Morgunblaðið - 24.10.1992, Page 24

Morgunblaðið - 24.10.1992, Page 24
British Airways kaupir Dan-Air BRITISH Airways bjargaði í gær breska flugfélaginu Dan- Air frá gjaldþroti með því að kaupa eignir þess á eitt pund, um 92 ÍSK, en tekur að auki við skuldum þess, sem eru áætlaður um 55 milijónir punda, rúmir 5 milljarðar ÍSK. Talsmaður British Airways sagði að kaupin væru liður í áformum flugfélagsins um að stofna nýtt félag, sem tæki við stuttum flugleiðum frá Gatwick-flugvelli í Lundúnum. Samgönguráðuneytið hyggst rannsaka hvort kaupin bijóti gegn samkeppnislögum. Rússar aflétta ferðahömlum YFIRVÖLD í Rússlandi til- kynntu í gær að ferðahömlum á útlendinga yrði afiétt. Útlend- ingar hafa hingað til ekki feng- ið að fara til stórs hluta af Rússlandi en nú geta þeir farið hvert sem þeir vilja, nema hem- aðarmannvirkja. Ennfremur verður afnumin sú regla að útlendingar þurfi að tilkynna yfirvöldum að minnsta kosti með sólarhrings fyrirvara ef þeir ætla lengra en 30 km frá Moskvu. Sjúkrahúsum lokað í Lundúnum? BRESKA heilbrigðisráðuneytið kynnti í gær áform um að loka fímm stórum sjúkrahúsum í Lundúnum og búist er við hörð- um viðbrögðum stéttarfélaga. Áformin gætu kostað 20.000 manns atvinnuna. Á meðal sjúkrahúsanna er St. Bart- holomew’s, sem er 800 ára gamalt. Aquino fær uppreisn æru TVEIR atkvæðamiklir blaða- menn á Filippseyjum voru í gær dæmdir til tveggja ára fangels- isvistar fyrir að hafa haldið því fram í blaðagrein að Corazon Aquino, fyrrverandi forseti landsins, hefði falið sig undir rúmi sínu í misheppnaðri valda- ránstilraun árið 1987. Þeim var einnig gert að greiða Aquino tvær milljónir pesos (4,3 millj- ónir ÍSK) í miskabætur. Kohl boðar skattahækkun Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, sagði í gær að þörf væri á frekari skattahækkunum árið 1995 svo hægt yrði að greiða afborganir og vexti af gífurleg- um skuldum sem kommúnista- stjórnin í Austur-Þýskalandi skildi eftir sig. Kohl varð fyrir miklum álitshnekki í fyrra þeg- ar hann hækkaði skatta þvert á gefin loforð í síðustu kosning- um. Kosið í Litháen EFNT verður til fyrstu þing- kosninganna í Litháen eftir að landið hlaut sjálfstæði frá Sov- étríkjunum á sunnudag. Frétta- skýrendur telja að kjörsókn verði lítil vegna vaxandi óánægju almennings með stjómmálamennina. Þeir segja erfítt að spá um úrslitin en telja líkiegt að annaðhvort Sajudis- hreyfingin, sem barðist fyrir sjálfstæði, eða flokkur fyrrver- andi kommúnista, Lýðræðislegi Verkamannaflokkurinn, myndi næstu stjóm. IvíÖR(ilÚt4ÖLÁt)IÐ. LÍaÍÚÁRb'AG úít'ii:: ÖKftóófcíí ‘'l’&S Jean-Pierre Allain, fyrrum yfirmaður blóðrannsókna við blóðbank- ann, kemur út úr dómshúsinu i gær eftir að hafa verið dæmdur i fjögurra ára fangelsi. Alnæmishneykslið í Frakklandi Deilur Breta og Kínverja um Hong Kong Lýðræðislegar umbæt- ur verða afturkallaðar Peking. Reuter. KÍNVERSK stjórnvöld munu afturkalla allar lýðræðislegar umbætur í Hong Kong þegar þau fá yfirráðin yfir krúnunýlendunni i sinar hend- ur árið 1997. Kom þetta fram hjá háttsettum, kinverskum embættis- manni í gær og er svar við tillögum Chris Pattens, landstjóra Breta, um ýmsar breytingar $ lýðræðisátt. Er óttast, að yfirlýsingin geti dreg- ið mjög úr trausti manna á framtíð Hong Kong undir kínverskum yfir- ráðum. Lu Ping, yfirmaður stjórnardeild- ar, sem fer með málefni Hong Kong og Macau, lýsti þessu yfir á blaða- mannafundi í Peking í gær og sagði • ennfremur, að yrði hafíst handa við gerð nýs flugvallar í Hong Kong án samþykkis kínversku stjómarinnar myndi hún hætta stuðningi við fram- kvæmdina. Yrði þá flugvélum, sem notuðu flugvöllinn, bannað að fljúga inn í kínverska lofthelgi og engin ábyrgð tekin á lánum og öðrum skuldbindingum vegna hans. Patten, landstjóri í Hong Kong, gerði í gær lítið úr hótunum Kín- veija og kvaðst ákveðinn í að þrýsta á um lýðræðislegar umbætur og flug- vallargerðina. Hann sagði þó, að það yrði erfitt verk að ljúka við flugvöll- inn án aðstoðar þeirra. Ekki er búist við, að Kínastjóm kæri sig um að kynda frekar undir þessari deilu enda á hún mikið undir því, að afhending krúnunýlendunnar fari friðsamlega fram. Hún óttast hins vegar, að lýðræðislegir stjómar- hættir þar geti smitað út frá sér og hún virðist haldin grunsemdum um, að Bretar ætli sér að tæma allar fjár- hirslur nýlendunnar áður en þeir fara þaðan og setja féð í flugvöllinn. Embættismenn dæmdir í’yrir svik og refsiverða vanrækslu París. Reuter. ÞRÍR fyrrverandi embættismenn í frönsku heilbrigðisþjónustunni voru í gær dæmdir í fangelsi vegna þess að 1200 dreyrasjúklingum var gefíð alnæmissmitað blóð. Fjórði embættismaðurinn var sýknað- ur. Fómarlömb blóðgjafanna og fjölskyldur þeirra bmgðust ókvæða við dómunum og töldu þá allt of væga. Michel Garetta, fyrrum forstöðu- maður franska blóðbankans, var dæmdur í Ijögurra ára fangelsi, eða hámarksrefsivist, fyrir sviksemi og refsiverða vanrækslu vegna blóð- gjafanna, en þær áttu sér stað fyr- ir sjö árum. Jean-Pierre Allain, fyrrum yfir- maður blóðrannsókna við sömp stofnun, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi — þar af tvö ár skilorðs- bundið — fyrir sömu sakir og Gar- etta. Þeir voru báðir sakaðir um að leyfa, að blóð, sem þeir'vissu að var alnæmissmitað, væri notað til blóðgjafa. Jacques Roux, fyrrum yfirmaður í heilbrigðiskerfinu, var dæmdur í fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi fyrir refsiverða vanrækslu. Fjórði embættismaðurinn, Robert Netter, fyrrum forstöðumaður á rann- sóknastofu heilbrigðisráðuneytis- ins, var sýknaður. Fómarlömb blóðgjafanna og fjöl- skyldur þeirra gátu ekki tára bund- ist, þegar komið var út úr réttar- salnum og mikil reiði ríkti á meðal þeirra. „Þetta er skammarlegt, hreint hneyksli," sagði Joelle Bouc- her, sem átti 17 ára gamlan son í hópi hinna smituðu, „dómarnir eru móðgun." Yfir 250 dreyrasjúklingar hafa látist í kjölfar blóðgjafanna og læknar áætla að um 5000 til viðbót- ar hafi smitast. Þetta er mesta hneykslismál, sem komið hefur upp S franska heilbrigðiskerfínu á seinni árum og varð mikill álitshnekkir fyrir ríkisstjóm sósíalista. Joelle Boucher sagðist ætla að áfrýja dómnum í von um að refsing- ar sakbominganna yrðu hertar. Edmond-Luc Henry, eitt af fóm- ariömbunum sem fengu smitaða blóðið, sagðist ætla að reyna að áfrýja málinu, en mikilvægt væri, að embættismennirnir hefðu verið fundnir sekir. „En það kemur ekki nógu skýrt fram í þessum dómi, að um hafi verið að ræða glæpsam- legt athæfi hjá sakbomingunum, en ekki læknisfræðilegt slys eins og veijendur þeirra héldu fram,“ sagði hann. Varað við „þögulli gagnbyltingri“ Moskvu. Reuter. ALEXANDER Jakolev, einn af aðstoðarmönnum Míkhaíls Gorb- atsjovs, fyrrum forseta Sovét- ríkjanna, sagði í gær, að lýðræð- inu í Rússlandi stafaði hætta af „þögulli gagnbyltingu aftur- haldssamra skriffinna“. Kenndi hann því meðal annars um, að fijálslynd öfl hefðu ekki samein- ast í sérstökum stjórnmálaflokk- um. „Að undanskildu beinu valdaráni stafar okkur mest hætta af þögulli gagnbyltingu skriffinnanna," sagði Jakolev í viðtali við dagblaðið Kom- somolskaja Pravda. „Spillingin er orðin ólýsanleg og því meiri sem ofar er farið.“ Jakolev kvaðst styðja Jegor Gaid- ar forsætisráðherra og ríkisstjórn hans þótt honum fyndist fullgeyst farið í efnahagsumbótunum og sagði, að Gorbatsjov ætti ekki leng- ur heima í rússneskum stjómmál- um. Hvatti hann fijálslynd öfl til að sameinast og vakti athygli á, að ýmsir hópar kommúnista og þjóðemissinna ætluðu að koma saman til fundar í Moskvu í dag og stofna það, sem þeir kölluðu „Þjóðfrelsisfylkinguna". Þar yrði andstaðan við Jeltsín efst á baugi ásamt endurreisn Sovétríkjanna. Staðhæft um mikil Sovéttengsl Kekkonens Náði kjöri til for- seta með tveggja atkvæða mun URHO Kekkonen, sem gegndi embætti Finnlandsforseta í 26 ár, situr nú undir ásökunum um að hafa verið í mjög nánun tengslum við sovésk stjórnvöld allan þann tíma. Hefur deildarstjóri í rússn- eska utanríkisráðuneytinu lýst því yfir að rannsókn á skjölum sovéska kommúnistaflokksins hafí leitt í ljós að Sovétmenn hafi átt ríkan þátt í því að hann náði kjöri á sínum tima. Meðal ann- ars hafi finnskir kommúnistar fengið skipun frá Moskvu um að greiða Kekkonen atkvæði sitt. Mjög naumt var á mununum í forsetakosningunum sem fóru fram þann 15. febrúar 1956 og var kosningin einhvers sú tvísýn- asta í sögu Finnlands. Munaði einungis tveimur atkvæðum á Kekkonen, sem þá var forsætis- ráðherra, og Fagerholm, forseta finnska þingsins. Þurfti þijár at- kvæðagreiðslur áður en kjörfull- trúamir þijú hundruð greiddu at- kvæði á þann veg að einn maður fékk hreinan meirihluta. í frétt Morgunblaðsins af kosn- ingaúrslitunum þann 16. febrúar 1956 segir m.a.: „Dr. Kekkonen er skapfastur maður og stefnu- fastur. Engu að síður hefur hann oft og tíðum neyðst til að breyta gegn vilja flokksbræðra sinna, þegar erfitt hefur reynst að mynda stjóm. Margir íslendingar eru kunn- ugir dr. Kekkonen og munu fagna því að hann hefur nú valist til forseta Finnlands. Meðal kunn- ingja hans eru bæði stjómmála- menn íslenskir og íþróttamenn en íþróttamálefni hefur hann löngum látið sig miklu skipta." Í«T»» ÍNORDVMlJÍXU :NT»> — A í Srz vw fc:» I MO:e;» Nú er stiindm kfiRÚU t-U ••- W»c: t»M ili tfrMUiMvhutJÍ •'•»:<; <•>■:«<■> H •.t.y.UnKt IitíW: y.-.ýy.xf*; j nKiiit. Þí ¥<: !•: • | (»>•.»!*» tfr'Wi.i'.'. tltitly.u■*!•<!! iw «x-r« <cri lytic >«:». fatfl IU ?fM *« fnt iutíirtll:*»r.\< faovrrít cl*» »«!«: MmiHI’ MÁI. SXMiUMMIÁMSIi rt vmvx. tix UíMtMlflXííiUBl Neyðarástand í Evrápu vegna kuldanna Hún er presfvígð Wár skóvarhöggsmanus* íns var kjörinn forscti KKUlffdfW. Ifa — tnwlMtMn ytwUnÁs. <♦««: Im««• Kf X* »•( rír.lxtr «*. frfr tnm Mor Utfriritu jiícwfan* KMI »*•:<•* * *« mJ'IP'Vich llKlfKMM fcliV. 15* HVc, . ■pit, 4tM tf -.r «. I ndcilftffalMt UfeMmftwiK 'i lfr ixWíií. (rrít.tu > >*•» Wm »r*iiifr-.r. b n/kKWSX « ■ W.M frX’- i >■>! }■■#*■ SStiUUJ*-> Öll stsnd að lokasi — Fólk einonyrast þcs. ve.mw J,-* íí N VCSOA tiírMuuft- r»*r a( vSUuk* linHiuiiii L Evrópu tní«V:i. Tlljir »:h*»x !íá lili* ú v>ia.W«| hvnjnw <-v' 0ol:*r Miafai V'-rr* ««» c::t*»sraíif. rnnUs- hu*ir ajt tl cfeki U\M »3 ki-»K »:) þxirra ci>t*l>: (>•*»» >fa>íl •>• r'til *A Ufrrgr* !>&-ir tkkaf. *•>»*♦ r.u < >>::i. A faPlta l.fjíiSx (cik h«rj* knf.-ir mIiíck* ftWfa. V* ;r CC)ð»r*xU»ud ritj»ndi i Haih*rJ«.i.;:<K*»:. ‘ ItfKMUVh >:: ■>■•!«: «*»*•>• I iifkre.:r f faf-p hÁawiinaM. ««:» •>:«• kS j.<: 4« *.•'» i,i». i:V i.virr* *r ITAUa <X> ÞUVKfWMfa V.I : ntHffrfrtfr •«<: VkMt c: x!í <*á> frf »• fccUA : Ví»lv:l-a4i*:i:»«a <* <í:m\MAÍ. Kfrrfr VfxÍE»x4:i>:. «« >»' Mvi *< <•:>: ofrMUT<« c« *>:'.*>:•> •<:><«: \í •»:>■» ;!fc> fc*fsJ»rí>h»-' V::p::»*ó- Sx.-r.xcv> <•>': : lylgj: •,!< <'.>.< rfl lly>>< vietít • ■' Uoj-.-iCw sefa:.'. Heperkumn ail bíEalsf|iiis 18. þing BúnaðarféJags ísJands sett í gær Æ,1 v*? : C.cc'iif'i'picfHÍoldt.u Mc I >v'.yki>vA jfotU6x<ía::f >■»:>»:''•:: :/.** hkuvM. fjgttífrtu:. k-iii :ý.".<■*. ..£ tyovt. {AwfHÍttrítfa. *<’■• <■( : (UcVVlfaxa. vk;>.:••>:(.> ::: >>::.' }:'4K,;>:::(tv*>'.:i'. '•<••» mttt'ý.t. cn <■>-■> w ui4úc. MIK.IV j (::'•«< cwift o'&v.C: SU4 nA\ ti>» r*t- kv: ■ W Hxr.n ■<,-•3 o:ol :»>:< Karni cr hinn sSerki ____________ . slésll Soídóoinn aí Marokkó í Patí* sæ’SjSSí.* _ »*‘l* *-t( * »«'CfaSt !:i o» 4U

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.