Morgunblaðið - 24.10.1992, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992
17
á því herrans ári 1992, væru enn í
notkun sjúkrarúm frá stofnun spítal-
ans árið 1927? Því er reyndar þann-
ig farið að allnokkur slík rúm eru í
notkun enn á báðum deildum spítal-
ans. Er hægt að bjóða hreyfihömluðu
fólki að liggja í óstillanlegum rúmum
sem sum hver eru ekki nema 180
sm á lengd? Dæmi hver fyrir sig.
3) Til að undirbúa komu endurhæf-
ingarsjúklinga var um árabil unnið
markvisst að fækkun sjúklinga á
verðandi endurhæfingardeild. Margir
þeirra hö'fðu dvalið langdvölum á
spítalanum án þess að vera hjúkrun-
arsjúklingar, flestir af félagslegum
ástæðum. Að sjálfsögðu fól þessi
breyting í sér lélegri heildamýtingu
tímabundið. Þetta var gert með vilja
og vitund stjómamefndar. Verið var
að færa spítalann úr fortíðinni fram
í nútímann. Þessi tímabundna minnk-
un nýtingar og þar með hækkun
kostnaðar á hvem legudag, er nú
notuð sem vopn gegn starfsemi spítal-
ans af heilbrigðisráðuneyti!
4) Til að veita þjónustu þarf starfs-
fólk bæði á legudeild og meðferðar-
deildir. Til að mega ráða starfsfólk
þarf stöðuheimildir. Þar stendur hníf-
urinn í kúnni. Engar stöðuheimildir
hafa verið veittar frá 1988 er endur-
hæfing hófst utan ein staða sjúkra-
þjálfara og ein staða iðjuþjálfa.
Stofnun endurhæfíngardeildar gaf
ekki tilefni til breytinga og ríkir því
enn sama mannekla.
5) Síðastliðið ár hefur orðið vart
síaukins kulda einstakra stjómar-
nefndarmanna í garð spítalans. Hafa
menn þar hugsað upphátt fyrir ijöl-
miðla. í fréttum þeirra hafa komið
fram hugrenningar um lokun spítal-
ans. Þetta hefur valdið starfsfólki
miklu hugarangri og dregið kjark
úr öðmm sem hingað hugðust ráða
sig til starfa. Slíkt framferði hlýtur
að flokkast undir skemmdarverka-
starfsemi.
6) Á sama tíma og stjórnamefnd
leggur til við ráðherra að leggja skuli
endurhæfíngu á Kristnesspítala á
hilluna, koma í ljós hugmyndir þeirra
um endurhæfíngardeild á Kópavogs-
hæli. Þetta jafngildir flutningi endur-
hæfíngar suður yfír heiðar og ýtir
undir þá þróun að ísland verði borg-
ríki við Faxaflóa. Landsbyggðin mun
ekki þola slíkan yfírgang.
7) Á þessu ári var samþykkt á
fundi stjómarnefndar að taka skyldi
eitt af starfsmannahúsum spítalans
undir orlofsíbúðir fyrir starfsmenn
ríkisspítala! Þeir skulu vita að spít-
alinn hefur meiri þörf fyrir húsnæði
en svo að hægt sé að sjá af því til
þreyttra stjómamefndarmanna.
Starfsmenn ríkisspítala em ávallt
velkomnir norður til að kynna sér
starfsemina, en við frábiðjum okkur
hvíldarheimilishugsjónir stjómar-
nefndar.
fýsir að vita. Ritskoðun, hvort sem
hún yrði sjálfskipuð eða kæmi að
ofan, yrði okkur sjálfum til minnkun-
ar en ekki Serbum.
Friðrik talar um að sannir frétta-
menn skilji að ekki eigi að flytja frétt-
ir af einvíginu. Ég vil þá upplýsa
hann um það að ásamt mér við upp-
haf þess vom mættir fjölmargir
fréttamenn sem einnig höfðu verið í
Bosníu og skýrt frá hörmungum
þar. Þeir fluttu fréttir af einvíginu
og fjölmiðlar þeirra hafa haldið því
áfram eins og Morgunblaðið. Sem
dæmi má nefna Roger Cohen hjá
New York Times, sem varð fyrstur
til að fletta ofan af Vasiljevic í vest-
rænum fjölmiðlum, og Meriel Beattie
frá Reuíer-fréttastofunni, sem stuttu
fyrir einvígið hafði verið með allra
fyrstu fréttamönnunum sem upp-
götvuðu fangabúðir Serba í Bosníu.
Þessir virtu fjölmiðlar gerðu sér fulla
grein fyrir því að skákeinvígið væri
heimsviðburður sem flytja yrði frétt-
ir af.
Öll hallelúja-umQöllun um einvígið
og það afrek mótshaldarans að fá
Fischer aftur til leiks fer jafnmikið
í taugarnar á mér og Friðriki Ás-
mundssyni Brekkan. Morgunblaðið
hefur einmitt fjallað um þennan ein-
stæða viðburð á afar gagnrýninn
hátt og ekki fallið í neina gildru. Ég
held líka að íslenskir blaðalesendur
séu ekki svo einfaldir að láta skák-
fréttir af Fischer og Spasskí villa sér
sýn um ófremdarástandið í þessum
hluta Evrópu.
Höfundur er stórmeistari og
skrifar um skák í Morgunblaðið.
Utflutningnr
55 tonn af sláturaf-
urðum til Færeyja
GOÐI HF. hefur flutt út til Færeyja 47 tonn af lambakjöti það sem af
er þessum mánuði, ásamt 8 tonnum af sviðum, lifur og hjörtum, sam-
tals um 55 tonn. Goði hefur á undanförnum árum annast útflutning á
allt að 700-800 tonnum af kjöti og sláturafurðum á ári og samsvarar
það um 16 kg á hvert mannsbam í Færeyjum.
Hvað er til ráða?
— Norðlendingar hafa þegar upplif-
að kosti þess að hafa endurhæfingar-
og öldrunarþjónustu í norðlenskri
byggð. Þeir sætta sig ekki við aftur-
hvarf til fortíðar i þeim efnum en
ætlast til sömu aðstöðu og meirihluti
landsmanna býr við. Til að svo megi
verða verður að hindra þann gífurlega
niðurskurð, sem áætlað er að fram-
kvæma á starfsemi Kristnesspítala
skv. fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1993.
— Til að tryggja megi áframhald-
andi rekstur Kristnesspitala verður í
fyrsta lagi að viðurkenna þarfír starf-
seminnar fyrir fleira fagfólk. Það leið-
ir til fullrar nýtingar og er sú hagræð-
ing sem fyrst þarf að sinna.
— Við ákvörðun íjiilda stöðugilda
verður að meta eðli starfseminnar
með tilliti til þjónustustigs. Taka verð-
ur mið af sambærilegri þjónustu og
gera raunhæfa kostnaðaráætlun út
frá þvi. Hvað varðar endurhæfíngar-
deildina þá er eðlilegt að miðað sé
við Grensásdeild Borgarspítalans og
Reykjalund.
— Tryggja þarf nauðsynlegar
endurbætur á húsnæði spítalans svo
hann færist í nútímahorf, ekki bara
hvað varðar starfsemi heldur einnig
hvað varðar aðstöðu.
— Hætta verður þeirri neikvæðu
umræðu sem farið hefur fram í fyöl-
miðlum og skapað óþolandi óöryggi
starfsmanna og sjúklinga. Við ótt-
umst ekki faglega umræðu, en krefj-
umst sanngimi.
— Flytja þarf stjóm spítalans heim
í hérað, í samræmi við nefndarálit frá
nóv. 1991. Valið stendur á milli sjálf-
stæðrar stjómar eða samruna við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Valin verði sú leið sem tryggi best
áframhaldandi uppbyggingu þeirrar
endurhæfingar- og öldmnarþjónustu
sem spítalinji á að veita.
Höfundur er yfirlæknir
endurhæfingardeildar
Kristnesspítnln.
Jóhann Steinsson, forstöðumaður
erlendra viðskipta hjá Goða hf., seg-
ir að Færeyingar vilji íslenskt kinda-
kjöt umfram annað innflutt kjöt.
Þeir kunni að meta gæði kjötsins og
þá þjónustu sem Goði hefur veitt.
Goði hf. og Sláturfélag Suðurlands
gerðu í haust með sér samkomulag
um sölu lambakjöts umfram greiðslu-
mark á Færeyjamarkað.
„Það er mikils virði að sinna þess-
um markaði okkar íslendinga fyrir
kjötvömr og halda áfram að stuðla
að góðum viðskiptum við þessa
frændur okkar. Um næstu áramót
tekur væntanlega gildi samningur
milli Færeyinga og íslendinga um
lækkuð innflutningsgjöld á íslensk-
um kjötvömm. Þessi breyting mun
að sjálfsögðu bæta aðstöðu okkar,“
segir í fréttatilkynningu frá Goða.
Gtobusi
-heimur gœða!
Laugardaginn
24. október ffrá
kl. 13.oo - 17.oo i
sýningarsal Globus,
Lágmula 5
Sýnum
VÖKVA-SERVO og
POWER skiptingar
í nýju JCB
traktorsgröfunum.
Komið og kynnist af
eigin raun
fullkomnum og
öflugum
traktorsgröfum.
Sýnum einnig
fjölbreytt úrval
fylgihluta fyrir JCB
vélar.
JCB mest seldu
traktorsgröfurnar
á Islandi í dag.