminnilegar og frásagan er lipur og kímileg á köflum. Söguefnið og sögusviðið er höfundi nákomið eins og það sé byggt á minningum frá ung- dómsámm. Málfar bókarinnar á sömuleiðis vel við sögutimann. Það er alþýð- legt, kjarngott og fjölskrúðugt og tengist um margt hverfandi at- vinnuháttum. Ég minnist þess ekki að hafa séð jafnítarlega umfjöllun um veðurfar í skáldsögu. Alla sög- una em veðurfarslýsingar eins og undirleikur undir atburðasöguna. Ástir og örfök var útvarpssaga í desember 1991. Hún er 201 blað- síðæ á- lengd. - .............. Bókmenntir Erlendur Jónsson Alexander L. Kielland: VINN- ANDI FÓLK. Þýð.: Jón Björns- son og Gréta Sigfúsdóttir. 210 bls. Almenna bókafélagið. Kópavogi, 1992. Alexander Kielland á sér ömgg- an stað í vitund íslendinga þar eð hann tengist nafni Gests Pálsson- ar. En löngum hefur verið talið að Gestur hafí mikið af honum lært, hugsanlega meira en af öðr- um samtímahöfundum. Og satt er það, ýmsu í sögum Gests svipar til sagna Kiellands. Hitt er eigi að síður margt sem aðgreinir verk þessara höfunda. Norskt þjóðfélag var orðið mun borgaralegra á seinni hluta 19. aldar en sveita- samfélagið íslenska. Kielland hafði því nærtækara efni að fást við þar sem borgarlíf var í raun kjörefni realista. Kielland hefur og verið meiri fagmaður í listinni ef svo má að orði komast, byggir verk sín upp á skipulegri gmnni. Samt- öl skrifar hann t.d. af mun meiri íþrótt. Ádeilan í sögum Gests er hins vegar biturri og jafnframt opinskárri. Vinnandi fólk sýnist ekki vera róttækt verk — nú und- ir Iok 20. aldar. Maður verður að hverfa röska öld aftur í tímann og setja sig í spor þeirra sem lifðu á ritunartíma sögunnar til að finna fyrir broddinum. Fram að raun- sæisstefnunni vom aðalpersónurn- ar í sögu hverri annað hvort úr röðum heldra fólks eða annars konar glæsilegar hetjur, alltént meiri en meðalmaðurinn. Aðalper- sóna í sögu varð að vera með ein- hveijum hætti sérstök. Kringum hana snerist svo venjulegra fólk eins og plánetur um sólir. Höfund- ar litu svo- á . að líf .alþýðunnar væri of fá- breytt til að geta orðið meginefni sögu eða leikrits. Realistarnir blésu á slík- ar hefðir, töldu alm- úgamanninn engu síður tgnd út frá sjónarmiði raunsæis- stefnunnar. Þó varð Ki- elland aldrei gagnrýnislaus áhang- andi þeirrar stefnu eins og Jón Björnsson tekur réttilega fram í eftirmála. Vanmáttur alþýðu andspænis embættismannavaldinu er þarna skilmerkilega greindur. Sviðsljósinu er miskunnarlaust beint að hræsni og hégómaskap fyrirfólksins. Alexander Kiel- land naut þess að hann fylgdi tímans straumi, varð tískuhöfund- ur, lesinn og dáður. En hægara er að kenna heilræðin en halda þau. Sjálfur var hann efnamaður og broddborgari og sóttist eftir mannvirðingum sem slíkur; skip- aði sér þannig í raðir þeirra sem hann beindi skeytum að í skáld- skapnum. Alls þessa gætir í Vinnandi fólki. Höfundur þekkti af eigin raun það sem hann gagn- rýndi. Sem embættismaður komst hann ekki hjá að kynnast valda- kerfinu norska. Samkvæmislífi fína fólksins lýsir hann innan frá. Embættisstéttin hugsar þarna fyrst og fremst um eigin hag og sinnir »skyldum« sínum sam- kvæmt því. Samneyti við lægra setta er illa séð. Og mægðir niður á við þykja hneykslanlegar. Reynt er að flæma á brott unga stúlku sem yngismaður af heldra standi laðast að. Óvænt leysast þó málin þegar útlifaður karlfauskur — nokkurs konar reddari fína fólks- ins — gengur að eiga hana. Fram- tíð ungrar stúlku ræðst þó af fleira en ætt og efnahag. Kvenlegur yndisþokki vegur líka þungt. Ófríð stúlka á fárra kosta völ, jafnvel þótt hún hafi annað með sér. For- eldrarnir þola önn fyrir ljótleik hennar. Hún verður skotspónn í samkvæmum. Má þá heita að henni séu allar bjargir bannaðar, eins þótt hún sé heldri stéttar því þá er hún of fín til að vinna. Þraut- aráðið verður að koma sér af landi brott — til Ameríku! En Kielland hefur verið meiri rithöfundur en svo að hann léti leiðast blint af tískustefnu. Hann hefur verið skyggn á mannlífið og grípur aldr- ei til einfaldra lausna. Af eigin reynslu vissi hann að framkoma og látæði getur að vísu markast af stétt og stöðu. Slíkt tekur þó mest til yfírborðsins. Kjaminn verður samur eftir sem áður. Þau sannindi hefur Kielland augljós- lega geymt í minni þegar hann samdi Vinnandi fólk. Islenskur texti Grétu Sigfúsdóttur og Jóns Björnssonar er vandaður eins og vænta mátti. Gréta dvaldist ára- tugum saman í lándi höfundarins og Jón gerðist snemma handgeng- inn skandínavískum bókmenntum. Sums staðar bregður fyrir orðum og orðasamböndum sem ekki eru sérlega algeng í talmáli nú orðið en þýðendur notuðu títt á fyrstu áratugum aldarinnar. Fer ekki illa á því þar sem hundrað og ellefu ár eru nú liðin síðan skáldverk þetta leit fyrst dagsins ljós í Nor- egi. Norðmenn voru þá að lifa sitt vakningar- og blómaskeið með Ibsen í fararbroddi. Nokkrir fylgdu fast á eftir. Þeirra á meðal höfund- ur Vinnandi fólks. Alexander L. Kielland

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.