Morgunblaðið - 24.10.1992, Síða 33

Morgunblaðið - 24.10.1992, Síða 33
seei flaaóTao .t»s HUDAQaAOUAJ gigA,iavnjpflOM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992 Minning Hjörleifur Vilhjálms- son bóndi, Tungufelli Þegar ég frétti að Hjörleifur Vil- hjálmsson væri látinn kom það mjög á óvart. Þótt hann væri kominn á níræðisaldur var heilsa hans svo góð og lífsáhugi slíkur að engum gat dottið annað í hug en hann ætti enn eftir mörg ár ólifuð. En enginn má sköpum renna og flest- um mun þykja það álqósanleg leið úr þessum heimi að fara svo skjótt og átakalítið sem hann gerði og halda öllu sínu fr£un undir síðasta dag. Hjörleifur fæddist 22. janúar 1909 á Tungufelli í Lundarreykja- dal. Foreldrar hans voru Vilhjálmur Hannesson bóndi á Tungufelli og kona hans Guðrún Guðnadóttir. Þau voru bæði ættuð úr Reykholtsdal. Hjörleifur var yngstur 6 systkina, sem voru Hjörtur, Guðni, Hannes, Þorsteinn og Kristín. Sambýliskona hans var Olga Þorbjörg Júlíusdóttir frá Karlsstöðum í Auðkúluhreppi og áttu þau þijú böm, Júlíus, Kol- brúnu og Vilhjálm. Hjörleifur naut skammrar skólagöngu eins og títt var um þeirrar tíðar alþýðumenn. Hann var háifan vetur í Héraðsskól- anum á Reykholti og hefði vel get- að hugsað sér þar lengri dvöl en iífíð kallaði hann annað. Hjörleifur bjó alla tíð á Tungu- felli. Sinnti hann þar búskap, fyrst í samstarfi við föður sinn, en síðar á eigin vegum. Hann starfaði einn- ig um árabil við vegavinnu og var þar verkstjöri. Hjörleifur var orðinn aldraður maður þegar ég kynntist honum, en atvikin höguðu því svo tii að þau kynni urðu býsna náin og mun ég jafnan minnast hans með hlýju. Hann var mjög myndar- legur maður, grannvaxinn og bein- vaxinn, dökkur á brún og brá, aug- un snör og dökk. Atgervismaður í íþróttum var hann á yngri árum og keppti í hlaupum heima í héraði og í Reykjavík. Það var yfír honum suðrænt yfirbragð og giiti það einn- ig um lundarfarið. Hann gat verið snöggur upp á lagið, en fljótur til sátta ef eitthvað bar á milli, glað- sinna og naut þess að spjalla og hlæja í góðum hópi. Hann var laus við hnýsni og illkvittni í garð náung- ans, raungóður og kom manni oft á óvart með kurteisi sinni og nær- gætni. í andanum var hann sjálf- stæður eins og margir þeir, sem ala aldur sinn við víðáttu íslenskra heiða og í félagsskap við sauðkind- ina umdeildu. Hann var sannur bóndi af gamla skólanum. Reglu- gerðir, vísitölur og nefndarstörf höfðu ákafiega lítið aðdráttarafl fyrir Hjörleif Vilhjálmsson og lái honum hver sem vill. Má vera að hann af þeim sökum hafí fallið ekki alls kostar vel að hinum sovésku búskaparháttum nútímans. Hins vegar hafði hann gaman af skepn- um. Ef frá er talin ást hans á bömum sínum og vandamönnum áttu hestar hug hans allan, og lét hann sér annt um ræktun hrossa sinna aila ævi. Hann gat rakið ættir Tungu- fellshrossa til síðustu aldamóta og var minni hans með ólíkindum í þessu efni. Margir hafa eignast góðan gæðing frá Tungufelli og enn eru víða um land góð hross þaðan komin. Hross Hjörleifs voru sérstök fyrir það hve mörg þeirra voru rauð- skjótt og gaf það hjörðinni svolítið ævintýralegan blæ, sem átti ekki illa við eigandann. Neitaði hann því þó jafnan að honum væri skjótt hross þóknanlegri en önnur, en það sagði nú séra Guðmundur einnig um Séraguðmundarkynið. Þa*y-' hross sem Hjörleifur mat öðrum meira var meri ein vestan úr Dölum er Drusla nefndist og Hjörleifur sýndi sem ungur maður á Þingvalla- móti. Taldi hann að flest það besta í sínum hrossum mætti rekja til merar þessarar. Margt skemmtilegt spjall áttum við Hjörleifur um þessi efhi og varð sú efnisskrá seint tæmd. Ef til er annað líf á ég þá ósk besta að Hjörleifur megi eyða því í félagsskap slrjóttra gæðinga og glaðværra hestamanna. Öllum aðstandendum Hjörleifs votta ég. , mína dýpstu samúð. Finnur Torfí Stefánsson, Tungufelli. GOODpYEAR VETRARHJÓLBARÐAR FLAGGSKIPIÐ okkar fæst t helstu bóka- og tölvuverslunum. En ef þú vilt fá virkilega góð kjör er lausnin TAI\/IIBC>KA IVLVUKLUBBURINN Við bjóðum 20% afslátt frá búðarverði og förum ekki í taugarnar á þér, því þú þarft aldrei að afpanta. Engar kvaðir. Aðeins gott verð og gæði. Sem dæmi má nefna að bók mánaðarins, hin 200 bls. bók um Word 2.0Jcostar 2.490 í verslun en 1.992 í klúbbnum, sem er 808 kr. lægra en sú dýrasta á markaðinum. Væntanlegar eru bækur um WordPerfect fyrir Windows og Excel. Hringdu núna (já, þótt það sé laugardagur). Þú heíúr engu að tapa: Bókaúlgáfan Q ^ u~3aldamot 3 I 65 08 44 1h~ G O ODýYEAR 60 ÁR Á ÍSLANDI UMBOÐSMENN UM LAND ALLT m HEKLA F0SSHÁLSI 27 SÍMI 695560 674363 sma FÉLAGSLÍF Frá Sálarrannsóknafélagi íslands Opið hús verður haldið fyrir fé- lagsmenn í húsi Sálarrann- sóknafélags fslands I Garða- stræti 8, laugardaginn 24. októ- ber og laugardaginn 31. októ- ber, kl. 14.00-16.00. Þriggja kvölda slökunar-, hug- leiðslu- og fræðslunámskeið Önnu Herskind hefst þriöjudag- inn 27. október nk. kl. 19.30. Bókanir eru hafnar í slmum skrif- stofunnar, 18130 og 618130. Stjórnin. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Dagskrá vikunnar framundan: Sunnudagur: Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Sunnudagaskóli á sama tíma. Miðvikudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Föstudagur: Unglingasamkoma kl. 20.30. Laugardagur: Bænasamkoma kl. 20.30. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 • SÍMI 68253? Sunnudagsferðir 25. október kl. 13 Vetri heilsað í Ferðafélagsferðum. 1. Vffilsfell (655 m.y.s.). Fjall- ganga á eitt af bestu útsýnisfjöll- um Suðvestanlands. 2. Eldborgir-Jósepsdalur. Auð- veld ganga austan Bláfjalla og um Ólafsskarð I Jósepsdal. Verð 1.200,- kr. Með afmælisafslætti til félagsmanna, kr. 1.000,-. (F.í. 65 ára 27. nóv.). Brottför frá BSl, austanmegin (stansað við hús Ferðafélagsins í Mörkinnl 6). Gönguferð er góö íþrótt. Gerist félagar ( Ferðafélaginu. Næsta myndakvöld verður í Sóknarsalnum miðvikudags- kvöldið 4. nóvember. Ferðafélag íslands. Frá Guöspeki- félaginu Ingótfmatrati 22. Aakrtftaraiml Qanglara ar 39573. I dag kl. 15 til 18 e.h. veröur opið hús með kaffi og kökum fyrir félagsmenn og velunnara í tilefni af endurbótum efri hæðar húss félagsins í Ingólfsstræti 22. Skyggnilýsingafundur Þórhallur Guðmundsson, miðill, heldur skyggnilýsingafund þriðju- daginn 27. október i Akógessaln- um, Sigtúni 3, kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 19.30. * VEGURINN v Krístiö samfélag Smiðjuvegi 5, Kópavogi Lofgjörðarnámskeið með Tom Inglis frá Suður-Afríku hefst kl. 10.00. Allir eru hvattir til að mæta og vera með á þessu ein- staka námskeiði. Kennt verður til kl. 18.00 en þó með hlóum. Samkoma kl. 21.00 þar sem Tom Inglis þjónar. Allir velkomnir. UTIVIST Hallveigarstig 1 «simi 614330 Dagsferð sunnud. 25. okt. Kl. 10.30 Fjörugangan 5. áfangi. Gengið verður af Stapanum, fjaran I Vogavíkinni skoðuð, síð- an gengið að Kálfatjörn. Rúta fylgir hópnum allan timann. Verð kr. 1.400/1.300. Heilsið vetri í ferð með Útivist.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.