Morgunblaðið - 02.10.1992, Page 33

Morgunblaðið - 02.10.1992, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 33 Svanhvít Jóhannes- dóttir - Minning Fædd 27. desember 1910 Dáin 23. september 1992 Miðvikudaginn 23. september hringdi mamma í mig í vinnuna og tilkynnti mér að Svanhvít amma væri farin frá okkur. Biðin var á enda. Við vissum auðvitað öll að hún færi að lokum eins og allir gera, en samt er maður ekki tilbúin að sætta sig við að amma sé farin. Minning- arnar um ömmu eru svo margar og skemmtilegar og ósjálfrátt rifjast svo margt upp. Að eiga ömmu er mjög gjöful „eign“ sem við fáum. Hver man ekki eftir því að geta farið til ömmu sinnar, fengið mjólk og kökur og átt góðar stundir með henni? Mér eru svo minnisstæðar rútu- ferðirnar um helgar til Reykjavíkur þegar ég var lítil. Þá lá leiðin til Svanhvítar ömmu. Ég fékk ýmist að fara ein eða með Nonna bróður mín- um. Ég hlýt að hafa verið rétt 5 ára þegar ég var að fara til ömmu til að dvelja um helgar hjá henni, Guggu og Gróu. Gróa frænka sótti mig með Arnar þá nýfæddan niður á Umferð- armiðstöð. Þá bjó amma á Eiríksgöt- unni. Hvað ég var alltaf feimin, þorði ekki að segja neitt við ömmu mína þegar hún lét mig fá skyrið sykur- laust. Þá hafði hún gleymt að hræra sykur í skyrið, ég sat þarna við eld- húsborðið hennar og píndi í mig skyr- ið. Við hlógum mikið að þessu þegar ég sagði henni þetta, ekki fyrir svo löngu síðan þegar hún lá á Borgar- spítalanum. Þá eyddum við löngum tímum í að rifja upp atburði eða þá að hún sagði mér sögur af sér á uppvaxtarárum. Eða þegar ég sat út í garðinum hennar við Eiríksgötuna fyrir nákvæmlega 20 árum, ég var svo feimin að stundum ég þorði ekki að segja ömmu hina einföldustu hluti. Ég át.i að koma með haustlauf í poka daginn eftir í skólann. Ég þorði ekki að segja henni það, steinþagði og laumaði þremur haustlaufum í vasann á rauðu úlpunni minni. Lauf- in komu sjálfsögðu að engum notum daginn eftir í föndurtímanum, öll brotin. I helgarferðum mínum til ömmu fórum við oft í göngutúra um miðbæ- inn með Arnar í barnavagninum rauðan af frekju. Þá fyrst var það hjá ömmu er ég man eftir Þorgerði frænku. Við amma sátum og horfð- um á sjónvarpið eitt laugardags- kvöldið. í sjónvarpinu var einhver dansþáttur. Þá bendir amma á falleg- ustu stelpuna og segir: „Nei, ef þetta er ekki hún Þorgerður mín að dansa þarna.“ Ég sá stelpu með sítt brúnt hár niður á rass og ætlaði sko að Fædd 16. júlí 1946 Dáin 15. september 1992 Ljós mitt skein. Það voru fyrstu orðin sem mér datt í hug, þegar ég frétti að hún væri farin, hún Nína mín. Ég var þess aðnjótandi að kynn- ast Nínu árið 1984, þar sem hún var ráðgjafi minn. Hún var það Ijós, sem ég hafði ekki áður þekkt. Hún laðaði alla að sér með bjarta, hreina brosinu sínu. Hún hafði þessa gífur- legu hreinskilni. Það var allt í henn- ár heimi, lífið eins og það er, ekki það sem einhver sér í einskismanns- landi. Því sannleikurinn er hér og nú. Orð mín eru fátæk við mildi Ninu og ég sendi hennar kveðju mína. Kæri Guðmundur, börn og aðrir aðstandendur, megi það sterkasta afl vera með ykkur. Þórey Sigurbjörnsdóttir. Hún Nína okkar er dáin. Ég vil í fáum línum minnast góðr- ar vinkonu og um leið koma þakk- læti mínu og Dyngjukvenna á fram- færi fyrir þann stuðning og áhuga verða eins og hún þegar ég yrði stór, með sítt hár og dansa. Hún elsku amma mín hefur gegnt stóru hlutverki í lífi mínu. Án hennar værum við kannski öðruvísi hugsandi í dag. Hún var alltaf til staðar fyrir sína nánustu og alla aðra. Hún gaf sér tíma til að hugsa um mig, börnin sín og barnabörn. Elsku Gróa, Gugga, Anna og pabbi, þið áttuð alveg sérstaka móður og ég bestu ömmu í heimi. Guð geymi elsku Svanhvíti ömmu, ég mun alltaf elska hana. Berglind Bjarnadóttir. Svanhvít Jðhannesdóttir, föður- systir mín, andaðist í Borgarspítal- anum 23. september sl. eftir langvar- andi og erfið veikindi, 81 árs að aldri. Hún lifði síðust þrettán systkina. Svanhvít fæddist í Stykkishólmi 27. desember 1910, ellefta barn hjón- anna Jóhannesar Einarssonar sjó- manns og Guðbjargar Jónsdóttur húsmnóður. Ættir Jóhannesar og Guðbjargar voru aðallega úr sveit- unum umhverfís Breiðafjörð, úr Snæfells-, Dala- og Barðastrandar- sýslu og úr Breiðafjarðareyjum. Ættfeðurnir voru að jafnaði sjómenn meira en bændur og það var sjórinn sem færði þeim hjónunum þá björg sem fékkst. Systkini Svanhvítar voru: Einar, skipstjóri í Stykkishólmi, 1893-1967, átti eina dóttur. Lárentzíus, verka- maður í Stykkishólmi, 1893-1963, átti fímm dætur og fjóra syni. Krist- ín, húsmóðir í Reykjavík, 1895-1979, átti tvær dætur og þijá syni. Jó- hann, bankamaður í Reykjavík, 1898-1984, átti eina dóttur og tvo syni. Torfhildur, ráðskona í Reykja- vík, 1899-1974, barnlaus. Ásberg, kennari og gjaldkeri SÍBS, Reykja- Iundi, 1902-1955, átti einn son. Anna 1904-1906. Gunnar, póstmkaður í Reykjavík, 1905-1990, átti fjórar dætur og þrjá syni. Jón 1907-1915. Skarphéðinn 1910-1929. Sverrir, húsgagnasmiður í Reykjavík 1912- 1970, átti eina dóttur og tvo syni. Hörður fæddur 1914, dáinn sama ár. Þijú böm Jóhannesar og Guð- bjargar dóu þannig í barnæsku og Skarphéðinn sem fæddur var í jan- úar sama ár og Svanhvít, dó úr berkl- um nítján ára. Níu náðu fullorðins- aldri og stofnuðu eigið heimili. Nú er genginn allur .þessi hópur vinnus- amra, heiðarlegra og blíðlyndra systkina. Fátækt var á æskuheimili Svan- hvítar. Jóhannes faðir hennar átti alla ævina ekkert til að selja nema vinnu sína og þótt hann stundaði sem að hún sýndi á meðan kraftar hennar fengu að njóta sín. Nína var sterk og mjög reynslurík kona sem átti mjög auðvelt með að setja sig í spor annarra, var mjög næm á fólk og úrræðagóð þegar mál alkóhólista voru annars vegar. Konur og alkóhólismi var það sem Nína hafði brennandi áhuga á og eftir að hún kom frá Staðarfelli og fór að vinna á göngudeild SÁÁ feng- um við hér á áfangaheimilinu Dyngj- unni, heimili fyrir konúr sem lokið hafa áfengis- og vímuefnameðferð, sjóinn af kappi var kaupið lágt og dugði ekki til framfærslu barnmargs heimilis. Mörg barnanna voru í fóstri á öðrum heimilum mikinn eða mesta hluta ævi sinnar. Svanhvít flutti tæplega níu ára til Kristínar systur sinnar og manns hennar, Filippusar Guðmundssonar múrarameistara í Reykjavík, og dvaldi á heimili þeirra langt fram á unglingsár og dvaldi síðan á víxl í Stykkishólmi og Reykjavík við ýmsa atvinnu eftir því sem aðstæður leyfðu. Hún giftist Jóni Bjarnasyni, verkamanni og síðar póstmanni. Áður hafði Svanhvít eignast dóttur- ina Önnu, sem ólst upp hjá Torfhildi systur hennar og Guðrúnu Halldórs- dóttur ljósmóður. Þau Jón og Svan- hvít áttu þijú börn saman. Þau skildu. Börn Svanhvítar eru: Anna Guð- mundsdóttir, fædd 1933, skrifstof- urmaður í Reykjavík, gift Gunnari Guðmannssyni og eiga þau fímm börn og tíu barnabörn; Bjarni Már Jónsson, fæddur 1938, vélstjóri í Reykjavík, kvæntur Ingunni Guðna- dóttur, og eiga þau tvö börn; Guð- björg Jónsdóttur, fædd 1946, sjúkr- aliði og húsmóðir í Reykjavík, gift Gunnari Laxdal Eggertssyni og eiga þau þrjú böm; Gunnhildur Gróa Jóns- dóttir, fædd 1948, sjúkraliði í Reykjavík og á hún einn son. Alls átti Svanhvít þannig ellefu barna- börn og tíu barnabarnaböm þegar hún lést. Svanhvít föðursystir mín var aldr- ei auðug af fjármunum og oft var líf hennar erfitt. Hún var viðkvæm en án beiskju. Hún lifði langa ævi laus við hroka, var æðrulaus og vildi umfram allt engum vera til byrði. Börnum hennar og öðrum afkomend- unr votta ég samúð mína því að ég veit að þau sakna hlýrrar og góðrar móður og ömmu. Gísli Gunnarsson. að njóta víðsýni hennar og reynslu, en því miður í alltof stuttan tíma. Af hverju Nína? hugsaði ég þegar mér bárust fréttirnar. Stórt er spurt og fátt er um svör. En margs er að minnast og eftir stendur djúpt þakk- læti í hennar garð, sem miðlaði og styrkti á óeigingjarnan hátt til þeirra sem þurftu þess með. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Nínu og veit að það er ekki sjálfsagt að hafa fengið að eiga hana fyrir vin- konu og það er jú það sem stendur upg úr. Ég bið algóðan guð að styrkja þá sem eiga um sárt að binda. Hafi Nína þökk fyrir allt. Sérhvert líf ( er lítið strá í stórum krans. Dottý og Dyngjukonur. t Bróðir minn og móðurbróðir, BENEDIKT ÓSKAR JÓNSSON, elliheimilinu Grund, áður Sveinsstöðum, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Hvítasunnukirkju Fíladelfíu, Reykjavík, mánudaginn 5. október kl. 15.00. Hansfna Jónsdóttir, Hrefna Hagbarðsdóttir. Jónína Þ. Helga - dóttir - Kveðjuorð t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG EIRÍKS HARALDSDÓTTIR, Sléttahrauni 24, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju ( dag, föstudaginn 2. októ- ber, kl. 15.00. Hrönn N. Ólafsdóttir, Jónína Gyða Ólafsdóttir, Bára N. Ólafsdóttir, Lára Ólafsdóttir, Erna N. Ólafsdóttir, Benedikt Guðjónsson, Elías Már Sigurbjörnsson, Bergsveinn Jóhannsson, Þór Gíslason, Guðmundur Jónsson og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA ÁRNADÓTTIR frá Vestra Fróðholti, Rangárvöllum, Hjallabraut 9, Þorlákshöfn, verður jarðsungin frá Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, laugardaginn 3. október kl. 16.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á björgunarsveitina Mannbjörg, Þorlákshöfn. Grétar Þorsteinsson, Elfsa Þorsteinsdóttir, Árni Þorsteinsson, Anna Hjálmarsdóttir, Gunnar Þorsteinsson, Valgerður Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eigirtmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, SVERRIR BJARNFINNSSON, Búðarstíg, Eyrarbakka, verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 3. október kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Guðlaug Böðvarsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall EDWARDS B. CLEAVER fyrrum ræðismanns Bandaríkjanna og síðar deildarstjóra á Keflavíkurflugvelli. Guðrún M. Cleaver og fjölskylda. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför systur okkar og mágkonu, SIGURBJARGAR ÁRNADÓTTUR frá Hrólfsstaðahelli. Oddur Árnason, Sigurþór Árnason, Halldóra Ólafsdóttir, Guðjón Jónatansson. t Einlægar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför SKÚLA HALLSSONAR. Amalfa H. H. Skúladóttir, Leonhard I. Haraldsson, Hallur Skúlason, Lilja Kristófersdóttir, Grétar Skúlason, Ásta Júli'a Arnardóttir, Skúli Skúlason, Ásthildur Gunnarsdóttir, Ásta Valgerður Skúladóttir, Margrét Eðvalds, Bent Bryde, Eðvald Karl Eðvalds, Ragna Valdimarsdóttir, Hulda Hallsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Lokað verður í dag, föstudaginn 2. október, milli kl. 9.30 og 13.00 vegna jarðarfarar ÖNNU MARÍU MAGNÚSDÓTTUR. Blikk og stál hf., Bíldshöfða 12, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.