Morgunblaðið - 02.10.1992, Side 48

Morgunblaðið - 02.10.1992, Side 48
MORGVNBLADID, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK SlMl 691100. SÍMBRÉF 691181. PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Fundur í deilunni hjá ÍSAL Ríkissáttasemjari hefur boðað til samningafundar með aðilum í kjaradeilunni í álverinu í Straumsvík í dag klukkan hálf ellefu en ekki hefur verið fundað í deilunni síðan fyrrihluta sept- embermánaðar. Forseti Alþýðu- sambands íslands hefur einnig verið boðaður til fundarins. Starfsmenn í álverinu í Straums- vík hafa verið samningslausir í um ár, en Vinnuveitendasamband ís- lands felldi miðlunartillögu ríkis- sáttasemjara í vor vegna álversins í Straumsvík. Starfsmenn samþykktu hana hins vegar. Síðan hefur ekki miðað í samningamálum aðila og hafa fundir S flestum verkalýðsfélög- um starfsmanna samþykkt að grípa til yfirvinnubanns og útflutnings- banns á áli þar til samningar hafa tekist. Trúnaðarmannaráð verka- mannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði fundar um það mál á mánudaginn. Gæsunum gefið Morgunblaðið/Kristinn Yfir 1000 milljónir greiddar í atvinnuleysisbætur það sem af er árinu Á fjórtánda hundrað at- vinnuleyfi til útlendinga Atvinnulausir í Reykjavík eru 1.459 en voru 368 á sama tíma í fyrra EKKERT virðist hafa dregið úr fjölda útlendinga í störfum hérlend- is samkvæmt upplýsingum Óskars Hallgrímssonar, forstöðumanns vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins, en það sem af er árinu hefur ráðuneytið gefið út á bilinu 1.300 til 1.400 atvinnuleyfi til útlendinga. Inn í þeirri tölu eru bæði útgefin ný leyfi og framlenging á eldri atvinnuleyfum sem gefin eru út til skamms tíma í senn og sagði Óskar að reikna mætti með að alls væru 600-700 útlendingar nú starfandi hér á landi. Lús stingnr upp kollinum LÚS hefur gert vart við sig í a.m.k. einum grunnskóla borgar- innar, en ekki er óalgengt að hún stingi upp kollinum á þessum árs- tíma. Nemendur hafa verið sendir heim með bréf þar sem þess er farið á leit við foreldra að þeir kembi hár bama sinna með þar til gerðum lúsa- kambi. Lúsakambar fást í apótekum og fylgja þeim upplýsingar um notk- un. Þess má geta að allir geta fengið lús og berst hún á milli manna við snertingu og með fatnaði, sérstak- lega þó höfuðfatnaði. Ennfremur getur hún borist á milli fatnaðar sem hangir þétt saman. Fólk sem fær lús er oft einkennalaust í fyrstu en fljót- lega fer að bera á kláða. Bestu ráðin til að varast lús eru að halda hári sínu hreinu, varast að setja upp höfuðföt annarra og va- rast að nota greiðu eða bursta ann- arra. Sérstakt lúsasjampó vinnur á lús. Á öllu síðasta ári vora gefin út samtals 2.200 atvinnuleyfi til út- lendinga. Óskar sagði að flestir þeirra væra við störf í fiskvinnslu á ákveðnum landsvæðum þar sem ekki tækist fá íslendinga í þau störf þrátt fyrir auglýsingar eftir starfs- fólki þar sem ríkti atvinnuleysi. Hann sagði að einnig væri talsverð- ur ijöldi útlendinga starfandi í heil- brigðisþjónustunni og ótrúlega margir störfuðu innan íþróttahreyf- ingarinnar. Alls vora 1.459 manns á atvinnu- leysisskrá í Reykjavík um síðustu mánaðamót, þar af 761 kona og 698 karlar. Á sama tíma í fyrra voru alls 368 manns skráðir at- vinnulausir í höfuðborginni sam- kvæmt upplýsingum Gunnars Helgasonar, forstöðumanns Ráðn- ingarstofu Reykjavíkur. Atvinnu- lausum fækkaði um 120 manns í Reykjavík í ágúst en þeim hefur fjölgað jafnt og þétt síðan og sagði Gunnar að fjöldi atvinnulausra í borginni nú væri með því mesta sém sést hefði á árinu. „Ef þetta heldur áfram má búast við að atvinnulaus- um á skrá fjölgi um 200 manns í þessum mánuði,“ sagði hann og kvaðst búast við stigvaxandi at- vinnuleysi fram í mars á næsta ári. Ekki liggja enn fyrir tölur um fjölda atvinnulausra á landinu öllu í síðasta mánuði. Að sögn Óskars Hallgrímssonar berst ráðuneytinu mikill fjöldi tilkynninga um upp- sagnir starfsfólks á hveijum degi og mætti ætla að nú lægju fyrir í kringum 600 uppsagnir sem tækju flestar gildi um áramót. Að sögn Margrétar Tómasdóttur, framkvæmdastjóra Atvinnuleysis- tryggingasjóðs, kemur þessi fjölgun uppsagna að undanförnu ekki til með að lenda á Atvinnuleysistrygg- ingasjóði fyrr en í byijun næsta árs en þá mætti búast við holskeflu. Á fyrstu 8 mánuðum ársins voru greiddar atvinnuleysisbætur að upphæð rúmlega 1 milljarður króna úr sjóðnum. Að sögn Margrétar vantar að lágmarki 560 milljónir króna á þessu ári til að sjóðurinn geti staðið við skuldbindingar sínar. Sjá einnig fréttir á miðopnu og Akureyrarsíðu bls. 28. ---------------- Oddi hf. 45 manns sagt upp Patreksfirði. ÖLLU fastráðnu starfsfólki Odda hf. hefur verið sagt upp störfum. Kauptryggingu 30 manns í fiskvinnslu og að auki 15 manns í öðrum störfum, s.s. skrifstofufólks og vélgæslu- og viðgerðarmanna, var sagt upp 1. október. Að sögn Sigurðar Viggóssonar framkvæmdastjóra er ástæðan samdráttur vegna kvótaskerðingar. Vonir standa til að einhver vinnsla geti hafist í nóvember þegar línu- veiði byijar en ljóst er að ekki verð- ur nein frysting í vetur. Stefnt er að því að salta afla tveggja línu- báta sem landa hjá húsinu. Ekkert hefur verið unnið í Odda frá ágústbyijun og eru nú um 30 manns á atvinnuleysisskrá og búist er við að þeim fjölgi þegar sláturtíð lýkur en einhveijir hafa fengið vinnu í sláturhúsinu. - Ingveldur Erfiðleikar í stóriðju minnka tekjur Landsvirkjunar Tekjurýrnun í fyrra nam 138 milljónum LANDSVIRKJUN hefur ekki farið varhluta af þeim erfiðleikum sem verið hafa í rekstri stóriðju hérlendis sökum lækkandi hráefnisverðs. Þannig minnkuðu tekjur Landsvirkjunnar af raforkusöl- unni til ÍSAL og Járnblendiverksmiðjunnar um 138 milljónir króna á árinu 1991 miðað við hvað þær voru árið á undan. Og tekjurnar halda áfram að minnka vegna þess að raforkuverðið til ISAL hefur fallið úr 14,9 milI/kWh sem það var að meðaltali 1991 og niður i 13,2 mill nú í október. Samkvæmt upplýsingum frá Þorsteini Hilmarssyni, blaðafulltrúa Landsvirkjunar, minnkaði meðalverð raf- orku til ÍSAL úr 16 mill árið 1990 og niður í 14,9 mill í fyrra. Tekjur Landsvirkjunar minnkuðu af þessum sökum úr 1.350 milljónum króna í 1.280 milljónir í fyrra, eða um 70 milljónir króna. Orkuverð til ÍSAL er bundið markaðsverði á áli og sveiflast milli 12,5 og 18,5 mill. Orkuverðið náði hámarki á árinu 1988 og fram á 1989 en var í lágmarki árin 1985 og 1986. Tekjur af orkusölu til Járnblendifélagsins á Grund- artanga minnkuðu úr 348 milljónum króna árið 1990 og niður í 280 milljónir í fyrra, eða um 68 milljónir króna. Skýringin á minni tekjum af orkusölu til Járn- blendifélagsins liggur í því að annar ofn verksmiðjunn- ar var ekki í rekstri um tíma en orkusölusamningur- inn til Jámblendifélagsins er öðravísi uppbyggður en samningurinn við ISAL. Þorsteinn segir að orkuverð til Járnblendifélagsins sé bundið ákveðinni upphæð í norskum krónum sem hækkar á fimm ára fresti á samningstímabilinu sem gildir til 1999. Verð þetta var 6,6 norskir aurar/kWh þar til í júlí síðastliðnum er það hækkaði um 20% og fór í 7,9 norska aura.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.