Morgunblaðið - 24.10.1992, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992
KNATTSPYRNA
Óskar Hrafn og Þórður
æfa hjá Stutlgart
Oskar Hrafn Þorvaldsson úr
KR og Þórður Guðjónsson
frá Akranesi halda á morgun til
Þýskalands þar sem þeir munu
dvelja í viku við æfingar hjá
Stuttgart. Guðjón Þórðarson, faðir
Þórðar, verður með í för en hann
mun fylgjast með æfingunum hjá
Stuttgart.
Ásgeir Sigurvinsson hafði milli-
göngu um að Arnari og Bjarka
Gunnlaugssonum frá Akranesi
yrði boðið til æfinga hjá Stuttg-
art. Þeir hafa nú ákveðið að fara
til Feyenoord í Hollandi og því
valdi Ásgeir þá Óskar Hrafn og
Þórð til fararinnar. Ásgeir sá þá
báða spila með landsliði 21 árs
og yngri gegn Grikkjum á Mosfell-
svelli fyrir skömmu.
Þeir félgar verða í viku í Stuttg-
art og koma heim að æfingum
loknum. Guðjón heldur hins vegar
áfram til Ítalíu og fylgist með
æfingum hjá Roma ásamt Luka
Kostic fyrirliði ÍA, áður en Guðjón
fer til Mónakó þar sem hann mun
sitja ráðstefnu þjálfara úr Evrópu.
Þar verður einnig Bjarni Jóhanns-
son aðstoðarþjálfari Fram.
Óskar Hrafn
Þórður
HAFNABOLTI
KNATTSPYRNA
Visa ísland
styrkir HSÍ
HSÍ og Visa ísland gengu frá
samningi í gær um að HSÍ
hljóti stóra íþróttastyrk Visa á
næsta ári og að Visa verði í ár
aðalstyrktaraðili HSÍ varðandi bik-
arkeppnina. Þessu til staðfestingar
afhenti Einar S. Einarsson fram-
kvæmdastjori Visa íslands, Jóni
Ásgeirssyni formanni HSÍ 500 þús-
und krónur sem hluta af greiðslu
fyrir bikarkeppnina.
URSUT
Handknattleikur
2. deild karla:
HKN-UMFA.............................23:32
Fjölnir - Grótta............20:27
ÍH-Fylkir...................29:29
■Afturelding hafði 18:12 yfir í leikhléi í
Keflavík og er í efsta sæti 2. deildar eftir
flórar umferðir. Breiðablik er í örðu sæti.
FOLK
■ TRAUSTI Ómarsson, knatt-
spymumaður sem gekk til liðs við
Selfyssinga og lék með þeim í 2.
deildinni síðari hluta íslandsmótsins
sl. sumar hefur tilkynnt félaga-
skipti í Víking á nýjan leik.
■ RONDEY Robinson sem leikur
með Njarðvíkingum í körfunni lék
ekki með á móti Haukum á fimmtu-
dagskvöldið. Hann þurfti að fara
til síns heima til að vera við útför
föðurs síns.
PUTTMOT
Opið LJTILÍFS púttmót
sunnudaginn 25. okt. frá kl. 8-20.
Frjáls mæting.
GOLFHEIMUR
Skeifunni 8, 108 Rvik.
Simi 677870
Ríkharður Daðason
Ríkharður
skorinn upp
Ríkharður Daðason, framherji
hjá Fram, _er nú við nám í
Bandaríkjunum. Á föstudaginn ætl-
ar hann að láta skera sig upp vegna
þrálátra meiðsla í hné. Ríkharður
reif liðþófa í sumar og hefur ekki
náð sér góðum síðan og ákvað þvi
að gangast undir uppskurð. í skól-
anum kynntist hann bandarískum
strák og eftir nokkum tíma kom
upp úr kafínu að faðir hans er
þekktur skurðlæknir. Eftir að Rík-
harður hafði athugað málið kom í
ljós að læknar hér heima kannast
við lækninn og mun hann skera
Ríkharð á föstudaginn.
Þrír beint
l
! irslitin í bandaríska hafanboltanum ráðast um helgina. Atlanta Braves og Toronto Blue Jays leika þá einn
eða tvo leiki, allt eftir úrslitum leiksins í kvöld. Liðin hafa ieikið fimm leiki, fyrstu tvo leikina í Atlanta og
vann hvort lið einn leik. Næstu þrír leikir voru leiknir í Toronto og sigraði Toronto í tveimur fyrstu leikjunum
en tapaði þeim þriðja. Það lið sem fyrr sigrar í fjórum leikjum verður meistari og ef Toronto sigrar verður það
í fyrsta sinn í sögu hafnaboltans sem lið utan Bandaríkjanna sigrar. Þetta er reyndar í fyrsta sinn sem lið frá
Kanada kemst í úrslitaleikina. Á myndinni hér að ofan nær Pat Borders hjá Toronto boltanum áður en Mark
Lemke hjá Atlanta kemst í höfn.
Sjónvarpsstöðvamar bjóða báðar
upp á knattspymuleik í beinni
útsendingu um helgina. Blackburn
og Manchester United leika í RÚV
í dag kl. 14 og á morgun leika Int-
er Milan og Juventus kl. 13.30 á
Stöð 2. Á sama tíma verður leikur
VfB Stuttgart og Dynamo Dresden
sýndur hjá RÚV. Stuttgart sigraði
og þótti Eyjólfur Sverrisson leika
sérlega vel. Hann gerði tvö mörk í
leiknum auk þess sem hann vann
vítaspymu fyrir lið sitt.
Leikur Hauka og IBK í úrvals-
deildinni í körfyknattleik verður
sýndur beint á RÚV kl. 16 í dag.
íþróttir helgarinnar
Körfuknattleikur
LAUGARDAGUR
Úrvalsdeild:
íþróttah. Strandg.: Haukar - ÍBK16
l...deild..karla:...............
Akranes: íA - Bolungarvík........14
Egilsstaðir: Höttur-Þór..........14
SUNNUDAGUR Úrvalsdeild:
Borgames: Skallagrímur- Valur..l6
Digranes: UBK-UMFN...............20
Stykkishólmur: Snæfell - KR......20
1. deild karla:
Egilsstaðin Höttur-Þór...........14
Sandg: Reynir - Bolungarv....kl. 14
1. deild kvenna:
Hagaskóli: KR-UMFN...............18
Handknattleikur
Tveir pressuleikir í handknattleik
kvenna verða um helgina. í dag kl.
15 mætast landsliðið og „pressuliðið"
( Ásgarði í Garðabæ og á morgun
mætast liðin á ný á iþróttahúsinu á
Seltjamamesi kl. 16. Miðaverð á leik-
ina er 300 kr. en frítt fyrir 12 ára
og yngri.
Blak
Karlaflokkur:
Hagaskóli: Þróttur - Þróttur ...kl. 14
Kvennaflokkur:
Víkin: Vtkingur - Þróttur N.kl. 16
Golf
Styrktarmót verður hjá GR á sunnu-
daginn ef veður leyfir. Ef það verður
frost í nótt verður völlurinn ekki í
leikhæfu ástandi.
Fyrsta púttmót vetrarins verður í
Golfheimi í Skeifunni 8 á sunnudag-
inn frá kl. 8 árdegis til 20 um kvöldið.
Kella
Mót Lærlinga og Keiluhallarinnar
verður í kvöld kl. 20 í Keiluhöllinni
og á morgun hefst unglingamót fyrir
alla unglina á sama stað kl. 12.30.
Skvass
Fyrsta punktamót vetrarins f
skvassi, verður haldið í Veggsporti
við Gullinbrú í dag og á morgun, á
vegum Skvassfélags Reykjavíkur.
Keppt verður í A- og B-flokki karla
og Á-flokki kvenna.
Almenningsiþróttir
Glímufélagið Ármann gengst í
dag, laugardag, fyrir íþróttadegi f
Laugardalshöll og hefst viðburðurinn
kl. 14. Fulltrúar deilda félagsins sýna
og einnig verður öllum Ármenningum
sem keppt hafa á Ólympíuleikum
veitt viðurkenning.
HANDKNATTLEIKUR
Slerkt pressulið
mætir landsliðinu
TVEIR pressuleikir í handknattleik kvenna fara fram um helgina.
í liði „pressunnar" sem Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfari Fram,
stjórnar, eru fjórir erlendir leikmenn.
Fyrri leikurinn fer fram í dag í
Ásgarði í Garðabæ og hefst kl.
15 og hinn síðari í íþróttahúsinu á
Seltjamarnesi kl. 16 á morgun.
Landsliðshópurinn var birtur í blað-
inu í gær en Guðríður Guðjónsdótt-
ir, þjálfari Fram, sem stjórnar
„pressuliðinu" og valdi hópinn sem
það skipar fyrir hönd Samtaka
íþróttafréttamanna, birti hóp sinn í
gær. Hann er þannig: Marija Sam-
KNATTSPYRNA
ardizja Víkingi, Vezna Tomajek Ár-
manni, írena Skorodogatyhk Val,
Judit Esztergal ÍBV, Kolbrún Jó-
hannsdóttir Fram, Hanna Katrín
Friðriksen Val, Hulda Bjarnadóttir
Selfossi, Auður Hermannsdóttir Sel-
fossi, Elísabet Þorgeirsdóttir Gróttu,
Brynhildur Þorgeirsdóttir Gróttu,
Margrét Vilhjálmsdóttir Stjörnunni,
Sigríður Pálsdóttir KR og Sigurlaug
Benediktsdóttir KR.
Kynning á Partille
Cup mótinu í Svíðþjóð
Á þriðjudag og miðvikudag í
næstu viku verða staddir hér á landi
í boði Úrvals-Útsýnar forvígismenn
Partille Cup handknattleiksmótsins.
Það er haldið í byijun júlí ár hvert
í Partille við Gautaborg og verður
hið næsta það 24. í röðinni. í ár
tóku rúmlega 500 handboltalið frá
30 löndum þátt í mótinu.
Stefan Albrechtson og Gunnar
Quist, aðalstjómendur Partille Cup,
kynna mótið fyrir þjálfurum ungl-
ingaliða, forystumönnum félaga og
foreldraráðum þriðjudaginn 27.
október kl. 18 hjá Úrval-Útsýn,
Álfabakka 16 í Reykjavík. Einnig
geta félög og foreldraráð fengið þá
félaga í heimsókn til sérstakra
kynningarfunda.
Úr fréttatilkynningu.
HANDBOLTI
SJONVARP
i
i
i
í
i
í
i
i
í
i
i
i
(
(
(