Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 25
I 24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Staða kvenna í nýrri Evrópu Fram til ársins 1880 var al- gengt að konur lærðu ekki skrift og reikning hér á landi, segir í Islandssögu Einars Lax- ness (Alfræði Menningarsjóðs). íslenzkar konur fengu ekki kosningarétt fyrr en árið 1915 og var sá réttur þá bundinn við 40 ára aldur. Það var ekki fyrr en með nýrri stjómarskrá árið 1920 að þessar aldurstakmark- anir kvenna voru felldar niður og að sömu réttarákvæði giltu að þessu leyti um konur sem karla. Þetta er rifjað upp hér til að minna á hve lögbundið kynja- misrétti er skammt að baki í íslandssögunni. Nú er jafnstaða kvenna og karla til menntunar og pólitískra áhrifa tryggð í lögum. Konur eru nú í meiri- hluta í ýmsum framhaldsskól- um landsins, m;a. í Háskóla íslands (56%). Áhrif þeirra í sveitarstjómum og á Alþingi fara og vaxandi, þótt betur megi gera í þeim efnum. Það hefur því margt áunnizt í rétt- indabaráttu kvenna frá því Kvenréttindafélag íslands var stofnað fyrir 85 árum, en lands- fundur þess var haldinn fyrir fáeinum dögum. Inga Jóna Þórðardóttir, for- maður Kvenréttindafélagsins, sagði í viðtali við Morgunblaðið, í tilefni af landsfundi þess, að flestum lagalegum hindrunum hafí verið ýtt úr vegi að jafn- stöðu kvenna og karla í samfé- laginu. Á skorti hins vegar að þessi jafnstaða sé tryggð í raun. Hlutur kvenna í samfélaginu, þar sem völdip liggja, vælri of lítill. Þar þyrftu könur að herða róðurinn. Hún sagði jáfnframt að umræðan um launamisrétti kvenna og karla hafí verið ofar- lega á baugi á landsþinginu, sem og leiðir til að auka áhrif kvenna í samtökum launþega og neytenda. Það kom fram í máli Birnu Hreiðarsdóttur, framkvæmda- stjóra Jafnréttisráðs, á lands- fundinum, í umræðu um konur í breyttri Evrójiu, að heildar- laun kvenna á Islandi væru um 60% af launum karla. Það væri lægra hlutfall en í ríkjum Evr- ópubandalagsins. Það kom og fram í máii hennar að ef ísland gerðizt aðili að Evrópska efna- hagssvæðinu (EES) opnist leið til að beita jafnréttisiögum gegn launamisréttinu og vitnaði til 69. greinar EES-samnings- ins. í stefnuskrá Kvenréttindafé- lagsins kemur fram að hvetja þurfí konur til að stofna til eig- in atvinnurekstrar og veita þeim aðstoð í því skyni, t.d. með námskeiðum og ráðgjöf. Konur þurfí í þessu efni að hafa augun opin fyrir þeim möguleikum, sem staða kvenna í nýrri Evrópu feli í sér, meðal annars með aðild íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, ef af henni verður. Meginumfjöllunarefni lands- fundar Kvenréttindafélagsins var af tvennum toga. Annars vegar staða kvenna í nýrri Evr- ópu, einkum með hliðsjón af Evrópska efnahagssvæðinu. Hins vegar jafnréttisbarátta kvenna á tímamótum. Þar var einnig fjallað um uppeldisað- ferðir og skólakerfið. Ljóst er að margt hefur áunnizt í 85 ára sögu Kvenréttindafélags Is- lands og að lagalegum hindrun- um fyrir jafnstöðu kvenna og karla hefur verið ýtt úr vegi. Hins vegar skortir enn nokkuð á að þessi jafnstaða sé tryggð í raun. Þess vegna horfa konur til þeirra möguleika, sem líkur standa til að felist að þessu leyti í stöðu þeirra í nýrri og breyttri Evrópu á næstu árum og ára- tugum. Landssöfn- un fyrir Kvennaat- Samtök um kvennaathvarf standa fyrir landssöfnun í dag til að standa straum af kostnaði við nýtt hús, sem at- hvarfíð hyggst flytja í. Mark- miðið er að afla 13 m.kr. með framlögum fólks og fyrirtækja til þess að endar nái saman. Því miður hefur reynslan sýnt og sannað að brýn þörf er fyrir athvarf af þessu tagi, bæði fyrir konur, sem sæta of- beldi í heimahúsum, og ekkert síður fyrir börn þeirra. Á þessu ári komu fleiri konur og börn í athvarfíð en nokkru sinni fyrr. Þörfín fyrir stærra og betra húsnæði er brýn. Morgunblaðið hvetur félaga- samtök, fyrirtæki og einstak- linga til að leggja sitt af mörk- um í landssöfnun Kvennaat- hvarfsins. hvarfið Deila röntg’entækna veldur erfiðleik- um á sjúkrahúsunum Sjúklingar sendir heim án fullnægj- andi rannsóknar Deilur meinatækna hafa verið leystar Röntgentæknar komu ekki til starfa á Ríkisspítölunum eða Borgar- spítala í gær, vegna deilna um vinnutíma. Deila meinatækna við Rík- isspítala leystist hins vegar í gær, en áður höfðu meinatæknar á Borg- arspítala fallið frá því að hætta störfum. Bæði félögin veittu neyðar- þjónustu á sjúkrahúsunum, en í gær hafði ekki verið boðaður nýr samningafundur með röntgentæknum. Læknir á slysadeild Borgarspít- ala segir að töluverð vandræði hafi skapast í gær, þar sem senda varð fólk heim án þess að meiðsli þess væru fullrannsökuð. Röntgentæknar á Borgarspítala sögðu störfum sínum lausum fyrir þremur mánuðum og gengu upp- sagnir þeirra í gildi í gær. Ástæða þessa var sú ákvörðun stjóma ríkis- spítalanna og Borgarspítalans, að vinnutími þeirra skyldi hér eftir verða 40 klukkustundir á viku, í stað 37,5 stunda. Röntgentæknar á Rík- isspítölunum hafa hins vegar litið svo á, að með einhliða ákvörðun stjórna sjúkrahúsanna hafi þeim í raun verið sagt upp störfum og því mættu þeir ekki heldur til vinnu í gær. „Ástandið hefur verið slæmt hér í dag. Við höfum þurft að senda fólk heim án þess að mein þeirra væru fullrannsökuð, þó hægt hafi verið að sinna öllum þeim, sem verst voru settir. Hjá okkur er ekki bráða- vakt í dag, en við eigum vaktina á morgun [í dag] og þá eru líkur á að ástandið versni enn,“ sagði Jón Baldursson, læknir á slysadeild Borgarspítalans, í samtali við Morg- unblaðið í gær. Jón sagði, að þó rönt- genrannsóknum hefði verið slegið á frest í sumum tilfellum, þá gæti ástandið fyrst orðið alvarlegt, ef röntgentæknar yrðu ekki komnir til starfa þegar þeir sjúklingar kæmu aftur. „Það er svó sannarlega ekkert tilhlökkunarefni ef þessi deila dregst á langinn," sagði hann. í frétt frá samninganefndum ríkis- ins og Reykjavíkurborgar kemur fram, að samningamenn ríkis og borgar hafi boðið fullar kjarabætur vegna vinnutímabreytingar hjá rönt- gentæknum, en þeir hafi hafnað öll- um viðræðum þar um. Guðlaugur Einarsson, formaður samninganefn- ar Röntgentæknafélagsins, sagði að röntgentæknar ætluðu ekki að selja vinnutíma sinn. „Sjúkraþjálfarar samþykktu að vinnutíminn yrði 40 stundir og fengu í staðinn 6,2% hækkun á launatöflu. Þar með eru þeir að selja þessa tíma á dagvinnu- taxta og það getum við ekki sætt okkur við. Opinberir starfsmenn lifa ekki á grunnlaununum, en með þessu móti myndi vaktaálag og yfírvinna skerðast.“ Þá segja samninganefndir ríkis og borgar í fréttinni, að rétt sé að bera lögmæti vinnutímabreytingarinnar undir almenna dómstóla og sé þar með fallist á sjónarmið lögmanns röntgentækna. Guðlaugur sagði að ýmsar stéttir innan sjúkrahúsanna hefðu verið með 37,5 stunda vinnu- viku í langan tíma, eða frá því áður en lög um 40 stunda vinnuviku voru sett fyrir rúmum 20 árum. „Þau lög voru vitanlega sett til hagsbóta fyrir þá sem voru með lengri vinnuskyldu, en kjarasamningur okkar hefur alltaf kveðið á um 37,5 stunda viku. Þetta er ekki spurning um breytingar á ráðningarsamningi, heldur brot á kjarasamningi og ástæðulaust að bera það undir dómstóla. Sannleikur- inn er sá, að forsvarsmenn sjúkra- húsanna gerðu einfaldlega mistök þegar vinnutímanum var breytt og það veit ég að yfirmenn einstakra deilda hafa viðurkennt." Morgunblaðið/Þorkell Frá vinstri: Kristíne Ragnarsdóttir, sem tók við styrknum fyrir hönd Stefáns Áka Ragnarssonar, Ragnar Árnason, prófessor við Háskóla íslands, Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, Þráinn Rósmundsson, sem tók við styrk fyrir hönd Þorsteins Sigurðssonar, og Þorsteinn Pálsson sjáv- arútvegsráðherra. Sjávarútvegsráðuneytið Styrkir veittir til framhaldsnáms Sjávarútvegsráðuneytið hefur veitt styrki til framhaldsnáms við háskóla í fiskifræði og sjávarvistfræði. Styrkina hlutu Stefán Áki Ragnarsson, 500 þúsund kr., sem er við doktorsnám í sjávarvist- fræði við dýrafræðideild Háskólans í Aberdeen í Skotlandi, og Þor- steinn Sigurðsson, 250 þúsund kr., sem er við framhaldsnám í fiski- fræði við Háskólann í Bergen í Noregi. Sjávarútvegsráðuneytið ákvað fyrr á þessu ári að veita styrki ætluðum þeim sem miðuðu að mast- ers-, doktors- eða sambærilegum lokaáfanga í námi. Alls bárust níu umsóknir sem uppfylltu sett skil- yrði. Sérstök dómnefnd valdi á milli umsækjenda, en nefndin var skipuð Ólafi Ástþórssyni frá Hafrann- sóknastofnun, Ragnari Árnasyni frá Háskóla Islands og Kristjáni Skarp- héðinssyni frá sjávarútvegsráðu- neytinu. Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið í ljósi þess hve þekking á lífríki sjávar er mikilvæg fyrir ís- lendinga, að veita á ný á næstá ári styrki sem þessa. Atvinnuleysistryggingasjóður Rúmlega einn milljarður kr. í bæt- ur á fyrstu átta mánuðum ársins Talið að vanti hátt í 600 millj. kr. til að sjóðurinn geti staðið við skuldbindingar sínar LÖG UM atvinnuleysistryggingar tryggja öllum sem eru félagar í stéttarfélögum og verða atvinnulausir rétt á bótum úr sjóðnum. Fullar atvinnuleysisbætur nema 2.140 krónum á dag eða rúmlega 46 þúsund krónum á mánuði og að auki 85,63 kr. á dag með hveiju barni hins atvinnulausa undir 18 ára aldri. Sá á rétt á fullum bótum sem hefur skilað 1.700 vinnustundum á síðustu 12 mánuðum. Auk þess eru greiddar uppbætur á atvinnuleysisbætur í samræmi við kjarasamningana sem gerðir voru síðastliðið vor, sem miðaðar eru við meðaltal launa undir 80 þús. kr. fyrir þijá viðmiðunarmánuði, eða samtals að hámarki 17.000 krónUr á tímabilinu, samkvæmt upp- lýsingum Margrétar Tómasdóttur, framkvæmdastjóra Atvinnuleysis- tryggingasjóðs. Atvinnulausir sem standa utan stéttarfélaga eiga ekki rétt á bótum úr sjóðnum. Tekjur atvinnuleysistrygginga- sjóðs eru 0,15% af gjaldstofni trygg- ingagjalds sem atvinnurekendur greiða af öllum launum, einnig þeirra sem standa utan stéttarfélaga, og framlag ríkisjóðs auk vaxta af inn- stæðufé sjóðsins og verðbréfum. Rík- isframlagið er þrefalt hærri fíárhæð en tekjur sjóðsins af iðgjaldi vinnu- veitenda. Þá hefur sjóðurinn einnig vaxtatekjur af innstæðufé og eigin verðbréfum. Málefni Atvinnuleysistrygginga- sjóðs hafa verið mikið til umræðu að undanförnu í ljósi sívaxandi at- vinnuleysis. í undirbúningi er endur- skoðun á ýmsum þáttum sem að sjóðnum snúa, sérstaklega varðandi fjármögnun og úthlutunarreglur. í úttekt Ríkisendurskoðunar á Skuldir hinna efnaminnstu í þjóðfélaginu Jukust um 7 milljarða 1991 í KÖNNUN sem fjármálaráðuneytið hefur gert á eignamun framteljenda og þróun hans milli áranna 1990 og 1991 vekur athygli hin mikla aukn- ihg fólks sem skuldar meir en eina milljón króna og hin mikla aukning á heildarskuldum þess. Hjónum í þessum hópi fjölgaði um eitt þúsund og einstaklingum um sama fjölda. Samtals jukust nettóskuldir þessa fólks 7 milljarða króna milli áranna 1990 og 1991. ari fjölgun framteljenda sem skulda meir en eina milljón eða skuldaaukn- ingii þessa fólks. „Hins vegar má reikna með að hluti þessarar miklu skuldaaukningar sé til kominn vegna húsbréfakerfisins sem auðveldað hef- ur fólki að fá lán til húsnæðiskaupa," segir Indriði. „Af öðrum ástæðum má nefna námslánin sem eru uppfærð eftir verðbólgu og ef litið er á tengsl- in milli eignaaukningar og skulda- um Hjónum sem skulda meir en eina milljón fjölgaði úr 3.266 í 4.254 og heildarskuldir þeirra jukust milli 1990 og 1991 um fjóra milljarða króna. Einstaklingum sem skulda meir en milljón fjölgaði úr 4.015 og í 5.094 og skuldir þeirra jukust um þijá millj- arða króna. Indríði H. Þorláksson, skrifstofu- stjóri fjármálaráðuneytisins, segir að ekki sé til nein einhlít skýring á þess- stöðu má sjá að töluverður hluti eigna- aukningar er fjármagnaður með lán- um.“ Þegar skoðaðar eru tölur um fjölgun fasteigna og ökutækja hjá fólki sem skuldar milljón kr. eða meir virðast þær tölur styðja það sem Indriði seg- ir. Fasteignum hjóna sem skulda meir en milljón kr. fjölgaði úr 2.233 árið 1990 og í 3.077 í fyrra og ökutækjum fjölgaði úr 2.434 árið 1990 og f 3.318 í fyrra. Samsvarandi tölur fyrir ein- staklinga eru að fasteignum fjölgaði úr 1.363 árið 1990 og í 1.915 í fyrra og ökutækjum fjölgaði úr 1.393 í 1.910 í fyrra. Hvernig fást atvinnuleysisbætur? IHinn atvinnulausi skráir sig hjá vinnumiðlun sveitarfélags og fyllir út umsókn um atvinnu 2Fær vottorð sem hann fer með til fyrrum vinnuveitanda sem honum ber að útfylla. 3Fer með gögnin í stéttarfélag sitt þar sem gengið er úr skugga um að hann eigi rétt til bóta 4Uthlutunarnefndir fara yfir vottorð hins atvinnulausa og upp- lýsingarnar em síðan sendar Atvinnuleysistryggingasjóöi. 5Atvinnuleysistryggingasjóður sendir stéttarfélögunum yfirfarin gögn ásamt nægu fé til greiðslu bóta. Hinn atvinnulausi fær dagpeningavottorð eftir fyrstu vikuna og kemur síðan vikulega til stimplunar og sækir sínar bætur ■T—- ... iii iimiinnmrniHnmTniii l ii ....iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii.... i ' iiiiiiiiíiiiiiiiiiiii.. sjóðnum sem birtist í ágúst kemur fram að núverandi tekjustofnar sjóðsins geti aðeins staðið undir kostnaði vegna um 2% atvinnuleysis. Sjóðurinn hafi verið rekinn með halla frá árinu 1989 og greiðsluþrot blasi við árið 1994 verði atvinnuleysi áfram 3% eða meira. Alls vantar að lágmarki 500-600 milljónir króna á þessu ári til að sjóðurinn geti staðið við skuldbindíngar sínar fram að áramótum og 1.080 á næsta'ári svo endar nái saman miðað við áætlanir sjóðsins sjálfs. Fjórða september síð- astliðinn höfðu verið greiddar 1.000.180.624 krónur í atvinnuleys- isbætur úr sjóðnum. Að sögn Mar- grétar Tómasdóttur er álagið vax- andi hjá sjóðnum og sagðist hún reikna fastlega með að í það minnsta vantaði 500 milljónir til að sjóðurinn gæti staðið við skuldbindingar sínar á árinu en auk þess aagði hún að inni í þeirri tölu væri ekki gert ráð fyrir auknum greiðslum vegna upp- bóta á atvinnuleysisbætur sem samið var um í kjarasamningunum sem hún sagðist áætla að gætu numið um 60 milljónum króna á árinu. í máli Margrétar kom fram að þær uppsagnir sem atvinnurekendur eru að senda inn upplýsingar um um þessar mundir taki ekki gildi fyrr en um áramót og því mætti búast við að kostnaður sjóðsins vegna at- vinnuleysisbóta stóraukist strax í byijun næsta árs. 119 úthlutunarnefndir Úthlutunarnefndir annast greiðsl- ur til atvinnulausra fyrir hvert stétt- arfélag og er fjöldi þeirra á landinu öllu 119. Atvinnuleysistrygginga- sjóður greiðir kostnaðinn við starf úthlutunarnefndanna og að auki allt að 5% af úthlutuðum bótum til stétt- arfélaganna fyrir þá vinnu sem þar er unnin vegna atvinnuleysistrygg- inga. Námu þær upphæðir samtals rúmlega 47 milljónum króna á síð- asta ári. Að sögn Margrétar koma úthlut- Bókastefnan í Frankfurt „Markaðstorg bókaút- gáfunnar í heiminum“ - segir Olafur Ragnarsson, útgefandi Frankfurt. Frá Jóhanni Hjálmarssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. ÞEIR sem komið hafa á Bókastefnuna í Frankfurt eru yfirleitt sammála um áð stefnan sé allt að því ógnvekjandi í stærð sinni og að það sé svo mikið að gerast að menn geti aðeins fylgst með litlum hluta. Þetta eru orð að sönnu en engu að síður freista bjartsýnir íslenskir bókaútgefendur þess að vekja at- hygli á bókum sínum í Frankfurt. Ólafur Ragnarsson, bókaútgefandi og formaður Bókasambands ís- lands, sagði eftirfarandi í viðtali við Morgunblaðið á stefnunni: „Þessi bókasýning er stærsta og viðamesta bókasýning í veröldinni. Hingað koma útgefendur frá öllum heimshornum og eiga hér samskipti og hér fer fram mikil samningagerð varðandi útgáfurétt bóka. Sýningin er einskonar markaðstorg bókaút- gáfunnar í heiminum." Átta íslensk bókaforlög taka þátt í stefnunni og kynna bækur og höf- unda sem þeir hafa gefið út. Fulltrú- ar fleiri íslenskra forlaga eru stadd- ir á stefnunni fyrst og fremst í því skyni að skoða sýninguna. Ólafur Ragnarsson sagði að erindi manna í Frankfurt væri margþætt. í fyrsta lagi væru menn að sjá hvað væri að gerast í bókaheiminum og reyna að átta sig á straumum og stefnum unarnefndirnar yfirleitt saman á skrifstofum stéttarfélaganna og sagði hún að þrátt fyrir aukið at- vinnuleysi hefði fundum nefndanna ekki fjölgað því færst hefði í vöxt að félögin greiddu út bætur hálfs- mánaðarlega í stað vikulegra útborg- ana eins og tíðkast hefur. Sveitarfélögin reka starfemi vinn- umiðlana undir yfirstjórn félags- málaráðuneytisins og annast þær atvinnuleysisskráningu í hveiju sveitarfélagi. Hlutverk þeirra er að aðstoða atvinnulausa við að finna atvinnu og dreifa upplýsingum um framboð og eftirspurn eftir vinnu- afli. Sérstakar vinnumiðlunarskrif- stofur eru reknar í öllum stærstu kaupstöðum landsins en á minni stöðum er atvinnuleysið skráð á skrifstofu sveitarfélags. Þeir sem verða atvinnulausir þurfa því að skrá sig hjá vinnumiðlun í sveitarfélagi sínu og mæta síðan vikulega til að fá dagpeningavottorð sem þeir fara með í sitt verkalýðsfé- lag (úthlutunarnefnd) þar sem bætur eru greiddar út. Falla bæturnar nið- ur ef fólk mætir ekki til stimplunar á réttum degi nema sýnt hafi verið fram á að um veikindi hafi verið að ræða. Styrkir og lán til atvinnusköpunar Atvinnuleysistryggingasjóður heyrir undir heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytið og starfar í húsnæði Tryggingastofnunar ríkisins. Alls starfa þrír starfsmenn á skrifstofu sjóðsins sem annast sömu þjónustu við atvinnulausa opinbera starfs- menn og verkalýðsfélögin vegna fé- lagsmanna sinna. Eitt af meginhlut- verkum sjóðsins er að úrskurða í ágreiningsmálum milli nefndar- manna í úthlutunarnefndum eða ef hinn atvinnulausi vill ekki una ákvörðun úthlutunarnefndar. Stjórn sjóðsins hefur einnig laga- heimild til að veita lán með lágum vöxtum eða vaxtalaust til að efla atvinnulíf á stöðum þar sem atvinnu- leysi er alvarlegt. Stjórnin getur veitt styrk úr sjóðnum til einstakra sveit- arfélaga líkt og gert hefur verið að undanförnu á Húsavík, Akureyri og í Hafnarfirði en árið 1990 var Seyð- firðingum einnig úthlutað 6,5 millj. kr. styrk vegna mikils atvinnuleysis. Að öðru leyti hefur sjóðsstjórnin sjaldan notað þessa heimild til styrk- eða lánveitinga. sem væru ríkjandi. Aðspurður um hvort einungis væri um að ræða stefnu í bókaútgáfú kvaðst Ólafur telja að um hvorttveggja væri að ræða útgáfu og bókmenntastefnur. „Við leggjum mikla áherslu á að hitta hér bókaútgefendur sem við höfum verið í samstarfi við og afla nýrra sambanda.“ Ólafur minnti líka á samprentið eða fíölþjóðaútgáfu sem auðvelda útgáfu bóka. Heimir Pálsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra bó- kaútgefenda, sagði að íslendingar hefðu verið þátttakendur í bóka- stefnunni í a.m.k. þrjú ár og taldi afar mikilvægt að persónuleg sam- bönd milli útgefenda væru alltaf að styrkjast og þau færu vaxandi á bókastefnunni í Frankfurt, bóka- útgáfunni til heilla. Ólafur Ragnarsson vildi ekki samþykkja að bókastefnan í Frank- Nefndin kemst ennfremur að þeirri niðurstöðu að kerfíð sé mis- notað á þann hátt að bamafólk í sambúð skrái sig sem einstætt til að fá hærri bætur og jafnvel að gift fólk skilji í sama tilgangi. Fyrir utan hærri bætur fylgja því ýmis hlunnindi að vera einstætt foreldri, en ekki gift, svo sem betri og ódýr- ari aðgangur að dagvistarplássi og félagslegu húsnæði. Á blaðamannafundi þar sem nið- urstöður nefndarinnar voru kynntar kom m.a. fram hjá Sighvati Björg- vinssyni heilbrigðisráðherra og Dögg Pálsdóttur formanns nefndar- innar að skýrslan, sem nefndin hef- ur skilað af sér, staðfesti ábending- ar um að fyrrgreind réttindi séu misnotuð í einhveijum mæli og að ástæða þessa séu miklir fjárhags- legir hagsmunir. Hjúskaparfólk geti aukið tekjur sínar og réttindi að mun með því að skrá sig sem skilið. - Tekin eru nokkur dæmi um hvernig kerfið mismunar fólki eftir hjúskaparstöðu og miðað er við að hjónafólk annarsvegar og einstætt foreldri hinsvegar hafi sömu tekjur. í ljós kemur að hjá fólki með 3 börn getur munað meir en helming á bótum. Hjón sem hafa 150 þúsund krónur í mánaðartekjur og eiga 3 börn fá samtals í barnabætur og mæðra laun rúmlega 24.000 krónur á mánuðj. Einstætt foreldri með furt stuðlaði að markaðsstefnu sem beindist í þá átt að gefa aðeins út bækur sem von er að seljist í stórum upplögum. Hann sagði að íslenskir útgefendur a.m.k. ætluðu að halda áfram að gefa út bækur sem lítil söluvon væri í en bókmenntagildi aftur á móti mikið. Er áhugi á sérstökum bókum og höfundum? „Já, það koma hér menn til að spyijast fyrir um vissar bækur. Þeir höfundar sem við höfum verið að semja um útgáfurétt hérna eru Halldór Laxness, bækur hans eru gefnar út í tugum landa og Ólafur Jóhann Ólafsson, en vaxandi áhugi er á bókum hans og þær eru vænt- anlegar á ýmsum Evrópumálum á næstunni, nýjasta skáldsaga hans sem kom út í fyrra og líka eldri bækur eftir hann.“ Eins og kom fram í máli þeirra ólafs Ragnarssonar og Heimis Páls- sonar leita íslenskir útgefendur nú meira út en áður og kynna og koma á framfæri höfundum sínum erlend- is og þetta hefur orðið til þess að mun meira er þýtt eftir íslenska höfunda en fyrir áratug eða svo. sömu tekjur og sama barnafjölda fær rúmlega 50.000 krónur. Fleiri dæmi eru tekin en mismun- urinn er allt frá því að vera 60% upp í að vera liðlega tvöfaldur. Sem dæmi má nefna að einstætt foreldri með eitt barn undir 7 ára aldri fær alls 17.732 krónur á mánuði, mæðra/feðralaun meðtalin, en hjón með eitt barn á sama aldri fá 10.591 krónur og munar því rúmlega 60%. Séu börnun tvö, annað undir 7 ára en hitt eldra en 7 ára fá hjónin samtals 22.738 en einstætt foreldri alls 41.161 og munar þar rúmlega 80%. Nefndin kemst að þeirri niður- stöðu að fíárhagslegur ávinningur tekjulágra hjóna og sambýlisfólks sé mikill af því að skilja eða slíta sambúð til málamynda til að kom- ast inn í stuðningskerfi einstæðra foreldra. Afleiðingin sé sú að í ein- hveijum mæli skrái fólk sambýlis- stöðu sína aðra en hún er. Til lausnar vandanum segir nefndin að nauðsynlegt sé að byggja upp stuðningskerfi tekjulágra barnafjölskyldna án tillits til hjú- skaparstöðu foreldra. Sighvatur Björgvinsson segir að þetta megi að hluta til gera með því að leggja laun til grundvallar bamabótum og barnabótaaukum en ekki hjúskapar- stöðu. iMmmmmmmmwMit Nefnd á vegnm heilbrigðisráðherra Fjárhæð barna- bóta verði óháð hjúskaparstöðu Þannig komið í veg fyrir misnotkun NEFND sém heilbrigðisráðherra skipaði til að kanna hvort líklegt -væri að skipulega væru misnotaðar bætur sem ætlaðar eru einstæðum foreldrum hefur skilað niðurstöðum sínum. Kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að núverandi kerfí barnabóta, barnabótaauka og mæðra- og feðralauna mismuni börnum eftir bjúskaparstöðu foreldra og að slíkt kunni að bijóta í bága við félagsmálasáttmála Evrópu sem ísland er aðili að. Lausnin sem nefndin leggur til er m.a. að fjárhæð barna- bóta verði óháð hjúskaparstöðu fólks.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.