Morgunblaðið - 24.10.1992, Side 2

Morgunblaðið - 24.10.1992, Side 2
geer^HMaoTHo .*■£ huoaohaoua.i GiqAjgMuemoM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992 • • * # 011 vinna við seinna Malawí-skipið á Islandi Slippstöðvarmenn ánægðir og samið verð- ur um viðbótarkostnað Smíðakostnaður eykst um 6-8 milljónir FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segír að öll vinna við seinna skipið, sem senda á til Malawí í Afríku, fari fram hérlend- is. Fallið hefur verið frá að kaupa fimmtung hennar af Pólveijum og því fá starfsmenn Slippstöðvarinnar á Akureyri aukin verk- efni. Þórhallur S. Bjarnason markaðsstjóri stöðvarinnar segir menn ánægða með lyktirnar, en kostnaður við smiði skipsins eykst um 6-8 miljjónir króna. Friðrik segir að ákvörðun um alla smíðina á íslandi hafi verið tekin í ráðuneytum fjármála og iðnaðar í gær í samráði við Slipp- stöðina á Akureyri og Þróunar- samvinnustofnun. Astæðumar segir ráðherrann einkum þijár: Hugsanlegt hafi verið talið að smíði stálfleka í Póllandi fæli í sér ólögmæta samkeppnishætti vegna niðurgreiðslna þar. Þá hafi Malawí-skipin tvö eingöngu verið boðin út hérlendis á sínum tíma í norrænu samstarfi og til þess ætl- ast að verkið yrði unnið hér. Enn- fremur spili inn í sjónarmið um að auka atvinnu í landinu og þar hafi málmiðnaðarmenn barist að undanfömu. Friðrik segir að sam- ið verði um kostnað sem bætist við vegna ákvörðunarinnar, en bæði vinnulaun og stálverð eru hærri hér en í Póllandi. Þórhallur S. Bjarnason segir að vinna við skipið í Slippstöðinni aukist um 15-20% við það að smíði fleka í skrokk þess bætist við og menn séu auðvitað ánægðir. Fyrra Malawí-skipið var sent þangað um mánaðamótin og upp úr því hófst vinna við hið seinna. Þórhallur segir gert ráð fyrir að klára það í vor og senda héðan í pörtum. Hann segir að þessi smíði sé ná- lægt tíunda hluta af • starfsemi Heimsmeistara- mótið Signr hjá Hannesi HANNES Hlífar Stefánsson sigraði Da Silva frá Chile í átt- undu umferð á Heimsmeistara- móti skákmanna 20 ára og yngri í Buenos Aries. Skákin stóð að- eins í 18 leiki eftir mistök Chilebúans. Með sigri í áttundu umferð er Hannes enn í hópi efstu manna á mótinu með 6 vinninga. Staða efstu manna er óljós vegna fjölda biðskáka. Slippstöðvarinnar og í hana fari ársverk þriggja manna. Samning- ur stjómvalda við stöðina um bæði skipin losaði um 50 milljónir og segist Þórhallur reikna með 6-8 milljóna kostnaðarauka. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Einar Jónatansson, framkvæmdastjóri EG, kynnir bæjarstjómarmönnum greiðslustöðvunina. F.v.: Valdi- mar Guðmundsson, Helga Jónsdóttir, Sigmundur Hannesson hrl. sem ráðinn hefur verið til aðstoðar við fjárhagslega endurskipulagningu, Einar Jónatansson, Anna Edvardsdóttir, forseti bæjarstjómar, _________________ Þóra Hallsdóttir og Jón Guðbjartsson. Einarí Guðfinnssyni hf. í Bolungarvík veitt greiðslustöðvun til þriggja vikna Treystum á að samningar náist um lækkun skulda - segir Einar Jónatansson framkvæmdastjóri EINAR Jónatansson, framkvæmdastjóri Einars Guðfinnssonar hf. í Boiungarvik, segir að forráðamenn fyrirtækisins hafí engar trygg- ingar fyrir samningum við lánardrottna um lækkun skulda en þeir treysti á að samningar takist. Einar Guðfinnsson hf. og dótturfyrir- tæki þess, Hólar hf., fengu heimild til greiðslustöðvunar í Héraðs- dómi Vestfjarða í gær. Greiðslustöðvunin er í upphafi veitt til þriggja vikna og eftir það er hægt að veita framlengingu i þrjá mánuði og síðan aðra þrjá. Einar Guðfinnsson hf. gerir út togarana Dagrúnu og Heiðrúnu og rekur frystihús, rækjuverksmiðju og loðnuverksmiðju. Loðnubræðsl- an er í eigu Hóla-hf. ásamt skrif- stofu- og verslunarhúsnæði. Fyrir- tækin eru lang stærsti vinnuveit- andinn í Bolungarvík og starfa að meðaltali 120 manns hjá þeim. Þau hafa átt við fjárhagserfiðleika að etja og var nauðungaruppboð á eignum þeirra ákveðið í næstu viku. Greiðslustöðvunin frestar uppboð- inu. í fréttatilkynningu stjómenda fyrirtækisins um greiðslustöðvun- ina kemur fram að hagræðing sem unnið hefur verið að f kjölfar upp- stokkunar á efnahag og rekstri fyr- irtækisins hafi skilað sér í bættum rekstri. Þannig var hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði fyrstu sex mánuði þessa árs meiri en allt síðasta ár. Hins vegar hafi mikill samdráttur aflaheimilda undanfarin ár reynst fyrirtækinu afar erfiður. Þá hafi erfiðleikar í rækjuiðnaði og loðnuvinnslu komið illa við það. „Stórfelld minnkun aflaheimilda á yfirstandandi fiskveiðiári, aflasam- dráttur, verðlækkun afurða og óhagstæð gengisþróun eykur enn vandann. Stjómendum fýrirtækis- ins er því ljóst að rekstur þess get- ur ekki staðið undir skuldabyrði þess við núverandi aðstæður," segir í fréttatilkynningunni. Heildarskuldir EG hf. em 1.500- 1.600 milljónir kr. og nettóskuldir 1.100 milljónir, að sögn Einars. Atvinnutryggingasjóður, Fiskveiða- sjóður og Landsbankinn eru stærstu kröfuhafamir. Segir Einar að farið verði fram á samninga við lánar- drottna um lækkun skulda. Það teldu stjómendur fyrirtækisins best fyrir alla aðila. Einar vill ekki nefna tölur um nauðsynlega skuldalækk- un, segir það raunar afstætt hvað rekstur sjávarútvegsfyrirtækis geti staðið undir miklum skuldum þegar litið væri til mikils taprekstrar greinarinnar. Einar segir að það sé ásetningur stjómar fyrirtækisins að gera allt sem í hennar valdi stendur til að tryggja áframhaldandi rekstur, þannig að aflaheimildimar haldist í bænum og hægt verði að tryggja vinnu starfsmannanna. Aðgerðimir vom í gær kynntar starfsmönnum, bæjarstjóm Bol- ungarvíkur og fleiri aðilum. Bæjar- stjóm tekur málið fyrir á fundi í næstu viku. Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri segist vona að með þessu ljúki óvissunni um framtíð fyrirtækisins. Mikilvægast sé að tryggja atvinnuöryggi bæjarbúa og muni bæjarstjóm beina öllum kröft- um að því að fyrirtækið fái starfað áfram. Daði Guðmundsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bol- ungarvíkur, segir að fólk sé slegið en voni það besta. Enginn viti hvað þessar aðgerðir þýði. Hann segir að hvað sem öðm líði megi bæjarfé- lagið ekki við því að missa neinn kvóta, frekar þurfi að auka hann. Samkvæmt núgildandi réglum er greiðslustöðvun í upphafí veitt til þriggja vikna. í lok tímans er ákveð- ið í héraðsdómi hvort veitt er greiðslustöðvun til allt að þriggja mánaða. Þá er einnig hægt að veita þriggja mánaða framlengingu við sérstakar aðstæður þannig að greiðslustöðvun fyrirtækis getur staðið.yfir í allt að sex mánuði og þijár vikur. Einar Guðfinnsson hf. hefur ráðið Sigmund Hannesson hrl. til aðstoðar við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækjanna. Álversdeilan Starfsmenn óska eftir lögfræðialiti JltarjpiiiMtoMfr í dag Með hnif i maganum___________ Stór hnífur fannst í maga þorsks við flökun í Ólafsvík. 5 Fiskiþing____________________ Mikill meirihluti var fyrir aflamarki við afgreiðslu Fískiþings á físk- veiðistjómunarkerfí. 22 Rússland_____________________ Hvaða leiðir eru Rússum færar út úr því efnahagslega og stjómmála- lega öngþveiti sem núna ríkir í landinu? 26-27 Leiðari______________________ Skiptar skoðanir um EES. 26 JtorgmMafrife uar6 KJUKAER KONUNGUR Lesbók ► Messeturm Kaupstefnutum- inn í Frankfurt - Fullveldi - Sið- fræði og hagfræði - íbúðarhús Sumarliða gullsmiðs gert upp í Vigur. Menning/listir ► Þýðingar Helga Hálfdanarson- ar á verkum Shakespeares - Sjón- menntavettvangur - Æfíng á leik- ritum eftir Tsékov í Borgarleik- húsi - Myndlistarsýningar. Á FUNDI í samstarfsnefnd starfsmanna og stjórnenda ál- versins í Straumsvík I gær ákváðu fulltrúar starfsmanna að fá Iögfræðilegt álit á gildi upp- sagna sem tilkynntar hafa verið. Starfsmenn fengu fulltrúa frá ASÍ og VSÍ til að sitja fundinn í gær og komu bæði Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ og Þórar- inn V. Þórarinsson framkvæmda- stjóri VSÍ til fundarins. Lög- fræðiálitið á að Iiggja fyrir á mánudag þegar haldinn verður annar fundur aðila að sögn Gylfa Ingvarssonar aðaltrúnaðar- manns starfsmanna. „Við höfum lagt áherslu á að haft verði samráð og samstarf um þessi mál við félög starfsmanna og teljum okkur eiga rétt á því sam- kvæmt samningi. Við leggjum áherslu á að fastráðnum starfs- mönnum verði ekki sagt upp heldur verði þessu mætt með því að ráða ekki í stöður starfsmanna sem hætta og með tilfærslum." Sagði hann að hjá fyrirtækinu störfuðu 37 starfsmenn sem væru ráðnir tímabundinni ráðningu. Væri mjög óeðlilegt að á sama tíma og væri tilkynnt um uppsagnir 3,5% fastráðinna starfsmanna væri verið að framlengja ráðningarsamninga þeirra sem væru ráðnir tímabundið. Samningaviðræður um nýjan kjarasamning liggja niðri vegna þessarar deilu og að sögn Gylfa til- kynntu starfsmenn ríkissáttasemj- ara að þeir tækju ekki þátt í viðræð- um fyrr en niðurstöður lægju fyrir um uppsagnimar. Verðlagsráð fjallar um farm- gjaldahækkanir VERÐLAGSRÁÐ fjallaði í gær- dag um fyrirhugaðar farm- gjaldahækkanir Eimskips og Samskipa hinn 1. nóvember nk. en þá eiga gjöldin að hækka um Georg Ólafsson verðlags- stjóri segir að ráðið hafi ákveðið að fjalla um þessar hækkanir þótt í gildi sé fijáls verðlagning á þessu sviði. í máli Georgs kemur fram að engin afstaða hafi verið tekin til hækkana þessara á fundi ráðsins í gærdag en ákveðið að fjalla nánar um málið á öðrum fundi Verðlags- ráðs eftir helgina. Á fundinum nú lágu frammi greinargerðir frá skipafélögunum um þessa hækkun 1. nóvember en Georg vildi ekki greina frá efnisinnihaldi þeirra þar sem þær væru trúnaðarmál.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.