Morgunblaðið - 24.10.1992, Blaðsíða 10
xo
MQRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24, pKTÓBER 1992
Tónleikar í Kirkjuhvoli
Tónleikar verða haldnir í Kirkju-
voli, Garðabæ, á morgun, sunnu-
dag. Tónleikarnir sem hefjast
klukkan 15.00 eru á vegnm Tón-
listarskóla Garðabæjar.
Fluttir verða kaflar úr strengja-
kvartett Sehuberts „Dauðinn og
VTTASTIG13
26020-26065
2ja herb.
Þangbakki. Falleg eln-
staklíb. ca 40 fm fm á 7. hæð.
Góð lán áhv. Fallegt útsýni. Stór-
ar svalir.
Næfurás. Falleg 2ja herb.
rúmg. rúmg. íb. á 1. hæð ca 80
fm. Góðar svalir. Falleg sameign.
Laus.
Hraunbær. 2ja herb. falleg
íb. á 2. hæð 55 fm. Nýjar innr.
Súðursv. Fallegt útsýni.
3ja herb.
Brekkustfgur. Falleg 3ja
herb. ib. 92 fm. Góð sameign.
Nýl. gler. Fallegur garður.
Eyjabakki. 3ja herb. falleg
íb. á 1. hæð. 60 fm. Góð lán
áhv. Falleg sameign.
Breiðvangur. 3ja herb.
góð tb. á 1. hæð 115 fm auk 25
fm bílsk. Góð lán áhv.
Kleppsvegur. 3ja herb.
falleg íb. 84 fm á 2. hæð í lyftubl.
Suðursv. Parket. Nýl. gler.
Seílugrandi. 3ja herb. íb.
á tveimur hæðum 87 fm auk bíl-
skýlis. Stórar svalir. Góð lán áhv.
Austurberg. 3ja herb. fal-
leg íb. 78 fm á 4. hæð auk bílsk.
Suðursvalir. Góð lán áhv. Verð
7,5 millj.
4ra herb. og stærri
Álfheimar. 4ra herb. falleg
ib. á 2. hæð 98 fm. Mikið end-
urn. Suðursv. Góð sameign.
Skaftahlíð. Neðri sérhæð
137 fm auk 25 fm bílsk. Suöursv.
Parket.
NÖkkvavogur. Hæð og
ris 130 fm. Tvennar svalír. Garð-
stofa. Bflskréttur.
Einbýli — raðhús
Langholtsvegur. Fallegt
raðh. á þremur hæðum ca 235
fm m/innb. bílsk. Fallegur garður.
VíÓílundur. Elnbhús á einnl
hæð 125 fm auk 40 fm bílsk.
Suðurgarður. Góð lán áhv. Ákv.
sala.
Kársnesbraut. Glæsil.
einbhús á tveimur hæðum 157
fm ayk 33 fm bílsk. Innr. í sérfl.
Fráb. útsýni. Góð lán áhv.
Vítastígur. Lítiö eínbhús á tveim-
úr haaðum ca 55 fm. Miklð end*-
urn. Ákv. sala.
FÉLAG liFASTEIGNASALA
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fastelgnasali, hs. 77410.
stúlkan," og klarinettukvintett Moz-
arts, K581. Flytjendur eru Gréta
Guðnadóttir, fiðluleíkari, Hildigunn-
ur Halldórsdóttir og Guðleikarar,
Sigurður Halldórsson, sellóleikari og
Ármann Helgason, klarinettuleikari.
Hljóðfæraleikaramir eru allir ný-
lega komnir heim frá námi og starfa
með Sinfóníuhljómsveit íslands. Þeir
hafa allir komið fram á tónleikum
áður en heyrast nú í fyrsta sinn sem
kammermúsíkhópur. Tónleikamir
eru þeir fyrstu í röðinni sem Tónlist-
arskóli Garðabæjar heldur á þessu
starfsári, en eitt af markmiðum skól-
ans er að efla tónlistarlíf í Garðabæ.
Kaffiveitingar verða bomar fram í
upphafi tónleikanna.
< Borgartúni 33 - 105 Reykjavík
1 C 62 43 33
£ Björgvin Björgvinsson, fasteignasali,
a Sigurður Ingi Halldórsson, hdl.,
3 Björn Jónsson, hdl.
Opið laugard. 10-16
PARHÚS M. BÍLSKÚR. Til
sölu vandað 190 fm parhús í vesturbæ
Kópavogs. 4-5 svefnherb., stofa, arin-
stofa, stórt vinnuherb. á jarðh. Maka-
skipti á 3ja-4ra herb. íb. koma til greina.
LAUGARÁSVEGUR. Glæsil.
130 fm sérh. 35 fm bílsk. Verð 11,8 millj.
GRAFARVOGUR. Fallegt 185
fm parh. á frábærum útsýnisstað ásamt
innb. bílsk. og vinnuaðstöðu innaf. Til
afh. strax.
VESTURBÆR -
EINB./TVfB.
Nýkomið í sölu mikið endurn. hús með
tveimur íb. Vel staðs. í Vesturbæ.
ÁRTÚNSHOLT. 120fmglæsil.
íb. á 1. hæð ásamt bílsk. Verð 10,9
millj. Áhv. veðd. 2,5 millj.
KEILUGRANDI. Vönduö 4ra-5
herb. íb. ásamt stæði í bílgeymslú. íb.
er fullfrág. með parketi á stofum. Stór-
ar suðursv. Öll sameign í toppstandi.
Verð 10,8 millj. Áhv. veðd. 1,3 millj.
HRÍSRIMI. Vandað nýtt 124 fm
parhús ásamt 30 fm bílsk. Verð 9,7
millj. Áhv. húsbr. 6,0 millj.
HAMRAHLÍÐ. Falleg 80 fm 3ja
herb. íb. á 1. hæð. Parket á gólfum.
Nýl. eldh. o.fl. Verð 6,7 millj. Áhv. 3,0
millj.
ÁLFHÓLSVEGUR. Mikið end-
urn. 3ja herb. 85 fm íb. með sérinng.
Til afh. strax. Verð 6,6 millj.
UGLUHÓLAR. Glæsil. 3ja-4ra
herb. endaíb. Flísar og parket. Vandað-
ar innr. Húsið allt nýmál. að utan. Góö
sameign. Bílsk. fylgir. Verð 9,0 millj.
HJALLAVEGUR. 3 herb. ib. á
1. hæð í rólegu hverfi. Ræktaður garð-
ur. Verð 6,4 millj.
HVERAFOLD. 2ja herb. rúmg.
íb. ásamt stæði í bilskýli. Áhv. veðdeild
2,8 millj. íb. er laus strax. Verð 5,9 millj.
LÆKJARHJALLI. 2ja herb. 80
fm ný íb. í tvíb. Verð 5,7 millj.
Nýjar ibúðír
FJÖLDI NÝRRA ÍBÚÐA Á
SÖLUSKRÁ.
ÓSKUM EFTIR ÖLLUM
STÆRÐUM ÍBÚÐA.
SKOÐUM OG VERÐMET-
UM SAMDÆGURS.
Atvinnuhúsnæði
Höfum til sölu ýmsar stærðir af atvinnu-
húsnæði allt frá 50 til 2500 fm eining-
ar. Allar nánari uppl. á skrifst. okkar.
Til LEIGU. 290 fm nýstandsett
verslunarhúsn. ofarlega v. Laugaveg
nál. Hlemmi. Til afh. strax. Hagstætt
verð.
624333
HS. SÖLUMANNS 671292.
V__J
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 668. þáttur
Svo er sagt að sumir menn
og sum dýr rekist illa í flokki.
Eins er það með orðin. Sum
þeirra vilja ekki skipast í þá
flokka sem greiningarglaðir
fræðimenn eru sífellt að stofna.
Nú hefur um nokkurt skeið ver-
ið hlé á beygingafræðinni í þess-
um pistlum, og var þar komið
síðast að ofurlítil grein hafði
verið gerð á helstu flokkum
sterkrar nafnorðabeygingar. En
þá eru eftir þau sterk nafnorð
sem utan flokka eru. Nú búa
þeir, sem haldnir eru greiningar-
áráttu, til nýjan flokk eigi að
síður, eða eigum við heldur að
segja að flokksleysingjunum í
hópi orðanna sé hent í ruslakistu
sem hlýtur nafnið óregluleg
beyging. í þeirri óreglu, innan
þeirrar ruslakistu, má þó fínna
ýmis sameiginleg einkenni
sumra orðanna, svo að glundroð-
inn verður ekki alger. Það er
stundum talsvert brot af reglu
í óreglunni.
Við skulum því hefja þennan
hluta beygingafræðinnar á ein-
um slíkum smáflokki meðal
flokksleysingja. Þetta eru fímm
frændsemisorð, tvö þeirra karl-
kyns, þijú kvenkyns, en beyg-
ingin þó í öllu verulegu hin sama.
Orðin eru bróðir, dóttir, faðir,
móðir og systir.
Við sjáum strax að þau hafa
öll sömu endingu í nefnifalli ein-
tölu, hvors kynsins sem þau eru.
Og það sem meira er: Öli auka-
föllin í eintölu enda á -ur. Dæmi
faðir - föður - föður - föð-
ur; móðir - móður - móður
- móður. Hitt má ekki vera
ósagt, að bæði fyrr og síðar
hefur beygingin ekki verið svona
regluleg. Hljóðvörp og áhrifs-
breytingar hafa gengið sitt á
hvað. En telja verður að sú beyg-
ing, sem sýnd var hér á undan,
hafí náð verulegri festu. Áður
fyrr var algengt að móðir væri
óbreytt í aukaföllunum, en
stundum snerist þetta við og
nefnifallið varð móður. Sama
gildir þá um systir og dóttir.
Þá var þrásinnis, og er jafnvel
enn, aukið s-i við eignarfall orð-
anna faðir og bróðir. Létu höf-
uðskáld sér slíkt sama, svo sem
Hallgrímur Pétursson í Hugbót:
Guð elskar þann
sem hirtir hann,
hef eg þá trúna vissa;
vil eg með hind
vesöl bamkind
á vönd föðursins kyssa, o.s.frv.
Ekki dugir að breyta slíku í
prentuðum útgáfum sálmsins.
Aftur á móti eru löngu fallnar
úr tísku orðmyndimar feðr
(þágufall eintölu af faðir) og
bræðr (þágufall eintölu af bróð-
ir).
Á 10. öld gátu menn sagt að
Egill Skallagrímsson væri líkur
feð(u)r sínum, en ólíkur Þórólfí
bræð(u)r sínum.
Á sama hátt og orðmyndimar
systur og móður gátu troðið sér
inn í nefnifall eintölu, gat faðir
breyst í föður í sama falli. Eink-
um var þetta títt í samsettum
Óðinsheitum, svo sem Alföð-
(u)r, Valföð(u)r o.fl. En flækj-
um þetta nú ekki meira. Nóg
er komið. Tökum eitt skýrt beyg-
ingardæmi frá okkar dögum:
Systir, um systur, frá systur, til
systur; systur, um systur, frá
systmm, til systra.
★
Nývarður norðan kvað:
Þegar hann Bjami inn á barinn leit,
þá brosti við honum rotvarin geit.
Hann skar hana til(l)
og skellti ’enni á grill
við 500 gráður á Fahrenheit.
★
Kilja er til í fornu máli og
merkir kápa eða yfirhöfn og
reyndar talið skylt orðinu kjöl-
ur, eins og flest „ki(ju“-orð.
Þetta nafnorð á sér náfrændur
í gamalli ensku og þýsku. En
af óvísum uppruna er kilja =
stríð, deila, svo og samsvarandi
sögn = deila, jagast. Kylja er
vindsvali eða gustur. „Lilja
spratt í villikyljum", orti Matthí-
as.
Enn er til kilja í merkingunni
„fæða, æti, það sem gleypt er“,
og svo er náttúrlega nýyrðið
kilja (e. paperback), en það er
talið myndað af kjölur, sbr.
þágufallið kili. En dýrlingsheitið
Kiljan, sem Halldór Guðjónsson
frá Laxnesi tók sér, er talið
merkja baráttu og á að vera
skylt karlmannsnafninu Kjall-
akur og reyndar kvenheitinu
HUdur = valkyija (hildur =
orusta).
★
„Þessar fomu mógrafir stóðu
hálfar af einhverskonar mauki
og þyknaði æ því meira sem á
leið sumar. í sumum vom brún-
klukkur sem svo em kallaðar
af því þær hafa þá náttúm, að
komi maður nálægt brúninni á
svona mógröf, þá hoppar brún-
klukkan uppúr og beina leið oní
mann og tekur til óspiltra mála
að éta innanúr manni lifrina. Það
er eingin lækníng við brún-
klukku nema gleypa jötunux.
Jötunux er með leiðinlegri flug-
um og sú ein fluga sem flýgur
lóðrétt einsog einglar á póstkort-
um, enda fá þessar pöddur ekki
vængi nema mánuð á ári. Ekki
þurfti annað en ég sæi í hvítan
botninn á brúnklukku oní mó-
gröf, en með botninum anda
þessi kvikindi, þá flýði ég alt
hvað fætur toguðu svo ófreskjan
hoppaði ekki oní mig; samt fanst
mér hún halda áfram að elta
mig þann dag allan. Vatnið, á
samt öðra innihaldi þessara
mógrafa, mun í þá daga hafa
verið einna líkast því sem núna
er í ánni Rín, frægasta fljóti í
þýskum skáldskap; nema í Rín
virtust mér ekki einusinni þrífast
brúnklukkur þegar ég kom
þángað fyrir nokkram dögum
(1975).“
- (Halldór Laxness:
I túninu heima.)
★
„Safnaði biskup þá sínum
„náungum, vinum, clientum og
þénuram, og reið hann svo með
alla þá sveit heilt skeið og í full-
um galoppe um landsþingið.““
(Sr. Halldór Hallsson 1713
um Jón biskup Vídalín).
England
Islending’ur vinnur sam-
keppni um verðlaunagrip
HJÓNIN Svafa Björg Einarsdóttir og Lharen Shaw, glerlistamenn,
unnu samkeppni tveggja dagblaða í Liverpool og breska Lottós-
ins, um gerð verðlaunagripa. Gripirnir verða veittir sem menningar-
verðlaun í Liverpool næstu þrjú árin.
Svafa sagðist vera mjög ánægð
með þessa viðurkenningu. Er þetta
í fyrsta sinn, sem þessir þrír aðilar
taka sig saman og veita menn-
ingarverðlaun og því mikill heiður
að þeirra hugmynd varð fyrir val-
inu. Það voru 379 listamenn sem
sendu inn tillögur sínar og sjö
þeirra þóttu koma til greina.
Verðlaunin era um 800 þúsund
íslenskar krónur auk kostnaðar við
gerð gripanna. Verðlaunagripir
þeirra er úr steyptu gleri og mynda
upprúllaða dagblaðssíðu með sand-
blásnum dagblaðatexta. Gerðir
verða 80 gripir og á þessu ári verða
afhentir 25 og síðan árlega næstu
tvö ár.
Þau hjónin eru bæði glerlista-
menn og vinna sjálfstætt með eig-
ið verkstæði. Svafa Björg útskrif-
aðist úr keramikdeild Myndlista-
og handíðaskóla íslands en hélt
síðan til framhaldsnáms í Bret-
landi.
Svafa Björg Einarsdóttir gler-
listamaður
Lharen Shaw _ glerlistamaður
ásamt syninum Óskari Yngva.
----♦-------
Tónleikar
endurteknir
Tónleikar Kammersveitar
Reykjavíkur frá því á þriðjudag-
inn, verða endurteknir I Ráðhús-
inu, mánudagskvöldið 26. októ-
ber, og hefjast klukkan 20.30
Forsala aðgöngumiða er í Ey-
mundsson, Austurstræti og Japis í
Kringlunni.
120 fm íbúðir til sölu
Á góðum stað í Hamrahverfi, Grafarvogi, eru til sölu
íbúðir með 2-3 svefnherbergjum, stórum stofum, sér-
þvottahúsi, svölum á móti suðri og bílskúr.
Ibúðirnar eru í vel skipulögðu hverfi þar sem stutt er
í góðar gönguleiðir, fjarri umferðarnið og mengun.
Þessar íbúðir henta vel fyrir eldra fólk.
Örn Isebarn, byggingameistari,
sími 31104.