Morgunblaðið - 11.11.1992, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.11.1992, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992 KNATTSPYRNA Arnarog Bjarki Gunnlaugssynirtil Hollands áföstudag Akranes og Feyenoord náðu samkomulagi Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir. Morgunbiaðið/Vaiur Jónatansson HANDKNATTLEIKUR / ÞYSKALAND Þjóðverjar byrjaðir uppbygg- ingu fyrir ÓL1996 í Atlanta ►bjóðvetjar eru mjög ánægðir með árangur landsliðsins í handknatt- leik á dögunum, en þá urðu þeir sigurvegarar á aiþjóðlegu móti - unnu Dani og Tékka. Armin Emrich stjórnaði landsliðinu, en hann sér um liðið þar til að Amo Ehret kemur heim frá Sviss til að taka við liðinu. Þýska landsliðið var nær eingöngu skipað ungum leikmönnum á mótinu og var aðeins einn gamall refur sem lék með því - mark- vörðurinn Andreas Thiel. „Framtíðin er björt og það verður bytjað að byggja upp nýtt landslið fyrir Ólympíuleikana í Atlanta," sagði Emrich. Miklar líkur eru á að fyrsta stórverkefni nýliðanna í þýska liðinu verði heimsmeistarakeppnin í Svíþjóð á næsta ári og gæti því farið svo að íslenska landsliðið iéki gegn liðinu í milliriðli. BLAK/ BIKARKEPPNIN HK og ÍS mætast FOLK ■ PÉTUR Arnþórsson, miðvall- arspilari, var útnefndur besti knatt- spyrnumaður Fram 1992 á upp- skeruhátíð félagsins. ■ ÓLAFUR Þórðarson, lands- liðsmaður í knattspymu, sem lék með Lyn í Noregi, er kominn heim og bytjaður að æfa á fullum krafti á Akranesi. ■ SIGURÐUR Jónsson, félagi Ólafs, sem átti við þrálát meiðsli stríða sl. keppnistímabil, æfir einnig á fullum krafti - Iyftingar til að styrkja sig. ■ EYJÓLFUR Sverrisson skor- aði eitt mark fyrir Stuttgart, sem vann stórsigur, 12:1, yfír Ofterd- ingen í vináttuleik um sl. helgi. Fritz Walter skoraði flest mörk, eða fjögur. ■ VIKTOR Onopka, miðvaliar- spilari Spartak Moskvu, var í gær útnefndur knattspymumaður Rúss- lands. Þjálfarar 1. deildarliðanna þar í landi sáu um útnefninguna og var Onopka í fyrsta sæti hjá þeim öllum. ■ NAPOLÍ rak þjálfara sinn Claudio Ranieri í gær, eftir slæmt g'engi að undanfömu. Tveir fyrrnrn þjálfarar félagsins em orðaðir sem næsti þjálfari. Ottavio Bianchi, sem þjálfaði Napolí þegar félagið vann sinn fyrsta meistaratitil 1987 og UEFA-bikarinn 1989, og Azeglio Vicini, sem þjálfaði ítalska landsliðið í HM 1990. ■ LAJOS Detari, besti knatt- spyrnumaður Ungverja, mun ekki leika með þeim gegn Griklgum í undankeppni HM í kvöld í Grikk- landi. Detari meiddist í leik með itaksla félaginu Ancona um sl. helgi og verður keppni um tíma. ■ FORSETI ítalska knattspymu- sambandsins hefur hvatt félög til að lækka miðaverð vegna fjárhags- ástandsins í landinu. Lazio, sem fékk Tórínó í heimsókn um síðustu helgi, tók forsetann á orðinu og lækkaði verðið um allt að 60%. Miðar á besta stað, sem kostuðu um 5.000 ÍSK, vom seldir á um 3.200 krónur. ■ BIXENTE Lizarazu, bakvörð- ur Bordeaux, og Christian Karebeu, miðvallarspilari Nantes, em nýliðar landsliðshópi Frakka fyrir HM-leikinn gegn Finnum á laugardaginn. ■ MICHEL Platini, fyrmm fyrir- liði franska landsliðsins og síðar þjálfari, var í gær útnefndur yfir- maður skipulagsnefndar sem sér um undirbúninginn fyrir heims- meistarakeppninnar sem verður í Frakklandi 1998. ÍA og hollenska liðið Feyenoord náðu í gær sam- komulagi um félagaskipti tví- burabræðranna, Arnars og Bjarka Gunnlaugssona. „Það er allt orðið klappað og klárt. Það á aðeins eftir að skrifa undir, sem er bara formsatriði. Félögin hafa náð samkomulagi og allir eru sáttir,11 sagði Gunn- ar Sigurðsson, formaður knatt- spyrnufélags IA. Hann vildi ekki tjá sig frekar um samning- inn sem ertil tveggja ára eða fram í júlí 1994. Gunnar sagði það mikinn létti að samningarnir væru nú í höfn. „Ég vona að strákunum gangi sem allra best hjá Feyenoord og ég veit áð þeir gera það. Þeir em reglusamir og vita vel hvað þarf til að ná árangri," sagði Gunnar. Bjarki Gunnlaugsson var ánægð- ur er Morgunblaðið ræddi við hann í gærkvöldi. „Þetta er mjög mikill léttir og við erum mjög ánægðir. Þetta er búið að taka langan tíma og biðin hefur verið frekar leiðin- leg. Við reiknum með að fara út til Hollands á föstudag," sagði Bjarki. Fyrsta verk Arnars og Bjarka hjá Feyenoord er að horfa á stór- leik hollensku knattspyrnunnar milli Feyenoord og Ajax á sunnu- Feyenoord drógst gegn rúss- neska meistaraliðinu Spartak Moskvu í 8-liða úrslitum Evrópu- keppni bikarhafa, en dregði var í Evrópukeppninni fyrir helgi. Evrópukeppni meistaraliða Leikið er í tveimur riðlum og leika sigurvegaramir í riðlunum síðan til úrslita: 1. RIÐILL: Marseille, FC Brúgge, CSKA Moskva og Glasgow Ran- gers. 2. RIÐILL: AC Milan, Porto, IFK Gautaborg og PSV Eindhoven. Evrópukeppni bikarhafa Sparta Prag - Parma daginn kemur. Síðan mæta þeir á fyrstu æfínguna á mánudaginn. „Við komum til með að búa á hóteli fyrstu dagana en síðan fáum við íbúð og bíl fljótlega. Okkur líst vel á liðið og teljum að leikstíll þess henti okkur vel. Þetta er gott félag fyrir okkur til að byija með, hvorki of stórt eða of lítið. En þetta verð- ur erfitt og við þurfum örugglega að hafa fyrir hlutunum. Við reynum fyrst að komast inn í málið og kynn- ast leikmönnum liðsins og það tekur sinn tíma,“ sagði Bjarki. - Verður ekkert vandamál fyrir ykkur að fá atvinnuleyfi í Hollandi? „Það gæti tekið nokkrar vikur, en okkur hefur verið sagt að at- vinnuleyfið ætti að vera orðið klárt í desember. Það á ekki að vera neitt vandamál að fá leyfið, aðeins spurning um tíma. Það er í la'gi því það gefur okkur tíma til að komast inní þetta áður en við förum hugs- anlega að spila.“ Bjarki og Arnar hafa verið við nám í Fjölbrautarskólanum á Akra- nesi. Á nú að leggja skólabækurnar endanlega á hilluna? „Við getum haldið áfram náminu og klárað stúdentsprófið í Hollandi ef við vilj- um. En við ætlum að sjá til með það. Við eigum eftir tvö ár í stúd- entsprófið og það er bara spuming um áhugann hjá okkur að klára það í framtíðinni," sagði Bjarki. Feyenoord - Spartak Moskva Olympiakos Pireus - Atlet. Madrid Steaua Búkarest - Antwerpen eða Admira Wacker ■Austurríska félagið hefur kært leik sinn gegn Antwerpen, þar sem mökin á vellinum í Antwerpen voru of lítil. Eftir er að dæma í málinu. UEFA-keppnin Ajax - Kaiserslautern Dortmund - Real Zaragossa París St. Germain - Anderlecht Standard Liege - Auxerre Dinamo Moskva - Benfica Roma - Galatasaray Vitesse Arnheim - Real Madrid Sigma Olmutz - Juventus HK og'TS, efstu liðin í 1. deild karla í blaki, drógust saman í átta liða úrslitum bikarkeppninn- ar, sem eiga að fara fram 20. jan- úar. Völsungur fær KA í heimsókn og Breki Akranesi og Umf. Snörtur á Kópaskeri mætast, en Þróttur Reykjavík leikur við sigurvegara úr viðureign Sindra og Stjörnunn- ar, sem verður um miðjan næsta mánuð. I átta liða úrslitum kvenna leika Sindri - Víkingur, Völsungur - HK og ÍS - KA, en Þróttur Neskaupstað situr hjá. Evrópudráttur FJÁRMÁL Sportkortið frá Eurocard komið á markið: Gengur mjög vel - segirSigurðurJónsson markaðsfulltrúi hjá Kreditkortum hf. NÝTT alþjóðlegt Eurocard kreditkort, Sportkort, hefur nú litið dagsins Ijós. Kortið er gefið út af Eurocard á íslandi í samvinnu við rúmlega 30 iþróttafélög víðsvegar um landið. Sérstaða Sport- kortsins liggur í því að með notkun þess styðja korthafar við bakið á sínu íþróttafélagi. Gefin hafa verið út kort með merkjum 16 íþróttafélaga og er von á fleiri sérmerktum kortum innan skamms. Sportkortið gegnir sama hlut- verki og hefðbundið Euro- card kreditkort og hægt er að nota það hvar sem Eurocard ér veitt viðtaka, bæði innanlands og erlendis. „Þetta gengur mjög vel. Það er búið að panta kort fyrir þrettán félög í viðbót við þau sextán sem byijuðu. Félögin eru að taka við sér eftir sumardvala og það er greinilega hugur í mönnum. Þeir hafa áttað sig á hve Sportkortið getur verið góð fjáröflun,“ sagði Sigurður Jónsson, markaðsfulltrúi hjá Kreditkortum í samtali við Morgunblaðið. „Nú er mesta kortaverslun árs- ins framundan og því fyrr sem kortin komast í gagnið því betra fyrir félögin. Við höfum líka bent félögum úti á landi sérstaklega á það að í hvert skipti sem fólk notar kortið hér [fyrir sunnan] rennur ákveðinn hluti peninganna aftur til baka,“ sagði Sigurður ennfremur. í frétt frá Kreditkortum hf. segir að með því að nota Sport- kort styðji korthafar við bakið á sínu íþróttafélagi með tvennu móti. Annars vegar með því að greiða ársgjald sem er hærra en af venjulegu korti, þar sem mun- urinn rennur óskiptur til viðkom- andi íþróttafélags og hins vegar með því að beina viðskiptum sín- um til þeirra fyrirtækja sem hafa gert samning við íþróttafélögin um að í hvert sinn sem greitt er með Sportkorti renni ákveðinn hluti söluandvirðis til viðkomandi íþróttafélags án þess að verð til viðskiptavinarins hækki. Í fréttinni kemur ennfremur fram að ýmis fyrirtæki hafi ákveð- ið að veita korthöfum ákveðinn afslátt, allt að 15% umfram það sem rennur beint til íþróttafélag- anna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.