Morgunblaðið - 24.10.1992, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 24.10.1992, Blaðsíða 51
08 51^ KNATTSPYRNA Arnarog Bjarki Gunnlaugssynirtil Feyenoord straxef ÍAog hollenskafélagið semja: SGGJ Í138ÖTS0 HUOAQÍIAOUA.J nV\ 1 yífQl QIQAiIfJVÍUOítOM ---- ~ ~ ---------------------------------------- --- MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR IAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992 Hekl að hollenska knatl spyman henti okkur vel • segir Amar. Fulltrúi Feyenoord hér á landi fundar í dag með stjórn Knattspymufélgs ÍA- Arnar 09 BJarkl Gunnlaugssynir. Þeir hafa náð samkomulagi um kaup og kjör við Feyenoord í Hollandi og nú er beðið eftir því hvort hollenska félagið nær að semja við íþróttabandalag Akraness, félag tvíburanna. Færu að minnsta kosti beint inn í hópinn - segir Wim Jansen framkvæmdastjóri hollenska félagsins Wim Jansen hjá Feyenoord var varkár í tali þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær, sagðist þó bjartsýnn á að tvíburamir kæmu til félagsins en aldrei væri neitt öruggt fyrr en búið væri að skrifa undir samning. Reiknið þið með að strákamir fari strax að leika með liðinu ef samningur næst við félag þeirra á íslandi og atvinnuleyfi fæst? „Ég vil lítið um það segja. Mest um vert er að ná samningi og skrifa undir," sagði Jansen, en bætti svo við: „Þeir yrðu að minnsta kosti í hópnum strax.“ Feyenoord, sem komst í undan- úrslit UEFA-keppninnar á síðasta keppnistímabili er í þriðja sæti hollensku úrvalsdeildarinnar eins og er, þegar átta umferðum er lokið. Hefur 12 stig, Twente er í öðru sæti með einu meira og PSV Eindhoven er efst með 14. ARSÞING ISI Ellefu í framboði í kosn- ingu um sex stjómarsæti ÁRSÞING íþróttasambands íslands, hið 61. í röðinni, verður haldið um helgina og fer að þessu sinni fram í Ráðhúsi Reykja- víkur. Þrír eru íframboði til varaforseta og ekki er annað vitað en ellef u verði í f ramboði þegar kosið verður um sex sæti í fram- kvæmdastjórn. TVÍBURARNIR af Akranesi, Am- ar og Bjarki Gunnlaugssynir, hafa gert munnlegt samkomu- lag við forráðamenn hollenska úrvalsdeildarfélagsins Feyeno- ord um að taka tilboði félagsins um tveggja ára atvinnusamn- ing. Þeir eru nrtján ára, fæddir 6. mars 1973. Fulltrúar hol- ' lenska félagsins hafa ekki rætt enn við forráðamann Knatt- spyrnufélags ÍA, að sögn Akur- nesinganna og kom mikil óánægja fram á stjórnarfundi IA í gærkvöldi með vinnubrögð Hollendinganna. Forráðamenn Feyenoord hafa falið Bergi Guðnasyni lögfræðingi að reyna að Ijúka samningum við ÍA og fundar hann með Akurnesing- um í dag. Amar Gunnlaugsson sagði við Morgunblaðið í gær að ýmis- legt hefði orðið til þess að þeir bræð- ur ákváðu að taka tilboði hollenska félagsins frekar en skoða eitthvað annað fiekar, til dæmis að þiggja boð VfB Stuttgart í Þýskalandi um að koma og skoða aðstæður þar, en til stóð að þeir fæm til Þýskalands S þeim erindagjörðum á morgun. „í fyrsta lagi er Feyenoord sterkt félag og hollenski „boltinn" hefur alltaf heillað — ég held hann henti okkur mjög" vel, að minnsta kosti til að byija með. Svo eigum við þokkalega möguleika á að fá að spila,“ sagði Arnar og vísaði til reglna um fjölda útlendinga. Þrír útlendingar mega leika með liðum í hollensku úrvals- deildinni hveiju sinni. Hjá Feyenoord em tveir, en annar þeirra, ungverski framheijinn Joszef Kiprich telst orð- ið heimamaður á knattspymuvellin- um þar sem hann hefur verið hjá félaginu í tvö ár. Hinn erlendi leik- niaðurinn hefur ekki verið í byijun- arliðinu að undanfömu. Mælt með Hollandi „Það má segja að þetta hafi ráðið þessu. Svo höfum við haft samband við fjölmarga menn sem ættu að hafa vit á þessu og allir hafa mælt með Hollandi frekar en Þýskalandi, fyrst 0g fremst fótboltalega séð. Það getur vel verið að það séu meiri tekj- ur í Þýskalandi en menn mega ekki alltaf einblína á það, heldur fyrst og fremst á að ná langt. Við teljum að Holland sé mjög góður stökkpall- ur til þess,“ sagði Amar, en játti því þó að samningurinn sem þeim bræðrum hefði verið boðinn væri mjög hagstæður 0g þeir væm ánægðir. Bjarki og Amar dvöldu hjá Fey- enoord í vikutíma og æfðu daglega mieð aðalliði þess fyrir skemmstu en sáu liðið ekki leika. „Þetta lið var í undanúrslitum Evrópukeppni [bikar- hafa] á síðasta keppnistímabili en tapaði í vítaspymukeppni og Ajáx varð Evrópumeistari [vann UEFA- keppnina]." Hollenskur meistari er nú PSV Eindhoven og sagði Amar öll þessu hollensku félög mjög sterk og meðal þeirra bestu í Evrópu, en mikill munur væri reyndar á þeim og öðmm hollenskum liðum. Vildu semja sem fyrst Þrýstu Hollendingamir ef til vill á ýkkur um að semja sem fyrst þar sem þeir vissu að þið voru á leiðinni til Stuttgart? „Já, þeir vissu að við væmm að fara til Stuttgart og vildu drífa í að semja sem fyrst - það verður að velja og hafna í þessu og við ákváð- um að velja Feyenoord. Við emm mjög sáttir, það þýðir ekkert að vera að væla yfir því núna.“ Ef félögin ná samkomulagi, eins 0g Amar sagðist vonast til að yrði fljótlega, fara tvíburamir strax utan. En reiknar Arnar með að þeir byiji að spila strax og atvinnuleyfí fæst? „Liðið er auðvitað búið að mótast í þeim leikjum sem búnir em í vet- ur, þannig að það er ekki raunhæft að búast við að fara beint inn í lið- ið, þó það gæti verið gaman að kynn- ast því eitthvað. En við stefnum að minnsta kosti á að verða í liðinu á næsta keppnistímabili.“ Forráðamenn ÍA óánægöir Stjórnarfundur var haldinn í knattspymufélagi ÍA í gærkvöldi og kom þar fram mikil óánægja.með vinnubrögð forráðamanna hollenska félagsins, sem forráðamenn ÍA segja að hafi ekki enn haft samband við þá. Bræðumir séu samningsbundnir IA til áramóta og skv. leikmanna- samningi KSÍ geti leikmaður ekki, án leyfis stjórnar félags síns, átt viðræður um félagaskipti éða gengið frá samningum við önnur íslensk eða erlend félög eða umboðsmenn þeirra á samningstímanum. „Ef leikmaður hyggst gera samning við erlent félag skulu samningaviðræður fara fram í samráði eða með þátttöku stjómar félagsins," segir í reglunum. Bergur Guðnason, lögfræðingur og fulltrúi Feyenoord í þessu máli sagðist í gærkvöldi lítið vilja um málið segja annað en að hann von- aðist til að samningar tækjust. „Það er rétt að Feyenoord hefur falið mér að reyna að klára þetta mál gagn- vart IA og í raun er ekki hægt að segja að neinn samningur sé til fyrr en það er búið. Ef ekki tekst að semja við Akranes verður ekkert af þessum samningum," sagði Bergur. Kosningar fara fram á morgun og er þeirra beðið með nokk- urri eftirvæntingu. Ellert B. Schram núverandi forseti ÍSÍ, verður einn í framboði til forseta, eftir því sem best er vitað en þrír bjóða sig fram í kjöri til varaforseta; Magnús Oddsson, formaður íþróttabanda- lags Akraness og Lovísa Einars- dóttir og Katrín Gunnarsdóttir, sem báðar eiga sæti í framkvæmda- stjóm ÍSÍ. Þá verður kosið um sex með: stjómendur í framkvæmdastjóm. í dag em í framkvæmdastjóminni Ellert B. Schram forseti og Friðjón Friðjónsson gjaldkeri auk með- stjómendanna Árna Þórs Ámason- ar, Hannesar Þ. Sigurðssonar, Her- manns Sigtryggssonar, Jóns Ár- manns Héðinssonar, Katrínu Gunn- arsdóttur, Lovísu Einarsdóttur og Sigurðar Jóakimssonar. Þau em sjö þar sem Árni Þór kom inn sem varamaður fyrir Svein Bjömsson er hann lést og Ellert B. Schram, sem var varaforseti, tók við forseta- embættinu en enginn við hans emb- ætti. Allir meðstjómendumir gefa - kost á sér áfram, en vitað er um fjóra að auki sem einnig verða í kjöri: Ágúst Ásgeirsson, fyrrum formann Frjálsíþróttasambands ís- lands, Guðfinn Ólafsson, formann Sundsambandsins, Guðmund Kr. Jónsson, fyrram framkvæmda- stjórnarmann og Hafstein Pálsson, formann UMSK. *"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.