Morgunblaðið - 31.12.1992, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 31.12.1992, Qupperneq 21
MORGUNBtóÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DRSEMBER 1992-----------------1---------------- Anna Bjarnadóttir Lars Lundsten verði umfram venju líflegt innan EB. Flest bendir til að helstu vandamál samstarfs Vestur-Evrópuríkjanna, tæknileg aðlögun EES-samingsins, . Maastrieht og GATT-sáttmálin, verði til lykta leidd á árinu sem senn gengur í garð. SIGRÚN DAVÍÐS- DÓTTIR, DANMÖRKU Breytíngar trúlega í vændum Mál málanna síðastliðið ár var tvímælalaust aðild Dana að Ma- astricht-samkomulaginu. Ahrif þess voru ekki aðeins sýnileg í stjórnmál- um, heldur einnig í efnahags- og viðskiptaheiminum. Inn í þetta flétt- ast átök í dönskum stjórnmálum. Ekki má gleyma atvinnuleysinu, sem er stöðugt umhugsunarefni Dana. Það er nú tæp ellefu prósent og virð- ist seint ætla að dvína. í september hélt Poul Schluter upp á tíu ára afmæli sitt sem forsæt- isráðherra minnihlutastjórnar, sem stendur stjórn íhalds- og Vinstri- flokksins. Nú eru hins vegar horfur á að meirihlutastjórn sé í augsýn. Forystumenn Jafnaðarmannaflokks- ins, Róttæka vinstriflokksins og Sós- íalíska þjóðarflokksins hafa nýlega unnið saman í mikilvægum málum og það hefur aukið trúna á að sam- starf þessa þríeykis geti náð lengra. Tamílamálið, sem snýst um hugs- anleg embættisglöp þáverandi dóms- málaráðherra 1988 og tilraunir ann- arra ráðherra, meðal annars Schlúters, til að þagga málið niður, hefur legið eins og mara á íhalds- flokknum og reyndar á dönskum stjórnmálum almennt. Nú fer að sjá fyrir endann á því, þar sem skýrsla um málið verður lögð fram um miðj- an janúar. Flestir reikna með að niðurstaðan verði svo óþægileg fyrir Schlúter að hann neyðist til að segja af sér. Ójóst er hvað þá tekur við, því margt spilar inn í. Enginn vafi er á að marga innan þríeykisins munar í stjórnarstólana. Hins vegar Hrönn Marinósdóttir Jan Gunnar Furuly fýsir fáa í kosningar í kringum aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Maastricht-samkomulaginu. Vinstri- flokkurinn hefur á stundum reynt að storka Sósíalíska þjóðarflokknum og þar með einangra hann frá hinum tveimur flokkunum, en óvíst er og reyndar ólíklegt áð íhalds- eða Vinstriflokknum tækist að halda stjórninni saman ef Schlúter fer frá nema hugsanlega til bráðabirgða. Um þetta leyti er danska stjórnin í viðbragðsstöðu fyrir formennsku sína í EB, sem stendur frá áramótum og fram á mitt árið. Ljóst er að hún leggur metnað sinn í það starf. Uffe Ellemann-Jensen utanríksiráðherra hefur lýst yfir að aðaláhugamál hans sé að efla sambandið við Bandaríkin og vonast til að Bill Clinton forseti leggi leið sína til Kaupmannahafnar á Evrópureisu í vor. Auk þess bein- ist athyglin að aðildarviðræðum við Svía, Norðmenn og Finna um inn- göngu í EB. Með þá innanborðs í EB reynir á hvort rætast vangavelt- ur um norræna þungamiðju innan bandalagsins, sem get orðið grund- völlur að nýrri vídd í norrænu sam- starfi. Hingað til hefur Schlúter forsæt- isráðherra haft undraverða hæfi- leika til að stýra sjórn sinni í gegnum erfiðleika, en nú er svo komið að flestir álíta níu lífin hans uppurin. Óvissan um framtíðina, sem hefur verið að geijast þetta árið, hlýtur að leiða til breytinga í dönskum stjórnmálum og um leið í þjóðlífinu, því hún verður vísast djúptækari en hrókun ráðherrastóla. Nýir flokkar gætu hreiðrað um sig í ráðherrastól- unum. LARS LUNDSTEN, FINNLANDI Stefnubreyt- ing í utanrík- ismálum Hjá Finnum áttu sér stað nokkrar afar mikilvægar grundvallarbreyt- ingar á árinu 1992 enda ríkir nú um áramótin kannski meiri óvissa Kristófer M. Kristinsson Erik Lindén um framtíðina en oftast áður. Finnar standa nú frammi fyrir að gerast aðilar að Evrópubandalaginu (EB) en á sama tíma þjakar þjóðina alvar- legasta efnahagskreppa, sem riðið hefur yfir. í kreppunni hefur fyrsta hægri ríkisstjórnin á rúmum tveim áratug- um hert ólina meira en flestum þyk- ir hæfilegt og veldur þetta spennu í þjóðfélaginu. Á einu ári hafa Finnar í raun snúið baki við hlutleysisstefnu sinni og lýst yfir vilja sínum að gerast fullir aðilar að samstarfi þjóða Vest- ur-Evrópu. Formlega ér Finnland ennþá hlutlaust ríki innan Fríversl- unarbandalags Evrópu (EFTA). Um síðustu áramót sprakk öflug sprengja í finnsku stjórnmálalífi þegar Koivisto Finnlandsforseti lýsti yfir þeirri stefnu sinni í áramótaá- varpi að Finnar skyldu fhuga aðild að EB. Þangað til hafði öll pólitísk umræða um þetta mál verið bönnuð í raun. Það þótti ekki samræmast hlutleysisstefnu Finna og vináttu við Sovétmenn að ræða slík mál. Um þessi áramót hafa málin þróast það mikið að formlegar aðildarumræður eru að hefjast. Jafnhliða þessum breytingum í utanríkismálum hefur stjórnmála- kerfið innanlands tekið stakkaskipt- um með þeim afleiðingum að völd ríkisstjórnar hafa farið vaxandi en forsetinn og stjórnarandstaðan hafa að sama skapi minnkað. Stjórnar- skránni hefur verið breytt þannig að möguleikar minnihlutans á þjóð- þingi, þ.e. stjórnarandstöðunnar, að stöðva efnahagsráðstafanir ríkis- stjórnar hafa takmarkast. Um leið hefur Finnlandsforseti reynt að draga sig í hlé til þess að efla ímynd forsætisráðherra sem leiðtoga. Framkoma Mauno Koivistos Finn- landsforseta er dæmi um hvernig ytri aðstæður hafa breyst. Fyrir ári flutti Koivisto ræðu sem gjörbreytti utanríkisstefnu Finna, en um þessi áramót hefur Koivisto neitað að flytja ávarp. í hans stað mun Esko Aho forsætisráðherra ávarpa þjóð- ina. Ríkisstjórn Esko Aho forsætisráð- herra hefur lent í hörðum deilum við launþegasamtök vegna áforma um að skerða félagslegt öryggi landsmanna. Völd verkalýðshreyf- ingarinnar hafa minnkað verulega með því að ríkisstjórnin hefur ekki gengið gömlu samningsleiðina í kjaramálum, þ.e. að ræða kaup og kjör við vinnuveitendur og lauriþega. Þess í stað hefur hún aðeins tilkynnt um komandi breytingar. Mestu svartsýnismenn segja að Finnland stefni nú í að verða þróun- arríki innan EB. Vegna vanrækslu í efnahagsmálum sé landið að breyt- ast úr háþróuðu iðnaðarríki í hráefn- isframleiðanda sem lifi eingöngu á skógarafurðum á lágu úrvinnslu- stigi. Um leið sé einnig verið að leggja velferðarkerfið í rúst. JAN GUNNAR FURULY, NOREGI EB-umsókn og flíírmála- kreppa Árið 1992 var árið sem Norðmenn sóttu um aðild að Evrópubandalag- inu í þriðja skipti og Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra hneykslaði umhverfisverndarsinna um allan heim með því að ákveða að hefja hvalveiðar í hagnaðarskyni að nýju á næsta ári. Kreppan í norsku fjármálalífi var áfram viðvarandi og töpuðu bankar, fjárfestingar- og tryggingarfélög milljörðum norskra króna á árinu. Skömmu fyrir áramót varð svo loks seðlabankinn að láta undan í barátt- unni gegn spákaupmönnum á gjald- eyrismörkuðum og gefa gengi norsku krónunnar frjálst. Byijun ársins var stormasöm. Fellibylur skall á norðvesturhluta landsins þann 1. janúar; hús fuku í burtu, umfangsmikil skógarsvæði eyðilögðust og fjölmargir týndu líf- inu í versta óveðri í manna minnum. Tryggingafélög urðu að greiða met- upphæð, samtals 1,3 milljarða norska króna, vegna tjóns af völdum veðursins. Það má segja að norska Evrópu- umræðan um EB og EES hafi einn- ig verið stormasöm þrátt fyrir að Brundtland og stjórn hennar virtust hafa ágæta stjórn á umræðunni. Löngu áður en Brundtland lét um- ræðuna hefjast formlega innan Verkamannaflokksins á landsfundi Verkamannaflokksins í Hordaland- fylki þann 5. apríl voru aðrir flokkar þegar meira og minna klofnir í mál- inu. Stórþingið samþykkti EES-samn- inginn í október eftir beinskeyttar umræður og í nóvember var sam- þykkt á þingi Verkamannaflokksins að ríkisstjórnin sækti um aðild að EB. Á sama þingi tilkynnti Brundt- land að hún hygðist segja af sér formennsku í Verkamannaflokknum af persónulegum ástæðum, en sonur hennar hafði framið sjálfsmorð skömmu áður. Stórþingið samþykkti aðildarumsóknina með miklum meirihluta og þann 25. nóvember afhenti Brundtland John Major, for- sætisráðherra Bretlands, aðildarum- sókn Norðmanna. Evrópuumræðan er samt síður en svo búin i Noregi. Samkvæmt fjöl- mörgum skoðanakönnunum síðustu mánuði virðist andstaðan við EB- aðild fara vaxandi. íbúar við sjávarsíðuna glöddust margir hveijir þegar ríkisstjórnin tilkynnti á ársfundi Alþjóðahvalveið- iráðsins í Glasgow í júní að Norð- menn hygðust hefja hrefnuveiðar í hagnaðarskyni á næsta ári. Við- brögðin erlendis létu ekki standa á sér. Hvalaunnendur í Bandaríkjun- um, Þýskalandi, Bretlandi og fleiri löndum sendu tugþúsundir mót- mælabréfa til norskra sendiráða og forsætisráðherrans persónulega. Árið 1993 gæti því orðið árið sem Norðmenn eiga á hættu að heyja umhverfisstyijöld. Alþjóðleg samtök umhverflsverndarsinna hafa á síð- ustu árum liðið fyrir skort á baráttu- málum og mörg hver rambað um á barmi gjaldþrots. Þau hafa nú eygt mál sem er líklegt til vinsælda með- al fjárhagslegra bakhjarla. Fátt virð- ist vekja upp jafn ríkar tilfinningar hjá viðkvæmum borgarbúum en blæðandi og deyjandi hvalur. Með heilsíðuauglýsingum, m.a. í New York Times hafa andstæðingar hval- veiða hótað því að beijast gegn sölu norskra vara, s.s. fiski, ferðamanna- þjónustu og jafnvel vetrarólympíu- leikunum í Lillehammer. Norsk stjórnvöld hafa ekki enn ákveðið hversu margar hrefnur verða veiddar næsta sumar en lík- lega verða þær milli 350-700, sam- kvæmt tillögum vísindamanna. ERIK LIDÉN, SVÍÞJÓÐ Evrópuaðlög- un á kreppu- tímum Árið 1992 hefur verið Svíum, líkt og flestum öðrum Evrópuþjóðum, þungt í skauti. Atvinnuleysi og efna- hagskreppa hafa sett mark sitt á jafnt störf stjórnmálaleiðtoga sem líf venjulegra borgara. Fyrri hluta ársins féllu efnahags- málin í skuggann af umræðunni um EB og EES en þau réðu aftur lögum og íofum á forsíðum dagblaða í sept- ember og október þegar ríkisstjórn Svíþjóðar barðist af hörku við að bjarga gengi krónunnar. Lengi vel virtist ríkisstjórnin ætla að hafa bet- ur og þrátt fyrir gengisfellingar í mörgum öðrum ríkjum náðist að halda gengi sænsku krónunnar stöð- ugu. í nóvember gafst hún hins veg- ar upp og seðlabankinn fékk leyfi til að láta krónuna fljóta. Lækkaði gengi hennar strax um 12-13% sem hefur haft í för með sér að hún er nú með lægsta skráða gengi nor- rænu gjaldmiðlanna. Samningurinn um EES, sem er mikilvægt skref á leið Svíþjóðar inn í Evrópubandalagið, var samþykktur í nóvember en þau mál fóru í nokkr? biðstöðu eftir að Svisslendingai höfnuðu EES í þjóðaratkvæða- greiðslu. Danir höfnuðu hins vegar Maastricht-samkomulaginu í júní og hefur það haft töluverð áhrif á sænska Evrópuumræðu. í byijun árs sýndu skoðanakannir mikinn og al- mennan stuðning við EB-aðild en nú er skýr meirihluti andvígur aðild. Stefnt er að því að þjóðin geti sagt skoðun sína samhliða þingkosning- um í september 1994. Aðrir stóratburðir í Svíþjóð á ár- inu sem er að líða er að tekin var endanleg ákvörðun um að byggja brú yfir Eyrarsund, milli Kaup- mannahafnar og Málmeyjar. Er stefnt að því að brúin verði tilbúin í kringum aldamót. Tveir þekktir sænskir rithöfundar létust á árinu, þeir Per-Olof Sund- man og Sven Delblanc. Sundman átti sæti í Sænsku akademíunni og tók virkan þátt í stjórnmálum fyrir hönd Miðflokksins. í verkum hans mátti greina mikil áhrif frá íslend- ingasögunum. Sven Delblanc lést þann 15. desember, einungis 61 árs að aldri. Hann var dáður fyrir verk sin sem mörg hver fjölluðu um æsku hans og uppeldi. Sjöunda árið í röð var enginn vet- ur sem heitið getur í norðurlandinu Svíþjóð sunnan Dalafljóts. Varð þetta tilefni mikilla umræðna um gat á ósonlaginu og gróðurhúsa- áhrif. Þá hefur framtíð kjarnorku í Svíþjóð eftir árið 2010 aftur komið til tals ekki síst eftir alvarlega bilun í kjarnorkuverinu Barsebáck. Svíar hafa einnig deilt hart um stefnuna gagnvart flóttamönnum. Á árinu komu 50 þúsund flóttamenn til Svíþjóðar, flestir þeirra frá fyrrum Júgóslavím Hefur þetta þýtt mikinn útgjaldaauka fyrir sveitarfélög en einnig að meira er farið að bera á útlendingahatri og árásum á útlend- inga en áður. Á næsta ári er búist við að draga muni úr flóttamannastrauminum ekki síst ef Sameinuðu þjóðirnar skakka leikinn í lýðveldum fyrrum Júgóslavíu. Þá verður næsta ár einnig þung prófraun fyrir ríkisstjórn Carls Bildts. Margir stjórnmálaskýrendur telja að Svíar verði að grípa til mjög róttæks niðurskurðar á ríkisútjöld árið 1993 en ríkissjóðshallin er nú talinn stefna í 195 milljarða sænskra króna. Hinn nauðsynlegi niðurskurð- ur gæti hins vegar fellt stjórnina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.