Morgunblaðið - 02.10.1992, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992
13
Morgunblaðið/Kristinn
Tinna Gunnlaugsdóttir og Arnar Jónsson í hlutverkum sínum í Rita
gengur menntaveginn.
Þjóðleikhúsið
Listasafn Sigurjóns Olafssonar
Síðasta sýningarhelgi
SÝNINGU á æskuverkum
Sigurjóns Ólafsson í safni
hans í Laugarnesi lýkur
sunnudaginn 4. október.
Um er að ræða teikningar
frá tímabilinu 1920 til 1927
sem ekki hafa verið sýndar
áður. Þær gefa ágæta hug-
mynd um hversu mikilli leikni
Sigurjón náði í teikningu á
unga aldri og hvers konar veg-
arnesti hann hafði með sér er
hann innritaðist í Konunglega
Listakademíið í Kaupmanna-
höfn tvítugur að aldri.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar verður lokað í október
meðan verið er að undirbúa
sýningu vetrarins.
Sjálfsmynd eftir Sigurjón
gerð ca. 1925.
Rita gengur mennta-
veginn á Litla sviði
í kvöld frumsýnir Þjóðleikhúsið á Litla sviðinu breska gamanleik-
ritið Rita gengur menntaveginn (Educating Rita) eftir Willy Russ-
ell. Leikendur eru Tinna Gunnlaugsdóttir og Arnar Jónsson. Leik-
stjóri er María Kristjánsdóttir.
Willy Russell er meðal vinsælustu
nútímahöfunda Breta og hérlendis
hafa verið sýnd eftir hann verkin
Sigrún Ástrós og söngleikurinn
Blóðbræður. í verkum sínum bland-
ar hann gjarnan saman góðu skopi
og boðskap þannig að hvort styður
annað og útkoman eru hlýleg en
umfram allt skemmtileg verk sem
eiga erindi við alla.
í leikritinu Rita gengur mennta-
veginn, fjallar Russell um hár-
greiðslukonuna Ritu sem er ekki
fyllilega sátt við hlutskipti sitt í líf-
inu. Hún fer að sækja bókmennt-
atíma í öldungadeild háskólans.
Russell byggir þetta leikrit að
nokkru leyti á eigin lífi, þar sem
skólaganga hans sjálfs var lítilfjör-
leg. Hann lærði síðan hárgreiðslu
að áeggjan móður sinnar en fann
sig aldrei fyllilega á þeirri hillu og
26 ára gamall snéri hann baki við
hárgreiðslunni, innritaðist í háskóla
og hóf feril sinn sem leikritaskáld.
í öldungadeildinni kynnist Rita
kennaranum Frank; misheppnuðu
ljóðskáldi, miðaldra, drykkfelldum
og áhugalausum sem finnst sér
stórlega misboðið að þurfa að eyða
tíma í þessa „menningarsnauðu
snyrtidömu." Rita reynist hins veg-
ar ekki öll þar sem hún er séð og
þegar upp er staðið má spyrja hver
hafi kennt hverjum.
Þýðandi er Karl Ágúst Úlfsson,
lýsingu annast Björn B. Guðmunds-
son og Páll Ragnarsson. Leikmynd
og búninga hannar Guðrún Sigríður
Haraldsdóttir.
-----» ♦ ♦----
Nýútkomn-
ar bækur
Félagsvísindastofnun Háskóla
íslands hefur ^gefið út ritið At-
vinnustefna á Islandi 1959-1991
eftir Gunnar Helga Kristinsson,
Halldór Jónsson og Huldu Þóru
Sveinsdóttur. Þetta er sjöunda rit-
ið í flokknum Bækur Félagsvísinda-
stofnunar, er 142 blaðsíður og
prentað hjá G. Ben. prenstofu hf.
Ritið kostar 1.900 krónur.
Tónleikar til heið-
urs Sigurði Demetz
Þriðjudagskvöldið 6. október
munu vinir og velunnarar Sig-
urðar Demetz söngkennara,
halda sönghátíð í Þjóðleikhúsinu.
Tilefnið er áttræðisafmæli Sig-
urðar 11. október.
Sigurður kom hingað til lands
árið 1955 og hefur síðan starfað
að söngkennslu víðs vegar um land-
ið. Hann hefur auk þess verið ötull
stuðningsmaður sönglífs í landinu,
stjórnað kórum og hvatt þá sem
hafa staðið fyrir óperustarfsemi.
Fyrri hluta ævinnar starfaði Sig-
urður sem söngvari á Italíu og víð-
ar við þekkt óperuhús og söng te-
nórhlutverk í mörgum óperum,
meðal annars á La Scala i Mílanó.
Hann fæddist í Suður-Týról og hét
Vincenz María Demetz þar til hann
fluttist til íslands. Sigurður hefur
hlotið viðurkenningar forseta
beggja lýðveldanna, íslands og ítal-
■ EFNT verður til Biblíulestr-
arnámskeiða í Árbæjarkirkju í
októbermánuði. Námskeiðin hefjast
fímmtudaginn 8. október og verða
síðan 3 næstu fimmtudaga á tíman-
um frá kl. 17.30 til kl. 19. Leiðbein-
andi á námskeiðinu verður sr. Jón-
as Gíslason vígslubiskup og fer
hann yfir Postulasöguna. Ollum
safnaðarmönnum er heimil þátttaka
í Biblíulestrarnámskeiði þessu þeim
að kostnaðarlausu.
Sigurður Demetz
íu, og var gerður að heiðursborgara
í fæðingarbæ sínum, Ortisei, 5. júlí
síðastliðinn.
Á tónleikunum i Þjóðlejkhúsinu'
koma fram margir af okkar þekkt-
ustu söngvurum. Má þar nefna Sig-
ríði Ellu Magnúsdóttur, Gunnar
Guðbjörnsson, Jóhönnu Linnet og
Signýju Sæmundsdóttur. Auk þess
koma fram félagar úr íslensku óp-
erunni og Óperusmiðjunni, Karla-
kór Keflavíkur, 24 MA-félagar og
ýmsir nemendur Sigurðar Demetz
fyrr og síðar.
(Fréttatilkynning)
Heimilistæki frá -3? gjjj-h n
eru vönduð og stílhrein HAUSTTILBOÐ
ZANUSSI uppþvottavélar
eru til í tveimur gerðum, ZW
107 m/4 valk. og ID-5020
til innb. m/7 valkerfum. Báð-
ar f. borðb. fyrir 12. Hljóðlát-
ar - einfaldar í notkun.
ZW-107
Tilboð kr. 53.877,-
Gufugleypar frá ZANUSSI;
CASTOR; FUTURUM og
KUPPERSBUSCH eru bæði
fyrir útblástur eða gegnum
kolsíu.
C-306
Tilboð kr. 9.269,-
RAFHA, BEHA og KUPP-
ERSBUSCH eldavélar eru
bæði með eða án blásturs.
Með glerborði og blæstri. 4
hellur og góður ofn. 2ja ára
ábyrgð á RAFHA- vélinni. -
Frí uppsetning.
Tilboð frá kr. 35.289,-
Um er að ræða mjög marg-
ar gerðir af helluborðum:
Glerhelluborð m/halogen,
helluborð 2 gas/2 rafm. eða
4 rafm. hellur með eða án
rofa.
EMS 600 13W
Tilboð kr. 21.133,-
ZANUSSI og KUPPERS-
BUSCH steikar/bökunarofn-
ar í fjölbreyttu úrvali og lit-
um. Með eða án blásturs -
m/grillmótor - m/kjöthita-
mæli - m/katalískum
hreinsibúnaði o.fl.
EEB-610
Tilboð kr. 37.255,-
KUPPERSBUSCH örbylgju-
ofnar í stærðum 14 og 20 I.
Ljós í ofni, bylgjudreifir og
gefur frá sér hljóðmerki.
Tilboð kr. 20.224,-
^41
Bjóðum upp á 5 gerðir
þvottavéla. 800-1000-1100
sn./mín. Með/án valrofa á
hitasparnaðarrofi. Hraðvél,
sem sparar orku, sápu og
tíma. Þvottavél með þurrk-
ara og rakaþéttingu. 3ja ára
ábyrgð - uppsetning.
ZF-8000
Tilboð kr. 48.800,-
Þurrkarar, 3 gerðir, hefð-
bundnir, með rakaskynjara
eða rakaþéttingu (barki
óþarfur). Hentar ofan á
þvottavélina
ZD-100C
Tilboð kr. 30.888,-
7 gerðir kæliskápa: 85,106,
124, 185 cm á hæð. Með
eða án frystihólfs. Sjálfvirk
afhríming. Hægt er að snúa
hurðum. Eyðslugrannir -
hljóðlátir.
Z-6141, - 140/6 L
Tilboð kr. 29.340,-
Bjóðum uppá 9 gerðir
kæli/frystiskápa. Ýmsir
möguleikar í stærðum: Hæð
122, 142, 175 og 185 cm.
Frystir alltaf 4 stjörnu. Sjón
er sögu ríkari. Fjarlægjum
gamla skápinn.
Tilboð kr. 41.100,-
140/40 L
tilboð kr. 46.487,-
190/40 L
Tilboð kr. 52.138,-
180/80 L
Frystiskápar. 50, 125, 200
og 250 I. Lokaðir með plast-
lokum - eyðslugrannir - 4
stjörnur.
200L - Z-620 VF
Tilboð kr. 53.173,-
ZANUSSI frystikistur, 270
og 396 I. Dönsk gæðavara.
Mikil frystigeta. Ljós í loki.
Læsing. 4 stjörnur.
396L - Z-400H
Tilboð kr. 47.514,-
Okkarfrábæru greiðslukjör!
Verð er miðað við staðgreiðslu. Útborgun aðeins 25% og eftirstöðvar á allt að 12 mánuðum.
Opið sem hér segir: Virka daga til kl. 18.
Laugardaga frá kl. 10—16.
VERSLUIMIN RAFHA, HAFNARFIRÐI. SÍMI 50022 - LÆKJARGÖTU 22
VERSLUN RAFHA, REYKJAVÍK, SÍMI 620100 - BORGARTÚNI 26