Morgunblaðið - 11.11.1992, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.11.1992, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992 RAÐA UGL YSINGAR A TVINNUAUGL ÝSINGAR Gagnfræðaskólinn í Mosfellsbæ Okkur vantar myndmenntakennara vegna ■s ■ barneignarleyfis starfandi kennara. Allar nánari upplýsingar veita Ragnheiður Ríkharðsdóttir, skólatjóri, vs. 666186, og Hanna Bjartmars, aðstoðarskólastjóri, vs. 666186. Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðinga vantar til starfa nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. í boði er ódýrt húsnæði og ágæt laun. Aðstoðað er við flutning á búslóð. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 97-71403 eða framkvæmdastjóri í síma 97-71402. Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað. Atvinnuráðgjafi Austurlands - > Atvinnuþróunarfélag Austurlands leitar að atvinnuráðgjafa, þar sem núverandi ráðgjafi tekur við starfi framkvæmdastjóra fyrir Teknologisk Informationscenter for Ringkob- ing Amt í Danmörku. Tilgangur Atvinnuþróunarfélagsins er að stuðla að þróun og eflingu atvinnulífs á Austur- landi í því skyni að auka fjölbreytni og arðsemi. Starfinu fylgir einnig umsjón með Atvinnu- þróunarsjóði Austurlands. Æskilegur atvinnuráðgjafi þarf að búa yfir . eftirfarandi kostum: ★ Félagslyndur að eðlisfari með góða sam- skiptahæfileika jafnt skriflega sem munn- lega. ★ Þekkingu á rekstrarfræði og atvinnuþró- unarstarfi. ★ Þekkingu á byggðamálum. ★ Reynslu af stjórnunarstörfum, gjarnan innan fyrirtækis eða í hliðstæðum störf- um og/eða einhverskonar ráðgjöf. ★ Þekkingu á atvinnulífinu og samtökum og stofnunum í tengslum við það. ★ Kunnáttu í tölvunotkun. Umsóknarfrestur er til 27. nóvember nk. og skulu umsóknir, er greina ítarlega frá starfs- ferli, menntun og reynslu umsækjanda, sendast til: Atvinnuþróunarfélags Austurlands, Ránargötu 6, 710 Seyðisfirði. Upplýsingar um starfið veitir formaður félagsins, Adólf Guðmundsson, í síma 97-21402/21339 og atvinnuráðgjafi, Axel A. Beck, í síma 97-21287/21410. Frítt prjónanámskeið Prjónið ur íslensku bandi Álafossbúðin og ÍSTEX hf. bjóða frítt prjóna- námskeið í Álafossbúðinni í nóvember á laug- ardögum kl. 10.00-14.00. Kennsla og aðstoð við handprjón úr fjöl- breyttu íslensku bandi frá ÍSTEX hf. Upplýsingar og skráning í Álafossbúðinni í símum 13404 og 22090. FUNDIR - MANNFAGNAÐUR t Arshátíð Árshátíð Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldin 21. nóvember nk. í Skútunni. Miðasala 11 .-18. nóvember í Haukahúsinu. Stjórnin. Kynningarfundur Evrópusamstarf um rannsóknir og nýsköpun - EUREKA og Evrópubandalagið - Rannsóknaráð ríkisins býður til kynningar- fundar um samstarf í Evrópu um rannsóknir, þróun og nýsköpun innan EUREKA og á vegum Rammaáætlunar Evrópubandalags- ins. Kynningin fer fram föstudaginn 13. nóv- ember nk. í Borgartúni 6 kl. 8.30-11.00. Fundurinn fer fram á ensku. Á fundinn mæta og halda erindi lykilaðilar, sem fara með málefni EUREKA í Frakklandi, Noregi og hjá Stjórnarnefnd Evrópubandalagsins, en stóraukin samvinna um rannsóknir og þróun á vegum EUREKA og Evrópubandalags- ins. er nú í deiglunni, m.a. með hliðsjón af samningnum um evrópska efnahagssvæðið. DAGSKRÁ: Kl. 8.30-8.50 Hvað er EUREKA/EB? Þátttaka íslands - skipulag og verkefni. Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs. Kl. 8.50-9.15 Staða EUREKA Reynsla hingað til. Leitin að samstarfi. Aðgerðir í formennskutíð Frakklands. Serge Gregory, deildarstjóri hjá ANVAR, NPC-fulltrúi Frakklands og formaður NPC-hópsins. Kl. 9.15-9.40 Samspil EUREKA við Rammaáætlun EB. Áhrif EES-samnings. Áform, markmið, samspil EUREKAvið EB. Stuðningur við smáfyrirtæki. Nicholas Newman, yfirmaður samskipta- deildar EB við EFTA-ríkin og við EUREKA. NPC-fulltrúi EB. Kl. 9.40-10.00 Reynsla Norðmanna af EUREKA. Hvernig komast norsk fyrirtæki í EUREKA- samstarf og hvaða stuðning fá þau? Leiðir til öflugrar þátttöku. Áform í formennskutíð Norðmanna í EUREKA, 1993-1994. Ingrid Alfheim, NPC-fulltrúi Noregs. 10.00-11.00 Spurningar og umræður. Þátttökugjald er 1.500 kr. og innifelur morgunkaffi. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 621320. ATVINNUFjÚSNÆÐI Til sölu skrifstofuhæð, 500 fm - góð fjárfesting Vorum að fá í sölu mjög vel innréttaða skrif- stofuhæð, miðsvæðis í Reykjavík, u.þ.b. 500 fm. Hæðinni er skipt niður í nokkrar smærri einingar. Húsið er nú allt í leigu en hægt er að íosa um leigutaka samkvæmt samkomu- lagi. Leigutekjur eru nú 2,3 millj. á ári. Sölu- verð á fm er aðeins 45 þús. Væg útborgun. Upplýsingar gefur: Fasteignaþjónustan, Skúlagötu 30, 3. hæð. Sími 26600, fax 26213. TIL SÖLU Söluturn - góð afkoma Söluturn með góða afkomu miðsvæðis í Reykjavík er til sölu. Upplýsingar gefur Þorsteinn Broddason í síma 622424. Fasteignasalan Framtíðin. SJÁLFSTIEÐISFLOKKURINN F É l. A (j S S T A R F Sjálfstæðisfélag Skóga- og Seljahverfis Aðalfundur Aðalfundur verður haldinn i Valhöll fimmtu- daginn 19. nóvember kl. 18.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Gestur fundarins verður Björn Bjarnason, alþingismaður. Stjórnin. Félag sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi Aðalfundur verður haldinn í Valhöll laugardaginn 14. nóvember kl. 11.00 árdegis. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Gestir fundarins verða Magnús L. Sveinsson og Júlíus Hafstein. Stjórnin. Félag sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi verður haldinn í Valhöll i dag, miðvikudaginn 11. nóvember, kl. 20.30. Gestur fundarins verður Steingrímur Ari Arason, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, og mun hann ræða um ástand og horfur í efnahagsmálum. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Borgarmálaráðstefna laugardaginn 14. nóvember í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavik og borgarstjórnarflokkur- inn kynna ráðstefnu um borgarmál, sem haldin verður laugardaginn 14. nóvember nk. í Valhöll. Dagskrá: Kl. 10.00 Setning ráðstefnunnar: Baldur Guðlaugsson, formaður fulltrúaráðsins. Kl. 10.10 Ávarp: Markús Örn Antonsson, borgarstjóri. Kl. 10.20 Lögð fram drög af niðurstöðum starfshópa: Gunnar Jóhann Birgissón, formaður undirbúningsnefndar, Halldór Guðmundsson, Kjartan Magnússon og Sigurður N. Magnússon. Kl. 11.00 Starfshópar funda. (Matarhlé 12.00-12.30). Kl. 14.00 Niðurstöður starfshópa kynntar - umræður. Kl. 15.00 Ráðstefnuslit. Ráðstefnustjóri: Guðmundur Magnússon, þjóðminjavörður. Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki um borgarmál. Starfshópar: 1. Sjálfsstjórn sveitarfélaga: Gunnar Jóhann Birgisson. 2. Málefni aldraðra: Halldór Guðmundsson. 3. Einkavæðing borgarfyrirtækja: Kjartan Magnússon. 4. Umhverfis- og skipulagsmál: Sigurður M. Birgisson. Stjórnarmenn í sjálfstæðisfélögunum í Reykjavik eru hvattir til þess að mæta. Góð þátttaka tryggir öflugt málefnastarf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.