Morgunblaðið - 24.10.1992, Page 23
2&
80% hjúkrunarfræðinga á Landspífala
tilbúnir að segja upp til að knýja á um kjarabætur
Óánægjan á sér dýpri rætur
en til síðustu kjarasamninga
— segir Elínborg Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur
EIN sú stétta sem lítt hefur blandað sér í kjaramálaumræðu undanf-
arinna ára eru hjúkrunarfræðingar og hafa launakjör þeirra dreg-
ist töluvert aftur úr sambærilegum stéttum að sögn þriggja hjúkrun-
arfræðinga á Landspítalanum sem Morgunblaðið ræddi við í vik-
unni. Þeir nefna sem dæmi að grunnlaun hjúkrunarfræðings eftir
fjögurra ára háskólanám séu einungis 68.700 kr. og hæstu laun eft-
ir 20 ára starfsreynslu og sérnám séu 86.000 kr. á mánuði. Hjúkrun-
arfræðingamir benda á að líkast til myndu fæstir forstjórar á hinum
almenna vinnumarkaði láta bjóða sér jafn lág laun og hjúkrunarfor-
stjórar eða rétt rúmlega 100.000 kr. á mánuði. Innan verksviðs þeirra
er um starfsmannahald 7-800 manna, yfir 500 sjúkrarúm og um
milljarðs fjármálaumsýsla á hverju ári.
Hjúkrunarfræðingarnir leggja
áherslu á að almenn óánægja sé
með launamál innan stéttarinnar.
Aðspurð staðfestir þó Þóra Árna-
dóttír, hjúkrunardeildarstjóri, að á
Landspítalanum séu launin lægst.
„Ástæðan er fyrst og fremst sú að
víðast hvar úti á landsbyggðinni eru
hjúkrunarfræðingum greiddar stað-
aruppbætur og á hinum Reykjavík-
urspítulunum hefur röðun í launa-
flokka oft á tíðum verið breytt til
að bæta launakjörin. Þannig verður
t.d. hinn almenni hjúkrunarfræð-
ingur aðstoðardeildarstjóri og
hækkar í launum," segir hún en
minna má á að í niðurstöðum könn-
unar á Landspítalanum sýna að 80%
hjúkrunarfræðinga séu tilbúnir til
að segja upp til að knýja á um kjara-
bætur. Svipaðar kannanir verða
gerðar á Landakoti og Borgarspít-
ala á næstunni.
Samningar lausir í rúmt ár
Elínborg Stefánsdóttir, almennur
hjúkrunarfræðingur, minnir á að
samningar hjúkrunarfræðinga hafi
verið lausir í rúmt ár og engar við-
ræður hafi átt sér stað síðan í febr-
úar. Hún leggur um leið áherslu á
að óánægjan eigi sér.dýpri rætur
en til síðustu samninga. Sífellt hafi
því verið borið við að vegna stöð-
unnar í þjóðfélaginu væri ekki tíma-
bært að hækka laun.
Svanhildur Jónsdóttir, skurð-
hjúkrunarfræðingur, segir að viður-
kennt hafi verið að kaup og kjör
væru ekki í samræmi við menntun
og ábyrgð en aftur og aftur hafi
verið vísað til þess að tekið yrði á
Þóra Árnadóttir Elínborg Stefánsdótt- Svanhildur Jónsdótt-
hjúkrunardeildar- ir almennur hjúkrun- ir skurðhjúkrunar-
sijóri. arfræðingur. fræðingur.
vandanum í næstu samningum.
„Ýmis ráð hafa verið notuð til þess
að halda hjúkrunarfræðingum niðri.
Eitt af því er að vísa í lág bama-
heimilisgjöld en um síðustu áramót
voru þau hækkuð um 67% á einu
bretti. Annað vopn, sem notað hef-
ur verið, er að vísa í það öryggi sem
felist í því að vinna hjá ríkinu. Nú
er það liðið því þar er starfsfólki
sagt upp eins og annars staðar,"
segir hún.
Auknar kröfur til stéttarinnar
Hjúkrunarfræðingamar minna á
að á sama tíma og hjúkranarfræð-
ingar hafi dregist aftur úr í launum
hafi kröfur um þekkingu á tækni-
og fjármálasviði aukist. Sjúkling-
arnir komi líka veikari og með
flóknari vandamál inn á spítalana.
I því sambandi leggja þær áherslu
á hversu lokanir deilda komi sér
illa vegna þess að oft á tíðum verði
þær til þess að teymi þar sem mik-
illi sérfræðiþekkingu á ákveðnu
sviði sé safnað saman splundrist
og þekkingin nýtist ekki eins vel
þegar starfsmönnunum er dreift út
um allan spítalann.
Þær segja að hjúkrunarfræðing-
ar ætli að hugsa sinn gang eftir
að niðurstöður úr könnunum á vilja
hjúkranarfræðinga til þess að segja
upp til að knýja á um kjarabætur
verði ljósar. Varlega verði farið í
aðgerðir en ef annað dugi ekki séu
uppsagnir möguleiki sem komi tíl
greina.
Deilan um háseta á Bakkafossi
Reynum að leysa
málið án slagsmála
- segir framkvæmdastjóri
Sjómannafélags Reykjavíkur
„ÞAÐ er verið að vinna í þessu máli fyrir okkur og við ætlum að sjá
til hvort hægt er leysa þetta einhvernveginn áns slagsmála," segir
Jónas Garðarsson, framkvæmdastjóri Sjómannafélags Reykjavíkur
um mál filippseysku hásetanna á Bakkafossi. Jónas sagði staðfest
að þeir væru á helmingi lægri launum en lágmarksalaun Alþjóða
flutningaverkamannasambandsins (ITF) eru, og sagði hann skip-
stjóra Bakkafoss hafa staðfest það.
„Það er í raun og vera ekkert
um þetta mál að segja á þessu stigi,
en við eram að tala við stéttarfélög
í Þýskalandi og alþjóðasamtök um
þetta,“ sagði Jónas. Bakkafoss hélt
frá íslandi í fyrrakvöld og sagðist
Jónas efast um að til kyrrsetningar
skipsins kæmi í þessari ferð vegna
þessa máls, en af því gæti hins
vegar hugsanlega orðið þegar það
kæmi á ný hingað til lands. Hann
sagði að í leigusamningi Eimskipa
og hins þýska eiganda skipsins
væri kveðið á um að áhöfnin ætti
að fá greitt samkvæmt ITF taxta
og því ætti að vera hægt að knýja
á um að Filippseyingamir fengju
greitt samkvæmt honum.
Þórður Sverrisson framkvæmda-
stjóri flutningasviðs Eimskipa sagði
að beðið væri upplýsinga frá hinum
þýska eiganda skipsins varðandi
mál Filippseyinganna, og fylgst
yrði með því hver framvinda þess
yrði, en hann sagði eigandann verða
að sjá til þess að Eimskip lentu
ekki í vandræðum vegna hugsan-
legrar kyrrsetningar þess.
„Þessi útgerðaraðili á eitthvað á
annað hundrað skip í rekstri, og
þetta skip er í sjálfu sér rekið með
mjög svipuðum hætti eins og önnur
skip hans. Allur launakostnaður er
á hans vegum en við sjáum hins
vegar um að greiða laun út til ís-
lendinganna í áhöfninni fyrir hans
hönd,“ sagði Þórður.
Eimskip tóku Bakkafoss á svo-
kallaða þurrleigu árið 1987 og sá
þá um allan rekstur á því, en að
sögn Þórðar varð að skila því aftur
fyrir rúmlega ári aftur vegna
breyttra reglna í Þýskalandi, og
héldu Eimskip þá áfram með það á
tímaleigu.
„Við ákváðum þá að breyta ekki
nafninu aftur yfir í þýska.nafnið,
þar sem það hélt áfram í íslands-
siglingum og það eina sem breyttist
var formið á rekstrinum. Eigandi
skipsins rekur það með þeirri áhöfn
sem hann semur um að sé um borð,
en þegar við urðum að skila því úr
þurrleigu óskuðum við hins vegar
eftir því að hann yrði með sex Is-
lendinga í áhöfninni," sagði hann.
Við eigum nokkra Ford Econoline bíla, bæði sendibíla
og Club Wagon á frábæru verði, frá 1.929.000 krónum m/vsk.
Ford Econoline er sannarlega bíll möguleikanna. Hann hefur
frábæra aksturseiginleika, er mjög rúmgóðui; þægileguc
hljóðlátur og þú færð tæpast betri bíl til ferðalaga.
Tryggðu þér Ford Econoline strax i dag.
Bíll möguleikanna á frábæru verði
Ryðvörn og skráning er innifalin í verðinu.
Hefurþú ekiö Ford.....nýlega?
-heimur gœða!
Lágmúla 5, sími 91- 68 15 55
ÞEIR HAGSÝNU
ERU KOMNIR Á STJÁ JAPISS