Morgunblaðið - 24.10.1992, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992
25
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir
Við strætísvagn svissneska baráttuhópsins „Konur með EES“.
Vreni Spörri, sú stutthærða til vinstri, þingmaður Frjálslynda
flokksins (FDP), hefur aldrei upplifað eins fjölmenna kosninga-
fundi og þessa dagana. „Og flestír virðast vera á mótí.“
Sviss
Konur boða ágæti
EES í tveggja
hæða strætisvagni
ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
SKRIÐUR er kominn á kosningabaráttuna fyrir þjóðaratkvæða-
greiðsluna í Sviss 6. desember um aðild ríkisins að samningnum
um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Meirihluti þjóðarinnar er
enn á móti aðild samkvæmt skoðanakönnunum en stuðnings-
menn samningsins reyna nú í auknum mæli að koma boðskap
sínum á framfæri og sannfæra þjóðina um ágæti hans.
„Konur með EES“ er meðal
baráttuhópa sem berjast fyrir
aðild. Yfir 300 konur úr stjórn-
mála- og viðskiptalífinu standa
að honum og takmark þeirra er
að upplýsa konur gagngert um
kosti EES. „Umræðunni um EES
hefur ekki verið beint til kvenna
fram að þessu og flestar þeirra
sem hafa látið frá sér heyra eru
á móti aðild,“ sagði Gabriela
Winkler, framkvæmdastjóri
hópsins. „Við viljum breyta því.“
Hópurinn hefur tekið gulan og
grænan tveggja hæða strætis-
vagn á leigu í því skyni og fer á
milli staða til að boða erindið.
Vagninn og Winkler vöktu reynd-
ar litla athygli þegar hún dreifði
áróðurspésum tii kvenna fyrir
utan verslunarmiðstöð í bænum
Búlach í kantónunni Zúrich í vik-
unni en hún kenndi gráu og köldu
haustveðrinu um. Hún sagði að
konur á öðrum stöðum hefðu
sýnt málefninu meiri áhuga og
Vreni Spörri, þingmaður Fijáls-
lynda flokksins (FDP), sagðist
aldrei hafa upplifað eins vel sótta
kosningafundi og þessa dagana.
„Það mæta mörg hundruð
manns, það er troðfullt út úr
dyrum,“ sagði hún. ,,Og flestir
virðast vera á móti. Eg er spurð
í þaula en andstæðingar mínir
þurfa ekki að svara fyrir sig.“
Hún var svartsýn á úrslitin.
„Þessi barátta er langt frá því
að vera unnin. Ég vona bara að
úrslitin verði afgerandi. Það get-
ur dregið dilk á eftir sér ef þjóð-
in samþykkir aðild með 51% at-
kvæða gegn 49% en meirihluti
kantónanna samþykkir hana
ekki. Tillagan væri þá fallin og
nokkrar sálir í Uri og Appenzell
hefðu gert útslagið um afstöðu
Sviss til EES.“
Kantónumar era 26. Meiri-
hluti kjósenda í meirihluta þeirra
verður að samþykkja tillögur í
þjóðaratkvæðagreiðslum svo að
þær verði að lögum. 19 kantón-
anna era þýskumælandi og 72%
þjóðarinnar búa í þýska hlutan-
um. Meirihluti íbúa kantónanna
6 í frönskumælandi Sviss og ít-
ölsku kantónunnar er hlynntur
aðild að EES. En meirihluti íbúa
þýskumælandi Sviss er á móti
og íbúar nokkurra fjallakantóna
þar era heimsþekktir íhalds-
menn.
Andúð á Þjóðverjum og
„karlahugsunarhætti"
Skoðanamunur er ekki aðeins
skýr á milli tungumálahópa held-
ur einnig aldurshópa. Eldra fólk
er mun neikvæðara í garð EES
og Evrópubandalagsins (EB) yf-
irleitt en yngra fólk. Winkler
sagði að eldri konur minntu oft
á að þeirra kynslóð hefði staðið
vörð um Sviss í stríðinu og hún
hefði ekki gert það til að gefa
upp frelsi þjóðarinnar nú. „Andúð
á Þýskalandi ræður afstöðu
margra. Kohl kanslari og Þjóð-
veijar eru taldir ráða öllu í EB
og fólk vill ekki auka áhrif þeirra
hér.“ Yngri konur gagnrýna EES
helst fyrir að vilja stuðla að aukn-
um viðskiptum og hagvexti. Þær
era á móti slíkum „karla“hugsun-
arhætti og telja Sviss vel geta
komist af án aukins hagvaxtar.
Konurnar í strætisvagninum
benda konum á að EES er líka
ágætur samningur fyrir þær sem
konur. Hann stuðli að auknu
jafnrétti, geri þeim kleift að
starfa í öðram EES-ríkjum, hafí
væntanlega lægra verð og betri
vöramerkingar í för með sér og
ryðji veginn fýrir auknum tengsl-
um komandi kynslóða í Evrópu.
Þær segja að EES muni ekki
hafa útlendingastraum, aukið
atvinnuleysi eða lægri laun í för
með sér, eins og andstæðingar
EES fullyrða, heldur muni efna-
hagslífið dafna og hlutfall útlend-
inga sem falla illa inn í Sviss-
neskt munstur, eins og Tyrkir
og Júgóslavar, muni minnka.
Spörri vonar að barátta
kvenna með EES og annarra sem
beijast fyrir aðild Sviss að samn-
ingnum beri tilætlaðan árangur.
„Tilfinningar ráða enn fyrst og
fremst afstöðu fólks,“ sagði hún.
„Við verðum að upplýsa það um
ágæti samningsins. Það verður
að átta sig á að Sviss mun ein-
angrast og dragast aftur úr öðr-
um Evrópuþjóðum ef við verðum
ekki aðilar að EES.“
Snörp sókn
Perots
veldur usla
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara
Morgunblaðsins.
AUÐKÝFINGURINN Ross Perot
getur ekki unnið forsetakosning-
arnar, en hann virðist ætla að
velgja andstæðingum sínum und-
ir uggum. Fylgi hans er nú 17-19
prósent samkvæmt skoðana-
könnunum, sem birtar voru í
fyrradag. Enn sem komið er virð-
ist Perot aðallega sækja fylgi
sitt tíl kjósenda, sem áður voru
óákveðnir, en viðbrögð í kosn-
ingaherbúðum George Bush
Bandaríkjaforseta og Bills Clint-
ons ríkisstjóra bera því vitni að
menn óttíst að það gætí breyst.
Tvær þessara skoðanakannana -
gerðar af sjónvarpsstöðvunum ABC
og CNN - sýna að Bush hafí held-
ur dregið á Bill Clinton, ríkisstjóra
Arkansas, og nú muni aðeins 11
til 12 prósentum á þeim. í báðum
þessum könnunum var fylgi Perots
17 prósent. Þriðja skoðanakönnunin
var gerð fyrir sjónvarpsstöðina
NBC og dagblaðið The Wall Street
Journal. Þar styðja 47 prósent
Clinton, 28 prósent Bush og 19
prósent Perot. Þar munar 19 pró-
sentum á Clinton og Bush, en að-
eins 9 prósentum á Bush og Perot.
Bush hefur látið sem hann tæki
óháð framboð Perots ekki alvarlega
en í fyrradag sneri hann við blað-
inu. „Hann getur ómögulega unnið
og ég held að hann viti það,“ sagði
Bush í New Jersey. „Atkvæði til
hans er kastað á glæ.“
Perot, sem háð hefur kosninga-
baráttu sína í sjónvarpi, en lítið sem
ekkert sést meðal almennings, svar-
aði fyrir sig í sjónvarpsauglýsingu
í gærkvöldi: „Þið sóið atkvæði ykk-
ar, nema þið látið sannfæringu ykk-
ar ráða.“
ú#- tojeítinni
'WV-
1 M >-
TVÆR FRUMSÝNIN GAR
Á LITLA SVIÐINU
LEIKFÉLAG REYKJAVIKUR
BORGARLEIKHÚSIÐ SÍMI 680680
Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson
Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir
Lýsing: Ögmundur Jóhannesson
Tónlist: Egill Ólafsson
Leikarar:
Ari Matthíasson, Egill Ólafsson,
Erla Ruth Harðardóttir, Guðmundur Ólafsson,
Guðrún S. Gísladóttir, Helga Braga Jónsdóttir,
Pétur Einarsson, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Theodór Júlíusson, Þröstur Leó Gunnarsson.
Platanov: Frumsýning lau. 24. okt. kl. 17.00. Uppselt
Vanja frændi: Frumsýning lau. 24. okt. kl. 20.30. Uppselt
Þýðing á Platanov: Árni Bergmann
Leikgerð af Platanov: Pétur Einarsson
Pýðing á Vanja frænda: Ingibjörg Haraldsdóttir
Þér bjóðast varla betri bílar á betra verði
Við eigum örfáa Ford Escort og Ford Orion l .6 CLX eftir og
bjóðum þá á hreint ótrúlegu verði, aðeins 998.000 krónur.
Pessir þýsku gæðagripir eru í sérflokki hvað varðar endursölu,
gæði, endingu, snerpu, kraft og sparneytni.
Tryggðu þér Ford Escort eða Ford Orion á þessu frábæra verði.
Að auki bjóðum við sérlega hagstæða greiðsluskilmála.
Ryðvöm og skráning er innifalin í verðinu.
Hefur þú ekið Ford.....nýlega?
G/obusp
-heiinur gœdu!
Lágmúla 5, sími 91- 68 15 55