Morgunblaðið - 02.10.1992, Side 34

Morgunblaðið - 02.10.1992, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 Anna María Magn- úsdóttir — Minning Fædd 15. maí 1961 Dáin 24. september 1992 Er sólin skein frá himindjúpi háu og hélug blómin kyssti þýtt sem móðir, þá mælti ég ósjálfrátt: Hve Guð er góður að gefa ðllu, bæði háu og lágu, ástríka móður. (1889, Jóhann Siguijónsson) Við stöndum á þrítugu og fyrsti bekkjarfélagi okkar er horfinn úr hópnum. Það setur að okkur ugg, við erum skammt komin á lífs- göngunni og tilganginn er erfitt að koma auga á. Þegar við hittumst öll síðast var það heima hjá Önnu Maríu sem miklaði það ekki fyrir sér að bjóða heim þijátíu manna bekk til að halda sambandi. Anna María var hæglát stúlka og féll vel inn í hóp- inn. Bekkurinn var samstilltur og margir eignuðust sína bestu vini þessi ár, meðal annars Anna Mar- ía. Líklega voru fáar konur þijósk- ari en hún og fátt sem haggaði henni ef hún hafði á annað borð gert upp hug sinn með eitthvað. Þegar hún var meðal þeirra sem hún þekkti vel lá hún ekki á skoð- unum sínum og hún var traust þeim sem henni voru kærir. Sam- viskusamari stúlku var ekki hægt að hugsa sér og iðulega þegar kom- ið var að tómum kofunum hjá bekkjarfélögum var hægt að kíkja á glósurnar hjá henni. Þegar leiðir skildu eftir Verslun- arskólann héldu sumir sambandi og af og til hittust allir bekkjarfé- lagarnir. Það kom að því að Anna María eignaðist sinn sólargeisla, Ingu Láru. Það er ekki ofsagt að þær hafi verið nánar bæði sem mæðgur og vinkonur. Líf hennar snérist um dótturina og það var alveg sérstakt hvað Anna María var dugleg að drífa sig með hana hvert sem var alveg frá því hún var pínulítil. Inga Lára býr nú að þessum tíma sem þær fengu að njóta saman mæðg- urnar. í öllum sínum veikindum var það jákvæðnin sem einkenndi viðhorf hennar þegar hún hitti skólafélag- ana. Anna María var ekkert á leið- inni að gefast upp, þetta yrði allt í lagi og hún þijóskaðist við fram á síðustu stund. En lífíð gefur og lífið tekur og síðustu vikumar sáu hennar nánustu hvert stefndi. Fá orð eigum við bekkjarfélag- arnir til að hugga á svona stundum en við biðjum góðan Guð að vaka yfír Ingu Láru og veita henni styrk. Foreldrum Önnu Maríu, Áslaugu og Magnúsi, sem nú taka að sér Ingu Láru, bræðrum og öðrum aðstandendum og vinum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Með okkur öllum vakir minning um góða stúlku. Bekkjarfélagar úr 4-C 1979 í Verslunarskólanum. Nú er hún látin hetjan okkar eftir 6 ára bjartsýna baráttu og alltof fljótt í blóma lífsins. Anna María hóf störf hjá okkur í Blikki & Stáli hf. í september 1979, þá átján ára gömul, en í störfum sínum var hún vaxandi starfsmaður sem i l>lóniiiskr<‘vlÍM!'iim \ið ..II tirkilæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 óx með hverri ábyrgð og sýndi fyrirtækinu mikla tryggð og trúnað sem ekki fór fram hjá neinum, hvorki stjórnendum, viðskipta- mönnum né öðrum starfsmönnum. Hún var konan sem oft tók við þegar stjómendur þurftu að fara frá vegna fría eða viðskiptaerinda. í þrettán ára starfi og samstarfi höfum við kynnst hetjunni okkar og lífshlaupi hennar. Hún var ekki nema átján ára þegar hún gerðist félagi í byggingarfélagi ungs fólks og tvítug gerði hún byggingar- samning um íbúð á Austurströnd 8. í febrúar 1984 eignaðist hún dótturina Ingu Láru og í september sama ár flutti hún í nýbyggða íbúð- ina með sólargeislann sinn, Ingu Láru. Þar bjó hún þeim mæðgum fallegt heimili og mátti hún vera stolt af. Það var gaman að fylgjast með hvernig hún bjó dótturina und- ir framtíðina sem er dugleg í skóla, stundar fímleika og spilar á selló. Árið 1986 barði upp hjá henni vá- gestur, krabbameinið, veikindin tóku hana frá okkur um tíma, en hún kom aftur eins og oft síðan. Anna María átti sínar stundir með starfsfélögum á árlegum skemmt- unum og ferðalögum og var ávallt hrókur alls fagnaðar. Hún var einn- ig gjaldkeri Starfsmannafélags Blikks & Stáls í mörg ár og sá um margra hluti fyrir það. Fyrir tveim- ur árum bankaði vágesturinn svo aftur hjá Önnu-Maríu í sumarbyij- un, þá var hún búin að skipuleggja að fara til Finnlands með dóttur- ina, en seinkaði þeirri ferð til hausts og lagðist undir hnífinn til að nota sumarið til að ná sér, en aðgerðin tókst vel og til Finnlands fór hún. Það var núna þegar landið okkar fór að skrýðast haustlitunum og sumri að halla að Anna María varð veik aftur og nú kom hún ekki aftur, þó að við vissum að hveiju stefndi þá var hún tekin frá okkur svo fljótt. Ég vil þakka henni öll störf, vináttu og trúnað og er full- viss að góðir taka á móti henni í nýjum vistarverum. Mína litlu vin- konu, Ingu Láru, bið ég guð að varðveita og veita henni styrk, einnig foreldrum og bræðrum Önnu Maríu. Guð blessi ykkur öll. Garðar Erlendsson. Guði sé lof, að liðin er nú þraut, og líknarörmum sínum þig hann vefur. Hann gleymir engum, oft þótt brött sé braut, hann bót við öllum meinum vorum gefur. (Guðrún Jóhannsdóttir frá Brautarholti.) Hún Anna María er dáin. Isköld staðeynd, og þó að við vissum hvert stefndi sl. vikur, er eins og dauðinn komi alltaf á óvart. Eftir 6 ára baráttu, baráttu þar sem Anna María og við sem hana þekktum, trúðum alltaf á að nú, eftir þennan uppskurð eða þessa meðferð, væri búið að koma í veg fyrir meinið að fullu. Ég kynntist Önnu Maríu í æsku, og við gengum saman í gegnum barna- og gagnfræðaskólann, seinna kom svo Versló þar sem hún lauk verslunarskólaprófí og hóf störf í lífsins skóla. Þessi lífsins skóli varð fljótt harðneskjulegur fyrir Önnu Maríu. Þrátt fyrir það var Anna María alltaf kát og bjart- sýn á sinn hljóðláta hátt. Éftir nokkurt hlé á veikindum sínum kom enn eitt bakfallið í vor, og enn og aftur hóf hún undirbúning und- ir nýja meðferð. Vissulega var hún kvíðin, en baráttuviljinn var svo sannarlega til staðar. Áður en við vissum af, varð hún veikari og veik- ari. Ég átti þess kost að heim- sækja hana aðeins fímm dögum áður en hún dó. Þrátt fyrir ástand hennar, ræddi hún við mig með stakri ró. í þeirri umræðu kom skýrt fram að Anna María ætlaði sér ekki að yfírgefa þennan heim strax. Við ræddum um okkar fram- tíðardrauma og ákváðum m.a. að ég myndi útbúa blómaskreytingu fyrir næsta matarboð hjá henni. Áf þessu matarboði verður ekki, en ég mun minnast Önnu Maríu sem ungrar móður í blóma lífsins, stúlku sem var sannur vinur vina sinna. Anna María eignaðist fyrir rúm- um átta árum dóttur, Ingu Láru. Það var yndislegt að sjá hversu góðar vinkonur þær mæðgur voru. Anna María lagði sig alla fram við að taka þátt í lífí Ingu Láru, svo að unun var á að horfa. Hvort sem það var skólagangan, tónlistarnám hennar eða fímleikar. Anna María var þar fyrirmynd annarra for- eldra, og kannski sérlega áberandi, þar sem hún sinnti bæði hlutverki móður og föður. Missir Ingu Láru er ólýsanlegur, en hún á yndislega ömmu og afa sem hafa annast hana í veikindum Önnu síðastliðin ár. Elsku Inga Lára, Áslaug, Magn- ús og fjölskylda. Ég bið góðan Guð að gefa ykkur styrk í sorginni. Þá biður Erna Lúðvíksdóttir fyrir kveðjur frá Sviss. Guð blessi minningu Önnur Mar- íu Magnúsdóttur. Guðrún Magnúsdóttir. Kveðja frá Starfsmannafé- lagi Blikks og Stáls hf. Anna María er látin og hjá okk- ur er söknuður. Hún hafði oft farið frá vegna veikinda en alltaf var hún komin aftur svo fljótt að aðdáunarvert var; hversu dugleg hún var í veik- indum sínum. En nú kemur hún ekki aftur. Anna María var gjaldkeri hjá Starfsmannafélagi Blikks & Stáls í mörg ár, hún var mjög virk í félag- inu og vann mjög vel í þágu þess. Við þökkum henni fyrir störfin og samfylgdina í gegnum öll árin. Það verður aldrei eins án hennar. Dóttur hennar, Ingu Láru, for- eldrum, bræðrum og fjölskyldu sendum við samúðarkveðjur. Við kveðjum Önnu Maríu með söknuði. Á kveðjustund langar okkur að minnast Önnu Maríu Magnúsdótt- ur, er lést aðfaranótt 24. septem- ber sl. á Landspítalanum eftir stutta en erfiða legu, aðeins 31 árs að aldri. Okkar fyrstu kynni voru er við fluttum í sama fjölbýlishús við Austurströnd á Seltjarnarnesi, haustið 1984. í febrúar sama ár hafði hún eignast „sólargeislann sinn“ hana Ingu Láru. Þær mæðg- ur komu sér fyrir í notalegri íbúð og undu glaðar við sinn hag. Brátt bar þó skugga á, þar sem sjúkdóm- ur sá er dró Önnu Maríu síðar til dauða, gerði fyrst vart við sig. Ekki brást henni kjarkurinn, heldur tókst hún á við sjúkdóminn af mikl- um dugnaði og lét engan bilbug á sér fínna. Nokkrum árum síðar tók hann sig upp aftur, en af sama dugnaði tókst hún aftur á við hann. Síðastliðinn vetur tók sjúkdómur- inn sig upp í þriðja sinn, og hófst þá baráttan af sama dugnaði og æðruleysi og áður, og lengst fram- an af virtist sem hún ætlaði að hafa betur, en þó fór að lokum að hun varð að láta í minni pokann. Anna María var geðgóð, hlý og vingjamleg ung kona, með góða kímnigáfu. Hún var ósérhlífin og gekk til allra verka af miklum dugnaði. Hún átti marga góða vini, sem nú sakna hennar mjög. Hún hafði alltaf mjög gott og náið sam- band við foreldra sína og voru þau hennar stoð og stytta alla tíð. Hún naut þess að vera samvistum við Ingu Láru og gekk hún fyrir í öllu sem hún tók sér fyrir hendur og það var fátt sem hún gerði án henn- ar. Þær fóm saman á skíði, í sund, hjóluðu, fóru í gönguferðir og ferð- uðust saman, jafnvel þó aðeins væri stund milli stríða hjá Önnu Maríu. Var ánægjulegt að sjá hversu samrýmdar þær voru og miklar vinkonur. Missir Ingu Láru er mikill, en hún á góða að sem styðja hana og styrkja í þessari miklu sorg. Nú þegar leiðir okkar skilur um sinn, viljum við þakka Önnu Maríu fyrir stundirnar sem við áttum með henni, og biðjum Ingu Láru, for- eldrum og bræðrum hennar Guðs blessunar, og megi minningin um góða móður, dóttur og systur milda sorgina og lifa með þeim um ókomna tíð. Margrét Kristinsdóttir, Gunnar Guðmundsson. Þegar maður er rétt um eða yfír þrítugt er manni ýmislegt annað hugleiknara en dauðinn. Dauðinn er staðreynd, en samt svo fjarlæg- ur, og þó að við Anna hefðum rætt saman um krabbameinið sem tekið hafði sér bólfestu í líkama hennar, þá varð umræðan um dauð- ann sjaldan ofan á, heldur hvernig unnt væri að sigrast á meininu, vonin um að lækning myndi nást og lífið sigra. En enn á ný hefur þó dauðinn náð yfirhöndinni yfír lífínu og ung kona þurft að lúta í lægra haldi. Við kynntumst Önnu þegar við bjuggum á Austurströndinni en Heiðrún, dóttir okkar, og Inga Lára, dóttir hennar, urðu vinkonur. Þó svo fjarlægðin milli heimilanna hafí aukist hefur vinskapur þeirra ekki dofnað heldur áherslur vin- skaparins orðið aðrar, s.s. að fá að gista yfír nótt og þá helst tvær nætur. Aldrei óx það Önnu í augum að taka á móti litlum næturgesti og ekkert mál fannst henni að sitja með þeim heilu eftirmiðdagana og hjálpa þeim með föndur og annað slíkt. Það var í gegnum vinskap stelpnanna sem vinátta okkar Önnu Maríu hófst. En þar kynntumst við ekki einungis manneskjunni Önnu Maríu, heldur opnaðist okkur einn- ig áður lokaður hluti lífsins. Sá hluti að fylgjast með því hvernig ung kona og móðir berst hetjiílega gegn þeim vágesti sem krabba- meinið er. Að láta ekki deigan síga þó svo á móti blási og lifa lífinu meðan tækifæri er. Að gefast ekki upp heldur halda reisn sinni og horfast í augu við vandann. Eða eins og hún skrifaði okkur sjálf í apríl sl. þegar í ljós hafði komið að meinið hafði sótt í sig veðrið: „ ... en maður verður bara að fara í Pollýönnuleik og líta björtum aug- um á framtíðina." Öllum sem á horfðu var ljóst að augasteinn Önnu Maríu var dóttirin Inga Lára og var það velferð henn- ar sem stærstan hluta átti í huga Önnu. Hún var óþreytandi á að leiða hana áfram, hvort sem í hlut átti tónlistarnám, fimleikar eða bara lífíð sjálft. Oft ræddum við hjónin um þennan óbifaniega kraft sem bjó í Önnu, hvernig hún með bros á vör eyddi öllum sínum frí- tíma í að gera Ingu Láru lífið sem viðburðaríkast. Anna María var skapandi per- sónuleiki og bera allir postulíns- gripirnir sem hún málaði því glöggt vitni. Hver gripur var unninn af varfærni og alúð og var ekki verið að velja einföldustu munstrin. Nei, eingöngu var hugsað um að hlutur- inn yrði fallegur og að myndin hentaði tilefninu. Sumarið 1991 komu þær mæðg- ur, Anna María og Inga Lára, í hálfsmánaðardvöl til okkar en við vorum þá búsett í Þýskalandi. Auð- vitað vorum við öll hálfkvíðin yfir því hvernig sambúðin myndi ganga því þó við þekktumst vel þá reynir á aðra þætti þegar búa á undir sama þaki, þó ekki sé nema í skemmri tíma. En fljótlega kom í ljós að allar áhyggjur voru óþarfar því aldrei bar nokkurn skugga á dvölina og varð þetta okkur oíium ógleymanleg heimsókn. Allt um- hverfíð var grandskoðað, farið í verslunarferðir til næstu stórborga þar sem mikið var hlegið að hvor annarri þegar verið var að máta hinn kynlegasta fatnað, keyptur ís á öðru hvoru horni því það var svo hræðilega heitt og síðan burðast með fangið fullt af pokum og leitað að bílnum sem við mundum ekkert á hvaða hæð bílageymslunnar við höfðum lagt. Kvöldunum var m.a. eytt yfír poppi og kók og skegg- rætt um hve íslenska kókið og jafn- vel poppið líka væri miklu betra en það þýska. En það breytti þó ekki því að að hver kókdropi og hvert poppkorn hvarf ofan í okkur. Svona leið tíminn við gleði, hlátur og leiki og fyrr en varði var heim- sókin á enda og húsið orðið ótrú- lega tómlegt. En tómleiki hússins var ekkert miðað við þann tómleika sem nú fyllir hugann. Elsku Inga Lára okkar, við biðjum Guð að styrkja þig og leiða í þinni sorg og einnig ykkur, Áslaug og Magnús, sem nú þurfið að sjá á eftir ykkar yngsta barni. Að fá að horfa upp á ást ykkar, umhyggju og ósérhlífni hef- ur verið okkur lærdómsríkt. Ólöf og Hreiðar. Erfiðri baráttu Önnu Maríu er lokið. Hún sem hafði svo oft haft betur, en nú hafði krabbameinið betur. Þessu er svo erfitt að trúa. Hver er tilgangurinn? Við Anna María ræddum tilganginn, hún hafði þá trú að okkur væri ætlað visst lífsmynstur og þegar okkar tími væri kominn þá væri hann kominn. Hennar tími. var kominn, það vissi hún þá seinustu daga er hún lifði. Við Anna María höfum verið starfsfélagar og vinkonur í 10 ár. Það er erfitt að eiga ekki von á henni aftur í vinnu og geta ekki hringt í hana er hún var ekki í vinnu. Anna María var sterkur persónu- leiki með ákveðnar skoðanir á hlut- unum. Augasteinn hennar var dótt- ir hennar, Inga Lára. Þær voru mjög samrýndar og gerði Anna María allt fyrir dóttur sína. Er við fórum í utanlandsferðir með Starfs- mannafélagi Blikks & Stáls var hugur hennar alltaf hjá Ingu Láru og allir þeir fallegu hlutir er hún keypti voru fyrir Ingu Láru. Inga Lára hefur misst mikið en það má þakka að Anna María þurfti ekki að kveljast lengi. Inga Lára á yndislegan afa og ömmu sem hafa verið mikið með hana og annast og hjúkrað dóttur sinni í veikindum hennar. Anna María hafði það á orði að verst þætti henni hversu mikið væri á þau lagt með veikindum hennar. Þessi fátæklegu orð geta ekki lýst þeim söknuði og sorg sem mér býr í brjósti. Ingu Láru, foreldrum og bræðr- um Önnu Maríu sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Ég kveð Önnu Maríu með söknuði. Blessuð sé minning hennar. Sigurrós Erlendsdóttir. í dag verður gerð útför systur- dóttur minnar, Önnu Maríu Magn- úsdóttur, sem lést hinn 24. septem- ber sl. aðeins 31 árs að aldri. Er mér bæði ljúft og skylt að minnast hennar í fáum orðum. Anna María fæddist hinn 15. maí 1961 og eru foreldrar hennar þau Áslaug Jónsdóttir og Magnús I. Jónasson. Móðurforeldrar Önnu Maríu voru Bergljót Björnsdóttir og Jón Oddsson verkstjóri, en föðurforeldrar Maríá Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.