Morgunblaðið - 11.02.1993, Síða 4

Morgunblaðið - 11.02.1993, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1993 Sparisjóðir lækka vexti SPARISJÓÐIRNIR lækka vexti á óverðtryggðum útlánum í dag. Breytingin er á bilinu 0,25 til 0,6%. Sparisjóðimir lækka forvexti víxla um 0,6%, úr 13,6 í 13%. Vextir yfir- dráttarlána lækka úr 16 í 15,75%, eða um 0,25%. Þá lækka vextir allra óverðtryggðra skuldabréfaútlána um 0,25%. Það þýðir að almenn skuldabréfaútlán í B flokki lækka úr 13,85 í 13,6%. Þá lækka sparisjóðirnir óverð- tryggða vexti innlána um 0,5%. -----» ♦.♦----- Númer klippt af 80 bílum Númeraplötur voru fjarlægð- ar af 80 bílum á svæði lögregl- unnar í Reykjavík á tveimur sól- arhringum í vikunni þar sem eig- endur létu ekki skoða þá í fyrra. Í næstu viku ætlar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og á Suður- nesjum að hafa uppi á óskoðunum bflum, sem munu vera 7-8 þúsund. Morgunblaðið/Ingvar Skjót viðbrögð KJARTAN Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæð- handslökkvitæki og tókst að halda eldinum í skeijum isflokksins sýndi skjót viðbrögð er eldur kom upp í þar til lögregla og slökkvilið kom á staðinn. Bifreiðin bifreið á bílastæðinu við Valhöll, hús Sjálfstæðisflokks- er töluvert skemmd eftir brunann. ins, síðdegis á þriðjudag. Hann stökk út vopnaður litlu Kísiliðjan framleið- ir að nýju KÍSILIÐJAN við Mývatn mun hefja framleiðslu að nýju í lok vikunnar eftir rúmlega tveggja mánaða framleiðslu- stöðvun. Hagnaður varð af rekstri verksmiðjunnar á síð- asta ári. Kísiliðjan hætti framleiðslu kísilgúrs í desember vegna sölu- tregðu. í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að birgðastað- an sé nú að komast á viðunandi stig og því sé hægt að hefja framleiðslu að nýju. „Sala á þessu ári hefur verið í samræmi við áætlanir. Gert er ráð fyrir aukningu í sölu á þessu ári sam- anborið við fyrra ár,“ segir þar. Tæplega sex milljóna króna hagnaður varð af rekstri Kísil- iðjunnar á síðasta ári, eftir skatta. Heildarvelta félagsins á síðasta ári var 460 milljónir króna. Eiginfjárhlutfallið um áramót var rúm 96%. VEÐUR VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær aö ísl. tíma hitl veAur Akureyri 6 alskýjað Reykiavik 3 alskýjað Björgvin 4 þokumóða Helslnki 0 léttskýjað Kaupmannahöfn 0 þokumóða Narssarssuaq +4 skafrenningur Nuuk +13 léttskýjað Ósló +2 þokuruðningur Stokkhólmur 3 súld Þórshöfn 8 súld Algarve 17 hálfskýjað Amstertfam 3 þokumóða Barcelona 13 mistur Berlín 2 þokumóða Chicago vantar Feneyjar 8 þokumóða Frankfurt 2 þokumóða Glasgow 6 mistur Hamborg 1 súid London 0 mistur LosAngeles vantar Lúxemborg 0 þokumóða Madrkl 8 alskýjað Malaga 15 tkýjað Mallorca 14 skýjað Montreal vantar NewYork vantar Orlando vantar Parfa 4 þokumóða Madeira 17 iéttskýjað Róm 14 þokumóða Vfn 3 þokumóða Washington vantar Winnipeg vantar Veð heldur fram- kvæmdum áfram við Setbergshlíð UM 70 starfsmenn SH verktaka óskuðu eftir því að fá að mæta tii vinnu á þriðjudag og unnu þeir við ýmsan frágang á verkstöðum fyrirtækis- ins. Bústjórar þrotabúsins hafa ekki tekið ákvörðun um hvað verður um þau verk sem SH verktakar voru með. Framkvæmdir munu þó halda áfram við íbúðabyggðina í Setbergshlið í Hafnarfirði að sögn Péturs Blöndals stjórnarformanns Veðs hf., sem er fjármögnunarfyrir- tæki sem SH verktakar ásamt Pétri og fleiri aðilum stofnuðu sl. sumar til að sjá um verkefnisfjármögnun í Setbergshlíð. Pétur sagði að mikill misskilningur hefði verið f gangi um þetta fyrir- tæki og sagði hann það af og frá að með þessu hefðu fjármunir verið fluttir undan gjaldþroti SH verktaka. Veð hf. keypti eignir SH verktaka í Setbergshlíð skv. samningi 19. ág- úst, en SH verktakar eru stærsti hluthafínn í Veði hf. Hins vegar er nú ljóst sagði Pétur að Veð hf. hafí verið stofnað of seint til að það mætti bjarga SH verktökum frá gjaldþroti. 60 milb> greiddar Veð hf. var stofnað til að losa það fé sem SH verktakar höfðu bundið í framkvæmdunum í Setbergshlíð, alls um 200 milljónir, til að leysa lausafjárvanda verktakafyrirtækis- ins, að sögn Péturs. Staðgreiðsluverð var 125-135 milljónir en heildarverð 495 millj. kr. Höfðu safnast og verið greiddar um 60 milljónir króna í peningum vegna verkefnanna. Heildarumfang byggingarfram- kvæmdanna í Setbergshlíð var upp- haflega um 900 milljónir vegna byggingar 99 fbúða og höfðu þær að stórum hluta verið seldar áður en Veð hf. tók við. Veð hf. keypti 42 íbúðir og sex einbýlishúsalóðir og eru framkvæmdir mislangt á veg komnar en 14 íbúðir eru nær tilbún- ar og eru til sölu. Hundur í mönnum Eyjólfur Kristjánsson, sem var framkvæmdastjóri SH verktaka, sagði að það væri allt eins líklegt að leitað yrði til Hagvirkis-Kletts hf. um yfírtöku á verkum SH-verktaka. Eyjólfur sagði að það færi mikið eft- ir afstöðu verkkaupa hver yfírtæki verkin og auk þess væri mismikill fengur að verkunum. „Það er hundur í mönnum og ég heyri að þeir velta því upp að það er ekki sama hvort er SH verktakar eða EG á Bolungarvík. Einar Guð- fínnsson er í greiðslustöðvun fyrir vestan ogþeir ætla að reyna að bjóða 25% af kröfum. Þeir fá væntanlega greiðslustöðvun framlengt á föstu- dag. Þetta er það sama og við ætluð- um að gera en Héraðsdómur sló puttana á okkur. Samkvæmt þessu er ekki alveg sama réttarskipan fyr- ir vestan og hér,“ sagði Eyjólfur. ---- ♦ ♦ ♦------ Lyftara og tóbakí stolið ÝMSUM hlutum va.r stolið í inn- brotum í Reykjavík í vikunni, allt frá tóbakspökkum til vörulyftara. Þjófar sækja í geislaspilara og hafí þeir verið algengir í bílum, verð- ur svo varla mikið lengur, að sögn lögreglu. Þremur spilurum var stolið úr bílum á sama sólarhring. Tóbak og skiptimynt var tekið úr söluturni, þrjár myndavélar úr húsi fyrirtækis og vörulyftari frá öðru fyrirtæki. 0 Dragnótarbátar frá Oiafsvík afla vel Hörkufiskirí á Víkiiuii Ólafsvík. Dragnótabátar voru enn í hörkufiskiríi hér frammi á Víkinni í gær. Skipstjórarnir ákváðu síðdegis að hægja á köstun því ekki fékk hæsta verð fyrir fiskinn vegna þess að vart hefur orðið við los í holdi. Hugborg fékk um 18 tonn af þorski, Tindur var með 10 tonn í tveim köstum og Skálavík | 10 tonn í þrem. Bátarnir Friðrik Bergmann og Auðbjargirnar voru annars stað- ar að veiðum en komu þó með svipaðan afla og þeir bátar sem voru á Víkinni. Helgi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.