Morgunblaðið - 24.10.1992, Side 35
sambandi að hross á íslandi fái
mjög misjafnt uppeldi.
En voru danir sammála um að
hætta að nota BLUP-ið og verður
Asser nú fyrir svörum.
„Sumir voru auðvitað mjög
áhugasamir um BLUP-ið en við
vitum að það eru margir sem rækta
við skrifborðið. Þá á ég við að menn
taka ákvarðanir nær eingöngu út
frá ættartölum, einkunnum eða
kynbótamati og taldi þetta fólk að
við gerðum best í því að nota BLUP-
ið á einhvem hátt. Þetta var rætt
mikið og niðurstaðan varð sú að
við ákváðum að nota það ekki um
sinn en ég veit að við verðum að
halla okkur að því þegar fram líða
stundir og sér í lagi ef íslendingar
halda áfram að nota það.“
Umræðan opnari á íslandi
Rolf telur íslendinga miklu opn-
ari í umræðunni um kosti og galla
einstakra kynbótahrossa. „Danir
em viðkvæmari fyrir gagnrýni á
hestana sína. Þorkell Bjamason er
ekkert að skafa utan af því þegar
hann jafnvel segir um hesta sem
fengið hafa 1. verðlaun að þeir séu
ekki æskilegir í ræktun. Ef einhver
ætlar að kveða upp slíka dóma hér
í Danmörku á sá sami á hættu að
móðga eiganda eða aðdáendur
hestsins sem um ræðir og þetta
geta verið góðir vinir hans en verða
það tæplega á eftir,“ segir Rolf og
Asser nefnir að reiðmenn á íslandi
séu einnig miklu opinskárri um
hrossin sem þeir era að þjálfa og
sýna. „Við gagnrýnum aldrei ann-
arra hross opinberlega, en að sjálf-
sögðu höfum við skoðanir á einstök-
um gripum og ræðum það í þröng-
um hóp,“ segir Asser.
Sami fótabúnaður á kyn-
bóta- og keppnishross
Þessu næst berst talið að háu
tölunum í Þýskalandi og era þeir
feðgar sammála um að Þjóðverjar
gefi hærri einkunnir en Danir. Ass-
er telur þó að Þjóðveijar geri góðan
greinarmun á góðu og lélegu hross-
unum og Rolf bendir á að reglur
um fótabúnað kynbótahrossa í
Þýskalandi séu eftir því sem hann
viti best mjög fijálslegar og það
eitt geti skekkt rétta mynd af hross-
inu.
Of háar tölur á HM
Þá vora þeir feðgar spurðir hvort
þeir væru ánægðir með kynbóta-
dómana á síðasta heimsmeistara-
móti og er Asser fljótur til svars:
„Nei og aftur nei,“ segir hann, „eitt
stórt nei, einkunnimar voru aíltof
háar og nú er ég kominn í vand-
ræði,“ segir Asser, því hæst dæmdi
hesturinn á mótinu var frá Dan-
mörku. „Þessi hestur fékk þrisvar
dóm hér í Danmörku og var alltaf
undir 8 fyrir hæfíleika en þama
fékk hann 8,43. Þama á mótinu
kom líka vel í ljós að Svíar og tjóð-
veijar eiga samleið með háu tölum-
ar. Enginn dómari frá íslandi var
5 dómnefndinni en ég tel að það
hefði verið mjög til bóta því góður
íslenskur dómari hefði komið þeim
á jörðina. Við viljum halda okkur á
sömu nótunum og íslendingar í ein-
kunnagjöf, sem sagt að halda okkur
við jörðina," segir Asser.
Töltið „blífur“
Þegar Asser og Rolf vora spurð-
ir hvort þeir væra að rækta fýrir
markaðinn sögðu þeir ekki svo vera.
Það væri mjög erfitt að rækta sér-
staklega fyrir markaðinn sem að
stærstum hluta vildi fá miðlungs-
hesta, hesta sem væru öruggir á
tölti, með gott geðslag og miðlungs-
vilja. Töldu þeir að ef ræktað væri
fyrst og fremst fyrir markaðinn
væri alltaf hætta á að menn sætu
uppi með hross undir meðallagi og
því þurfí alltaf að vera með hross
yfir meðallagi í ræktuninni og
stefna hátt bæði hvað varðar vilja
og getu. Þá voru þeir sammála um
að leggja beri mesta áherslu á rækt-
un töltsins og nefndu í því sam-
bandi skynsemi íslendinga í að auka
vægi töltsins um helming og vonuð-
ust þeir til að það yrði einnig gert
í Danmörku, því töltið væri það
dýrmætasta í íslenska hestinum.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR .24. OKTÓBER 1992
35
Jíltóáur
r
a
morgun
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Prófastur
vísiterar. Sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son prófastur prédikar. Kirkjubíllinn
ekur. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Jón Páls-
son cand. theol. prédikar. Organ-
isti: Guðni Þ. Guðmundsson.
Messukaffi Rangæinga. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Prestvígsla kl.
10.30. Biskup íslands herra Ólafur
Skúlason vígir Þóri Jökul Þorsteins-
son, kandidat í guðfræði, sem sett-
ur verður til þjónustu í Grenjastaða-
prestakalli í Suður-Þingeyjarpróf-
astsdæmi. Vígsluvottar sr. Örn
Friðriksson sem lýsir vígslu, sr.
Kristján Valur Ingólfsson rektor, sr.
Sigurður Jónsson sóknarprestur og
sr. Hjalti Guðmundsson Dómkirkju-
prestur, sem annast altarisþjón-
ustu. Dómkórinn syngur. Organleik-
ari: Marteinn H. Friðriksson. Barna-
starf í safnaðarheimilinu á sama
tíma. Kirkjubíllinn fer um Vesturbæ-
inn. Síðdegisguðsþjónusta kl. 17.
Forsöngvari Svala Nielsen. Organ-
leikari: Marteinn H. Friðriksson.
Jakob Á. Hjálmarsson.
ELLIHEIMILiÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10. Ólafur Jóhannsson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 11. Yngri börnin niðri og eldri
börnin uppi. Mikill söngur, fræðsla
og leikræn tjáning. Messa kl. 14.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Org-
anisti: Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslusam-
vera kl. 10. Bigurður Pálsson. Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Altarisganga.
Barnasamkoma. Ragnar Fjalar Lár-
usson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa
kl. 10. Arngrímur Jónsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer
um Hlíðar og Suðurhlíðar á undan
og eftir messu. Messa kl. 14. Tóm-
as Sveinsson. Gídeonfélagar koma
í heimsókn. Bjarni Gunnarsson
prédikar.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Ólöf Ólafsdóttir. Kór
Langholtskirkju (hópur V) syngur.
Organisti: Þóra V. Guðmundsdóttir.
Barnastarf á sama tíma. Kaffisopi
eftir guðsþjónustu.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sigrún Óskarsdóttir.
Börn úr 10—12 ára starfi aðstoða.
Barnastarf á sama tíma undir stjórn
Þórarins Björnssonar. Heitt á könn-
unni eftir guðsþjónustu.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Guðsþjónusta kl.
14. Frank M. Halldórsson. Basar
og kaffisala kvenfélags Neskirkju
eftir guðsþjónustu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Ingólfur Guð-
mundsson. Organisti: Hákon Leifs-
son. Barnastarf á sama tíma í um-
sjá Eirnýjar, Báru og Evu.
ARBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Sigrún Steingríms-
dóttir. Sunnudagaskóli Árbæjar-
safnaðarkl. 11 íÁrtúnsskóla, Selás-
skóla og safnaðarheimili Árbæjar-
kirkju. Fyrirbænastund miðvikudag
kl. 16.30. Guðmundur Þorsteins-
son.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
11. Organisti Daníel Jónasson. Kl.
20.30 samkoma á vegum Ungs
fólks með hlutverk. Ræðumaður:
Ársæll Þórðarson. Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 14. Þorþergur
Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjón Sig-
fúsar B. Ingvasonar og Guðrúnar
Magnúsdóttur. Guðsþjónusta á
sama tíma. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Barnaguðsþjónusta kl. 11 í Félags-
miðstöðinni Fjörgyn. Guðfræði-
nemarnir Elínborg og Guðmunda
aðstoða. Útvarpsmessa kl. 11. Ath.
breyttan messutíma. Einsöngur:
Ingveldur Hjaltested. Einleikur á
básúnu: Einar Jónsson. Organisti:
Sigurbjörg Helgadóttir. Guðsþjón-
ustan verður í Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn en barnaguðsþjónustan
verður á efri hæð félagsmiðstöðv-
arinnar. Vigfús Þór Árnason.
HJALLAPRESTAKALL: Messusal-
ur Hjallasóknar Digranesskóla. Bar-
naguðsþjónusta kl. 11. Foreldrar
eru hvattir til þátttöku ásamt börn-
um sínum. Guðsþjónusta kl. 14.
Fermingarbörn aðstoða við guðs-
þjónustuna. Kór Hjallasóknar syng-
ur. Organisti: Oddný Þorsteinsdótt-
ir. Kristján Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Fjöl-
skylduguðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11. Kór kirkjunnar syngur
ásamt litla kór Kársnesskóla undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur kór-
stjóra. Organisti: Stefán R. Gísla-
son. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Altaris-
ganga. Organisti: Kjartan Sigur-
jónsson. Molasopi eftir guðsþjón-
ustuna. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN RVÍK: Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Lárus Halldórsson. Mið-
vikudag 28. október morgunandakt
kl. 7.30. Organisti Pavel Smid. Cec-
il Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugar-
daga messa kl. 14 og ensk messa
kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Laugardaga messa kl. 14.
Fimmtudaga messa kl. 19.30. Aðra
rúmhelga daga messa kl. 18.30.
Guðspjall dagsins:
Matt. 9.:
Jesús læknar
hlnn lama
KAPELLA St. Jósefssystra:
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
KAPELLA St. Jósefsspftala: Messa
kl. 10.30. Rúmhelga daga messa
kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KAÞÓLSKA KAPELLAN Keflavík:
Messa kl. 16.
KFUM/KFUK-SIK. Háaleitisbraut
58—60. Almenn samkoma kl.
20.30. Bjarni Randver Sigurvinsson
byrjar samkomuna og Valgerður
Gísladóttir hefur frásöguþátt.
Ræðumaður: Halldóra Lára Ás-
geirsdóttir. „Góðu fréttirnar" leika.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelffa:
Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu-
maður: Hafliði Kristinsson. Barna-
gæsla. Sunnudagaskóli á sama
tíma.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma á sunnudag kl. 17.
Ræðumaður: Heiðar Jakobsson.
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa
í Mosfellskirkju kl. 14. Altarisganga.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Skólabíllinn fer venjulega leið.
Jón Þorsteinsson.
GARÐASÓKN: Biblíukynning í dag,
í Kirkjuhvoli, kl. 13, í umsjá sr. Sig-
urðar Pálssonar. Sunnudagaskóli í
Kirkjuhvoli kl. 13. Guðsþjónusta í
Garðakirkju kl. 14. Barnakór Tón-
listarskólans í Hafnarfirði syngur.
Stjórnandi: Guðrún Ásbjörnsdóttir.
Fermingarbörn aðstoða. Bragi Frið-
riksson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti:
Helgi Bragason. Þórhildur Ólafs-
dóttir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Messa kl. 14. Prestur sr.
Einar Eyjólfsson. Kór Víðistaða-
sóknar syngur. Organisti: Úlrik Óla-
son.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Einar Eyjólfs-
son.
VEGURINN kristið samfélag,
Smiðjuvegi 5, Kópavogi:
HJÁLPRÆÐISHERINN: Dagur
Heimilasambandsins. Kl. 11 Helg-
unarsamkoma. Kl. 18 Kaffisamsæti
fyrir heimilasambandssystur í
Garðastræti 40. Kl. 19.30 Bæn. Kl.
20 Hjálpræðissamkoma. Major
Anne Gurine Óskarsson talar.
Heimilasambandssysturnar syngja
og vitna.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli
í Stóru-Vogaskóla í dag kl. 11.
Sóknarprestur.
BESSASTAÐASÓKN: Kirkjudagur.
Helgisamkoma kl. 14. Bragi Frið-
riksson.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnasamkoma kl. 10.30.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 11.15. Barnakór undir
stjórn Steinars Guðmundssonar
syngur. Guðsþjónusta kl. 14. Baidur
Rafn Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Munið skólaþflinn.
Messa kl. 14, altarisganga. Kirkju-
dagur eldri borgara. Systrafélagið
býður til kaffidrykkju í Kirkjulundi
eftir messu. Skátar í St. Georgsgild-
inu sækja einnig guðsþjónustuna
og lesa lexíu og pistil. Rútubíll fer
um Suðurgötu og Faxabraut og
ekur fólki til kirkju og heim eftir
kaffisamsætið.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 10.30. Messa kl. 14. SvavarStef-
ánsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.
AKRANESKIRKJA: Barnasamkoma
í dag, laugardag, kl. 11 í umsjá
Hauks Jpnassonar. Kirkjuskóli
yngstu barnanna í dag í safnaðar-
heimilinu kl. 13 í umsjá Axels Gú-
stafssonar. Messa sunnudag kl. 14.
Altarisganga. Messa á dvalarheim-
ilinu Höfða kl. 12.45. Björn Jónsson.
ÚTBOÐ
Óskum að taka á leigu húsnæði og tómstundaaðstöðu fyrir
bandaríska starfsmenn varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Staðstening verður að vera:
- Innan tveggja og hálfs stundar akstur frá Keflavíkurflugvelli.
- í sveitaumhverfi. .
- Ca. 15 km. fjarlægð frá silungsveiðisvæði.
fbúðarhús verða að hafa:
- Átta svefnherbergi.
- Eldhús með tveimur eldavélum og boröstofu.
- Gufubað.
- Geymsluherbergi.
- Kæli/frystiskáp.
- Þvottaherbergi.
- Þrjú snyrtiherbergi (tvö þeirra fullkomin með salerni,
baðkari eða sturtu).
Byggingin verður að vera í samræmi við allar bygginga- og
skipulagsreglur.
Staðsetningarkröfur:
- Tjaldstæði, nægileg fyrir 15 tjöld.
- Bílastæði fyrir tuttugu bíla.
- Golfvöllur, eða að minnsta kosti 1/2 hektari til slíkra nota.
- Ca. 300m- hlaða eða geymsluhúsnæði.
Útboðsfrestur er til 5. nóvember 1^92.
Nánari upplýsingar veitir:
VARNARLIÐIÐ PWD PLANNING DIY.,
235 Keflavíkurflugvelli, P.O. Box 216,
c/o Ari Hjörvar. Sími 92-54120, fax 92-57898.
Metsölublaó á hverjum degi!
CHEVROLET CORSICA
amerískan bíl?
bíllinn.
1IILT ÞU OSUIKINN
íiOT.NISl
TUUliQiljý
HÖFÐA8AKKA 9,
112 REYKJAVÍK,
SÍMAR 634000/634050