Morgunblaðið - 24.10.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.10.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992 13 ----—---—------;----------------;------------------------------------------------------rrr- List frá Alandseyjum Aðalheiður Valgeirsdóttir sýnir vatnslitamyndir í fremri kjallarasal Norræna hússins stendur nú yfír sýning 9 myndlistarmanna frá Álandseyjum og lýkur henni á sunnudagskvöld. Ekki þekkjum við íslendingar mikið til listsköpunar þeirra eyja- skeggja en ekki efa ég að þar þró- ist markvert listlíf og vel að merkja eru eyjamar þannig staðsettar að góðar samgöngur eru við Helsing- fors og Stokkhólm enda eru Finn- land og Svíþjóð eðlilega helsti sýn- ingarvettvangur álenzkra mynd- listarmanna utan eyja. Auk þess virðast myndir listamannanna rata merkilega víða um heiminn sem bendir til blómlegrar félagsstarf- semi. Að sjálfsögðu er það fagnaðar- efni að fá hingað sýningu frá Álandseyjum ekki síður en öðrum Norðurlöndum og ávinningur væri að því í framtíðinni að fá einnig einkasýningar er kynna viðkom- andi mun betur en samsýningar geta gert. Auk þess bætist við að þessi sýning er of lítil og þannig er innri salur ekki nýttur og sumir eiga of fá verk og valið virðist að auki nokkuð einhæft og sýna ein- ungis ákveðna hlið listamannanna. Þrátt fyrir að það sé enginn sprengikraftur í þessari sýningu er vel tekið á móti gestum með grafíkmyndum þeirra Juha Pykal- áinen (f. 1953) og Nönnu Sjöström (f. 1949). Hinar einföldu myndir Pykáláin- en eru mjög hugþekkar og sláandi og frá þeim stafar andblær frá heimahögum. Sjöström vinnur hins vegar á Ijölþættara sviði en aðrir og litætingamar hennar eru gædd- ar sérstæðum yndisþokka. Annars er Hildur Stenbáck (f. 1912) aldursforseti sýningarinnar en hún sækir myndefni sitt til Dólomit-fjallanna sem virðast henni mjög hugleikin því að hún virðist hafa gert fjöldan allan af vatnslitamyndum af þeim, og nefn- ir þær samheitinu „Dolomitsvítur". Myndir hennar eru nokkuð form- rænt harðar og hráar í lit og þann- ig ekki sérlega aðgengilegar, en trú mín er að þær venjist vel. Kjell Ekström (f. 1961) notar einnig aðallega vatnsliti og myndir hans eru mjög fínlegar og ná- kvæmar í vinnslu. Mynd hans „Árstíð 1“ (7), er með mest sláandi myndum á sýningunni fyrir fágun í útfærslu og mjúks stígandi í lit. John Bergström, sem í tvígang hefur hlotið titilinn grafíklistamað- ur ársins á eyjunum (1990 og 1992) á einungis tvö verk á sýning- unni og af þeim verður ekki mikið ráðið um umfang listar hans. Þetta eru dökkar ætimyndir af kletta- formum, en virka þó öðru fremur sem leikur með ætitæknina. Charles Hemmingsson (f. 1932), sem á 6 vatnslitamyndir kemst hins vegar vel frá sínum hlut en framlag hans er mjög fjölþætt þótt yfír myndunum sé sami per- sónulegi litablærinn, einstaka mynd getur jafnvel minnt á sjálfan Jean Fautrier í mögnuðum einfald- leika sínum. Anita Heilström (1944), er fædd í Svíþjóð en flutti til Álandseyja fyrir áratug. Yfír myndum hennar, sem unnar eru í tempera/akryl lit- um er dijúgur svipur af hröðum og óformlegum (informel) vinnu- brögðum sem hún þó reynir að binda með fínlegum og skreyti- kenndum tilbrigðum. Britta Gustavsson (f. 1939) er skóluð á námskeiðum í Gerlesborg- arskólanum í Svíþjóð. Framlag hennar er einungis þijár klippi- myndir sem allar nefnast „Lapp- landia“. Þær eru allar mjög keim- líkar hvor annarri og í mildum forma- og litastígandi. Bror Elif Ellsberg (f. 1949) sýn- ir fjórar ætimyndir sem allar eru hreint unnar og vel gerðar og minna mig um sumt á tilraunir íslenzkra grafíklistamanna hér áð- ur fyrr. Á þessari sýningu eru ekki barð- ar neinar bumbur og ekkert kemur manni á óvart í listrænu tilliti. Hógværðin er aðal sýningarinnar en gallinn við hana er að hún er of lítil, sýnendur eru með of fá og keimlík verk og þannig séð hefði hún helst átt að hanga uppi í minna og hlýlegra sýningarhúsnæði. MENNING/ LISTIR f NÆSTU VIKU MYNDLIST Listasafn íslands Finnsk aldamótamyndlist. Sýning 20 finnskra listamanna stendur yfir. Skúlptúrar Jóhanns Eyfells. Sýningin stendur til 22. nóvember. Listasafn íslands er opið alla daga nema mánu- daga kl. 12 - 19. Kjarvalsstaðir FiGÚRA - FÍGÚRA í Vestursal. Sýningin stend- ur til 25. okt. og er opin daglega frá 10 - 18. Alfreð Flóki: 60 teikningar. Ásmundur Svejns- son: abstrakt höggmyndir. Norræna húsið Sýning á verkum 11 álenskra listamanna. Frímerkjasýning í bókasafni og bækur eftir álenska rithöfunda. Opið daglega kl 14 - 19. Sýningamar standa til 25 okt. Menningarmiðstöðin Gerðubergi Sýning Þorvaldar Þorsteinssonar stendur til 3. nóvember. Gerðuberg er opið fimmtud. 10-22, föstud. 10-19 og laugard. 13-16. Lokað á sunnud. Hafnarborg Ásrún Tryggvadóttir sýnir á málverk. STRAUMAR, Lárus Karl Ingason sýnir portrett- myndir af hafnfírskum listamönnum. Opið frá 12-18 alla daga nema þriðjudaga. Listasafn A.S.Í. Erla B. Axelsdóttir sýnir verk sín. Sýningin stend- ur til 1. nóvember. FÍM-salur, Garðastræti Bjöm Bimir sýnir akrýlmyndir og tússteikning- ar. Opið frá kl. 14 - 18 Geysishúsið Fjörutíu grafíkmyndir frá Mexikó og Suður- Ameríku sýnd til 15. nóvember. Nýlistasafnið, Vatnsstig Kristján Kristjánsson og Sigurlaug Jóhannesdótt- ir sýna verk sín til 1. nóvember. Menningarstofnun Bandaríkjanna Farandsýning á úrvali bandarískra einþrykks- mynda stendur til 1. nóvember. Ásmundarsafn Þjóðsagna og ævintýramyndir Ásmundar Stef- ánssonar. Sýningin stendur til 29. nóvember. Hulduhólar, Mosfellssveit Keramikverkstæði Steinunnar Marteinsdóttur er opið er frá 14 til 19 alla daga nema fimmtudaga og föstudaga, þá er opið frá 17 til 22. Vinnustofur Álafossi Vinnustofur listamanna í verksmiðjuhúsinu Ála- fossi eru opnar almenningi á laugardögum og aðra daga eftir samkomulagi. Listasalurinn Nýhöfn, Hafnarstræti Edda Jónsdóttir sýnir verk sín. Sýningunni lýkur 28. október. Listmunahúsið, Hafnarhúsinu Tryggvagötu Steinunn Þórarinsdóttir opnar sýningu á verkum sínum kl.16.00. Sýningunni lýkur 8. nóv. Önnur hæð, Laugavegi Bandaríska listakonan Louise Bourgeois sýnir teikningar og eitt skúlptúrverk. Gallerf Sævars Karls Sæmundur Valdimarsson sýnir rekaviðsskúlptúr. Sýningin er opin til 6. nóvember. Samkomuhúsið Staður, Eyrarbakka Sýning á æskuverkum Siguijóns Ólafssonar. Sýningunni lýkur 25. október. Stöðlakot, Bókhlöðustig 6 Katrín Didriksen, gullsmiður sýnir verk sín. Sýn- ingin stendur til 1. nóvember. Galleri Úmbra til 21. okt. Galleri 11, Skólavörðustig Ilannes Lárusson opnar sýningu sína „Aftur- aftur“ sem stendur til 5. nóv. Snegla - Listhús, Grettisgötu 7 Sýning á myndverkum og listmunum 15 lista- manna. Opið virka daga 12-18, og laugardaga 10-14. Slunkaríki, ísafirði Sýning á verkum Karin Tiberg og Thorleif Alp- berg frá Svíþjóð. Lýkur 8. nóvember. Samkomuhúsið, Sandgerði Samsýning á verkum listamanna á laugardag 24. og sunnudag 25. kl. 14-19. Tónlistaratriði báða dagana kl. 15. Byggðastofnun, Egilsstöðum Sýning á verkum Louise Heite. Sýningin stendur til áramóta. TONLIST Laugardagur 24. okt. Borgarleikhús kl.l4.00:Ga!akonsert Óperu- smiðjunnar. Óperudagskrá, óperettu- og leikhús- tónlist í flutningi einsöngvara, íslenska dans- flokksins og kórs Óperusmiðjunnar. Sunnudagur 25. okt. íslenska óperan kl. 20.00:Lucia di Lammermoor Hafnarborg kl. 20.00:Tríó Reykjavíkur. Gestur Brady Millican, píanóleikari. Þriðjudagur 27. okt, Hótel Borgarnes kl. 20.30Uónas Ingimundar- son, píanóleikari með tónleika. Miðvikudagur 28. okt. Logaland kl. 21.00dónas Ingimundarson, píanó- leikari með tónleika. Fimmtudagur 29. okt, M-hátið í Keflavík:Sinfóníuhljómsveit íslands. Stjómandi: Ed Velch. Létt tónlist eftir íslenska höfunda. Föstudagur 30. okt. Útvarpshúsið, Efstaleiti l:Ráðstefna um íslensk tónlistarmál á vegum Samstarfsnefndar um ís- lenskan tónlistardag. Laugardagur 31. okt.-íslenskur tónlistardag- ur Útvarpshúsið, Efstaleiti l:Árdegis: Ráðstefna um íslensk tonlistarmál á vegum Samstarfsnefnd- ar um íslenskan tónlistardag. Tónleikar í Útvarps- húsinu í beinni útsendingu kl. 13-17. Háskólabíó kl. 17.00.Sinfóníuhljómsveit íslands. Stjómandi Ed Welch. Létt tónlist eftir íslenska höfunda. LEIKLIST Þjóðleikhús Hafið eftir ólaf Hauk Sfmonarson. Sýningar á Stóra sviði, 31. okt. 1. nóv. kl. 20. Kæra Jelena. Sýnt á Stóra Sviði 29. okt. kl. 20. Emil í Kattholti. Sýnt á Stóra sviði 25. okt. kl. 14 Rita gengur menntaveginn. Á Litla sviðinu 24.. 28., 30., 31.okt. kl. 20.30 Stræti eftir Jim Cartwright. Sýnt á Smíðaverk- stæði 24.,25.,28.,30.,31. okt. Uppreisn. Islenski dansflokkurinn. frumsýning 25.. 0,t. 31. okt. kl. 20. 1. nóv. kl. 14. Borgarleikhús Dunganon eftir Bjöm Th. Björnsson. Sýnt á Stóra sviði 25. og 29. okt. kl. 20 Heima þjá ömmu. Sýningar á Stóra sviði 24.,28., 30., 31. okt kl. 20 Sögur úr sveitinni. Platanov Frumsýning á Litla sviði lau. 24. okt. 25.'okt. kl. 17. 29. okt. kl. 20 Vanja frændi. Fmmsýning á Litla sviði lau. 24. okt. 25. okt.kl. 20.30. 28. okt. kl.20.30 Nemendaleikhúsið Clara S. 25. og 29. okt. kl. 20.30 Alþýðuleikhúsið Fröken Julie. 25. og 30. okt. kl. 21 Til umsjónarmanna listastofnana og sýningar- sala Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðvikudög- um. Merkt: Morgunblaðið, menning/listir, Hverf- isgötu 4, 101 Rvk. Myndsendir 91-691294. MUNIÐ Manor House Hotel HÓTELREKSTUR ERLENDIS Stofnun hlutafélags um hótelrekstur erlendis. Þátttökueyðublöð og upplýsingar hjá Gulli og Silfri hf., Laugavegi 35, símar 22013 og 20620 og Manor House hótel í síma 90 44 803 605164. DVELJIÐ Á EIGIN HÓTELUM ERLENDIS. Skilafrestur er til 1. nóvember 1992. Þióðleikhúsið Tæplega 10 þúsund áhorfendur á10 dögum MIKIL aðsókn hefur verið að Þjóðleikhúsinu í haust. Uppselt er á allar sýningar í október á leikritunum Hafíð og Kæra Jel- ena sem sýnd eru á Stóra sviðinu. Uppselt er á næstu tíu sýningar á gamanleikritinu Ríta gengur menntaveginn. Vegna mikillar að- sóknar var bætt inn þrem aukasýn- ingum sem allar seldust upp sam- stundis. Leikritið Stræti sem sýnt er á Smíðaverkstæðinu hefur einnig fengið afbragðsgóðar viðtökur og hefur verið nær fulit hús á allar sýningar til þessa, segir í frétt frá Þjóðleikhúsinu. Dansarar frá Bolshoj og Kirov ballettinum sóttu Þjóðleikhúsið heim og fluttu ballettinn Svana- vatnið við tónlist eftir Tsjajkovski. Heimsóknin stóð í viku og var að- sóknin slík að bæta þurfti inn auka- sýningum daglega og var samt ekki iinnt að anna eftirspurn. í vetur hefur verið mikið um að fólk á vinnustöðum, í félagasamtök- um og nemendur í skólum taki sig saman og komi í hópum í leikhúsið. Enda er 30 eða fleiri í hóp veittur verulegur afsláttur af miðaverði. Einnig á Leikhúsveislan sífellt meiri vinsældum að fagna. iVERÐlÆKKUN Einkenni Civic eru fegurð og glæsileiki. Þetta er bíll sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara. Nú býðst Civic á einstaklega hagkvæmum kjörum. Verð eftir lækkun: Cwic 3d.yra á verði frá: 899.000,- Civic 4dyra á verði frá: 1.178.000,- Líttu við í Vatnagörðum 24 og kynntu þér góða bíla og greiðslukjör við allrá hæfi. Tökum góða notaða bíla sem greiðslu upp ( nýjan. HOMDA ÁRÉTTRI LÍNU — Gerðu raunhæfan samanburð á verði og gæðum. Accord er sérlega vandaður og vel heppnaður bíll jafnt að utan sem innan. Verð eftir lækkun: | Accord EX með sjálfskiþtingu: 1.518.000,- { Accord EXi með sjálfskiptingu: l .615.000,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.