Morgunblaðið - 24.10.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992
21
Meðferð áfengissjúklinga hætt á Vífilsstöðum
Kemur á óvart er vímu-
efna- og* áfengisvandi vex
- segir Jóhannes Bergsveinsson yfirlæknir
MEÐFERÐ áfengissjúklinga á Vífilsstöðum verður hætt á næsta ári
og rekstri meðferðarheimilisins í Gunnarsholti breytt og hann færður
öðrum aðilum samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Með
þessum aðgerðum fækkar legurúmum deildarinnar um 52. Jóhannes
Bergsveinsson yfirlæknir segir, að þeir sem Ieiti meðferðar á meðferð-
arstofnun ríkisspítala séu oft langt leiddir, húsnæðislausir og eigi við
geðræn vandamál að stríða. „Þetta kom okkur því á óvart og þá sér-
staklega, þar sem fram hefur komið í fjölmiðlum og annars staðar
að áfengis- og vímuefnavandamálið hefur farið vaxandi að
undanförnu."
I fjárlagafrumvarpi fyrir árið
1993 er gert ráð fyrir 85 milljóna
króna sparnaði í rekstri ríkisspítala.
Lagt er til að breyta rekstri Krist-
nesspítala í Eyjafirði, hætta áfengis-
meðferð á Vífilsstöðum og breyta
rekstrinum í Gunnarsholti og færa
hann öðrum. Jóhannes segir, að
meðferðarstofnun ríkisspítala fyrir
áfengissjúklinga samanstandi af
göngudeild og móttökudeiid með 15
rúmum auk deildarinnar á Vífils-
stöðum þar sem eru 16 til 22 rúm.
„Á þessu ári hefur deildin á Vífils-
stöðum að mestu verið með 22 rúm
í notkun vegna stöðugrar ásóknar
og biðlista," sagði hann. í Gunnars-
holti eru 30 rúm en undanfarið ár
hefur það verið rekið með 26 rúmum
vegna viðgerða sem staðið hafa yfir
á húsnæðinu. Verði af þessum niður-
skurði mun rúmum deildarinnar
fækka um 52 en efjir standa 15 rúm
á móttökudeild án nokkurra mögu-
leika á framhaldsmeðferð fyrir þá
sem þess þurfa.
Lilja Mósesdóttir hagfræðingur
Atvinnuleysi hér-
lendis 60 prósent
meira en skráð er
ATVINNULEYSI á íslandi er 60% meira en opinber skráning segir
til um samkvæmt útreikningum Lilju Mósesdóttur hagfræðings. Nið-
urstöður vinnumarkaðskannana Hagstofunnar sýna einnig að at-
vinnuleysi sé i raun mun meira en skráning Vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytis segir til um.
Skráð atvinnuleysi segir til um
fjölda þeirra sem fá bætur en Lilja
nálgaðist dæmið með því að skoða
einnig hveijir hefðu ekki slíkan rétt.
Athuganir hennar benda til að 3,8%
vinnufærra íslendinga séu atvinnu-
lausir en skráð hlutfall er 2,4%.
Þetta þýðir að 5.600 manns búi við
atvinnuleysi, ekki 3.500 eins og
segir í plöggum hins opinbera.
Lilja segir að ellefu hópar fólks
fái ekki atvinnuleysisbætur. Þetta
eru verktakar, fólk í árstíðabund-
inni vinnu sem hefur unnið minna
en 425 klukkustundir síðustu tólf
mánuði fyrir atvinnuleysi, þeir sem
Jósef Rfychart.
JósefRajc-
hartlátínn
JÓSEF Rajchart andaðist þann
21. október sl. í Prag, 69 ára að
aldri.
Jósef Rajchart var verslunarfull-
trúi Tékkoslóvakíu á íslandi árin
1970-1975 og síðan aftur frá
1979-1986. Jósef Rajchart var
mikill íslandsvinur og eignaðist
marga trausta vini hér á landi.
Kona hans er Bozena Rajchartova
og áttu þau 3 börn. Útför Rajc-
harts fer fram í Prag mánudaginn
26. þessa mánaðar. Heimilisfang
ekkju hans er Nucicka 1761/21,
100 00 Parha 10, Czechoslovakia.
koma út á vinnumarkað í fyrsta
sinn, atvinnurekendur sem haft
hafa hærri laun en hámarksbætur,
fatlaðir, heimavinnandi fólk í leit
að atvinnu, fólk sem verið hefur
lengi atvinnulaust og misst bóta-
rétt, tekjuhátt fólk, þeir sem tekið
hafa hlutastarf meðan þeir leita að
fullri vinnu og fólk sem fengið hef-
ur aðstoð Félagsmálastofnunar að-
eins vegna atvinnuleysis. Loks fá
þeir sem sjálfir hafa sagt upp ekki
bætur fyrsta mánuðinn.
„Stjórnmálamenn segja gjarna
að atvinnuleysið sé ekki svo alvar-
legt vandamál hér og benda á að
hlutfall þeirra sem skráðir eru án
vinnu sé lægra en í grannlöndunum.
En þar er hópur bótaþega líka miklu
breiðari og samanburðurinn því
óréttmætur," segir Lilja. „Þannig
er mikilvægt að allir atvinnulausir
láti skrá sig vikulega, láti sig hafa
það, fyrirkomulagið sjálft og hugs-
anlegar betrumbætur þess er svo
næsta vers.“
„Þetta er mjög bagalegt og má
segja að það geri okkur ókleift að
starfa eins og undanfarið," sagði
Jóhannes. Göngudeildin er opin alla
virka daga með bráðamóttöku og
bráðaþjónusta tekur við á kvöldin
og um helgar. „Þangað hafa meðal
annars leitað þeir sem eiga við lang-
tíma vanda að stríða og sem lögregl-
an hefur þurft að hafa afskipti af
vegna þess að þeir eru ölvaðir og
húsnæðislausir,“ sagði Jóhannes.
„Margir þessara einstaklinga verða
fyrst að koma inn á móttökudeildina
og fara þaðan austur í Gunnarsholt.
Aðrir koma beint inn á bráðaþjón-
ustu og fara þaðan annaðhvort á
Vífilsstaði eða á móttökudeildina og
þaðan í framhaldsmeðferð. Það
skiptir móttökudeildina miklu máli
að geta komið frá sér þeim sjúkling-
um sem eru í þannig ástandi að
þeir geti farið í framhaldsmeðferð.
Þessi ráðstöfun er því óskiljanleg."
Jóhannes sagði, að meðferðar-
dejldin starfaði samhliða deildum
SÁÁ en að til deildarinnar leitaði
ívið þyngri hópur. Sjúklingar sem
eru með geðræn vandamál auk
áfengis- og vímuefnaneyslu, að
ógleymdum sjúklingum sem eru illa
skemmdir af neyslunni og hafa þeg-
ar farið í gegnum aðra meðferð.
Aðrir koma beint. „Við höfum fleiri
geðlækna og geðlæknisfræðilega
menntað starfsfólk og er gert ráð
fyrir að við getum tekist á við vanda-
mál þar sem þessa gætir meira,"
sagði hann. „Þetta kom okkur því á
óvart og þá sérstaklega, þar sem
fram hefur komið í ijölmiðlum og
annars staðar að áfengis- og vímu-
efnavandamálið hefur farið vaxandi
að undanförnu og hefur verið að
taka á sig miklu alvarlegri mynd. Í
nágrannalöndum okkar er verið að
auka varnir og meðferð vímuefna-
neytenda."
Vertu með
draumurinn gæti orðið að veruleika !
MERKISMENNHF