Morgunblaðið - 11.11.1992, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.11.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992 3 Hlaut hetjuverðlaun sænsku Brunamálastofnunarinnar 17 ÁRA gömul íslensk stúlka, Hólmfríður Einarsdóttir, hlaut nýlega sérstök hetjuverðlaun sænsku Brunamálastofnunarinnar. Hólmfríð- ur býr í bænum Halmstad í Suður-Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni og hún bjargaði þar manni úr brennandi húsi. Hólmfríður er fjórða manneskjan á þremur árum sem hlýtur þessi verðlaun. Hómfríður Einarsdóttir sagði í maður sem svaf í ölvímu. Hann samtali við Morgunbiaðið í gær að hún hafi verið heima í stofu ásamt bróður sínum er hún tók eftir að eldur var laus í húsinu beint á móti húsi hennar. Hún bað bróður sinn að hringja í slökkviliðið en hljóp síðan yfir að húsinu sem kviknað var í. Hún bankaði þar upp á og í ljós kom að í húsinu var gerði sér enga grein fyrir að eldur var laus en Hólmfríði tókst að koma honum út undir bert loft. „Það kom mér mjög á óvart að ég skyldi hljóta þessi verðlaun en það mun mjög sjaldgæft að þau séu veitt,“ segir Hólmfríður. „Þetta eru verðlaun á landsvísu hér og það er yfírstjórn Brunamálastofn- unarinnar í Stokkhólmi sem ákveð- ur hveiju sinni hvort veita skuli þessi verðlaun-." Hólmfríður fékk í hendur sér- stakan áletraðan skjöld, viðurkenn- ingarskjal og blóm frá Brunamála- stofnuninni. Á skjöldinum stendur að verðlaun þessi séu veitt þeim sem bregst á réttan hátt við elds- voða. Hólmfríður segir að hún hafí búið um tveggja ára skeið í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni en Hólmfríð- ur stundar nú nám í menntaskóla í bænum Halmstad. Þessi mynd birtist á forsíðu blaðsins Hallandsposten er Hólmfríð- ur Einarsdóttir tók við verðlaununum úr hendi Sune Lardner frá sænsku Brunamálastofnuninni. Fjallvegir í vetur Vörubíll við snjómokstur frá Mývatni til Jökulsár á Dal VEGAGERÐ ríkisins hefur ákveðið snjómokstur á nokkrum fjallvegum í vetur, utan snjó- mokstursreglna. Sem dæmi má nefna, að mokað verður á mánu- dögum og föstudögum, meðan hægt er að opna auðveldlega með vörubíl, á leiðinni frá Mývatni að Jökulsá á Dal. Ert þú í forsvari fyrir félag, fámennt eða fjölmennt, formlegt eða óformlegt? Þá veistu hvaö þaö fer mikill tími í innheimtu félagsgjalda, aö halda félagatalinu réttu, vita hverjir hafa gert skil, senda rukkanir á réttum tíma, taka viö greiöslum og koma þeim íbanka. Á Austur- og NA-landi verða fleiri vegir mokaðir með þessum hætti, eða Breiðdalsheiði og Vopna- fjarðarheiði. Þá verður Hlíðarvegur um Hellisheiði mokaður með veg- hefli, þegar það er unnt á skemmri tíma en 5 klukkustundum, á mánu- dögum og föstudögum. Mánudaga til föstudaga verður svo Hafnarveg- ur í Bakkafirði mokaður, þ.e. af- leggjari að Höfn sunnar Hafnarár að þéttbýlinu á Bakkafirði. Ákvörðun hefur einnig verið tek- in um mokstur á Vestfjörðum, þ.e. mokstur utan venjulegra snjó- mokstursreglna. Klettsháls verður mokaður mánudaga og föstudaga á meðan það er hægt með hefli, Hrafneyrarheiði mánudaga og föstudaga á meðan það er hægt með hefli á skemmri tíma en 5 klukkustundum og Dynjandisheiði mánudag og föstudag, meðan það er hægt með vörubíl. Vörubíll þarf að geta mokað viðstöðulaust og skilyrði fyrir mokun Dynjandisheiði er að Hrafnseyrarheiði sé opnuð um leið. Áfram verður stungið úr Hestakleif annað slagið, en það er ekki tilkynnt sérstaklega. Hins veg- ar eru sett upp skilti báðum megin við hana, sé hún lokuð. -----♦ »-♦----- Siglingamálastjóri Fimm sóttu um stöðuna Umsóknarfrestur um stöðu siglingamálasljóra er runninn út og sóttu fimm um stöðuna. Á morgun, fimmtudag, tekur sigl- ingarráð síðan væntanlega af- stöðu til umsækjenda og gefur umsögn sína til samgönguráð- herra. Tveir af fimm umsækjendum óskuðu nafnleyndar en hinir þrír eru Benedikt E. Guðmundsson skipaverkfræðingur, Ólafur J. Briem skipaverkfræðingur og Páll Hjartarson settur siglingamála- stjóri. Að sögn Þórhalls Jósefssonar deildarstjóra í samgönguráðuneyt- inu er reiknað með að málið verði afgreitt fljótlega en fundur sigl- ingaráðs gat ekki orðið fyrr en á morgun þar sem formaður ráðsins er erlendis. 777 aö þú hafir meiri tíma til aö sinna eiginlegum félagsstörfum bjóöum viö Félagaþjónustu Islandsbanka. Félagaþjónustan felst meöal annars í eftirfarandi þáttum: • Círóseölar fyrir félagsgjöldum eru skrífaöir út og sendir greiöendum á réttum tíma. Um leiö er félaginu send skrá yfir útskrifaöa gíróseöla. » Hœgt er aö velja árlega og allt niöur í mánaöarlega innheimtu. • Reikningsyfirlit meö nöfnum greiöenda eru skrifuö út í byrjun hvers mánaöar. • Dráttarvextir eru reiknaöir, sé þess óskaö. • Cjöld geta hækkaö samkvœmt vísitölu, sé þess óskaö. Aö auki er boöin margþœtt viöbótarþjónusta. Notfœröu þér Félagaþjónustu íslandsbanka fyrir þitt félag og notaöu tímann til aö sinna sjálfum félagsstörfunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.