Morgunblaðið - 24.10.1992, Síða 31
<?pof t0 fltJO/aflAW* i O’O' TpMTtoíior^
MORGUNBLAÐIÐ LAUGÁRDAGUR 24. OKTÓBER 1992
3t
Kári selur
kjötið á
sunnudag
KÁRI í Garði hefur nú látið slátra
og vinna um tvö tonn til viðbótar
af frjálsa lambakjötinu sínu og
verða þessar nýju birgðir til sölu
í Kolaportinu á sunnudaginn. Um
síðustu helgi seldist eitt og hálft
tonn upp á fjórum klukkutimum
og fengu færri en vildu.
Um helgina verða um 260 selj-
endur í Kolaportinu og vöruúrvalið
með besta móti að sögn aðstand-
enda markaðstorgsins. Aðsókn
gesta sem og sala í Kolaportinu
hefur aukist verulega í haust miðað
við sama tíma í fyrra og má nefna
að í haust þurfti að byija á sunnu-
dagsopnun mánuði fyrr en í fyrra
til að mæta eftirspurn eftir sölu-
plássi og nú eru sölubásar að verða
upppantaðir til jóla.
----♦ ♦ ♦--
Blóð, sviti
ogtár
álslandi
HLJÓMSVEITIN Blood, Sweat
and Tears mun halda tónleika á
Hótel fslandi fimmtudaignn 5.
Morgunblaðið/Emilía
Birna Björnsdóttir verslunareigandi í Breiðholtsblómum ásamt Svanhildi Erlingsdóttur starfs-
stúlku I nýju versluninni.
Breiðholtsblóm flytur í nýtt húsnæði
Blómaverslunin Breiðholtsblóm flutti nýlega
í nýtt húsnæði. Verslunin flutti ekki langt held-
ur frá Álfabakka 12 í Álfabakka 14 í talsvert
stærra húsnæði.
Breiðholtsblóm er tíu ára um þessar mundir og
hefur verið í eigu Bimu Bjömsdóttur í rúm átta
ár. Verslunin býður upp á alhliða þjónustu í blóma-
skreytingum auk þess sem þar em á boðstólum
mikið úrval af afskomum blómum, pottaplöntum
og gjafavörum. Verslunin er opin til kl. 21 öll kvöld.
nóvember. H\jómsveitina skipa
niu manns en forsprakki hennar,
söngvari og lagahöfundur er
David Clayton-Thomas.
Fyrsta breiðskífa sveitarinnar
seldist í tíu milljónum eintaka. Af
henni komu líka þrír gullsmellir,
fyrir lögin Spinning Wheel, You’ve
Made Me So Very Happy og When
I Die. Næst komu fimm gullbreið-
skífur.
David Clayton-Thomas hefur
gefið út sólóplötu og setið við laga-
smíðar í nokkur ár. „Jazzinn hefur
haft sterk áhrif á okkur og oft sköp-
um við tónlist af fingrum fram.
Stundum notum við efni frá snill-
ingum á borð við Chick Corea,
Herbie Hancock og Sonny Rollings,
auk þess að spila fmmsamin lög
eftir ýmsa meðlimi sveitarinnar sem
allir em mjög hæfir tónlitarmenn,"
segir Clayton-Thomas.
Stórsveitin Júpíters kemur fram
á undan Blood, Sweat and Tears.
Forsala aðgöngumiða er hafin á
Hótel íslandi.
(Úr fréttatilkynningn)
Vetrardagskrá í félags- og tómstundastarfí aldraðra hjá Reylqavíkiirborg
Tvær nýjar félagsmið-
stöðvar og eitt þjónustusel
VETRARDAGSKRÁ í félags- og
tómstundastarfi aldraðra hjá
Reykjavíkurborg er nú hafin á
öllum félagsmiðstöðvum í höfuð-
borginni. I vetur bætast við tvær
nýjar félagsmiðstöðvar og eitt
þjónustusel. í haust tók til starfa
ný félagsmiðstöð við Hraunbæ
105 og nú í október önnur fé-
lagsmiðstöð við Hæðargarð 31.
í sumar var einnig opnað nýtt
þjónustusel við Sléttuveg 11-13,
sem er útibú frá félags- og þjón-
ustumiðstöðinni við Hvassaleiti.
Á undanfömum ámm hefur íjöl-
breytni í félagsstarfi aukist til
Námskeið um húsasótt
HANDMENNTASKÓLI íslands hefur hafið nýtt námskeið um húsasótt
sem orðið hefur á síðari árum þekkt fyrirbæri. Það hefur verið kallað
húsasótt á íslensku, en á ensku kallast það „Sick Buildin Syndrome,
SBS“. Þetta felst í þvi að æ fleira fólk finnur fyrir óþægindum og óþoli
í húsnæði sem það dvelst langdvölum í, en líður vel í öðru húsnæði.
í verstu tilfellum em þessi inn-
byggðu áhrif á dvalarstaðnum talin
geta valdið illkynjuðum sjúkdómum.
Almenningur hefur lítið verið frædd-
ur um þessi mál, nema helst í gegn-
um blað Heilsuhringsins í Hollefni
og heilsurækt.
Námskeið Handmenntaskólans er
bréfanám. Þar em tekin fyrir 16
atriði sem tengjast húsasótt. Þá er
kennd meðferð teina en með þeim
er unnt að kanna lauslega jarðseg-
ulfrávik innanhúss. Kennarar em
Einar Þ. Ásgeirsson, sem hefur
kynnt þessi mál hérlendis síðan
1981, og Brynjólfur Snorrason, sem
unnið hefur mikið starf á sviði lágt-
íðni rafsviða og á athugunum á
jarðámm.
Fyrirlestur um skipaferðir
DR. WLADISLAW Filipowiak,
fornleifafræðingur og forstöðu-
maður Þjóðmirýasafnsins í Stett-
ín i PóUandi, flytur opinberan
fyrirlestur á vegum heimspeki-
deUdar Háskóla íslands mánu-
daginn 26. október 1992 kl. 17.15
í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn nefnist Schiffbau
und Seeschiffahrt in der Odermund-
ung im 7.-12. Jahrhundert og fjall-
ar um skipasmíðar og skipaferðir
við mynni Oder-fljóts á fyrri hluta
miðalda.
muna og nýjum félagsmiðstöðvum
íjölgað. Reykjavíkurborg rekur nú
félagsstarf á 13 stöðum í borginni
og er öldraðum boðið upp á fjöl-
breytt námskeið og margvíslega
þjónustu. Nægir að nefna handa-
vinnu af ýimsu tagi, smíðar, bók-
band, dans, leiklist, myndlist, kór-
starfsemi, leirkerasmíði, íþróttir,
Myndin Kona með
páfagauksýnd
í bíósal MÍR
Kvimyndasýning verður í bíósal
MÍR, Vatnsstíg 10, nk. sunnudag,
25. október, kl. 16. Sýnd verður
kvikmyndin Kona með páfagauk
sem gerð var í Dovtsjenko-kvik-
myndaverinu í Kænugarði, höfuð-
borg Úkraínu, fyrir nokkmm ámm.
Leikstjóri er Andrej Pratsjenko.
Skýringar með myndinni em fluttar
á ensku. Aðgangur er öllum heim-
ill og ókeypis.
spilamennsku, körfugerð og
enskukennslu. Þá er einnig unnt
að fá þjónustu eins og hárgreiðsiu,
andlitssnyrtingu, fótsnyrtingu og
böðum á flestum félagsmiðstöðv-
unum.
Öldmnarþjónustudeild Félags-
málastofnunar gefur út fréttabréf
um málefni aldraðra, sem sent er
öllum Reykvíkingum, 67 ára og
eldri, ijómm sinnum á ári.
Þriðja tölublað 7. árgangs hefur
nú verið sent til aldraðra og segir
þar frá öllum félagsmiðstöðvunum
í höfuðborginni, rifjaðar em upp
minningar frá liðnu sumri í máli
og myndum, ljóð birt eftir þátttak-
endur í félagsstarfinu og minnir á
rannsóknarverkefni norrænu ráð-
herranefndarinnar um aldraðar
konur á Norðurlöndum, sem Sig-
ríður Jónsdóttir, félagsfræðingur
kynnti á liðnu sumri.
Allir Reykvíkingar, 67 ára og
eldri, em velkomnir í félags- og
tómstundastarf hjá Reykjavíkur-
borg, hvar sem er í borginni.
(Fréttatilkynning)
Sýningin Jómsvíkingar
SÝNINGIN Jómsvíkingar verður opnuð í dag, laugardaginn 24. októ-
ber, í Þjóðmipjasafni íslands. Sýning þessi kemur frá Þjóðmiqjasafn-
inu i Szczecin í Póllandi. Á henni getur að líta fjölda gripa sem
grafnir hafa verið upp á síðustu fjörtíu ára tímabili i bænum Wolín,
sem stendur við mynni Oderfþ'óts.
Dr. Filipowiak er kominn hingað
til lands í tilefni pólsku sýningarinn-
ar Jómsvíkingar, sem opnuð verður
24. október í Þjóðminjasafni ís-
lands. Fjallar sýningin um fomleifa-
rannsóknir í Wolin, sem hafa staðið
í §ömtíu ár, en þar hafa komið í
ljós leifar þéttrar byggðar frá mið-
öldum. Margir fræðimenn em þeirr-
ar skoðunar að um sé að ræða leif-
ar hinnar fomu Jómsborgar sem
getið er í Jómsvíkingasögu.
Fyrirlesturihn verður fluttur á
þýsku og er öllum opinn.
í Wolín em leifar verslunarborg-
ar sem staðið hefur frá 7. öld og
fram eftir miðöldum. Munirnir em
af ýmsu tagi. Mikið er af hversdags-
munum og minjum um handiðnir.
Þá er þar að finna kvenskart og
gripi víðs vegar að eins og vænta
má því að til Wolínar hafa menn
komið víðsvegar að í verslunarer-
indum. Sumir gripanna bera norræn
einkenni, slavnesk og baltnesk enn
aðrir keltnesk og sumir em austan
úr Asíu. Á sýningunni em átta lík-
ön af húsum og virkisveggjum auk
korta og ljósmynda.
Virkinu Jómsborg er Iýst í Jóms-
víkingasögu og víðar getið í fomrit-
um. Staðsetning þess er þó ekki
tilgreind nákvæmar en að það væri
við sunnanvert Eystrasalt. Líkur
benda nú til að virkið hafí einmitt
staðið við Wolín sem um árið 1000
var mesta verslunarborg á þeim
slóðum.
Sýning þessi var hönnuð á safii-
inu Szczecin og hefur verið sýnd á
nokkmm stöðum í Danmörku og í
Svíþjóð. Hún ber pólskum safn-
mönnum gott vitni þar sem einkar
vel er vandað til alls frágangs henn-
ar. Hér em einmitt staddir tveir
þeirra. Annar þeirra er dr. Wlad-
Kirkjudag-
ur Bessa-
staðasóknar
HINN árlegi kirkjudagur f*
Bessastaðasókn er á sunnudag-
inn kemur, hinn 25. október, og
hefst hann með Guðsþjónustu í
Bessastaðakirkju kl. 14. Séra
Bragi Friðriksson sóknarprestur
þjónar fyrir altari.
Álftaneskórinn ásamt kammer-
sveit flytja Missa Brevls, K.V. 220
eftir Mozart. Stómandi er John
Speight og konsertmeistari er Sean
Bradley. Flytjendur verða Þómnn
Guðmundsdóttir sópran, Hrafnhild-
ur Guðmundsdóttir alt, Guðlaugur
Viktorsson tenór og Tómas Tómas- •
son bassi. Organisti er Þorvaldur
Bjömsson.
Róbert Amfinnsson leikari les
ljóð. Heiðursgestir safnaðarins em
fermingarböm í Bessastaðakirkju
árið 1942. Kvenfélag Bessastaða-
hrepps verður með sína árlegu
kaffísölu til styrktar Líknarsjóðnum
að lokinni guðsþjónustu. Kaffisalan
verður í hátíðarsal fþróttahússins
og vill sóknamefnd hvetja alla
hreppsbúa til að sýna nú viljann í
verki og styrkja Líknarsjóðinn með
því að koma í kaffi.
-----♦ ♦ »
Norræna húsið
Dönsk barna-
kvikmynd
DANSKA myndin „Hojda fra
Pjort“ sem gerð er eftir sögu
Ole Lund Kirkegaard verður
sýnd sunnudaginn 25. október
kl. 14 í Norræna húsinu.
í þessari mynd kynnumst við
Hojda sem býr í framandi landi og
ferðast um á fljúgandi tepþi, teppi
sem margir fullorðnir reyna að
komast yfír. Hann og vinkona hans
Smaragd lenda í ýmsum ævintýmm
á leiðinni um lofdn blá. Eins og í
öllum spennandi ævintýram er hér
um baráttu góðs og ills að ræða.
Myndin er ætluð eldri bömum
og er hún um 76 mín. löng með
dönsku tali. Allir em velkomnir og
er aðgangur ókeypis.
-----»-»-4----
Gönguferð um
Hafnarfjörð
á sunnudag
SKÁTAFÉLAGIÐ Hraunbúar í
Hafnarfirði hafa staðið fyrir
stuttum gönguferðum fyrir al-
menning um Hafnarfjörð síðasta
sunnudag í hverjum mánuði.
7. Hafnaríjarðargangan verður
nú á sunnudaginn 25. október. Lagt
verður af stað kl. 14 frá Hafnar-
borg og að þessu sinni verður geng-
ið upp með læknum undir forystu
formanns bæjarráðs, Ingvars Vikt-
orssonar, og Magnúsar Más Júlíus-
sonar kennara. Gangan hentar öll-
um, ungum sem öldnum, og mun
taka um IV2 klst.
opnai' í dag’
islaw Filipowiak, fomleifafræðing-
ur, sem hefur í fjöratíu ár unnið
við rannsóknir í Wolín jafnframt
því sem hann er forstöðumaður
safnsins í Szczecin. Dr. Filipowiak
flytur tvo fyrirlestra hér á landi.
Þaann fyrri Á sunnudaginn kemur
kl 17 í Þjóðminjasafni íslands og
nefnir hann fyrirlesturinn: Wolín -
Jómsborg í ljósi fomleifarannsókna
og þann síðari flytur hann í boði
Heimspekideildar Háskóla íslands
mánudaginn 26. október kl. 17.15
í stofu 101 í Odda. Sá fyrirlestur
nefnist: Skipasmíði og siglingar við
mynni Oder á 7.-12. öld.
Sýningin verður opin á þriðjudög-
um, fímmtudögum, laugardögum
og sunnudögum kl. 12-16. Hún
stendur til 13. desember.
(Fréttatilkynning)