Morgunblaðið - 02.10.1992, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 02.10.1992, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 Klausturhólar Fjórar myndir eft- ir Jóhann Briem MÁLVERKAUPPBOÐ Klausturhóla verður haldið á Hótel Sögu nk. sunnudag og hefst stundvíslega kl. 15. Þar verða boðin upp málverk eftir ýmsa af kunnustu listmálurum þjóðarinnar. Þeirra á meðal eru verk eftir Ásgrím Jónsson, Kristínu Jónsdóttur, Jón Stefánsson, Jó- hannes S. Kjarval, Snorra Árinbjamar og Þorvald Skúlason. Þá verð- ur boðin upp mynd, gerð með blandaðri tækni, eftir Karl Einarsson Dunganon, hertoga af St. Kildu. í þetta sinn verða boðnar upp fjórar myndir eftir Jóhann Briem, en myndir hans hafa ekki sést á uppboðum þessum um langa hríð. Myndir Jóhanns Briem, sem nú Njarðvík Kona varð fyrir bifreið EKIÐ var á 83 ára gamla konu við gatnamót Hafnarbrautar og Brekkustígs í Njarðvík í gær- kvöldi. Konan var flutt á slysadeild Borgarspítala. Þar fengust þær upplýsingar að hún hefði fengið höfuðáverka, heilahristing og áverka á bijóstkassa en væri ekki í lífhættu. Slæmt skyggni, rigning og rok, var á slystað. verða boðnar upp, eru olíumálverk á striga sem bera heitin Ingólfur Arnarson og öndvegissúlan, Gudda klukka, Uppstilling, Verk- lok og Úr eyðimörkinni. Þess má geta að Gudda klukka er mynd sem Jóhann gerði af Guddu nokk- urri alþekktri í Reykjavík fyrir u.þ.b. 60 árum. Myndin eftir Karl Einarsson Dunganon nefnist Draumur högg- ormsins. Hún er merkileg heimild um þennan umtalaða ævintýra- mann og lífskúnstner, sem Björn Th. Björnsson hefur gert um leik- rit, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Mynd Snorra Arinbjarnar er af Kistufelli, mynd Ásgríms nefnist Úr Borgarfírði en mynd Kjarvals er frá Borgarfírði eystri. Þetta er fyrsta málverkauppboð vetrarins en að venju munu Klausturhólar koma til með að standa fyrir málverka, listmuna- og bókauppboðum í vetur. Fischer komst ekkert áfram Skák Margeir Pétursson ÞRETTÁNDU skákinni í ein- vígi þeirra Bobby Fischers og Borís Spasskís lauk með jafn- tefli í Belgrad í gær eftir 45 leiki. Hún var fremur viðburða- snauð, Fischer náði örlitlu frumkvæði eftir byrjunina en Spasskí lét hann ekki snúa á sig að þessu sinni og eftir mik- ið þóf var samið jafntefli, það fimmta í einvíginu til þessa. Fischer hefur unnið fimm skák- ir en Spasskí þijár. Sá sem fyrri verður til að vinna tíu skákir telst sigurvegari. Eftir afar slaka taflmennsku Spasskís í síðustu skákunum áður en einvígið var flutt til Belgrads benti margt til þess að hann væri bæði þreyttur og lasinn. Sú brag- arbót sem orðið hefur á frammi- stöðu hans eftir hléið sýnir að þá hefur hann teflt langt undir styrk- leika. Það er því ennþá margt á huldu um það yfír hversu miklum styrk- leika Bobby Fischer býr ennþá. Þrátt fyrir mikil tilþrif á hann ennþá eftir að sanna að hann sé í hópi 10-20 sterkustu skák- manna heims. I síðustu viku sagði Garrí Kasparov heimsmeistari í löngu viðtali við þýska vikuritið Spiegel að hann teldi Fischer vera með 2.600 stiga styrkleika, en tæplega öflugri. Næstu skáka er því beðið með eftirvæntingu. Á laugardaginn hefur Spasskí hvítt og verður opið hús í húsakynnum skákhreyfíng- arinnar í Faxafeni 12 frá kl. 16. Hvítt: Borís Spasskí Svart: Bobby Fischer Sikileyjarvörn 1. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5 Aftur beitir Fischer hinu svo- nefnda Rossolimo-afbrigði, kennt við rússnesk/bandarískan stór- meistara, sem m.a. tefldi hér á íslandi 1951. 3. — g6 4. Bxc6 — bxc6 5. 0-0 - Bg7 6. Hel - f6!? Afskaplega frumlegur leikur sem undirbýr Rh6-f7. í elleftu skákinni lék Spasskí 6. — e5, en fékk þá á sig hina stórhættulegu peðsfóm 7. b4!? — cxb4 8. a3 og tapaði illa. 7. c3 — Rh6 8. d4 — cxd4 9. cxd4 - 0-0 10. Rc3 - d6 11. Da4 - Db6 12. Rd2 - Rf7 13. Rc4 — Da6 Auðvitað ekki 13. — Dxd4? 14. Be3 — Dd3 15. Hadl og svarta drottningin er fönguð. 14. Be3 — Dxa4 15. Rxa4 Aðstaða Fischers eftir drottn- ingakaupin er ívið betri því hann getur sótt að veiku peði svarts á c6. Spasskí gætir sín vel í vörn- inni í framhaldinu og biskupapar- ið á stóran þátt í að hann heldur jafnvæginu. 15. - f5 16. exf5 - Bxf5 17. Hacl - Hfc8 18. Ra5 - Bd7 19. b3 - Hab8 20. Rc3 - Kf8 21. a3 - Rh6 22. b4 - Rf5 23. Hedl - Ke8 24. Re4 - Hb5 25. h3 - h5 26. Hd2 - a6 27. Kfl - Hd5 28. Hcdl - Hb5 29. Ke2 - Be6 30. Hcl - Kd7 31. Rc3 - Hbb8 32. Kfl - h4 33. Ke2 - Bf6 34. Re4 - Bd5 35. Kd3 - Bg7 36. Hdc2 - Hc7 37. Hel - Hf8 38. f3 - Hb8 39. Rc3 - Bg8 40. Re2 - Bf7 41. Bd2 - Bf6 42. Hecl - Hbc8 43. Rc4 - Hb7 44. Ra5 - Hbc7 45. Rc4 - Hb7 Jafntefli. Varlegast teflda skákin til þessa. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hollendingurinn V. D. Parre fékk besta tímann í fyrstu keppnisgrein gærdagsins, trukkadrættin- um. Hann kemur hér í mark. Keppnin um titílinn Sterkasti maður heims hófst í gær hér á landi Magnús Ver hefur eins stigs forystu eftir fyrsta daginn Morgunblaðið/Björn Blöndal Magnús Ver Magnússon, sem hefur forystu eftir fyrsta keppnis- dag, á tali við Bandaríkjamanninn James Perry í Bláa Lóninu. MAGNÚS Ver Magnússon hefur forystií eftir fyrsta keppnisdag í keppni um titilinn Sterkasti maður heims, sem hófst hér á landi í gær. Þremur greinum af átta er lokið. Magnús Ver, sem sigraði í keppninni í fyrra og á því titil að veija, hefur 26 stig og Suður-Afríkubúinn Bad- enhorst er annar með einu stigi minna. Keppni heldur áfram í dag, hefst kl. 10.30 við Gullfoss. Fyrsta keppnisgrein í gær var tmkkadráttur og var keppt við Reykjavíkurtjörn. Aðeins þrír af tíu kraftajötnum náðu að draga bílana tvo alla þá vegalengd sem ætlast var til; Hollendingurinn V.D. Parre náði besta tímanum og fékk tíu stig, Bandaríkjamaðurinn James Perry kom næstur og fékk 9 og loks Bretinn Jamie Reeves. Hann fékk 8 stig. Magnús Ver, eini ís- lendingurinn sem tekur þátt í keppninni að þessu sinni, fékk 7 stig fyrir þessa grein. Hann sagði annan bílinn hafa verið heldur þyngri en til hefði staðið, og þá kæmi sér vel fyrir keppendur að vera sem þyngstir. Þess má geta að Hjalti þulur keppninnar Ámason upplýsti í gær að James Perry væri hvorki meira né minna en 230 kíló að þyngd. Önnur keppnisgrein var þollyft- ing á útitaflborðinu í Lækjargötu. Fór hún fram í hádeginu og voru áhorfendur margir. Lyftingalóðum hafði verið komið fyrir undir kerru og til að þyngja hiassið var mjólk- urbrúsum bætt í kerruna. Suður Afríkubúinn Badenhorst, sem lyft hefur 402 kg í réttstöðulyftu á kraftlyftingamóti — sem er meira én nokkur annar hefur afrekað — sigraði í greininni. Lyfti 465 kg og hlaut 10 stig en Magnús Ver varð annar, lyfti mest 452 kg og hálfu betur en náði ekki að jafna árangur Suður-Afríkubúans þrátt fyrir mikinn stuðning áhorfenda. „Þetta var eðlileg útkoma. Hann á meira í réttstöðulyftu en ég, þann- ig að það var vitað mál að hann stæði betur að vígi í þessu,“ sagði Magnús Ver við Morgunblaðið eftir lyftingakeppninna. Eftir rimmuna í Lækjargötu voru þeir orðnir jafn- ir á toppnum Magnús Ver og Bad- enhorst, höfðu báðir 16 stig. Þriðja greinin fór svo fram í Bláa Lóninu í eftirmiðdaginn. Þar áttu keppendur að vaða út í vatn- ið, ná í sex 100 kg tunnur (eina í einu) fara með þær í iand og lyfta upp á pall. Magnús Ver var hlut- skarpastur að þessu sinni og fékk 10 stig. Hann var hálfri mínútu á undan Suður-Afríkubúanum, sem fékk 9 stig. íslendingurinn hefur því eins stigs forskot að loknum fyrsta keppnisdegi af þremur. „Þetta er mín besta grein,“ sagði Magnús Ver eftir greinina í Bláa Lóninu, en neitaði því ekki að hún hefði verið erfið. „En trukkadrátt- urinn var það erfiðasta í dag,“ sagði hann og bætti við að nú væri ekki um annað að ræða en taka vel á og stefna að sigri — „ég ætla að veija titilinn,“ sagði hann. í dag verður keppt við Gullfoss. Fyrst kl. 10.30 og aftur kl. 14.30. Á morgun lýkur keppninni. Þá verður keppt kl. 8.45 við Höfða í Reykjavík, síðan í flugvéladrætti á Reykjavíkuiflugvelli kl. 11.30 og loks á Þingvöllum kl. 15, þar sem keppendur eiga að hlaupa með Húsafellshelluna. Tekjuáformum ríkisstjórnarinnar mótmælt Auka kostnað á Selfossi um 20-25 milljónir króna MÓTMÆLI voru samþykkt í bæjarstjórn Selfoss við þau áform ríkis- stjórnarinnar að hætta endurgreiðslu virðisaukaskatts til sveitarfélaga á næsta ári vegna sérfræðiþjónustu, snjómoksturs, ræstinga, sorp- hreinsunar, björgunarstarfa almannavarna og hitaveitna. Þessi áform ríkisstjórnarinnar hafa 1 för með sér 20-25 milljóna króna kostnaðar- auka fyrir bæjarfélagið, verði þau að veruleika. Sú upphæð svarar til 10% útsvarstekna bæjarsjóðs og fimmtungs af framkvæmdafé bæjar- ins. í ályktun bæjarstjórnarinnar seg- ir: „Samdráttur þjóðartekna á Is- landi bitnar með sama hætti á sveit- arsjóðum og ríkissjóði. Með framan- greindum aðgerðum er ríkisstjórnin að auka á vanda sveitarfélaga til að milda þær þrengingar sem hún stendur frammi fyrir. Slík viðbrögð eru alls óviðunandi án nokkurs sam- ráðs við fulltrúa sveitarfélaga lands- ins. Auk þess verður ríkisstjórnin að taka til gaumgæfilegrar athugun- ar þau vinnubrögð sem tíðkuð hafa verið hér á landi undanfarin ár að við gerð fjárlaga. Það að ár hvert geti sveitarfélög, fyrirtæki og ein- staklingar átt von á grundvallarkerf- isbreytingum í því efnahagsumhverfi sem stjórnvöld ráða, sem bylt geta allri áætlanagerð og veikja þar með möguleika til markvissrar fjármála- stjórnar á íslandi. Bæjarstjórn Selfoss leyfir sér að efast um að slík vinnubrögð þekkist í þeim ríkjum sem Islendingar eiga mest samskipti víð og til stendur að auka til muna á næstu árum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.