Morgunblaðið - 02.10.1992, Side 14

Morgunblaðið - 02.10.1992, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 Blóðbað í Bosníu 1. grein Við lifum eins og rottur Hermenn úr sveitum múslima skiptast á skotum víð Serba í útjaðri Sarajevo. eftir Hrafn Jökulsson „Við verðum látin deyja. Öllum stendur á sama um Bosníu-Herzeg- ovínu. Við erum svo óheppin að eiga engar olíulindir; þessvegna er landinu að blæða út,“ segir Mirza, 27 ára gamall hermaður í Sarajevo - tii skamms tíma prófessor í sagn- fræði við háskólann í borginni. Við sátum á gangstéttinni fyrir framan bækistöð herdeildar hans. Þetta vr sólríkur dagur en einsog endranær rigndi sprengjum á hina hersetnu borg. Engu að síður var fólk á ferli, að sækja vatn og safna eldiviði. íbúar Sarajevo hafa lengst- um verið án vatns og rafmagns síð- ustu vikur. Matur er nánast geng- inn til þurrðar - kjöt, fiskur, græn- meti, ávextir, kaffi eru munaðar- vörur sem einungis er hægt að kaupa á svörtum markaði fyrir svimandi háar upphæðir. Meðallaun í Sarajevo eru 400 krónur á mán- uði. Kíió af kaffi kostar um 1.200 krónur. Mirza bandar hendi í átt að hlíð- unum umhverfís borgina, þar sem stórskotalið Serba hefur sín óvinn- andi víghreiður. „Þeim hefur tekist ætlunarverk sitt: Við lifum einsog rottur. Og þeir draga allan heiminn á asnaeyrunum. Veistu afhverju enginn hefur gert neitt þó að minnsta kosti hundrað þúsund manns hafí verið drepnir á sex mánuðum?" Hann beið ekki eftir svari: „Vegna þess að við erum múslim- ar; og þeir segja að við ætlum að stofna íslamskt heittrúarríki í hjarta Evrópu.“ Ibúar Bosníu-Herzegovínu voru rétt innan við fjórar og hálf millj- ón: 17% Króatar, 33% Serbar og 45% múslimar. Bosnísku múslim- amir eru afkomendur þeirra Slava sem tóku múhameðstrú það hálfa árþúsund sem mestur hluti Balk- anskagans var hluti af Tyrkjaveldi. Þeir eru sem sagt ekki Arabar, ef einhver hefur áhyggjur af því; og að öllu leyti evrópskir í hugsun og lífsháttum. „Serbar kaila okkur Tyrki,“ seg- ir Mirza og setur upp fyrirlitning- arsvip „og Serbar hata Tyrki meira en nokkuð annað. Þeir geta ekki gleymt því að Tyrkir voru herraþjóð í Belgrad; þeir geta ekki gleymt öllum orrustunum sem þeir töp- uðu.“ Mirza glottir: „Serbar eru eina þjóðin í heiminum sem minnist tapaðra stríða með lotningu." Glaðlegur, miðaldra náungi kem- ur og sest hjá okkur. „Þetta er Ahmet,“ segir Mirza, „djöfuls Tyrki einsog ég. Ahmet ætlar að breyta Bosníu í eftirlíkingu af íran.“ FYRRUM JÚGÓSLAVÍA háls. Þú ert hættulegur Evrópu!“ Hann verður alvarlegur: „Hvað þarf ég að sanna? Að ég sé ekki trúaður? Ég trúi á minn Guð. Ég fer sjaldan í mosku, ég reyki, drekk áfengi borða svínakjöt og eltist við stelpur. Hljómar þetta einsog upp- skrift að vænlegum útsendara Te- heran?" Aróðursmaskínu Belgrad-stjórn- arinnar hefur tekist að sannfæra æði marga um að stríðið í Bosníu- Herzegovínu sé trúarbragðastyijöld ólíkra þjóða. Þessvegna skýtur það dálítið skökku við að þúsundir Serba taka þátt í vörnum Sarajevo og annarra hersetinna borga. Þeir líta á sig fyrst og fremst sem Bos- níumenn og síðan Serba. Ég hitti að vísu talsvert marga serbneska hermann sem afneituðu uppruna sínum af stakri fyrirlitningu. Um hvað snýst þetta blóðuga stríð þá? Hver er kveikja þess hat- urs sem breytt hefur hinni undur- fögru Bosníu í ríki algerrar skelf- ingar og ómannlegrar grimmdar? Mirza: „Áform Serba eru kristal- tær. Þeir ætla að skapa Stór-Serb- íu, það er draumur sem þeir hafa alið með sér öldum saman. Þeir vita að án Slóveníu, Króatíu, Bos- níu-Herzegovínu og Makedoníu eru þeir dæmdir til fátæktar og áhrifa- leysis. Það er ekki aðlaðandi hug- mynd fyrir hina stoltu serbnesku þjóð. Þess vegna er fjórðungur Kró- atíu hernumin og tveir þriðju hlutar Bosníu. Makedóníu kalla þeir aldrei annað en Suður-Serbíu. Þeir hafa vopnabúr Alþýðuhers Júgóslavíu, þriðja öflugasta hers Evrópu. Við höfum ekkert, alls ekkert. Og okkur er ekki leyft að kaupa vopn til að verja hendur okkar. Við þurfum að lifa á auðmýkjandi matarsending- um frá hjálparstofnunum. Til hvers? Ef ekkert verður að gert deyjum við í vetur. Þúsundir barna munu deyja úr kulda; gamalt fólk, sjúkl- ingar, flóttamenn. Og heimurinn getur horft á þetta allt í beinni útsendingu." Þær vikur sem ég dvaldi í Sarajavo hitti ég engan sem vildi að erlendar hersveitir yrðu sendar til landsins. „Við höfum nóg af mönnum til þess að beijast. En við höfum engin vopn. Við viljum ekki fóma blóði ungra manna frá öðmm löndum,“ sagði Ahmet. Og líklega verður ekkert gert. Beiskjan sem ég fann hjá fólkinu í Sarajevo var yfirþyrmandi. Og skiljanleg. Heimurinn hefur verið vitni að helför sem aðeins á sér hliðstæðu í síðari heimsstyijöldinni. Þögult vitni að útrýmingarbúðum, fjöldamorðum, pyntingum. I Sarajevo em um 350.000 manns í herkví. Borgin er um- kringd, sprengjum rignir úr öllum áttum; leyniskyttur fá 20.000 krón- ur fyrir hvern óbreyttan borgara sem liggur í valnum. Tugir falla á hveijum degi. 20% fórnarlambanna eru böm. I Sarajevo eru 60.000 böm; þau búa í óupphituðum og rafmagnslausum húsum. „Við emm svöng og við erum alltaf hrædd,“ sagði 12 ára strákur sem ég talaði við. En allt þetta getum við auðvitað séð í beinni útsendingu. Höfundur er rithöfundur og blaðamaður og hefur verið í Sarajevo undanfarinn mánuð. Ahmet er greinilega vanur skens- inu í Mirza. Hann hlær glaðlega: mig sem Bosníumann, ekki mú- „Ég er raunar guðleysingi, en for- slim.“ feður mínir vom bosnískir múslim- Mirza er enn ekki sannfærður. ar. Ættartala íjölskyldu minnar 0 „Nei, minn kæri, þú ert öfgafullur nær aftur á 13. öld. Ég lít á sjálfan múslimi og þú verður skorinn á Hyggjast halda sýndarréttarhöld yfir Kólumbusi Frumbyggjar Ameríku mót- mæla á „ári indíánansu New York. Frá Huga Ólafssyni, fréttariíara Morgunbiaðsins. BANDARÍSKIR índíánar mótmæla nú allskyns húllumhæi í kringum 500 ára afmæli landafunda Kólumbusar og hyggjast efna til sýndarrétt- arhalda yfir sæfaranum sáluga. Það hefur þó aldrei verið vinsælla að vera indíáni í Bandaríkjunum en nú, en samkvæmt manntali fjölgaði þeim um 37 prósent á síðasta áratug. Þetta er ekki talið stafa af örri viðkomu, heldur því að margir með blandað blóð skammist sín ekki lengur fyrir upprunann og skrái sig opinberlega sem indíána. Nú segjast 1,9 milljón Bandarikja- manna vera indíánar, en það er ekki þar með sagt að stjómvöld taki þá alla á orðinu. Þetta er ekki bara skilgreiningaratriði, því enn eru í gildi fjölmargir samningar sem stjórnin gerði við indíána á sínum tíma um hefðbundin veiðiréttindi og önnur hlunnindi, sem eru búbót fyrir fólk, sem telst líklega vera fátækasti þjóðernishópur í Bandaríkjunum. Yfírvöld viðurkenna tilvist 515 indíánaættbálka, sem teljast geta sannað að þeir hafí haldið hópinn æ síðan þeir komust fyrst í kynni við hvíta manninn, en aðrir 126 ættbálk- ar beijast nú fyrir slíkri viðurkenn- ingu fyrir dómstólum. Stundum eru frændur frændum verstir í slíkum lagarimmum. f Was- hington-ríki við Kyrrahafsströndina reyna Samish og Snohomish indíánar nú að fá þrettán ára gömlum úr- skurði um að þeir séu ekki lengur til sem ættbálkar hnekkt. Fáist það í gegn verða þeir aðilar að samningi frá 1855, sem gefur indíánum rétt á að veiða helming alls lax í Puget- flóa, sem gefur tugmilljóna dollara arð á ári. Helstu andstæðingar þeirra í þessarri baráttu eru Tylalip indían- ar, sem njóta góðs af laxagróðanum. Þrátt fyrir slíkan hlunnindabúskap er hlutskipti stórs hluta indíána öm- urlegt. Meirihluti þeirra dvelst á svo- kölluðum sjálfstjómarsvæðum þar sem fátækt, drykkjuskapur og sjálfs- víg eru landlæg. Nýleg könnun á vegum Minnesota-háskóla leiddi í ljós að sjötti hver indíáni á táningsaldri hefur reynt að svipta sig lífí, sem er fjórfalt hærri tíðni en á meðal annarra. Átján prósent ungmenna sögðust þjást af þunglyndi og fímmti hver drengur á við drykkjuvandamál að stríða þegar komið er á nítjánda aldursár. Það er ólíklegt að indíánar fái útrás fyrir gremju sína í kjörklefan- um á þessu kosningarári, enda er aðeins einn þingmaður í Washington af indíánaættum, Ben Nátthestur Campbell frá Colorado. Þeir hafa hinsvegar óspart notfært sér ár Kól- umbusar, sem George Bush, forseti lýsti yfir að væri opinberlega „ár ameríska indíánans". Á meðan fólk flykkist í kvikmyndahús að sjá tvær Það hefur aldrei verið vinsælla að vera indiam i Bandaríkjunum en nú. Samkvæmt manntali fjölgaði þeim um 37 prósent á síðasta ára- tug. Þetta stafar af því að margir með blandað blóð skammist sín ekki lengur fyrir upprunann og skrái sig opinberlega sem indíána. Á myndinni dansar ungur indíáni gamlan indíánadans af mikilli innlifun. myndir um skipstjórann sem vissi aldrei að hann væri í Amerlku saka frumbyggjar álfunnar hann um að hafa hrundið af stað verstu þjóð- morðum í sögu mannkyns og mót- mælin eiga að ná hámarki í San Francisco 9.—12. október. Kannski er Leifur bara heppinn að flestir halda að Kólumbus hafi vérið fyrsti Evrópubúinn til að sigla yfir pollinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.