Morgunblaðið - 11.02.1993, Page 39

Morgunblaðið - 11.02.1993, Page 39
þau vöknuðu nefnilega snemma og það vissi ég. Mér var ávallt tekið opnum örmum og með brosi á vör. Nokkrar áhyggjur urðu þó vegna þessa tveggja ára polla sem fór sín- ar eigin leiðir til að komast í heim- sókn til ömmu og afa. Brugðið var á það ráð heimafyrir að setja hespu á hurðina til þess að ég færi ekki í heimsókn án eftirlits, en þá skreið ég bara út um gluggann og fór í heimsókn til afa og ömmu eins og áður. Samband okkar afa var náið og dvaldi ég mikið hjá honum í næsta húsi. Þar sem ég er nafni hans afa, þurfti að aðgreina okkur þegar kall- að var til okkar. Amma kallaði hann „Villi pabbi“ en mig „Villi litli“. Hann ákvað fljótlega að það nafn væri ekki’ nógu íburðarmikið og kall- aði afi mig því ,junior“. Afi varð þeirra hlunninda aðnjót- andi að setjast snemma í helgan stein. En hann hafði þó nóg að gera og átti oft annríkt. Hann átti stóran garð, var mikill garðyrkjumaður og var framarlega í því áhugamáli, enda bera bikarar og aðrar viðurkenning- ar vitni um það. Hann tók gjarnan myndir af blómunum sínum á lit- skyggur og á veturna var gjarnan haldin myndasýning, þar sem allir fjölskyldumeðlimir voru viðstaddir. Þegar ég varð eldri fól hann mér það ábyrgðarmikla starf að stjórna sýningarvélinni á meðan hann skýrði út myndirnar. Afi var einnig mikill smiður. Hann lærði húsgagnasmíði í iðnskólanum strax og hann fluttist til Reykjavík- ur, þá ungur að árum. Hann stofn- aði Kassagerð Reykjavíkur ásamt félaga sínum og í byijun framleiddu þeir trékassa og fyrirtækið stækkaði og dafnaði. Hann var framkvæmda- stjóri þar í 28 ár áður en hann hætti. En afi hætti ekkert að smíða. Á vetuma var hann gjarnan í bílskúrn- um og smíðaði. Eg sá strax að hann var listamaður og afar vandvirkur við smíðarnar. Afi var kröfuharður maður, afar nákvæmur og vandvirk- ur við allt sem hann gerði og þoldi hann engum fúsk. Afi var mikill fjölskyldumaður. Eitt af því skemmtilegasta sem ég man eftir var þegar hann og amma héldu hóf. Þá mættu allir í fjölskyld- unni, börn og nokkrir góðir vinir þeirra. Þá var kátt á hjalla og nóg af góðgæti á boðstólum. Stundum á sumrin hóaði hann fjölskyldunni saman ásamt vinum, leigði rútubíl og síðan var bmnað af stað og farin var „fjölskylduferð“. Afí hafði unun af því að ferðast og skoða landið, það mátti sjá á lit- skyggnunum sem við skoðuðum ásamt blómamyndunum á veturna. í mínum huga var afi mikil- menni. Hvar sem við komum var honum tekið með virktum eins og kónginum sjálfum. Meira að segja fékk ég að fljóta með í virktum þeg- ar fólk komst að því hverra manna ég var. Hann var greinilega vel þekktur af ótrúlegum fjölda fólks og fólk bar mikla virðingu fyrir hon- um. Afi var trúaður maður og það er amma líka. Þau sóttu ávallt kirkju á sunnudögum á meðan heilsan leyfði. Afi var framarlega í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, líka í kirkjumálum. Hann lét sér ekki bara nægja að sitja í guðshúsi eins og margir aðrir, heldur gerðist hann formaður byggingarnefndar Lang- holtskirkju og byggði guðshús, þannig maður var hann. En aldurinn færðist yfir, og afi fór sjaldnar út í garð að vinna og hann hætti að smíða. Þess í stað Iét hann sér nægja að lesa og finnst mér hann hafa lesið stanslaust síð- ustu árin, í stólnum í bókaherberg- inu. Þótt hann hafi tapað heilsu síð- ustu æviárin, þá tapaði hann aldrei brosinu og glaðværu viðmótinu þeg- ar ég leit inn. Nú er afi farinn til betri heims. Mér finnst að hann hafi verið lukku- legur og dáið saddur lífdaga, sáttur við allt og alla. En hann er þó ekki farinn úr huga og hjarta mínu og verður hann þar eilífur, svo lengi sem ég lifi. Elsku amma, mamma, Hilmar, Valdís, Bjarni og fjölskyldur. Eg bið Guð að styrkja ykkur og varðveita á þessari erfiðu stundu og blessuð sé minning afa míns. Vilhjálmur Hall- grímsson ,junior“. seet HAOaaan .ti auoAáuTMMi'i aiaAjaviuoaoM _______________________________________ 88 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1993 w ^ + Útför sonar mins og bróður okkar, AGNARS HELGA VIGFÚSSONAR frá Hólum íHjaltadal, sem andaðist í Landspítalanum þann 3. febrúar sl., fer fram frá Sauðarkrókskirkju mánudaginn 15. febrúar kl. 13.30. Jarðsett verður í Hólakirkjugarði. Kveðjuathöfn fer fram í Háteigskirkju föstudaginn 12. febrúar kl. 10.30. x Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag íslands eða Hjarta- vernd. Helga Helgadóttir og systkini hins látna Ástkær móðir okkar, BIRNA HELGA JÓHANNESDÓTTIR, Suðurgötu 35, Keflavfk, lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur þann 9. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda, Eiríkur Ellertsson, Jóhannes Ellertsson, Elva Ellertsdóttir. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR MAGNÚSSON húsasmíðameistari, Dalbraut 20, sem lést 2. febrúar, verður jarðsunginn föstudaginn 12. febrúar kl. 13.30 frá Langholtskirkju. Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Langholts- kirkju. Helga Á. Guðmundsdóttir, Ólafur A. Ólafsson, María Gísladóttir, Katrfn G. Ólafsdóttir, Bragi Magnússon, Sólveig G. Ólafsdóttir, Haraldur Tyrfingsson, María M. Ólafsdóttir, Márus Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SVANHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Laufási, Borgarfirði eystri, lést í Landspítalanum þriðjudaginn 9. febrúar. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Bróðir minn og mágur, INGVAR GUNNLAUGSSON bóndi, Syðra-Kolugili, Víðidal, lést 9. febrúar í Sjúkrahúsi Akraness. Fyrir hönd annarra vandamanna, Ása Gunnlaugsdóttir, Ragnar Guðmundsson. + Elskulegur sonur minn og bróðir okkar, ÓLAFUR GUÐJÓN FRIÐFINNSSON, Yrsufelli 13, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 12. febrúar kl. 15.00. Friðfinnur Guðjónsson, Sævar Friðfinnsson, Hörður Friðfinnsson, Garðar Friðfinnsson, Viðar Friðfinnsson, Jökull Friðfinnsson, Rut Friðfinnsdóttir, Björk Friðfinnsdóttir og aðrir aðstandendur. + Systir mín, SVALA HANNESDÓTTIR, er látin. Útförin hefur farið fram. Þakka auðsýnda samúð. Inga Hannesdóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KLARA GESTSDÓTTIR, er lést á heimili sínu fimmtudaginn 4. febrúar, verður jarðsungin frá Akur- eyrarkirkju föstudaginn 12. febrúar kl. 13.30. Fyrir hönd ættingja og vina, Björn Gunnarsson, Birna K. Björnsdóttir, Jóhann Þ. Þórisson, Ragna Á. Björnsdóttir, Birgir Ingólfsson, Áshildur E. Björnsdóttir, Bjarni Kristmundsson, Björn H. Björnsson, Gestur G. Björnsson, Aðalheiður H. Björnsdóttir og barnabörn. + Móðir okkar, KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, andaðist á heimili sínu, Drápuhlíð 20, Reykjavík. Útförin hefur farið fram. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, MAGNEA ÓSK KRISTVINSDÓTTIR, áðurtil heimilis í Sólheimum 23, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 12. febrúar kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Synir, tengdadætur og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför JÓHANNESAR JÓSEFSSONAR, Skálarhlíð, Siglufirði. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, Unnur Helgadóttir, Magðalena B. Jóhannesdóttir, Harpa Jóhannesdóttir Möller. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför dóttur minnar og systur okkar, AUÐAR SAMÚELSDÓTTUR, Hellisgötu 16, Hafnarfirði. Margrét Hannesdóttir, og systkini hinnar látnu. + Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, BJARKAR JÓNASDÓTTUR, Lækjarbergi 25, Hafnarfirði. Stefán Jónsson, Jónas Stefánsson, Ragnheiður Þorsteinsdóttir og barnabörn. + Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, FANNEYJAR DAGMAR KRISTJÁNSDÓTTUR frá Álfsnesi, Grettisgötu 94, Reykjavik. FriðrikG. Jónsson, Baldur Friðriksson, Selma P. Jónsdóttir, Sigurður Kr. Friðriksson, Unnur Færseth, Hildur Jóna Friðriksdóttir, Sigfús Örn Árnason, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.