Morgunblaðið - 11.11.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.11.1992, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Skuldastaða sjávar- útvegsins Sjávarútvegurinn hefur svo til alfarið staðið undir efna- hagslegum framförum hér á Iandi á þessari öld. Sú velferð, sem einkennt hefur lífsmáta þjóðarinnar á þessum tíma, var að lang stærstum hluta sótt til sjávar. Það er því áhyggjuefni ef sjávarútvegurinn sætir viðvar- andi tapi, etur upp eigið fé, safn- ar skuldum og hleður á sig fjár- magnskostnaði, eins og raun er á orðin með mörg sjávarútvegs- fyrirtæki. Ástæður þessa eru lélegt ástand fiskistofna, bágur efna- hagur umheimsins, sem segir til sín í verðþróun sjávarvöru, og að á skortir, að sjávarútvegurinn hafi endurskipulagt sig nægjan- lega með hliðsjón af breyttum aðstæðum. Hagdeild Alþýðu- sambands íslands gerir því skóna, að heildarskuldir íslenzks sjávarútvegs verði komnar í 95 milljarði króna áður en árið er á enda. Hafa þær þá hækkað um á sjötta milljarð króna á ár- inu, en þá verður að hafa í huga mikla fjárfestingu í frystiskip- um. Til samanburðar voru bók- færðar heildareignir sjávarút- vegsins 135 milljarðar við síð- ustu áramót. Haft var eftir sjáv- arútvegsráðherra í fréttaskýr- ingu um skuldir sjávarútvegsins hér í blaðinu síðastliðinn sunnu- dag að ætla mætti að fyrirtæki með á milli fimmtung og fjórð- ung umsvifa í sjávarútvegi, sem ættu í mestum erfiðleikum, skulduðu 25 til 30 milljarða króna og að vafalítið tapaðist mikill hluti þeirra. í fréttaskýr- ingunni segir orðrrétt: „Af heildarskuldum sjávarút- vegsins eru um 52 milljarðar í erlendri mynt. Af heildarskuld- um sjávarútvegsins við banka- kerfið og fjárfestingarlánasjóði eru rúmlega 70% lána gengis- tryggð og tæplega 20% verð- tryggð lán. Ef koma á afkomu greinarinnar í núllstöðu með lækkun gengis þyrfti að lág- marki um 20% gengislækkun, sem myndi hækka höfuðstól lán- anna um 12-14 milljarða króna í það minnsta.“ Sá efnahagsvandi, sem við er að etja, er ekki þess eðlis, að hann verði leystur með skyndila- usnum eins og lækkun gengis íslenzku krónunnar. Með slíkri „lausn“ væri og fómað verðmæt- um árangri, sem náðst hefur í hjöðnun verðbólgu og stöðug- leika í launum og verðlagi, auk þess sem með henni væri aðeins tjaldað til einnar nætur. Það er heldur ekkert svigrúm lengur til að halda uppi atvinnu eða standa undir áframhaldandi hallarekstri í ríkisbúskapnum með vaxandi erlendum lánum. Með því hátta- lagi værum við þvert á móti að draga úr möguleikum okkar til að afla fjár til arðbærra fram- kvæmda, þegar skilyrði til hag- vaxtar batna á ný. Afkoman í sjávarútvegsfyrir- tækjum hefur verið mjög mis- munandi. Þrátt fyrir aflasam- drátt, verðlækkanir á sjávarvöru á erlendum mörkuðum og geng- isþróun óhagstæða sjávarútvegi hafa ýmis sjávarútvegsfyrirtæki skilað hagnaði fram á þetta ár. Hjá öðrum hefur viðvarandi tap etið upp eigið fé og hlaðið upp vaxandi skuldum. Nýleg saman- tekt Þjóðhagsstofnunar um dreifingu eiginfjárhlutfalls 164 sjávarútvegsfyrirtækja árið 1991 leiðir í ljós að tæplega þriðjungur þeirra var bæði með neikvæða eiginfjárstöðu og rek- inn með tapi, sem nam að meðal- tali tæplega 10% af tekjum þeirra. Enn hefur sigið á ógæfu- hliðina að þessu leyti. Lokaorðin í tilvitnaðri frétta- skýringu hér í blaðinu voru: „Bankamir búa sig þannig undir veruleg töp á næstu mán- uðum. Hagdeild Alþýðusam- bands íslands telur að fyrirtæki með rúmlega þriðjung veltunnar í sjávarútvegi séu í bráðri hættu, heildarskuldir þeirra nemi 30 milljörðum á sama tíma og eigið fé sé talið innan við hálfur millj- arður. Við gjaldþrot megi reikna með að lágmarkstap yrði yfir helmingur skulda eða 15-20 milljarðar, sem myndu falla á þjónustufyrirtæki, banka, sveit- arfélög og ríki.“ Ef atburðarásin verður sú, sem hér er ýjað að, er hætt við að hrikt geti í stoðum íslenzka fjármálakerfisins. Það er ekki lengur hægt að miða aðgerðir til þess að styrkja stöðu sjávarútvegsins við meðal- tal i rekstrarútkomu sjávarút- vegsfyrirtækja á heildina litið, að öllu öðru óbreyttu. Við verð- um með endurskipulagningu í sjávarútveginum að laga veiði- sókn að veiðiþoli og vinnsluna að tiltæku hráefni. Eða með öðr- um orðum að sækja þann afla, sem fiskfræðileg rök standa til að taka megi úr stofnunum, með sem minnstum tilkostnaði, og vinna hann í þá vöru sem hæst verð gefur. Stjómvöld, sem setja atvinnuvegunum starfsramma, verða síðan að tryggja þeim rekstrarlega- og skattalega jafn- stöðu við samkeppnisgreinar í umheiminum. Sakborningurinn í kókaínmálinu hald- inn geðklofa með ofsóknarívafi Með lífshættulegt magn af kókaíni í blóði við handtöku Læknar vildu vista manninn á sjúkra- húsi en ekki í fangelsi STEINN Ármann Stefánsson, sem ákærður er í kókaínmálinu sem nú er rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur, er haldinn geð- klofa með ofsóknarívafi (schizophrenia paranoid) að því er fram kom í framburði Högna Óskarsson geðlæknis sem framkvæmdi á honum geðrannsókn að ósk dómsins, sem lýsir sér meðal annars með ýmiss konar ranghugmyndum og ofskynjunum. Geðlæknirinn treystir sér ekki til að kveða jafnótvírætt á um sakhæfi Steins Armanns og gert var við geðrannsókn sem fram- kvæmd var árið 1987, einkum vegna þess að um það bil sex vikur liðu frá handtöku þar til geðrannsóknin hófst. í fram- burði geðlæknisins kom fram að við rannsókn á blóðsýni sem tekið var úr ákærða eftir handtökuna hefði komið fram að hann hafi verið undir svo miklum áhrifum kókaíns við hánd- töku að það hafi nálgast Iífshættuleg mörk og að um kókaíneitr- un hafi verið að ræða. Hins vegar sagði læknirinn manninn ekki hafa verið svo háðan efninu að unnt væri að fullyrða að notkun þess hafi framkallað sjúkdóminn eða hraðað þróun hans. Fram kom hjá geðlækninum að eftir handtöku Steins Ármanns hefðu Iæknar fangelsisins í Síðumúla viljað að hann yrði vistað- ur á sjúkrahúsi en ekki í fangelsi en það hefði ekki verið mögu- legt vegna þeirra krafna sem forráðamenn sjúkrahúsa hefðu gert um öryggisgæslu. Fram kom að Högni Óskarsson hefur um árabil stundað Stein Ár- mann vegna sjúkdóms hans, en talið er að 0,8-1,2% þjóðarinnar stríði við geðklofa af einhveiju tagi. Högni gerði á ákærða geðrannsókn fyrir dómstóla árið 1987 og niður- staða þeirrar rannsóknar var tví- mælalaus á þá leið að á þeim tíma væri hann sakhæfur þrátt fyrir sjúkdóminn. Læknirinn taldi útilokað að leggja nú mat á það í hvernig ástandi Steinn hefði verið aðfara- nótt hins 18. ágúst síðastliðins, fyrst og fremst vegna þess að hon- um hefði ekki verið falið að gera geðrannsóknina fyrr en 7. október, þegar Steinn hafði setið í um það bil 7 vikur í einangrun. Að sögn læknisins hafði sú einangrunarvist þá haft mjög skaðleg áhrif á sjúk- dómsástand hans og geðhagi. Kvaðst Högni Óskarsson telja óveijandi að maðurinn væri enn hafður í einangrun í fangelsi. Fíkniefnaneysla hafði ekki áhrif á sjúkdóminn Aðspurður hvaða breytingar hefðu orðið á geðheilsu mannsins frá fyrri gerðrannsókn árið 1987 sagði Högni Óskarsson að frá þeim tíma hefði ástand Steins farið hægt versnandi. Komið hefðu tímabil þar sem hann hefði verið illa veikur auk þess sem langtímaáhrif sjúkdóms- ins hefðu sótt á og leitt meðal ann- ars til þess að félagsleg hæfni hans til þátttöku í samfélaginu hefði skerst. Aðspurður hvort neysla kókaíns eða annarra vímuefna hefði getað haft neikvæð áhrif á þróun sjúkdómsins sagðist læknirinn telja að fíkniefnaneysla ákærða hefði hvorki verið það mikil né stöðugt að hún hefði þar veruleg áhrif. Þá kvaðst hann ekki telja líklegt að slæm líðan mannsins á fyrstu dög- um gæsluvarðhaldsins mætti skýra sem fráhvarfseinkenni eftir hina miklu kókaínneyslu handtökukvöld- ið. Aðspurður hvort áhrifin af því kókaíni, sem ákærði mun hafa tek- ið í þann mund sem handtökutil- raunin við Sundlaugarnar í Laugar- dal var gerð, hefðu getað komið fram meðan á eftirförinni stóð sagði læknirinn að kókaín væri efni sem sogaðist hratt í gegnum slímhúðir líkamans og vel væri hugsanlegt að áhrif kæmu fram á örfáaum mínútum. Fremur með skert sakhæfi en ósakhæfur Þegar Egill Stephensen, sem er saksóknari í málinu, bað Högna Óskarsson að lýsa áliti sínu á sak- hæfí Steins Ármanns kvaðst lækn- irinn telja að 15. grein hegningar- laganna ætti ekki við um ástand mannsins. í þeirri grein segir að þeim mönnum skuli ekki refsað sem sökum geðveiki, andlegs vanþroska eða hrörnunar, rænuskerðingar eða annars samsvarandi ástands hafí verið alls ófærir um að stjóma gerð- um sínum á þeim tíma sem verk var unnið. Geðlæknirinn sagði ljóst að 16. grein hegningarlaganna nálgist það miklu meir að eiga við um Stein Ármann. Þar segir að refsa skuli manni sem unnið hafi verk og sé andlega miður sín, svo sem vegna vanþroska, hrömunar, kynferðis- legs misþroska eða annarar tmflun- ar en þetta ástand sé ekki á eins háu stigi og í fyrrgreindri 15. grein segi, ef ætla megi, að fenginni umsögn læknis, að refsing geti bor- ið árangur. Ákveða megi að sak- borningur skuli taka úr refsingu sína á stofnun ætlaðri slíkum mönn- um. Aðspurður um líkleg áhrif refs- ingar á sjúkdóm mannsins kvaðst Högni telja að þar væri á ferðinni flókið mál sem erfítt væri að ræða um eingöngu í tengslum við þetta ákveðna mál. Óljóst væri hvemig réttargeðdeildin á Sogni yrði í stakk búin til að veita meðferð umfram það sem nauðsynlegt væri vegna vistunar ósakhæfra afbrotamanna. Ef Sogni yrði ætlað eitthvað hlut- verk umfram það lágmark gæti sá kostur orðið góður til vistunar á ákærða. Framtakslaus og öðrum háður í máli veijandans ákærða kom fram að í skýrslu sinni vísi geðlækn- ! MORGUNBLAÐIÐ MIDVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992 23 Morgunblaðið/Kristinn Benedikt Lund Iögreglumaður sem ók lögreglubílnum sem lenti i árekstri við flóttabíl sakborningsins í kókaínmálinu er lengst til vinstri á myndinni að lýsa atburðinum á vettvangi í gær fyrir dómara, verj- anda, sækjanda og lögreglumönnum sem gerðu nýjan uppdrátt af vettvangi. Við hlið hans er Ragnar Aðalsteinsson, hrl., veijandi Steins Armanns Stefánssonar, þá Egill Stepensen, sækjandi, Haraldur Árna- son rannsóknarlögreglumaður sem ljósmyndaði vettvanginn og lengst til hægri er Guðjón St. Marteinsson sakadómari. Að baki mönnunum er Óskar Bjartmarz lögregluþjónn. irinn til þess að ákærði sé framtaks- laus maður sem treyst hafi tálbeit- unni eftir að kynni tókust með þeim. Spurði veijandinn hvort ætla mætti, með hliðsjón af því að ákærði hafí ekki viljað að kókaínið sem hann hafði undir höndum færi á markað hér á landi, að ákærði hefði ekki haft framtak í sér til að koma á viðskiptum með efnið ef tálbeitan hefði ekki leitt hann áfram í þeim efnum. Geðlæknirinn kvaðst ekkert geta fullyrt um þetta atriði en ákærði væri afskaplega háður öðru fólki um flesta hluti og væri fram- taksleysi eitt af langvinnum áhrif- um sjúkdómsins. í máli geðlæknisins kom einnig fram að í viðtölum við ákærða hefði komið fram að hann teldi framtíð sína ráðna, henni væri stjómað af einhveijum æðri öflum og hann fengi sjálfur engu þar um breytt. Þá kom fram að maðurinn væri haldinn ýmsum ranghugmyndum og jafnvel ofskynjunum um líðandi stund og liðna atburði en ekki væri unnt að fullyrða um ástand hans að því leyti dagana fyrir handtöku. Síðasta vitnið sem leitt var í málinu var maður sem staddur var í leigubíl í Ártúnsbrekku þegar hann fékk vitneskju í gegnum fjar- skiptabúnað um árekstur þann sem orðið hefði milli flóttabílsins og lög- reglubílsins á Vesturlandsvegi. Hann ók á staðinn og tók þar 58 ljósmyndir af staðnum, sumar fyrir lögreglu en aðrar er birtust í Morg- unblaðinu. Fram kom að eftir að ljósmyndarinn var kominn á staðinn innan svo skamms tíma að lögreglu- menn voru ekki byijaðir að loka vettvanginn af. Rannsóknarlög- reglumaður á staðnum hafði beðið ljósmyndarann að taka allar þær myndir sem unnt væri til afnota fyrir lögregluna og kvaðst maður- inn hafa tekið 58 ljósmyndir á staðnum, valið úr 21 þeirra og látið lögreglunni í té. Lögreglan lagði svo fram þijár þessara mynda í málinu. Að ósk veijandans voru allar myndirnar lagðar fram eftir þennan framburð mannsins. Sá í fíkniefnin áður en bíllinn var opnaður í framburði hans að öðru leyti kom meðal annars fram að þegar hann kom á staðinn var skuthurð Subaru-bílsins sem Steinn Ármann ók á flóttanum enn lokuð en afturí skut bflsins kvaðst maðurinn hafa séð farangur, þar á meðal þann pakka sem síðar hafí komið í ljós að innihélt fíkniefnin og lýsti hann afstöðu þeirra aftan í bílnum áður en skuthurðin var opnuð. Hins veg- ar gat hann ekki tilgreint hver það hefði verið sem opnaði skuthurð bflsins. Eftir hádegi í gær fóru dómari, sækjandi, veijandi ásamt lögreglu- mönnum og Benedikt Lund, öku- manni lögreglubílsins sem lenti í árekstri við flóttabflinn á Vestur- landsvegi, á vettvang árekstursins og virtu fyrir sér verksummerki en enn sést greinilega móta fyrir för- um eftir áreksturinn í götunni. Meðal annars fór hópurinn að starfsmannahúsi við Skálatúns- heimilið og virti fyrir sér vettvang- inn frá sjónarhorni þess manns sem bar fyrir dómi í fyrradag að hafa séð áreksturinn og aðdraganda hans úr um 700 metra fjarlægð. Það vitni kvaðst hafa séð er lög- reglubifreiðinni var ekið eftir miðj- um vegi og síðan sveigt í veg fýrir flóttabílinn þegar Steinn Ármann hafi reynt að aka fram úr lögreglu- bflnum. Ökumaður lögreglubílsins hefur borið að hafa reynt að aka út af hægra megin til að forðast Subaru-bílinn sem verið hafí á mikl- um hraða og stefnt beint aftan á lögreglubílinn. í framburði þess vitnis er ýmis- legt sem stangast á við það sem lögreglumenn hafa borið, meðal annars kvaðst maðurinn ekki hafa orðið var við óeinkenndar lögreglu- bifreiðar á hæla flóttabflsins og auk þess sá hann aðeins 3-4 lögreglu- menn á vettvangi en fyrir dóm í málinu hefur komið á annan tug lögreglumanna sem lýst hafa störf- um sínum á vettvangi fáum mínút- um eftir áreksturinn. ÞING NORÐURLANDARAÐS I AROSUM Tillögur forsætisráöherra Norðurlandanna ræddar í Norðurlandaráði Flokkarnir yzt á hægri og vinstri væng mótmæla Árósuni. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaðsins. MEIRIHLUTI þingmanna á 41. þingi Norðurlandaráðs tók jákvætt í tillögur forsætisráðherra Norðurlandanna um gagngerar breyting- ar á norrænu samstarfi. Þingmenn úr öllurn flokkahópum innan ráðs- ins hvöttu þó til þess að áhrif þingmanna á ákvarðanir í Norðurlanda- samstarfinu mættu ekki minnka, þótt pólitísk forysta ríkisstjórnanna yrði styrkt. Flokkar yzt á hægri og vinstri væng stjórnmálanna lýstu takmarkaðri ánægju með tillögurnar. Róttæku hægri flokkamir telja Norðurlandaráð óþarft og að samstarf Norðurlanda eigi fyrst og fremst að eiga sér stað innan Evrópska efnahagssvæðisins eða Evr- ópubandalagsins. Þingmenn vinstrisósíalista vilja hins vegar minni áherzlu á Evrópusamstarf og telja að Norðurlandasamstarfið geti komið í stað þess og eigi ekki að verða hluti þess. Tillögur ráðherranna verða ekki lagðar fram til samþykktar fyrr en á þingi Norðurlandaráðs í Ósló í marz á næsta ári. Umræðurnar í gær voru meðal annars ætlaðar tii þess að þingmenn gætu sagt álit sitt á tillögunum áður en þær yrðu samþykktar og framkvæmdar í end- anlegri mynd. Forsætisráðherrarnir vilja sjálfír taka sér stærra hlutverk í mótun og framkvæmd Norður- landasamstarfsins. Þeir leggja til að samstarfinu verði í auknum mæli beint út á við, að samstarfi Evrópuríkja í EES og Evrópubanda- laginu, og að í samstarfí um sérmál Norðurlanda verði lögð áherzla á færri og afmarkaðri svið en nú. Þeir leggja til að pólitísk forysta norrænnar samvinnu verði styrkt, meðal annars með því að eitt land hafi ár í senn á hendi forystu á öllum sviðum starfsins. Frekari endurskoðun eftir inngöngu í EB Ilkka Suominen, forseti Norður- landaráðs, fagnaði tillögum ráð- herranna en lagði jafnframt áherzlu á að þær mættu ekki verða til þess að áhrif ríkisstjórna Norðurland- anna í norrænu samstarf ykjust á kostnað þingmanna. Suominen sagði að ein af þeim forsendum, sem lægju að baki tillögum ráðherranna, væri að öll eða flest Norðurlöndin gengju í Evrópubandalagið. Hægt væri að líta svo á að tengsl Norður- landasamtarfsins við EES væru leyst með tillögum ráðherranna, en þegar Norðurlöndin hefðu gengið lengra í Evrópusamstarfinu þyrfti enn á ný að endurskoða norrænt samstarf í smáatriðum. Halldór Ásgrímsson, varafor- maður Framsóknarflokksins og for- maður íslenzku sendinefndarinnar í Norðurlandaráði, talaði fyrir hönd Miðjuhópsins í ráðinu. Hann sagði að frumkvæði forsætisráðherranna um breytingar á samstarfinu hefði verið tímabært. „Þetta er sérstak- lega mikilvægt nú, þegar öll Norð- urlöndin eru í þann veginn að ganga inn í EES- samninginn," sagði Hall- dór. Hann gagnrýndi hins vegar að í tillögum ráðherranna væri óform- legu samstarfi milli Norðurland- anna gefíð mikið vægi á kostnað hins formlega samstarfs. Hann var- aði einnig við því að áhrif þing- manna á ákvarðanatöku kynnu að minnka. Hann lagði því til að for- sætisnefnd Norðurlandaráðs setti á laggirnar starfshóp, sem ræða myndi þann hluta norræns sam- starfs, sem sneri að þingmönnum og samræma hann þeim breyting- um, sem yrðu á samstarfi ríkis- stjómanna. Jan P. Syse, fyrrverandi forsætis- ráðherra Noregs og talsmaður íhaldsmanna I Norðurlandaráði, sagði að meirihluti þingmanna í Norðurlandaráði viðurkenndi nú að norrænt samstarf gæti aldrei komið í stað Evrópusamstarfsins. „For- sætisráðherrarnir gefa nú til kynna að Norðurlandasamstarfíð hafi tví- þætt eðli. Þar er ég alveg sammála og þannig höfum við íhaldsmenn í Norðurlandaráði alltaf litið á mál- ið,“ sagði Syse. Hann sagði að íhaldsmenn væm í flestu fylgjandi tillögum forsætisráðherranna, en þeir vildu þó afleggja embætti nor- rænu samstarfsráðherranna og fela forsætis-, utanríkis- og fjármála- ráðherrunum verkefni þeirra alfar- ið. „Ég er ánægður með að forsætis- ráðherrarnir hafa gengið myndar- lega til verks í þessum málum og þar með lagt sitt af mörkum til að gera Norðurlönd að öflugra, sam- einuðu afli í nýrri Evrópu," sagði Syse. Handarbakavinnubrögð í Norðurlandasamstarfínu Kirsti Kolle Gröndahl, forseti norska Stórþingsins og talsmaður sósíaldemókrata, sagði tillögur for- sætisráðherranna í flestum atriðum samhljóða yfírlýsingum þingmanna- hóps sósíaldemókrata í Norður- landaráði. Hún sagðist viss um að þær hlytu breiðan og þverpólitískan stuðning í ráðinu. Hún sagði að Norðurlandasamstarfið hefði um árabil einkennzt af handarbaka- vinnubrögðum. Mál, sem ekki hefðu komizt á dagskrá á þjóðþingum Norðurlandanna hefðu verið send á eyðimerkurgöngu í norrænu sam- starfi, útheimt mikla fjármuni og vinnu og loks gufað upp í ekki neitt. Hún lagði til að þjóðþingin vönduðu meira til vals á sendinefndum sínum í Norðurlandaráði og að þær yrðu skipaðar leiðtogum flokkanna á þingi og talsmönnum þeirra í Evr- ópu- og utanríkismálum. Norðurlandaráð verði lagt niður Talsmenn flokkanna yzt á hægri vængnum, Framfaraflokkanna í Noregi ög Danmörku og Nýs lýð- ræðis í Svíþjóð, ítrekuðu fyrri af- stöðu sína um að leggja béri Norð- urlandaráð niður fyrir árið 1996. Flokkarnir telja að form Norður- landasamstarfsins sé úrelt og mark- miðum alþjóðasamstarfs verði að- eins náð í yfírþjóðlegu samstarfi. Carl I. Hagen, formaður Framfara- flokksins í Noregi, sagði að norrænt samstarf í framtíðinni myndi eiga sér stað innan EES eða EB, á vett- vangi ríkisstjórnanna, og ekki væri þörf á þingmannasamkundu á borð við Norðurlandaráð. Hann lýsti stuðningi við tillögur um aukið hlut- verk forsætisráðherranna í norrænu samstarfi, nýtt formennskuhlutverk og fleiri tillögur, sem snerta sam- starf ríkisstjórna Norðurlandanna. EES kemur í veg fyrir að íslendingar fjarlægist Norðurlönd Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra flutti ræðu fyrir hönd Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, sem ekki sá sér fært að koma til Árósa. Friðrik sagði að EES-samningurinn styrkti efnahagslegt og viðskipta- legt samstarf við aðrar þjóðir. Með aðild að honum tækju Islendingar þátt í þróuninni í Evrópu. Friðrik sagði að samningurinn hefði einnig mikla þýðingu fyrir íslendinga vegna þess að hann kæmi í veg fyrir að þeir fjarlægðust aðrar Norðurlandaþjóðir, en þær hafa nú allar nema Islendingar ákveðið að ganga í Evrópubandalagið. Friðrik ræddi þær breytingar, sem hefðu orðið á Norðurlandasam- starfínu varðandi umræður um ör- yggis- og varnarmál. „í öryggismál- um leggur ísland aðaláherzluna á hið mikilvæga hlutverk NATO og skyldur íslands varðandi samstarf og samráð í NATO. Aðeins þar tengjast öryggishagsmunir íslands beggja vegna Atlantshafsins, og NATO tryggir að evrópskt öiyggi mun einnig í framtíðinni hafa þau nánu tengsl yfir hafíð til Norður- Ameríku, sem ekkert annað getur komið í staðinn fyrir,“ sagði Friðrik. Hvað varðaði Evrópusamstarf, sagði Friðrik að EES-samstarfíð yrði mikilvægast á næstu árum. „Þegar það liggur ljóst fyrir hversu mörg Norðurlandanna ganga í EB, og hvemig þróunin innan EB verð- ur, verður að endurskoða norrænt samstarf, þannig að það geti upp- fyllt þarfir allra Norðurlandanna," sagði Friðrik. Fjármálaráðherra gerði að um- ræðuefni þær breytingar á norrænu samstarfi, sem forsætisráðherrar Norðurlanda hafa mælt fyrir á þing- inu og tók fram að íslendingar legðu sérstaka áherzlu á öflugt og sýni- legt samstarf á sjávarútvegssviðinu, sem er eitt af sjö áherzlusviðum í tillögum forsætisráðherranna. „Við íslendingar viljum ásamt samstarf- slöndum okkar taka virkan þátt í að framkvæma þær breytingr á norrænu samstarfí, sem verða að eiga sér stað í tengslum við þróun- ina í alþjóðasamstarfi, einkum og sér í lagi sem afleiðing Evrópusam- starfsins," sagði Friðrik. Hjörleifur Guttormsson, þing- maður Alþýðubandalagsins, vitnaði í ræðu Thorvalds Stoltenbergs, ut- anríkisráðherra Noregs, þar sem hann sagði að til þess að vera með í Norðurlandasamstarfinu yrðu menn að ganga í EB. Hjörieifur spurði hvaða afstöðu íslenzka ríkis- stjómin hefði til þessarar fullyrðing- ar. Friðrik Sophusson svaraði því til að Hjörleifur yrði að spyija Stolt- enberg sjálfan út í ræðu hans. „En ég get sagt með vissu að íslenzka ríkisstjómin hefur ekki á dagskrá að sækja um aðild að EB núna,“ sagði Friðrik. Hann sagði að EES- samningurinn yrði væntanlega sam- þykktur á Alþingi og íslendingar myndu taka þátt í því samstarfí með hinum Norðurlöndunum, að minnsta kosti næsta árið. 9 Rússar kallí herí sína heim frá Eystrasaltsríkjunum Árósum. Frá Ólafi Þ. Stcphensen, blaðamanni Morgunblaðsins. Forsætisráðherrar Norðurlandanna ítreka kröfur sínar um að Rússar kalli hersveitir sínar heim frá Eystrasaltsríkjunum og ljúki samning- um við sfjómir rikjanna þar að lútandi. Forsætisráðherramir, að Davíð Oddssyni undanskildum, áttu með sér fund í Árósum í gær og ræddu meðal annars hvernig fylgja bæri eftir og hrinda í framkvæmd tillögum ráðherranna um breytingar á norrænu samstarfi. í yfírlýsingu, sem ráðherramir Eystrasaltsríkjunum fækkað og kynntu blaðamönnum að fundi sín- um loknum, er lögð áherzla á að brottför rússneskra hersveita frá Eystrasaltsríkjunum sé afar mikil- væg hvað varðar öryggi og stöðug- leika í nágrenni Norðurlandanna. Ráðherramir skoruðu í ágúst síðast- liðnum á Rússa að kalla heri sína heim og segir í yfirlýsingunni að siðan þá hafi nokkur árangur náðst, bæði hafi hermönnum Rússa í samningum um brottför heijanna hafi verið lokið milli Litháens og Rússlands. Skorað er á Rússa að ljúka sem fyrst gerð sams konar samninga við Eistland og Lett- land..Yfirlýsingar af hálfu Rússa á síðustu vikum hafa valdið nýrri óvissu um heimkvaðningu rúss- neskra hersveita,“ segja forsætis- ráðherrarnir. „Ekki er hægt að sam- þykkja að heimkvaðning heijanna sé tengd öðrum pólitískum málum.“ Fundur ráðherranna snerist að talsverðu leyti um Evrópumál, í ljósi umsókna Svía og Finna um aðild að Evrópubandalaginu og væntan- legrar umsóknar Norðmanna. Svíar og Finnar höfðu búizt við að geta hafið formlegar samningaviðræður við Evrópubandalagið strax um næstu áramót, en óttast nú að þeim geti seinkað, þar sem Danir og Bret- ar hafa ekki staðfest Maastricht- samkomulagið. Samþykki allra EB- ríkjanna var áskilið til þess að við- ræður um inngöngu nýrra aðildar- ríkja gætu hafizt. Poul Schliiter, forsætisráðherra Danmerkur, sagð- ist þó telja að tekizt gæti að heíja samningaviðræður strax um ára- mót, er hann var spurður um þetta atriði á blaðamannafundi forsætis- ráðherranna í gær. Samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins lét Gro Harlem Brundtland, forsætisráð- herra Noregs, í ljós þá skoðun á fundi ráðherranna að sjávarútvegs- málin kynnu að verða einn örðug- *' asti þröskuldurinn í vegi aðildar Norðmanna að EB. Erfitt yrði að finna lausn, sem norskur almenning- ur sætti sig við. EB-aðiId Norð- manna var felld, meðal annars vegna andstöðu við samkomulagið í sjávarútvegsmálum, í þjóðarat- kvæðagreiðslu 1972.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.