Morgunblaðið - 24.10.1992, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.10.1992, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992 41 SKAGASTRÖND 40 ára starf við fiskvinnslu Skagaströnd. óhanna jónasdóttir hefur nú um þessar mundir unnið í 40 ár hjá frystihúsi Hólaness hf. Þegar Jóhanna varð 75 ára þann 15. október sl. færði Lárus Ægir Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Hólaness, henni blómavönd í tilefni af þessu tvöfalda afmæli. Jóhanna hefur verið einn tryggasti starfsmaður Hólaness öll þessi 40 ár og þeir eru telj- andi á fíngrum sér dagarnir sem hún hefur ekki verið í vinnu, hafí á annað borð verið vinna. í stuttu spjalli við Morgunblað- ið sagði Jóhann að hún væri heilsuhraust og það væri engin ástæða til að vera heima ef mað- ur gæti mætt í vinnu. „Vinnuað- staðan hefur auðvitað gjörbreyst frá því að ég byijaði. En vinnu- andinn hefur líka breyst mikið. Sérstaklega hafa bónusinn og flæðilínan breytt andrúmsloftinu. Allir hamast við svo bónusinn minnki nú ekki. í gamla daga vann fólkið ekkert verr en það hafði einhvern veginn ekki eins miklar áhyggjur af aurunum." Jóhanna ætlar að hætta að vinna um næstu áramót en hún hefur áhyggjur af framtíð físk- vinnslunrtar í landi eins og fleiri. „Ég get bara ekki komið því inn í hausinn á mér að ekki verði 'unnið í físki hér á Skagaströnd á næstu árum. Það er þá illa komið fyrir þessu þjóðfélagi ef þessi undirstöðuatvinnuvegur leggist af. Hvar á allt þetta físk- vinnslufólk að fá vinnu?“ spurði þessi aldraða heiðurskona að lok- um. - Ó.B. Lárus Ægir Guð- mundsson, fram- kvæmdastjóri, af- hendir Jóhönnu Jónasdóttur blómvönd í tilefni 75 ára afmælis hennar og 40 ára starfsafmælis hjá Hólanesi hf. Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Nýsveinar í trésmíði ásamt meisturum, prófdómurum og forsvarsmönnum Meistarfélags Suðurlands, Fjölbrautaskóla Suðurlands, og Félags byggingarmanna. suðurSnd Nýsveinum afhent sveinsbréf Selfossi. jö nýsveinar í trésmíði fengu afhent sveinsskírteini sitt fyrir skömmu. Þeir stunduðu allir nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands, á tréiðnaðarbraut, ásamt því að starfa hjá trésmíðameistara. Félag bygggingarmanna á Suð- urlandi hélt, eins og venja er, svein- unum hóf í tilefni afhendingarinnar þar sem voru mættir prófdómarar, trésmíðameistarar og forsvars- menn Meistarafélags Suðurlands, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Fé- lags byggingarmanna. í máli þeirra sem fluttu ávörp komu fram hvatningarorð til sveinanna að ástunda starf sitt af samviskusemi því verk þeirra ættu eftir að standa lengi. Þór Vigfússon sagði þann mun helstan á huglægum störfum verklegum að í lok starfsdagsins gæti annar hópurinn bent á það með áþreifanlegum hætti hvað unnið hefði verið og ekki þyrfti að fara í neinar grafgötur með það. Sig. Jóns. KYNNINGAR 6 nýju haust- og vetrarlitunum frá BOURJOIS ▼ Kaupstaöurí Mjódd, laugard. 24. okt. V Mikligaröurv/Holtaveg.flmmtud. 29. okt. | ▼ Hagkaup, Kringlunni, laugard. 31. okt. ▼ Hagkaup, Skeifunni, fimmtud. 5. nóv. # Ársól, Grímsbœ, föstud. 6. nóv. ▼ Sigurboginn, Laugav. 80, laugard. 7. nóv. frá kl. 15-18 virka daga og 13-16 laugardaga. ▼ Gréta Boða, föröunarmeistari eöa # Þórunn Jónsdóttir, föröunarfrœöingur veita faglega ráögjöf um föröun og liti. Veríð velkomin. ÚRAocitó KLUKKU @®SYNING í PERLUNNI 23., 24. OG 25. OKTÓBER 65 ára afmælissýning Úrsmiðafélags íslands Allt það nýjasta í úrum og klukkum frá helstu framleiðendum heims Margir sérstakir og spennandi gripir Gullúr • Silfurúr • Stálúr • Álúr • Plastúr *Títaníumúr Á sýningunni verður sett upp nýtt og gamalt úrsmíða- verkstæði, þar sem hægt er að fá ráðleggingar fagmanns. Safn gamalla og verðmætra úra Tískusýning og lifandi tónlist —— Módelsamtökin sýna úr og klæðnað og hljómsveitin Sigurverkið leikur létta sveiflu laugardag og sunnudag milli kl. 15 og 17 I^V cb ISl RAYMOND WEIL GENEVE ChristianBemani NOBLIA Cartier ftjris PIERPOÍIT GUCCI 1 THOPHV 1 ( VVATCH COLLECTION ] SEIKO OLympiC ORIENT JAZ 4ÍFJUNGHANS t Qw n . OMEGA i „ ROLEX jwe? QiristianDi or ORISfjj Öll fjölskyldan velkomin! Aðgangur ókeypis Ath.: Félagar i Úrmiðafélagi islands veita 17% afmælisafslátt út októbermánuð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.