Morgunblaðið - 24.10.1992, Page 4

Morgunblaðið - 24.10.1992, Page 4
?n/)r 1c' 5TTTD/-rT7T * PTT.- T Gjnk.lPVTlt)07 * MORGUNBLAÐIÐ LÁUGÁRDAGUR 24. OKTÓBER 1992 Nemendur og listamenn Þingmönnum send fimmtán þúsund bréf vegna bókaskatts SAMTÖK framhalds- og háskólanemenda hafa, í samvinnu við listamenn, rithöfunda, bókagerðarmenn og útgefendur, tekið sig saman um að skipuleggja bréfaskriftir nemenda til þingmanna stjórnarflokkanna. í bréfunum er áformum um að hætta endur- greiðslu innskatts af bókaútgáfu og -prentun andmælt. Alls á að senda þingmönnunum um 15.000 bréf og voru þau fyrstu borin út til viðtakenda í gær. Að sögn Almars Eiríkssonar, formanns Bandalags íslenskra sérskólanema, áttu Bandalag ís- lenskra listamanna og Rithöf- undasamband íslands frumkvæði að bréfaskriftunum. Að málinu standa auk þeirra sérskólanemar, BÍSN, Stúdentaráð Háskóla ís- lands, Félag framhaldsskóla- nema, Iðnnemasamband íslands, Félag bókagerðarmanna og Félag bókaútgefenda. Almar segir að prentuð hafí verið 20.000 stöðluð bréf sem nemendur í framhaldsskólum hafí verið beðnir að undirrita og senda þingmönnum. Hann sagðist búast við að um 15.000 bréf myndu skila sér. „Það, sem að okkur námsmönnum snýr, er hækkun kostnaðar við bókakaup og einnig að hætt verður að endurgreiða innskatt af skólabiöðum, þannig að þetta kemur illa við menningar- starfsemi í skólunum," sagði Alm- ar. í texta bréfsins, sem þingmenn fá sent heim til sín í fjölda ein- Morgunblaðiö/bvemr Framhaldsskólanemar setja mótmælabréf í bréfalúgu Ólafs G. Einarssonar menntamálaráðherra i gærkvöldi. taka, segir meðai annars: „Fyrir- hugaður bókaskattur mun hækka árlegan bókakostnað hvers fram- haldsskólanemanda um kr. 6.000 þegar miðað er við að keyptar séu bækur að meðaltali fyrir kr. 40.000 á ári eins og raunin er. Þetta er skattur sem við verðum neydd til að borga því að við erum eina fóikið í landinu sem kemst ekki hjá að kaupa bækur. Þetta verðum við að taka af því tak- markaða sumarkaupi sem nú er hægt að vinna sér inn. Margir fengu enga vinnu síðasta sumar og ekki horfir vel með næsta sum- ar.“ Miss Intemational Þórunní úrslitin ÞÓRUNN Lárusdóttir, sem fyrir skömmu var valin Ungfrú Norð- urlönd, komst í úrslit í Miss Inter- national fegurðarsamkeppninni sem haldin var í borginni Naga- saki í Japan í vikunni. 49 þátttakendur voru í keppninni frá jafnmörgum þjóðlöndum. Þór- unn for utan 4. október og sagði hún að mikið annríki hefði sett mark sitt á keppnina. Þátttakendur komu fram víða í Japan til að kynna styrktaraðila keppninnar. Stærsti styrktaraðilinn var Fuji-fílmufram- leiðandinn. Þá voru myndatökur tíð- ar. Þórunn var valin í úrslit ásamt íjórtán öðrum. Úrslitakvöldið komu stúlkumar fram í þjóðbúningum, sundfötum og kvöldklæðnaði. Stúlka frá Ástralíu var valin Miss Intemational, í öðra sæti varð stúlka frá Grikklandi og í þriðja sæti stúlka frá Kóreu. VEÐUR v íDAG kl. 12.00 HeímHd: Veðurerola klancte (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í geer) VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ($1. tfma httl veSur Akureyri 4 ákýjafi Raykjavflr 2 létttkýjaft Bergen 4 afekýjað Heleinki +4 léttskýjaó Kaupmannahöfn 6 alskýjað Narssarssuaq +2 fettskýjað Nuuk +3 léttskýjaö Óeió 0 anjókoma Stokkhólmur +1 téúakýjaö Þórshöfn 4 hálfakýjað Algarve 19 léttskýjað Amsterdam 7 þrumuveöur Barceione 14 léttakýjað Beriín S rigning Chicago 23 alskýjaö Feneyjar 13 skýjaö Frankfurt 7 rígning Giasgow 3 skúrir Hamborg 7 súld London 8 skýjað LosAngeies 27 hálfskýjaö Lúxemborg 5 skýjað Madrid 16 skýjað Maiaga 19 léttskýjaö Mallorca 18 Mttskýjaö Montreal 10 afekýjað NewYork 16 heiðskirt Oriando 21 þokumóöa Parfe 8 skúr Madeira 13 skýjaö Róm 16 hálfskýjaö Vín 8 skýjað Washington 16 heiðskírt Winnlpeg 11 léttskýjað Morgunblaðið/Þorkell * Utför Hauks Morthens Útför Hauks Morthens, hins ástsæla söngvara, var gerð frá Bústaða- kirkju í gær að viðstöddu miklu fjölmenni. Sr. Pálmi Matthíasson jarð- söng. Myndin var tekin er kista hins látna var borin úr kirkju. Þokkaleg sfldveiði ÞOKKALEG veiði var á sildarmiðunum suðaustur af landinu í fyrrinótt. Loðnuveiði var aftur á móti engin. Samkvæmt upplýs- ingum tilkynningaskyldunnar eru 11 skip á loðnu og 28 skip stunda sfldveiðar. Hábergið GK var með fullan bát eða um 620 tonn á leið til Grinda- víkur þegar talað var við Gunnar Sigurðsson stýrimann seinnipart- inn í gær. Hann sagði að þokkaleg veiði hefði verið í fyrrinótt og einn og einn bátur að fá mjög góð köst. Aðspurður sagði hann að veiðin hefði fengist í 4 köstum. „Aðallega þó tveimur. Við fengum 360-370 tonn í fyrsta kastinu. Svo var lítið í næstu tveimur en töluvert í fjórða kastinu. Við gáfum Sunnuberginu um 200 tonn, það hafa verið ein 400 tonn í því kasti," sagði Gunn- ar en á eftir Háberginu var Sunnu- bergið GK á leið í land með hátt í fullfermi eða rúm 700 tonn. Gunnar sagði að töluvert væri að sjá af sfld og til marks um gæði aflans sagði hann að 90% síldar- innar væru yfír 30 sm á lengd. Hann kvaðst búast við að komið yrði til Grindavíkur í morgun og haldið -út eftir löndun. Góðu veðri er spáð á miðunum. Hermann Ragnarsson, stýri- maður á Helgu II., sagði að lítið sem ekkert hefði veiðst af loðnu síðan fyrir 4-5 dögum þegar veiðst hefði eitthvað smávegis og því væri skipið nú á leið á sfldar- miðin. Aðalástæðu fyrir veiðileysi sagði hann vera hversu loðnan væri dreifð. Þrírgripnir glóðvolgir LÖGREGLAN greip þijá menn glóðvolga, þegar þeir reyndu að brjótast inn í Blúsbarinn við Laugaveg í fyrrinótt. Lögreglunni barst tilkynn- ing um kl. 4 um nóttina um að verið væri að bijótast inn á veitingastaðinn. Þegar hún kom á vettvang vora innbrots- þjófamir enn að bardúsa við að komast inn á barinn. Þeir fengu gistingu á lögreglustöð- inni í staðinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.